Morgunblaðið - 26.09.1980, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
Úr einni af myndroðum þeim. sem GuOrún Trygíívadóttir sýnir i
Djúpinu.
Guðrún Tryggvadótt-
ir sýnir i Djúpinu
Á MORGUN. lauKardax. kl. 15.00. opnar Guórún Tryggvadóttir
sýnintju í Djúpinu í Hafnarstræti. Þar sýnir hún ljósmynda- og
ljósritaraðir scm hún hefur unnið út frá ákveðnu tema með
mismunandi Ijósta kni. Þetta er fyrsta einkasýning Guðrúnar og
er ekki sölusýning.
Guðrún Tryggvadóttir stundaði nám í Myndlista- og handíða-
skólanum 1974—78, í Ecole des Beaux Arts í París 1978—79 og er
nýkomin heim frá Múnchen, þar sem hún er nú við nám í Akademie
der Bildenden Kúnste.
— Á þessari sýningu er í rauninni aðeins eitt verk, sagði Guðrún.
— Það samanstendur af nokkrum myndröðum, sem unnar eru út
frá ákveðnu orði og merkingu þess.
Dagblaðið Vísir:
Mótmælir harðlega „pólitísku
ofbeldi44 bókagerðarmanna
STJÓRNARFORMAÐUR og framkvæmdastjóri daghlaðsins Vísis
sendu í gær frá sér fréttatilkynningu og bréf, sem fyrr um daginn
hafði verið sent b<>kagerðarfélögunum, þar sem þeir mótmæla
harðlega „því pólitíska ofbeldi“, sem forystumenn Ilins íslenzka
prentarafélags og Grafíska sveinafélagsins hafi bcitt undanfarna
daga til þess að hindra útgáfu á töluhlaði Vísis, sem koma átti út í
gær. Þess má geta, að framkvæmdastjórn Morgunbiaðsins sendi
einnig í fyrradag harðorð mótmæli til HÍP og áskildi sér allan rétt til
bóta vegna verkhindrana i prentsmiðju blaðsins.
Norræni menningarmálasjóðurinn:
150 millj. úthlutað
Á FUNDI Norræna menn-
inRarmálasjóðsins, sem að
þessu sinni var haldinn i
Nuuk á Grænlandi íyrr í
þessum mánuði, var út-
hlutað 150 milljónum
króna til ýmissa norrænna
menningarmála.
Meðal þessara styrkja voru 20
milijónir (200.000 dkr) veittar til
Þjóðminjasafns Islands, Árbaejar-
safns og þjóðminjasafna í Færeyj-
um og Grænlandi, til fundahalds
og gagnkvæmnrar kynningar og
samvinnu, 2 milljónir til annars
norræna heimspekiþingsins, sem
haldið verður í Háskóla íslands.
Steinunni Ingimundardóttur, fyrir
hönd Hússtjórnarskólans á
Varmalandi, voru veittar 4 millj-
ónir til námskeiðs um neytenda-
mál, sem haldið verður í fyrsta
sinn á íslandi nú og verður það á
Akureyri á næsta ári. Stéttarfélag
íslenzkra félagsráðgjafa fékk 1,5
milljónir til norrænnar félags-
samvinnu. Auk þessa má nefna að
grænlenzka landsstjórnin fékk 25
milljónir til að skrifa sögu Græn-
lands.
Stéttarfélög í
Luxemborg vilja
flug Flugleiða
ÞAU verkalýðsfélög sem
eiga hagsmuna að gæta í
Luxemborg vegna rekstrar
Flugleiða þar héldu fund í
gær þar sem samþykkt var
áskorun á Flugleiðir að
halda áfram flugi yfir
Norður-Atlantshaf frá
Luxemborg. Þá var einnig
rætt um félagsleg mál
starfsfólksins og atvinnu-
öryggi, en þar kom fram að
uppsagnir starfsfólks séu
eðlilegar ef samdráttur er í
rekstri, en hins vegar sé
eðlilegt að slíkt komi fram
með nokkrum fyrirvara.
