Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 27

Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 27 Ljósm. AS. FRAMKVÆMDIR eru hafnar við tengibrautina, sem liggja mun frá Stekkjarbakka niður á Reykjanesbraut eða Breiðholtsbraut öðru nafni. Er þarna um að ræða stytztu leið frá Reykjanesbraut upp í Hólahverfi í Breiðholti. 200 ára afmæli Landakirkju: Hátíðarguðsþjón- usta, orgeltónleik- ar og kirkjusaga HÉRAÐSFUNDUR Kjalarnes- prófastsda'mis verður haldinn í Vestmannaeyjum nk. iaugardag og sunnudag í tilefni af 200 ára afmæli Landakirkju. Klukkan 5 á laugardagseftirmiðdag verða haldnir orgeihljómleikar í Landakirkju, en þar mun Jenni- fer Batcs frá Bretlandi leika á orgelið. Að loknum hljómleikun- um mun Ólafur Gunnarsson vcrkfræðingur flytja ágrip af sogu Landakirkju. en faðir hans. Jóhann Gunnar Ólafsson fyrrvcr- andi bæjarfógeti, hafði nýlokið við að rita sögu Landakirkju þegar hann féll frá. Klukkan 10.30 á sunnudag verð- ur hátíðarguðsþjónusta í Landa- kirkju þar sem séra Jóhann S. Hlíðar mun prédika en hann var prestur Eyjaskeggja um langt Mistök EINS og lesendur hafa séð við lestur minningagreina um bórð Gislason sveitarstjóra á bls. 30 í blaðinu í gær, féll niður línan. sem benti á fram- hald á bls. 38. — Þeim. sem ckki hafa áttað sig á þessu, er vinsamlega bent á að hafa þetta i huga við lestur minn- ingargreinanna. — Blaðið biður aðstandendur og aðra sem hlut eiga að máli afsökun- ar á þessum mistökum. árabil, en er nú prestur í Kaup- mannahöfn. Þar munu Bragi Frið- riksson prófastur og séra Kjartan Örn Eyjaklerkur aðstoða við guðs- þjónustuna, en kór Landakirkju syngur undir stjórn Guðmundar H. Guðjónssonar. Góðaksturs- keppni í Reykjavík REYKJAVÍKURDEILD Bindind isfélags ökumanna efnir næsta laugardag til góðaksturskeppni í Reykjavík. Verður ekið vitt og breitt um borgina og lagðar ýmsar þrautir fyrir keppendur á leiðinni. Lýkur keppni á malbik- aða svæðinu við Laugardalsvöll- inn og þar verða einnig lagðar ýmsar þrautir fyrir keppendur, sem reyna á ökuleikni. Tilgangur BFÖ með góðakstri sem þessum er að hvetja ökumenn til góðra aksturshátta og efla þekkingu þeirra á bílum sínum og umferðarreglum, jafnframt því sem þeir taka þátt í skemmtileg- um leik, segir í frétt frá BFÖ. Vonast félagið jafnframt til að keppni sem þessi hvetji menn almennt til umhugsunar um um- ferðarmál, sem leitt gæti til far- sælli umferðar. F'jöldi þátttakenda er takmark- aður við 20 og tekur skrifstofa BFÖ við þátttökutilkynningum. Kórskóli Pólýfónkörsins Munið að kennsla hefst nk. mánudag kl. 20.00 í Vöröuskóla (á Skólavöröuholti). Kennslugreinar: Raddbeiting og öndun. Heyrnarþjálfun. Rytmaæfingar. Nótnalestur. Kennarar: Ingólfur Guöbrandsson, söngstjóri. Herdís Oddsdóttir, tónmenntakennari. Siguröur Björnsson, óperusöngvari. Ruth L. Magnússon, óperusöngvari. Kennslugjald aðeins kr. 15.000 greiöist í fyrstu kennslu- stund. Notfæriö ykkur þetta tækifæri til aö taka upp þroskandi tómstundastarf og njótið leiðsagnar fyrsta flokks kennara. Þátttaka tilkynnist í síma 21424 