Morgunblaðið - 09.10.1980, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
11
Sovétmenn kaupa
100 þúsund tunnur
af suðurlandssíld
SAMNINGAR haía tekizt við
Sovétmenn um kaup á 100 þús-
und tunnum al suðurlandssíld.
Auk þess eru moKuleikar á því að
auka magnið um allt að 50
þúsund tunnur.
Gengið var frá samningum við
Sovétmenn í Moskvu í síðustu
viku. Saltsíldin er af ýmsum
stærðarflokkum. Gunnar Flovenz,
framkvæmdastjóri Síldarútvegs-
nefndar, gizkar á að söluverðmæti
saltsíldarinnar sem Sovétmenn
kaupa að þessu sinni sé um 10—11
miiljarðar króna. I fyrra keyptu
Sovétmenn 60 þúsund tunnur af
suðurlandssíld. Hefur því orðið
um umtalsverða aukningu að ræða
auk þess sem verðið er töluvert
hærra en í fyrra.
I viðræðunefndinni, sem gékk
frá kaupunum voru auk Gunnars
Flovenz þeir Einar Benediktsson,
fulltrúi hans, Haraldur Stur-
laugsson, útgerðarmaður á Akra-
nesi, og Óskar Vigfússon, formað-
ur Sjómannasambands íslands.
Björgvin, Ragnhildur og textahöfundurinn Jón Sigurðsson.
Ljósmynd Mbl. Kristján.
Björgvin og Ragnildur
syngja ..Dagar og nætur“
NÚ ER komin á markaðinn ný 12
laga plata frá Hljómplötuútgáf-
unni og nefnist hún Dagar og
nætur. I>að eru þau Björgvin
Ilalldórsson og Ragnhildur Gisla-
dóttir sem sjá um sönginn.
Á plötunni takast þau á við
fjögur erlend lög og átta eftir
þjóðkunna innlenda höfunda.
Fyrst skal þar frægt telja titillag-
ið, sem er eftir Jóhann G. Jó-
hannsson. Hann á annað lag og
texta á plötunni sem nefnist Eins
og nú. Aðra texta hefur Jón „í
bankanum" Sigurðsson samið, og
fer hann á kostum eins og venju-
lega. Lagahöfundar fyrir utan
Jóhann G. eru Jóhann Helgason,
Magnús Kjartansson, Björgvin
Til Reykjavíkur
alla mánudaga
Hafóu samDand
EIMSKIP
^SIMI 27100
Halldórsson og Ragnhildur Gísla-
dóttir.
Undirleik á Dagar og nætur
annast sex þjóðkunnir alþýðutón-
listarmenn. Sigurður Karlsson
leikur á trommur, Haraldur Þor-
steinsson á bassa, Friðrik Karls-
son og Björgvin Halldórsson sjá
um gítarleik, blásturshljóðfæra-
leikari er Kristinn Svavarsson og
á hljómborð leikur Magnús Kjart-
ansson. Annar hljómborðsleikari
kemur einnig við sögu, John Meal-
ing. Síðast en ekki sízt skal svo
telja Geoff Calver, upptökumeist-
ara, sem leikur á tamborínu og
klappgildru.
Dagar og nætur var hljóðrituð í
Hljóðrita og Red Bus studios í
Englandi. Björgvin Halldórsson
annaðist stjórn upptöku og upp-
tökumenn voru Gunnar Smári
Helgason og Geoff Calver.
Strengjaútsetningar léku í hönd-
um Johns Mealing og um heildar-
útsetningar sáu Björgvin, Ragn-
hildur og Magnús Kjartansson.
Nafni hans Ingimarsson raddsetti
fyrir kór í tveimur lögum.
Að sögn Magnúsar Kjartans-
sonar, eins af aðstandendum
Hljómplötuútgáfunnar, er þema
plötunnar samskipti manns og
konu, sambúð og þau vandamál,
sem ætíð koma upp, og hvernig
megi leysa þau og sagði Magnús
að texti lagsins Dagar og nætur
væri eins konar samnefnari lífs
okkar flestra. „Okkur finnast
þetta góðir textar og teljum að
þeir veki fólk til jákvæðrar um-
hugsunar og geti jafnvel orðið til
þess að hjálpa einhverjum til að
leysa vandamál sín.“
1700 tunnur
til Stemmu
llöfn í HornafirAi, 7. okt.
SAUTJÁN hundruð tunnur af síld
bárust til söltunarstöðvarinnar
Stemmu í dag af 6 bátum, en
síldin sem er stór og feit, veiddist
í Meðallandsbug. Bátarnir, sem
lönduðu, voru Sæunn Sæmunds-
dóttir með 400 tunnur, Halldór
Jónsson með 150, Matthildur með
300 tunnur, Sandgerðingur með
350 tunnur, Steinunn SH með 400
og Skúmur með 100 tunnur.
Gissur hvíti kom með 480 tunn-
ur af góðri síld, en hún var öll
tekin í frystingu í fí«Wiðiuveri
KASK. ~ úmar.
Haraldur Kröyer sendiherra í Sovétrikjunum
HARALDUR Kröyer afhenti trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra íslands í Sovétríkjunum 18. júní
sl. Meðfy'gand' mynd var þá tekin, Haraldur er
annar frá vinstri í fremri röð, að baki hans
stendur Sigríður Snævarr fyrsti sendiráðsrit-
ari. Lengst til vinstri í fremri röðinni er M.P.
Greorgadze aðalritari forsætisnefndar
Æðstaráðsins, þá Haraldur, síðan V,V. Kuznet-
sov fyrsti varaforseti forsætisnefndar Æðsta-
ráðsins og lengst til hægri I.N. Semskov
varautanríkisráðherra. Einkennisklæddu
mennirnir sitt hvoru megin við Sigríði eru t.v.
G.F. Farafonow forstöðumaður Norðurland-
adeildar sovéska utanríkisráðuneytisins og t.h.
D.S. Nikiforov siðameistari utanríkisráðuneyt-
isins.
1 ! ! 1 41
-rrrt n
r —
f
1 1 J | d
Ertu aó byggja?
Sá, sem þarf timbur verzlar við Völund.
Bjóðum vður:
Mótatimbur — B>í»RÍn}>atimbur
Smíðatimbur — Ofnþurrkað tinibur.
CaRnvarið timbnr (4-faldar endingu)
CluRj>aefni — Cróðurhúsaefni
Vej>Rklæðniiij>ar — Loftklæðningar
Limtrésbitar — Limtrésrammar
Hagstætt verð. }>óð Rreiðslukjör
Yfir 75 ára reynsla tryggir góða þjónustu.
Timburverzlunin Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244