Morgunblaðið - 26.09.1980, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1980
vUP "(p
MOBöJK/- -v
MTFINO U
Jæja, frú mín. Ég get ekki
klárað meira í bili. Ég kem
aftur eftir tvær vikur — iátið
allt standa hér óhreyft á meðan!
Það gleður mig að kynnast yður. En það minnir mig á
að það er þvottadagurinn minn á morgun!
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Hin gamla ágæta regla, að
segja það sem maður heidur að
standi, cr enn i fullu gildi þrátt
fyrir tilkomu nýtisku sagnkerfa,
sem öll eru of flókin fyrir hinn
venjulega spilara. En áður fyrr
hugsuðu menn minna um fínar
sagnir, voru heldur i staðinn
þeim mun öruggari í úrspilinu.
Spil dálksins kom fyrir í lands-
leik Austurríkis og Ungverjalands
árið 1937. Fór eins á báðum
borðum, ótrúlegt nokk. Suður gaf.
Norður
S. Á654
H. 85
T. 4
L. 1086543
Vestur
S. -
H. KDG743
T. G10873
L. K9
Austur
S. 10872
H. 10962
T. -
L. ÁDG72
Sælir eru
miskunnsamir
Filippía Kristjánsdóttir
skrifar:
„Mér hefur skilist að ungi
franski pilturinn, sem hingað er
kominn á flótta, hafi alist upp á
munaðarleysingjahæli í heima-
landi sínu. Við sem höfum fengið
uppeldi hjá góðum foreldrum eða
öðrum vandamönnum, sem hafa
látið sér annt um okkur, getum
naumast rennt grun í það hvað
sumir einstæðingarnir verða að
líða undir slíkum kringumstæð-
um.
• Lögunum verður
að hlýða
Það hrærast margir strengir í
brjóstum hinna ungu, sumir
bresta af álagi. Þegar strengur
brestur kveður við sársaukabland-
inn tónn, og uppreisninn tekur að
gera vart við sig, þrá eftir því að
brjóta af sér fjötrana og verða
frjáls. Þjóðfélagið sýnir engan
skilning, miklu fremur harðúð og
kærleiksleysi. Lögunum verður að
hlýða, hvað sem samvisku viðkom-
anda líður.
• Maður líttu
þér nær
Mér hefur skilist af því sem
blöðin segja að ástand unga
mannsins muni vera fremur öm-
urlegt og undirrótin sé þessi, sem
felst í orðunum hér að ofan. Mér
er fyllilega ljóst að það er erfið-
leikum bundið að vita hvað gera
skal í svona málum. Maður sem
kemur með falsað vegabréf vekur
tortryggni. Maður líttu þér nær.
Myndir þú ekki nota öll meðul sem
tiltæk væru þér til bjargar, þegar
þér virtust öll sund vera lokuð?
Bók bókanna mæla svo fyrir:
„Það sem þér viljið að aðrir gjöri
yður skuluð þér og þeim gjöra.
Sælir eru miskunnsamir, því þeim
mun miskunnað verða."
• Erum hans
eina von
Fríða Magnúsdóttir skrifar:
„Ég óska eftir því að franski
maðurinn sem kom hingað í þeirri
trú að við mundum hjálpa honum,
verði ekki sendur úr landi. Við
erum hans eina von. Mig langar til
að spyrja, hvort forsetinn okkar
geti ekki veitt honum hjálp. Svo
óska ég honum alls góðs og vona
að Guð styrki hann í þessari
erfiðu óvissu."
• Garnagaul
á Horninu
Sælkeri skrifar:
„Einn af skemmtilegustu
matsölustöðum borgarinnar er
tvímælalaust Hornið í Hafnar-
stræti. Fer þar saman að húsa-
kynnin eru hlýleg (en ekki alltaf
hlý) og öllu er smekklega fyrir
komið í tiltölulega þröngu rými.
Og maturinn er í háum gæða-
flokki, leyfi ég mér að segja, og vel
framreiddur (en stundum dálítið
seint). En það mætti vera meira af
honum. Það er skiljanlegt að
staðurinn veiti ekki ábót á pizzu-
rétti. Þar vita menn hvað þeir fá,
klippt og skorið — og fá yfirleitt
nóg. Kaupi maður hins vegar
kjötrétt, eins og ég gerði um
Suður
S. KDG93
H. Á
T. ÁKD9652
L. -
Suóur Ventur Norður Austur
2TL 2 Hj. F*ass 4 Ilj.
1 Sp. Pim 5Sp. Pass
6 Sp. Allir Pass.
Margur keppnisspilarinn myndi
opna á 1 laufi með spil suðurs.
Sögn, sem ekkert segir og þurfa
næst að segja spaða eða tígul á
mjög háu sagnstigi. En árið ’37
sögðu menn frá sínu, enduðu í
samningi, sem vannst á báðum
borðum þrátt fyrir aldeilis hroða-
lega legu.
Útspil hjartakóngur. Eins og sjá
má hefði ekki verið hollt að spila
tíglunum á hefðbundinn hátt.
Austur trompar, spilar trompi og
allt verður í voða. Enda var alls
ekki farið þannig að.
Báðir tóku við fyrsta tækifæri á
trompkóng og spiluðu síðan í
þriðja slag tígultvisti. Vestur fékk
á sjöið en gat ekkert gert. Sama
var hverju hann spilaði, sagnhafi
gat trompað seinna lágan tígul
með ásnum og síðan svínað
trompníunni til að ná trompum
austurs. Skemmtileg öryggisspila-
mennska, sem gaf glæsilegan
vinning. , , L . t ...
Ólympíumót í bridge í Hollandi:
íslenzka landsliðið fer í
dag utan til keppninnar
íslcnzka landsliðið i bridge
fer í dag tii Valkenburg í
Ilollandi til keppni á Olympíu-
mótinu í bridge sem fram fer
dagana 27. september til 11.
október. í islenzka liðinu eru:
Jón Ásbjörnsson. Símon Símon-
arson. Helgi Jónsson, Helgi
Sigurðsson, Guðlaugur R. Jó-
hannsson og Örn Arnþórsson.
Milli 60 og 70 þjóðir taka þátt
í mótinu sem verður spilað að
þessu sinni í tveimur riðlum. Að
undankeppni lokinni spila fjórar
efstu sveitirnar í hvorum riðli til
úrslita og tvö efstu liðin úr
þeirri viðureign spila um
Ólympíumeistaratitilinn. Spilað-
ir verða þrír leikir á dag og 20
spila leikir.
Valkenburg er 12500 manna
bær og munu íslendingarnir búa
á hóteli sem heitir Tourhótel.
Islenzka liðið hefur æft vel að
undanförnu og hafa verið 2—3
æfingar í viku. Liðið er eitt hið
yngsta sem farið hefur til keppni
á Ólyinpíumót en meðalaldur
spilaranna er 35—36 ár. Farar-
stjóri liðsins verður Ríkarður
Steinbergsson en hann er jafn-
framt fyrirliði utan leikvallar.
Mbl. mun verða með fréttir af
Brldge
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
mótinu en spilararnir ætla að
senda fréttir heim eins og þeir
komast yfir. Mörg fyrirtæki
hafa stutt spilarana til fararinn-
ar og báðu þeir undirritaðan að
færa þeim sérstakt þakklæti.
LandsliA fslands í bridge sem heldur utan til Hollands í dag. Talið frá vinstri: Helgi Sigurðsson, Helgi
Jónsson. Simon Simonarson, Jón Ásbjörnsson, Guðlaugur R. Jóhannsson og örn Arnþórsson.