og 26611 á daginn en 38955 og 72037 á kvöldin. Svo fór nú það Jón minn Jón Guðbjörnsson, gjaldkeri Myntsafnarafélagsins, leit við hjá mér á skrifstofunni á föstu- daginn var. Ræddum við þá um gullpeninginn íslenzka, 10.000 krónurnar, frá 1974. Sagðist Jón hafa heyrt, að ekki fengjust nema 100.000 krónur fyrir pen- inginn hjá myntsölum og gullsmiðum hér í bænum. Reikn- uðum við þó út, að gullið í peningnum væri 150.638 krónu virði, miðað við að gullúnsan væri á 650 dollara og gengi dollars væri 515 krónur. Ég heyrði svo í fréttunum á mánudagskvöld, að gullúnsan væri komin upp í 720 dollara og gengið á dollar var 517 krónur á þriðjudagsmorgun. Yfir helgina hefir því peningurinn hækkað um rúmar 16.000 krónur. Það næsta sem ég gerði var að kanna í Danmörku og Sviss hvað fengist fyrir þennan gullpening. Þetta gerði ég á fjarritanum á skrifstofu minni. Einnig kannaði ég svo markaðinn hér heima. Árangurinn varð svo þessi: Hér í Reykjavík virðist hin nýja hækkun á gullverðinu ekki hafa áhrif. Peningurinn er keyptur á 100.000 krónur og seldur út úr búð á 130.000 krónur. Frá Kaupmannahöfn fékk ég þær fregnir, að erfitt væri að selja peninginn. Hann væri skráður á 1400 danskar krónur í verðlistum, eða um 130.000 krón- ur, en gullverðið væri 158.000. Á uppboði hjá Bruun Rassmussen seldust danskir 20 krónu gull- peningar á þriðjudag á 900—975 danskar krónur + söluskattur 22%, eða um 118.000 krónur. Þessir dönsku gullpeningar eru svipaðir íslenska gullpeningnum á stærð. Nyboder Mönthus vildi kaupa íslenzka gullpeninginn á eftir RAGNAR BORG 1278 danskar krónur eða um 118.000. Ég hafði svo samband við Dr. Gruber myntsala í Lichtenstein, en myntsafnarafélagið hefir verzlað við hann í 10 ár og er hann einn virtasti myntsali í Evrópu. Dr. Gruber sagðist myndu gefa fyrir peninginn 161.700. Gengið á gullúnsunni var þá 715 dollarar og tæki hann 3% í þóknun. Dr. Gruber sagði engin vandkvæði á að selja peninginn í svissneskum bönk- um. Það sem hér hefur komið í ljós er að gullvirði peningsins er í dag hærra en söfnunarvirði hans. Þrátt fyrir að peningurinn er óvenju fallegur og var sleginn í takmörkuðu upplagi, eða 10.000 eintök. 10.000 krónu gullpening- urinn inniheldur 13.95 grömm af hreinu gulli. Gullúnsan er 31.3 gramm. Myntsafnarafélagið hefur vetrarstarfsemina á morgun með fundi sem hefst klukkan 14.30 í Templarahöllinni. Veriövelkomin íbæinn Gisting á Hótel Esju er til reiðu. Viö bjóöum þér þægilega gistingu á góöu hóteli. Herbergin eru vistleg og rúmgóö, — leigö á vildarkjörum aö vetri til. Héðan liggja greiöar leiðir til allra átta. Stutt í stórt verslunarhverfi. Laugardalslaugin og Laugardalsvöllur í næsta nágrenni.Strætisvagninn stoppar viö hóteldyrnar,með honum ertu örfáar mínútur í miöbæinn. A Esjubergi bjóöum viö þér fjölbreyttar veitingar á vægu verði. A Skálafelli, veitingastaðnum á 9. hæö læturöu þér líða vel, — nýtur lífsins og einstaks útsýnis. 7 6 Hér er heimili þeirra sem Reykjavík gista ¥íHfÍL#~ Sudurlandsbraut4,sími82200Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.