Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
23
Samstaða ríkir í ísrael um
afstöðuna til Jerúsalem, en öðru
máli gegnir um afstöðuna til
herteknu svæðanna og nýbyggð-
anna. Eftir að svæðin voru tekin,
leyfði stjórn Verkamannaflokks-
ins nokkrar nýbyggðir og sagði
þær reistar með öryggi ísraels í
huga. Frá þeim var hægt að
fylgjast með ferðum í nágranna-
löndunum og bregðast fyrr við
skyndiárásum óvinaherja.
Mun fleiri nýbyggðir voru leyfð-
ar, eftir að hægri stjórn Begins
tók við 1977. Hann vitnaði til
Gamla testamentisins í rökfærslu
sinni og sagði, að gyðingar hefðu
rétt frá Guði til að byggja allt
svæðið frá Miðjarðarhafi að bökk-
um árinnar Jórdan. Röksemdir
hans féllu hvorki í góðan jarðveg í
Evrópu né meðal bandarískra gyð-
inga, og undanfarið hefur hann
gert minna úr þeim og lagt
áherzlu á öryggi Israels eins og
Verkamannaflokkurinn gerði.
Israelsmenn, sem eru andvígir
nýbyggðunum, benda á, að íbúar
nýbyggða á Golan-hæðum voru
fluttir á öruggan stað strax og
ófriður brauzt út 1973. Þeir segja,
að herinn þurfi fyrst að bjarga lífi
ísraelsmanna utan við landamæri
ísraels, áður en hann getur tekizt
á við her óvinanna, ef nýbyggðir
eru leyfðar. Palestínumenn óttast,
að nýbyggðirnar eigi í framtíð-
inni, ef til frekari skiptingar
Palestínu kemur, að þjóna sama
tilgangi og upphaflegar nýbyggðir
gyðinga við stofnun Israels á 5.
áratugnum. Oft er sagt, að arabar
vilji hrekja Israelsmenn út í
Miðjarðarhafið, en Palestínubúar
óttast, að ísraelsmenn vilji hrekja
þá inn í eyðimörkina.
Verkamannaflokkur ísraels-
manna vill semja við Hussein
Jórdaníukonung um skiptingu
vesturbakkans. Bandaríkin hafa
talið það góða hugmynd. En kyn-
slóðaskipti hafa átt sér stað á
vesturbakkanum síðan ísrael tók
svæðið frá Jórdaníu fyrir 13 árum.
Nýir leiðtogar líta á Frelsissam-
tök Palestínumanna, PLO, sem
málsvara sinn, en ekki Jórdaníu-
konung og vilja sjálfstæði svæðis-
ins. Hvorki Israelsmenn né
Bandaríkjamenn hafa viðurkennt
PLO sem stjórnmálasamtök, held-
ur kallað þau samtök hryðju-
verkamanna.
Friðarviðræður og
kosningabaráttan
í Bandarikjunum
Jimmy Carter er mjög hreykinn
af sínum hlut í gerð Camp David-
samningsins. Samningurinn leiddi
til friðarsáttmála milli Egypta-
lands og ísraels. ísraelsmenn
hurfu frá Sinai-skaganum eftir
undirritun samningsins, löndin
skiptust á sendiherrum og eðlileg
samskipti milli landanna hófust.
En viðræðum um herteknu svæðin
og Jerúsalem var slegið á frest.
í Camp David gerðu Sadat og
Begin grein fyrir skoðunum sín-
um, og munurinn milli þeirra
virðist oft vera óyfirstíganlegur.
Sadat sagði, að ísraelsmenn ættu
að hverfa frá herteknu svæðunum
og Austur-Jerúsalem á fimm ár-
um, eftir að samningar tækjust,
og herstjórnir í Gaza og á vestur-
bakkanum ættu að leggjast niður.
Fulltrúar ísraels, Jórdaníu og
Egyptalands ættu að fara með
stjórn á svæðinu í 5 ár, en að þeim
loknum myndu Palestínumenn
ákveða sjálfir um framtíð sína.
Þeir fengju rétt til að gefa út
vegabréf og mættu hverfa heim
frá útlegð í nágrannalöndum ísra-
el. Egyptar og Jórdaníumenn
myndu tryggja öryggi ísraels.
Begin var sammála um lengd
umþóttunartímans, en fátt annað.
Hann taldi, að ísrael ætti að halda
rétti sínum til að hafa yfirumsjón
með svæðinu, en fulltrúar Pale-
stínumanna og Jórdaníu yrðu
meðstjórnendur. Eftir 5 ár yrði
samið um sjálfsstjórn Paiestínu-
manna. Begin taldi nýbyggðirnar
eiga fullan rétt á sér og Jerúsalem
ætti að vera óskipt undir stjórn
ísraelsmanna. Löggæzla og örygg-
iseftirlit á svæðinu yrði í höndum
ísraelsmanna, en fulltrúar Araba-
landanna og ísraels myndu ákveða
reglur um flutninga flóttamanna
aftur til svæðisins.