Hér fer á eftir fréttatilkynning
Harðar Einarssonar, stjórnar-
formanns Reykjaprents og Davíðs
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjórat ásamt bréfi því, sem sent
var HIP og GS í gær:
„Nú í dag hafa pressumenn í
Blaðaprenti hf. neitað að vinna í
almennum dagvinnutíma sínum
að prentun sérstaks tölublaðs Vís-
is, sem koma átti út í dag, og var
þessi synjun gerð í samráði við
fyrirsvarsmenn prentarasamtak-
anna. Undanfarna daga hafa
fyrirsvarsmenn prentarasamtak-
anna látið starfsfólk Blaðaprents
hf. neita annarri vinnu við umrætt
blað, sem það sjálft hafði hafið
vinnu við um síðustu helgi. Var
því látið vinna að setningu, um-
broti, ljósmyndun og plötugerð
fyrir útgáfu blaðsins í öðrum
prentsmiðjum, þannig að það yrði
tilbúið til prentunar í prentvél
Blaðaprents hf. á fyrirfram
ákveðnum tíma, þ.e. eftir hádegi í
dag.
Allt þetta atferli teljum við
mjög alvarlegt samningsbrot, þar
sem um hefur verið að ræða
vinnustöðvun í marga daga fyrir
boðaða vinnustöðvun, sem á að
hefjast á morgun, föstudag. Þegar
svo á það er litið að auki, að á
sama tíma og stöðvuð var vinnsla
á Vísi, var lokið við vinnslu allt að
pressu á sérstöku aukablaði Þjóð-
viljans, sem ekki á að koma út fyrr
en á föstudag. Verður það berlega
Ijóst, að hér er um að ræða
pólitíska ofsóknaraðgerð þeirra
öfgaafla, sem ráða lögum og lofum
í stéttarsamtökum prentara gegn
frjálsum fjölmiðli, sem þau vilja
koma höggi á. Feta fyrirsvars-
menn íslenzkra prentara hér í
fótspor pólitískra ofstækismanna
í nokkrum nágrannalöndum
okkar, sem á undanförnum árum
hafa lagt í einelti frjáls, borgara-
leg dagblöð, sem þeir hafa talið
standa í vegi fyrir skoðanakúgun-
artilraunum þeirra. í eðli sínu er
þessum aðgerðum því ekki ein-
göngu beitt gegn þeim dagblöðum,
sem fyrir þeim verða á hverjum
tíma, heldur gegn sjálfu prent-
frelsinu og frjálsri skoðanamynd-
un í landinu.
Með bréfi til Hins íslenzka
prentarafélags og Grafíska
sveinafélagsins, sem sent var í
morgun, mótmælti Reykjaprent
hf. útgáfufélag Vísis, harðlega því
pólitísa ofbeldi, sem forystumenn
nefndra félaga hafa beitt undan-
farna daga til þess að hindra
útgáfu á því tölublaði Vísis, sem
hér um ræðir. Jafnframt var þess
krafizt, að félögin sæju til þess, að
prentun blaðsins færi fram með
eðlilegum hætti í dag, enda lá
blaðið fyrir fullunnið að öðru leyti
en því, að sjálf prentun þess var
eftir.
Ekkert svar hefur borizt frá
félögunum, nema í verki, þar sem
prentun blaðsins var ólöglega
stöðvuð.
Hjálagt fylgir afrit af sam-
hljóða bréfi, sem í morgun var
sent Hinu íslenzka prentarafélagi
og Grafíska sveinafélaginu.
F.h. Reykjaprents hf.,
Hörður Einarsson
stjórnarformaður.
Davíð Guðmundsson
framkvæmdastjóri.
Fyrir hönd Reykjaprents hf.,
útgáfufélags Vísis, mótmælum við
undirritaðir harðlega því ofbeldi,
sem forystumenn félaga bóka-
gerðarmanna hafa beitt undan-
farna daga til þess að hindra
útgáfu á sérstöku tölublaði Vísis,
sem koma á út í dag. Þessar
ofbeldisaðgerðir hafa leitt til þess,
að við höfum að verulegu leyti
orðið að láta vinna umrætt tölu-
blað Vísis utan Blaðaprents hf.
með tilheyrandi aukakostnaði, til
þess að það geti verið tilbúið til
prentunar á fyrirfram ákveðnum
tíma upp úr hádegi í dag. Á sama
tíma og brugðið hefur verið fæti
fyrir eðlilega vinnslu Vísis hefur
verið unnið í prentsmiðju
Blaðaprents hf. að vinnslu sér-
staks aukablaðs fyrir Þjóðviljann,
sem koma á út eftir að umrætt
tölublað Vísis á að koma út, þ.e. á
föstudag 26. september nk., sbr.
