Morgunblaðið - 09.10.1980, Side 15

Morgunblaðið - 09.10.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980 15 Þvottahús Gamlgerðinga. Það skal tekið fram að hér er aðeins f jallað um hluta málsins og verður því haldið áfram í blaðinu á morgun. ingar, en vegna hávaðans hefur það nú flúið út svo við höfum fengið afnot af henni aftur. Og það getur varla talizt óeðlilegt að okkur þyki of mikið að greiða 30, hvað þá 45 þúsund, í leigu fyrir húsnæði í þessu ástandi. Síðast liðið vor var stofnuð viðgerðanefnd á vegum Félags- stofnunar og ríkisins og átti hún að hafa umsjón með viðgerðunum og ég hélt að þær hefði að mestu átt að vinna í sumar, en það hefur engan veginn staðizt. Fram- kvæmdirnar hófust ekki að neinu marki fyrr en hótelrekstri lauk og stúdentar byrjuðu að flytja inn, en síðan held ég að þær hafi gengið mjög vel, en hafa eins og fram er komið, valdið okkur verulegum óþægindum. Hingað til hefur hótelrekstur- inn setið fyrir í rekstri Garðanna og stúdentar verið reknir út á vorin, en viðgerðir staðið yfir í próftíma á vorin og haustin, en ég held að nú sé framundan breyting á þessu. Ég veit ekki hver ber ábyrgð á aðgerðaleysinu í sumar, en í augum Garðbúa virðist það svo að hótelreksturinn sitji í fyrirrúmi. Við förum ekki fram á neinn lúxus, bara að við fáum að stunda nám okkar í friði í mannsæmandi húsnæði og erum auðvitað tilbúnir til að borga eðlilega leigu fyrir það, en það er einnig mikilvægt mál að Stúdentakjallarinn verði aðskiiinn Garðinum, það er vissu- lega ekki hægt að búa við það að vínveitingastaður sé rekinn svo að segja inni á heimiii okkar. Skúli Thóroddsen, framkvæmdastjórí Félagsstofnunar: Stefnum að því að leiga á Stúdentagörðunum standi, undir viðhaldi, rekstri og afskriftum ÉG VÍSA þessu til samþykkt- ar stjórnar Félagsstofnunar Stúdenta frá þriðja þessa mánaðar.“, sagði Skúli Thór- oddsen framkvæmdastjóri Fé- lagsstofnunar. er blaðamaður Mbl. spurði hann um húsaleigu- málin, en þar segir svo: „Stjórn F.s. samþykkti á fundi sínum 2. okt. 1980 eftir- farandi tillögu um leiguverð á stúdentagörðum og hjónagörð- um: Leiga á stúdentagörðum verði kr. 45.000.- með orku. Leiga á Hjónagörðum verði kr. 70.000.- án orku. Leigan hækkar ekki á tíma- bilinu. Vegna: a) ástands stúdenta- garða. b) ónæðis vegna við- gerða á stúdentagörðum, verði gefinn afsláttur frá leigu á stúdentagörðum sem nemi kr. 15.000.- á mánuði haustmisser- is og kr. 10.000.- á mánuði vormisseris. Ennfremur vegna þess að raunvirði leigu er þrátt fyrir ofangreindan afslátt talsvert hærri ená kennsluárinu 1979—80, þá verði þeim stúd- entum sem hafa sérstaklega slæma fjárhagsgetu gefinn kostur á að sækja um frekari afslátt leigugreiðslu til stjórn- Nokkuð langt er í nýja eldhúsið á 2. hæð og þvi verða menn að þyrpast saman í einu eldhúsi á neðstu hæð. ar F.s., gildir þetta um báða garðana og Hjónagarða. Félagsstofnun mun ennfrem- ur vinna að því að afla viður- kenninga opinberra aðila. á þvi að rekstur stúdentagarðanna eigi að styrkja af almannafé. Slíkur styrkur , mun að sjálf- sögðu dragast frá reksturs- kostnaði garðanna. Einnig mun F.s. vinna að því að leita ráða til þess að lækka sem allra fyrst reksturskostnað garðanna, einkum með tilliti til hitunar. Viðhaldsprósentum af leiguverði Hjónagarða verði varið til viðhalds þess húss. Samkvæmt þessu ber að greiða afsláttarleigu kr. 30.000.