Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 35

Morgunblaðið - 26.09.1980, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980 35 Endalok Stalíns Jósef Stalín hafði meiri völd en nokkur annar harðstjóri sögunnar á síðustu stjórnarárum sínum. „Herbúðir kommúnista“ teygðu sig frá Saxelfi til frum- skóga Víetnams og virtust mynda eina samstæða heild. Enginn þorði að draga ákvarðanir valdhafanna opinber- lega í efa í Sovétríkjunum. í opinberum áróðri var lögð áherzla á samstöðu sovézku þjóðarinnar undir forystu Stalíns og í sömu andrá hvatt til stöðugrar árvekni gegn vestrænum flugumönnum. Stalín, leiðtoginn almáttugi, stjórnaði þegnum sínum með flóknu og lokuðu skrifstofu- bákni, sem grundvallaðist á leynilögreglunni MVD, komm- issörum efnahagsstofnana, hernum og kommúnistaflokkn- um — samtryggingarkerfi, sem sá hag sínum bezt borgið með því að viðhalda óbreyttum stjórnarháttum. Þeir, sem gegndu háum emb- ættum, bjuggu þó við mikið öryggisleysi og tortryggni ein- kenndi samskipti sovézkra borg- ara, hárra sem lágra. Lögreglu- njósnarar voru á hverju strái og minnsti grunur um óvenjulegar skoðanir gat haft í för með sér handtökur, leyniréttarhöld og brottflutning. Tíu til tólf millj- ónir manna voru í ótal fanga- búðum, „Gúlaginu", flestir án þess að hafa nokkuð til saka unnið og flestir dóu eftir vinnu- þrælkun og allt að því hungur. Vinnuþrælar Vinnuþrælarnir voru lægsta stétt Sovétríkjanna. Þrepi ofar stóðu samyrkjubændur, sem þurftu sérstakt leyfi til að fara frá samyrkjubúunum. Ríkis- stofnanir hirtu megnið af fram- leiðslu þeirra við lágu verði og kæfðu einkaframtak með ara- grúa skriffinnskuhafta. Nokkru ofar í mannfélagsstiganum stóðu iðnverkamenn, sem urðu að leggja nótt við nýtan dag til að fylla kvóta, sem laun þeirra byggðust á, og var oft breytt með geðþóttaákvörðunum stjórn- valda. Launakerfið var þungt í vöfum og ósveigjanlegt og leiddi til mikils misræmis og tekjumunur fólks var geysimikill. Ekki þýddi að kvarta, því að verkalýðsfélög og önnur fjöldasamtök nutu ekki sjálfsákvörðunarréttar og voru i raun einfaldlega viðtakendur fyrirmæla frá æðri yfirvöldum, sem neituðu að trufla fram- kvæmd Fimm ára áætlunarinn- ar. Stalín hafði gert Sovétríkin að einu mesta iðnríki heims, en atvinnulífið varð stöðugt flókn- ara og það olli nýjum vandamál- um, sem var ekki hægt að leysa með gömlum skriffinnskuúrræð- um. Skynsamleg vinnubrögð sér- fræðinga voru nauðsynleg til að vinna gegn stíflum í kerfinu og skorti á nauðsynlegum tækjum og vörutegundum, en það braut í bága við viðteknar hugmyndir stalínista, sem töldu „miðstýr- ingu“ lausnarorðið. Alræði á öllum sviðum neyddi menntamenn til að styðja flokkslínuna á ytra borðinu með öllum þeim kúvendingum, sem urðu á henni. Rithöfundar og listamenn urðu að hlíta lögmál- um „sósíalrealisma" og mála þjóðfélagið í rósrauðum litum. Fá markverð listaverk komu fram. Kjarnorkueðlisfræðingar og vísindamenn á þröngum sér- sviðum fengu að vera í friði, en líffræðingar urðu að beygja sig fyrir villukenningum Lysenkos, skjólstæðings einræðisherrans. Kenningar Stalíns voru lög í jafnólíkum