Þegar fréttir bárust af sam-
þykki Sadats til að setjast aftur að
samningaborði, þótti mörgum það
hljóma sem kosningabrella úr
herbúðum Carters, en Linowitz
hefur þvertekið fyrir það.
Samningaviðræður geta hjálpað
Carter mjög í kosningunum. Sama
dag og fréttirnar bárust, ávarpaði
Ronald Reagan, frambjóðandi
Repúblikana ársþing B’nai B’rith
gyðingahreyfingarinnar í Banda-
ríkjunum, og næsta dag ávörpuðu
John Anderson og Carter þingið.
Gyðingar hafa löngum skipt veru-
legu máli fyrir Demókrata í kosn-
ingum í Bandaríkjunum. Þeir eru
ekki alls kostar ánægðir með
frammistöðu stjórnar Carters og
þykir hann heldur hallur undir
araba. Þeir hallast margir að
Anderson. Hann heimsótti Israel í
sumar sem leið, og sagðist vera
ósammála Carter um, að nýbyggð-
irnar stæðu í vegi fyrir friðar-
samningum, og sagði, að Jerúsal-
em ætti að vera óskipt undir
stjórn ísraelsmanna.
Reagan hefur gagnrýnt utanrík-
isstefnu Carters harðlega í kosn-
ingabaráttunni. Hann sagði í
ræðu sinni hjá B’nai B’rith, að
öryggi ísraels væri mikilvægt
fyrir frið í heiminum öllum. Það
væri hernaðarlega mjög mikil-
vægt fyrir Bandarkin og hefði
reynzt þeim áreiðanlegur vinur,
sem ekki væri hægt að segja um
Bandaríkin í stjórnartíð Carters.
Reagan lofaði aðstoð við ísrael i
efnahags- og varnarmálum og
gagnrýndi sölu hervopna til
Saudi-Arabíu, Jórdaníu og íraks
undir stjórn Carters.
Reagan sagði, að Begin og Sadat
hefðu átt upptökin að gerð Camp
David-samningsins. Hann sagði,
að ekki mætti ganga að hverju
sem er aðeins til að ná samkomu-
lagi. Hann sagði, að Jórdaníu-
menn og ísraelsmenn ættu að
semja sín á milli um vesturbakk-
ann, og ísraelski herinn ætti ekki
að hverfa þaðan, fyrr en Jórdanía
og aðrar nágrannaþjóðir hefðu
lofað friði. Reagan sagði, að Jerús-
alem ætti að vera óskipt og opin
öllum. Hann sagðist ekki vera
sannfærður um, að Palestínumenn
litu á PLO sem málsvara sinn. Það
væru samtök hryðjuverkamanna,
sem ekki ætti að viðurkenna, fyrr
en þau hefðu viðurkennt réttmæti
ísraels.
Anderson sagðist í ræðu sinni
ávallt hafa verið mikill stuðnings-
maður ísraels og benti á 25 ára
starfsferil í fulltrúadeild banda-
ríska þingsins. Hann sagðist vona,
að Camp David-samningurinn
myndi reynast undirstaða friðar í
Miðausturlöndum og ibúar vestur-
bakkans og Gaza fyndu leið til
þátttöku í gerð samninganna.
Hann gagnrýndi óáreiðaniega
stefnu Carters, sem hreykti sér af
stuðningi við Israel í öðru orðinu,
en seldi óvinum þess herbúnað í
hinu. Anderson sagði, að vanda-
málin fyrir botni Miðjarðarhafs
yrðu ekki leyst, fyrr en Bandríkin
hefðu mótað orkustefnu, sem
myndi leysa þau úr ánauð olíuríkj-
anna.
Carter sagði í ræðu sinni til
þingsins, að það væri jafnmikið
hagsmunamál Bandaríkjamanna
og Israelsmanna, að stefna stjórn-
ar hans hefði hjálpað til að stuðla
að friði í ísrael í fyrsta sinn í 32
ára sögu þess. Hann sagði, að
framhaldsviðræður Camp David-
samninganna yrðu ekki auðveldar,
en stuðningur stjórnar hans við
ísrael myndi aldrei bresta.
Carter sagðist vera andvígur
stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu-
búa. Hann myndi ekki viðurkenna
PLO, fyrr en samtökin hefðu
viðurkennt rétt ísraels. Hann vill,
að Jerúsalem verði ávallt óskipt
borg, og vonast til, að samkomu-
lag náist um það. Hann sagði, að
samningaviðræður væru eina leið-
in að friði, og stjórn hans hefði
fylgt þeirri leið hingað til og
myndi gera svo í framtíðinni.
ab
FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn hefur i ár haldið upp á 25 ára aímæli
sitt með margs konar veizluhöldum og stórhátiðum innanlands og
utan, en þá er eftir rúsínan i pylsuendanum, þvi sjálf afmælisferðin
er eftir, 16 daga ferð til Mexico-borgar og hins heimsfræga
baðstaðar. Acapulco á Kyrrahafsströndinni. Verður þetta fjölmenn-
asti hópur tslendinga, sem farið hefur á þessar fjarlægu en framandi
og forvitnilegu slóðir til þessa, en á annað hundrað manns hafa nú
þegar pantað í ferðina, sem hefst 8. nóvember næstkomandi.