Handknattleikur — Handknattleikur — Handknattleikur
N0REGUR
Landsleikir í Laugardalshöll
Laugardaginn 27.9. kl. 15.00
Sunnudaginn 28.9. kl. 20.00
Markmiðiö er sigur
Áfram ísland
Miöaverö:
Sæti: 4.000
Stæöi: 3.000
Börn: 1.000
. QUALITY
k. ' -V á
Lands-
liðið
leikur
Hafóu samband EIMSKIP *
SIMI 27100
auglýsingu í Þjóðviljanum í dag.
Þessi vinnubrögð staðfesta endan-
lega þá skoðun okkar, að hér sé
um að ræða purkunarlausar póli-
tískar ofsóknir gegn Vísi, aðför að
prentfrelsinu í landinu og alveg
sérstaklega aðför að Vísi sem
frjálsu dagblaði í andstöðu við þau
pólitísku öfgaöfl, sem sýnilega
stjórna aðgerðum félaga bóka-
gerðarmanna.
Nú hefur okkur borizt til eyrna,
að til viðbótar fyrri ofbeldisað-
gerðum sé ætlunin að stöðva
prentun þessa tölublaðs Vísis eftir
hádegi í' dag, löngu áður en boðað
verkfall á að koma til fram-
kvæmda. Reynist þetta rétt, er hér
um að ræða mjög alvarlegt brot,
sem hlýtur að hafa hinar alvar-
legustu afleiðingar í öílum sam-
skiptum Vísis og félaga bókagerð-
armanna. Er það því afdráttar-
laus krafa okkar, að þér sjáið til
þess, að sú prentun Vísis, sem hér
um ræðir, fari fram með eðlilegum
hætti í dag.
Að sjálfsögðu áskiljum við
okkur allan rétt til skaðabóta
vegna allra ólögmætra aðgerða.
Fyrir hönd Reykjaprents hf.,
Hörður Einarsson,
Davíð Guðmundsson.
Perusala Lions-
klúbbs Hafnar-
fjarðarámorgun
FÉLAGAR úr Lionsklúbbi
Hafnarfjarðar munu á morg-
un, laugardaginn 27. septeml>
er, knýja á dyr Hafnfirðinga í
hinni árlegu perusölu og
bjóða þeim að styrkja starf-
semi klúbbsins að mannúð-
armálum.
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar
hefur undanfarin ár styrkt
sjúka og aldraða, t.d. með
lækningatækjum, og hafa m.a.
gefið tæki á St. Jósefsspítala
og litasjónvarp á elli- og hjúkr-
unarheimilin Sólvang og
Hrafnistu og hafa bæjarbúar
aðstoðað klúbbinn í þessu
starfi. Einnig hefur klúbburinn
styrkt starfsemi deildar fyrir
þroskahefta á barnaheimilinu
Víðivöllum.
Óðal feðranna
endursýnt
I DAG hefjast endursýningar á
kvikmyndinni Óðali feðranna.
Laugarásbíó sýnir myndina á
öllum sýningum fram á föstu-
dag 3. október. Á Akureyri
verður myndin sýnd í dag og á
sunnudaginn og í Vestmanna-
eyjum á sunnudag. Þegar hafa
um 70 þúsund manns séð
myndina.
Merkjasala hjá
Sjálfsbjörg
Merkjasöludagur Sjálfs-
bjargar er á sunnudaginn, og
jafnframt verður þá boðið til
sölu blað Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra. Allur ágóði
af merkja- og blaðasölunni
rennur til þeirra málefna er
Sjálfsbjörg beitir sér fyrir, svo
sem byggingu sundlaugar
Sjálfsbjargar, en nú er rúm-
lega eitt ár síðan framkvæmdir
hófust.
Afhenti forseta
ísraels trúnaðar-
bréf
HINN 23. september síðastlið-
inn, afhenti Einar Ágústsson,
sendiherra, Yitzhak Navon,
forseta ísraels, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra, með að-
setri í Kaupmannahöfn.