greinum og málfræði og hagfræði. Þeir, sem voguðu sér að mótmæla, voru reknir og stundum skotnir. Stalín hafði skýrt frá sannleikanum um sögu sovézka kommúnistaflokksins og sagnfræðingar forðuðust við- kvæm mál. Hugsjónafræðilegar þjóðsögur voru notaðar auk ein- staklinga til að auka álit og öryggi kerfisins. Enginn veit, hvort Stalín trúði því lofi, sem hann var borinn. Tortryggni hans og ofsóknarótti jókst með aldrinum. Hann var oftast einn og braut heilann, beizkur og önugur. Lækna- samsæri Á nítjánda flokksþinginu í október 1952 var samþykkt að taka upp harðari stefnu í inn- anríkis- og utanríkismálum. Fjölgað var um rúmlega helming í stjórn flokksins, en raunveru- leg völd fengin leynilegri innri nefnd. Stalín reyndi greinilega að einangra nokkra nánustu samstarfsmenn sína, menn eins og Molotov, Voroshilov, Mikoyan og Malenkov, áður en hann hæfist handa um útrýmingu þeirra. Lögreglustjórinn Beria var líka í hættu. Hinn 13. janúar 1953 var tilkynnt, að hópur kunnra lækna hefði verið handtekinn, ákærður fyrir að hafa valdið dauða nokk- urra valdamikilla stjórnmála- manna og herforingja. Þetta var hið svokallaða „læknasamsæri", sem minnti á hreinsanirnar fyrir stríð og boðaði nýja öldu blóðsúthellinga. Blöðin birtu móðursýkislegar greinar um aukna árvekni. En áróðursher- ferðinni linnti skyndilega í febrúarlok og ástæðan kom í ljós 4. marz, þegar tilkynnt var, að Stalín hefði fengið slag og látið af störfum um stundarsakir. Tveimur dögum síðar til- kynnti útvarpið: „Lífi hins vitra leiðtoga og kennara kommún- istaflokksins og sovézku þjóðar- innar, J.V. Stalíns, er lokið." Engin skýring var gefin á því, hvers vegna sextíu klukkutímar liðu áður en fyrsta tilkynningin var birt. Orðrómur komst á kreik um, að nokkrir háttsettir menn, sem sáu fram á að þeir yrðu hreinsunum að bráð, hefðu flýtt fyrir dauða hans. Þeir höfðu vissulega ástæðu til þess, en engar óyggjandi sannanir hafa komið fram um samsæri og ólíklegt virðist, að nokkur náinn samstarfsmaður Stalíns hafi þorað að gera byltingu. Fall Beria Þegar líki Stalíns hafði verið komið fyrir í grafhýsi Leníns, fór minningin um hann að fyrn- ast. „Pravda" hamraði á ágæti „samvirkrar forystu", takmark- aðar náðanir voru kunngerðar og breytingar á hegningarlögum boðaðar. Fjórða apríl var sagt, að Kremlarlæknarnir hefðu ver- ið saklausir og þeir fengu allir fyrri embætti nema tveir, sem kunna að hafa látizt í varðhaldi. Ryumin aðstoðaröryggismála- ráðherra var kennt um ástæðu- lausar handtökur læknanna. Yf- irmaður hans, Beria, reyndi að synda með straumnum og hafði í frammi ósannfærandi frjáls- lyndistilburði. Samstarfsmenn Beria grun- uðu hann um áform um að verða nýr Staiín. Hinn 25. júní sóttu valdhafarnir sýningu í Bolshoi- leikhúsinu á óperunni „Des- embristarnir" og athygli vakti, að Beria mætti ekki. Sennilega hefur verið nýbúið að handtaka hann, þótt frá því væri ekki skýrt fyrr en 10. júlí. Hann var seinna leiddur fyrir leynidóm- stól og skotinn ásamt fimm vitorðsmönnum fyrir valdníðslu og tilraun til að „hefja MVD yfir flokkinn og ríkisstjórnina". Margir öryggismálastarfsmenn