Flogið verður með Boeing-þotu
Arnarflugs, sem bíður eftir hópn-
um allan tímann og flytur farþeg-
ana til baka beint frá Acapulco, og
er komið til Keflavíkur aftur að
morgni mánudagsins 24. nóvem-
ber.
Regntímanum í þessum heims-
hluta lýkur í lok september, og í
nóvember er veðrið hið ákjósan-
legasta, sólríkt, þurrt og hæfilega
heitt eða um 30 stig í Acapulco en
nokkru kaldara uppi á hásléttunni.
Fyrir margra hluta sakir þykir
Mexico eitt áhugaverðasta ferða-
mannaland heimsins. Dvalizt verð-
ur 3 daga í höfuðborginni Mexico,
sem er í 2.240 m hæð yfir sjávar-
máli, 9 milljón manna glæsileg
heimsborg með breiðstrætum og
skýjakljúfum, iðandi af mannlífi
og ein kraftmesta og þéttbýlasta
borg á meginlandi Ameríku. Gist
vetður á einu glæsilegasta hótel-
inu, FIESTA PALACE í sjálfri
miðborginni við hið svonefnda
„Zona rosa-hverfi“ þar sem er
miðstöð viðskiptalífsins á daginn
og skemmtana á kvöldin. Kynnis-
ferðir verða bæði um borgina og
nágrenni hennar, t.d. til pýra-
mídanna frægu við Teotihuacan.
Að dvölinni í Mexico-borg lok-
inni verður haldið landleiðina til
Acapulco, en það er um 6 stunda
akstur. Gefur sú leið góða mynd af
mexikönsku landslagi og þjóðlífi.
Á leiðinni verður einnig stanzað í
hinni frægu silfurnámuborg,
TAXCO, í sérkennilegu, fögru
landslagi með litríkum gróðri og
fallegum húsum í dæmigerðum
mexikönskum nýlendustíl, þar sem
m.a. hús þýzka náttúrufræðingsins
fræga, Von Humbolts, er til sýnis.
Acapulco stendur við samnefnd-
an flóa í skjóli fagurs fjallahrings,
þar sem bláar öldur Kyrrahafsins
brotna á pálmum skrýddri strönd-
inni. Dvalizt verður á lúxushótel-
inu LA PALAPA í 12 daga og fá
allir þátttakendur stórar hótelsvít-
ur til umráða. Tekið verður á móti
hópnum með veizluhöldum, og
kvöldið fyrir brottför að lokinni 12
daga dvöl verður efnt til mikillar
garðveizlu í mexikönskum stíl —
FIESTA. Hótelið stendur í feg-
ursta umhverfi við ströndina, um-
lukt stórum garði með hitabeltis-
gróðri, sundlaugum, börum og
matsölustöðum, en alls eru 5 veit-
ingahús innan hótelsins auk fjölda
alþjóðlegra matsölustaða á næsta
leiti.
Acapulco býður upp á rólega,
sólríka hvíldardvöl í unaðslegu
umhverfi, en einnig alla fjöl-
breytni skemmtanalífsins, fyrir þá
sem þess óska. Acapulco Centro er
glæsileg veitinga- og skemmtana-
miðstöð, þar sem á hverju kvöldi er
völ á þjóðlegum og alþjóðlegum
skemmtiatriðum í bezta gæða-
flokki. Aðstaða er einnig hin bezta
til hvers konar sjávarsports og til
að leika tennis og golf. Boðið
verður upp á lystisiglingu um
Acapulco-flóann.
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri
Útsýnar, er sjálfur nýkominn heim
frá Mexico og hefur lagt síðustu
hönd á undirbúning ferðarinnar og
gert alla samninga þar að lútandi.
Verð ferðarinnar er ótrúlega lágt,
eða litlu hærra en á venjulegum
sólarlandaferðum, en nú er aðeins
fáum sætum óráðstafað í þessa
ævintýralegu ferð, sem er loka-
þáttur í hátíðahöldum í tilefni 25
ára afmælis Útsýnar.
(Fróttatilky nninK)
La Palapa-lúxushótelið i Acapulco. þar sem þátttakendur í afmælisferð Utsýnar munu búa i
nýtízkulegum hótelsvitum.
Ferðaskrifstofan Útsýn:
Af mælisf erð til Mexico-
borgar og Acapulco
"vaWsK tívfow, 5ÝA//sr tfÉK"