- fyrir herbergi á Stúd- entagörðum mánuðinn sept. 1980 til og með janúar 1981 en kr. 35.000.- fyrir febrúar — maí ’81 en leigu á íbúð á Hjónagörðum kr. 65.000,- fyrir sept. og okt. 1980 en kr. 70.000.- fyrir nóv. — ágúst 1981. Fyrir- framgreiðsla orku verður enn sem fyrr kr. 15.000 - pr. mánuð. Leigu ber að greiða 1,—10. hvers mánaðar fyrirfram. „Við þetta hef ég litlu að bæta, það er þó rétt að geta þess að leiga á hjónagörðunum á síðasta ári var 42 þúsund, bæði fyrir tveggja og þriggja herbergja íbúð og var þá vísi- tala húsaleigu í sept. 1979 1041 stig, en er nú í október 1678 stig og hefur hækkað um rúm 61% og samkvæmt því ætti leigan nú að vera 67.700 krónur og ég vil benda á það að það er tillaga stjórnar Félagsstofnun- ar að leiga verði óbreytt allt leiguárið, en hækki ekki með húsaleiguvísitölunni á þriggja mánaða fresti, eins og leyfilegt er. Hvað varðar Stúdentagarð- ana, erum við að leiðrétta húsaleigugrunninn, hingað til hefur alltaf verið greitt með leigunni á báðum Görðunum og það gengur ekki. Nú þarf hún að vera 45 þúsund á mánuði, en við viðurkennum að það er of hátt og því er áðurnefndur afsláttur gefinn. Asökunum Auðuns Svavars Sigurðssonar, að við getum ekki gert grein fyrir útreikn- ingum okkar vegna bókhalds- óreiðu vísa ég algerlega á bug sem rangfærslu, sem ekki hef- ur við nein rök að styðjast. Útreikningar okkar á rekstr- arkostnaði Garðanna byggjast á bókhaldi samkvæmt árs- reikningum undanfarinna ára og eru reikningar síðasta árs í endurskoðun og það hafa aldrei komið fram neinar athuga- semdir af hálfu endurskoðend- anna, en þeir eru ráðnir af Félagsstofnun að fengnum til- lögum Háskólaráðs. Dr. Árni Hólm. Varði doktors- ritgerð í Banda- ríkjunum í APRÍL síðastliðið vor varði Arni Hólm doktors- ritgerð í uppeldis- og ráð- gjafarsálfræði við And- rewsháskóla í Michigan í Bandaríkjunum, en Árni hefur stundað nám við skólann síðan árið 1975. Heiti doktorsritgerðarinnar er „Áhrif rafsegulsviðs á sjónfram- kallaða svörun í sjónstöðinni". Árni er nú nýkominn heim til Islands, og mun búa í Keflavík fyrst um sinn og kennir nú við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Eiginkona Árna er Soley Hólm hjúkrunarkona, en börn þeirra eru Svanrós, hjúkrunarkona búsett í Noregi og Davíð, starfandi tölvu- tæknifræðingur í Michigan. MÓTORSPORT Tímaritið Mótorsport: Gengst fyr- ir ljósmynda- samkeppni TÍMARITIÐ Mótorsport er nú komið út í fjórða sinn 56 blaðsíð- ur að stærð. Meðal nýjunga í ritinu að þessu sinni er verð- launaljósmyndasamkeppni. sem verða á fastur liður í ritinu svo og frásögn af reynsluakstri nýs bíls. Þá er í Mótorsporti einnig fjallað um fyrsta alþjóðlega rall sumarsins og sjóþeysu Dagblaðs- ins, Snarfara og F.R., sem háð var í sumar. Greint er frá kvartmílu- keppnum og sandspyrnu og ýmis- iegt fleira efni er í ritinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.