misstu atvinnuna. Valdabaráttan stóð nú aðal- lega milli Georgy Malenkov og Nikita Krjúsjeff. Sá fyrrnefndi var tengdari skrifstofukerfinu, en sá síðarnefndi flokkskerfinu. Báðir reyndu að fjarlægja sig frá viðhorfum og stefnu stalín- ista til að vinna hylli almenn- ings, en hvorugur vildi stofna stjórninni í hættu með of miklu fljótræði. Þó vildi Krúsjeff taka meiri áhættu. Malenkov hafði verið skipaður bæði forsætisráð- herra og flokksritari við lát Stalíns, en Krúsjeff neyddi hann fljótlega til að láta af síðar- nefnda embættinu og tók við því sjálfur í raun, þótt hann væri ekki formlega skipaður fyrr en í september. Flokksritarastarfið veitti Krúsjeff vissa yfirburði og hann var líka raunsærri, einkum í efnahagsmálum. Staða Krúsj- effs batnaði við það, að „ný stefna" Malenkovs í efnahags- málum lenti i ógöngum, og 8. febrúar 1955 sagði Malenkov af sér. Eftirmaður hans, Nikolay Bulganin, var handgengari Krúsjeff. Síðar á árinu var Molotov neyddur til að viður- kenna hugmyndafræðilegar skyssur, enda hafði hann lagzt gegn sáttum við Tito og öðrum atriðum utanríkisstefnunnar. Áhrif lögreglunnar minnkuðu, nokkur fórnarlömb hreinsan- anna fengu uppreisn og aukins frjálsræðis gætti. Leyniræda Á leynifundi á 20. flokksþing- inu 24.-25. febrúar 1956 gerði Krúsjeff óvænta og harða árás á Stalín, sem hann sakaði um „freklega valdníðslu", grimmd og gerræði. Hann sagði, að Stalín hefði borið ábyrgð á hreinsununum fyrir stríð, þegar fjöldahandtökur „hefðu valdið landinu og sósíaliskum framför- um gífurlegu tjóni“. En hann minntist ekki á utanflokksmenn, sem urðu hreinsunum að bráð eða útrýmingu svokallaðra kúl- aka eða stórbænda 1929—33. Hann sakaði Stalín um sögufals- anir, en fór sjálfur frjálslega með staðreyndir. Stalín var jafn- vel notaður þannig, að honum var kennt um allt, og í stað dýrkunarinnar á Stalín kom dýrkun á hinni samvirku for- ystu, „hinum lenínska kjarna miðstjórnar flokksins". Engin breyting varð á meginþáttunum í einræðisstefnu kommúnista, sem Lenín og Stalín mótuðu, enda hafði kynslóð Krúsjeffs mótazt í skugga þeirra. Það var þeirra hagur að segja ekki allan sannleikann og baráttan gegn stalínisma var í aðalatriðum aðgerð til að bjarga þeirra eigin skinni — auka álit þeirra manna, sem höfðu náð völdun- um. Þrátt fyrir efnahagslegar framfarir í valdatíð Krúsjeffs var mikið misræmi milli frum- stæðs lífs fólks til sveita og athyglisverðra framfara í tækni- menntun, læknavísindum og geimvísindum. Landbúnaðurinn var Akkillesarhæll kerfisins og halda mætti því fram, að vanda- mál hans hafi verið óleysanleg innan hins pólitíska ramma kommúnismans. Hróplegt ósamræmi var einn- ig milli aukinnar velsældar flestra sovézkra borgara og hins afturhaldssama stjórnkerfis, sem þeir bjuggu við. Þetta eins- flokkseinræðiskerfi var slegið hugmyndafræðilegri blindu og tók sama sem ekkert tillit til grundvallarmannréttinda og annarra réttinda, sem þykja sjálfsögð t flestum siðuðum löndum. Sovétríkin losuðu sig við persónulegt einræði Stalíns, en köstuðu ekki frá sér oki stalínismans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.