Morgunblaðið - 09.10.1980, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980
Björgvin
í úrslitum
í alþjóðlegri
söngvakeppni
BJÖRGVIN Halldörsson sönjfv-
ari tekur um þessar mundir
þátt i alþjóðlejíu sönxvakeppn-
inni i Castlebar á írlandi.
Björjfvini hefur vegnað vel og
mun hann syngja í úrslita-
keppninni sem fer fram á
föstudagskvöldið.
Lagið sem Björgvin syngur er
að finna á síðustu einsöngsplötu
hans og nefnist Skýið. Lagið er
eftir Bj.örjfvin en textinn eftir
Vilhjálm heitinn Vilhjálmsson.
A Irlandi syngur Björgvin lagið
hins vegar með enskum texta
Jóhanns Helgasonar og heitir
það nú „Maiden of the Morn-
ing“.
Samhliða söngvakeppninni
fer fram sérstök lagakeppni
(Orchestral Competition).
Björgvin á þar einnig eitt lag,
„Dægurfluga". Ekki hefur enn
verið tilkynnt um hvort það lag
verði í úrslitakeppninni.
Hljómplötuútgáfan hf. sér um
þátttöku Björgvins í söngva-
keppninni.
Björgvin Halldórsson
Laugarásbíó frum
sýnir Caligula
I DAG frumsýnir Laugaráshíó
kvikmyndina „Caligula“ með
Malcolm McDowell, Peter
Malcolm McDowell í hlutverki
Caligula keisara.
O’Toole, John Gielgud og Helen
Mirren í aðalhlutverkum. Mynd-
in fjallar um harðstjórnarár Cali-
gula keisara í Róm, 37—41 e. Kr.
Framleiðendur eru Boh Guccione
og Franco Rossellini, leiktjöld og
búningar Danilo Donati.
Kostnaður við töku „Caligula"
nam um 18 milljónum dollara og
var í engu til sparað í búnaði eða
mannahaldi. Malcolm McDowell
leikur hinn vitfirrta keisara, Peter
O’Toole leikur Tiberius keisara,
Teresa Ann Savoy leikur Drusillu,
Helen Mirren leikur Caesoniu,
John Gielgud leikur Nerva og
Giancarlo Badessi leikur Claudius.
Um Caligula var haft eftir
langömmu hans, Liviu, eiginkonu
Agústusar keisara, að hann væri
„lyginn, huglaus, ótrúr, svikull,
montinn og lostafullur". í „Cali-
gula“ er dregin upp óhugnanleg
mynd af valdníðslu og hnignun á
tímaskeiði því er myndin fjallar
um.
Ný flugvél Arna
væntanleg í nóv.
ísafiröi. 8. októher.
NÚ MUN ákveðið að ný og vel
húin flugvél hætist í flugflota
Flugfélagsins Arna á ísafirði.
Vélin er 14 manna, Cessna Titan,
sem breyta má til að flytja allt að
1,5 lestum af vörum.
Vélin er smíðuð í Whichita í
Kansas-ríki en henni hefur nú
verið flogið til Chicago þar sem
tækjabúnaði verður bætt í hana.
Ahöfn frá Örnum mun svo vænt-
anlega fljúga vélinni heim til
ísafjarðar með viðkomu í Goose
•Bay upp úr miðjum nóvember nk.
Til þæginda fyrir farþega verð-
ur vélin innréttuð fyrir 10 farþega
í stað 12. Venjuleg flughæð er um
10 þúsund fet og þar er flogið með
370 km hraða.
I Chicago verða sett í vélina öll
fullkomnustu flugleiðsögutæki,
sem aú eru í notkun, m.a. Loran C,
staðarákvörðunartæki af sömu
gerð og Landhelgisgæzlan notar.
Flugfélagið á fyrir tvær minni
vélar og er nýju vélinni ætlað að
auka þjónustuna við íbúa Vest-
fjarða en Ernir er mikilvægur
aðili að neyðar- og sjúkraþjónustu
í fjórðungnum en að auki hefir
félagið með höndum áætlunarflug
milli ísafjarðar og þéttbýlisstað-
anna á Vestfjörðum auk leigu-
flugs.
Hörður Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri taldi komu flugvél-
arinnar verða félaginu lyftistöng
en verkefni vetrarins yrðu að
skera úr um hvort þeir þyrftu að
selja eldri vélarnar. Hver þessara
véla hefur séreiginleika, sem nýt-
ast við afar misjöfn og siæm
skilyrði til flugs hér vestra. Kaup-
verð vélarinnar er um 250—300
milljónir króna.
- Úlfar
Grundvöllur frystiiðn-
aðarins ekki tryggður
- segir Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson
— ÉG TEL að grundvöllurinn
sé ekki tryggður með þeim
ráðstöfunum sem fyrirhugaðar
cru en eru þess eðlis að það má
ekki tala neitt um þær. sagði
Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson, for-
stjóri Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, annar fulltrúi
kaupenda.
— Það liggur auðvitað í aug-
um uppi, að það er ekki grund-
völlur fyrir 8% hækkun fisk-
verðs og 5% hækkun olíugjalds.
Hvernig á fiskvinnslan að taka
það á sig?
— Liggja fyrir einhverjar
ráðstafanir af hálfu stjórnvalda
til að tryggja grundvöll fryst-
ingarinnar?
— Það er afskaplega óljóst.
Þeir sem standa að þessu, hljóta
að hafa einhverjar hugmyndir
um það hvað á að gerast. Mér er
það ekki ljóst að ég geti staðið að
þessu. Ég tel að það verði
hallarekstur áfram. Annars
virðist liggja í augum uppi að
gengissig sé á bak við þetta.
— Nú situr þú hjá en greiðir
ekki atkvæði á móti. Hver er
ástæðan?
— Það er of flókið að fara út í
það af hverju ég sit hjá, það er
mál sem ég tel ekki skipta máli
út á við. Allavega vildi ég ekki
standa í vegi fyrir því að málið
yrði afgreitt á löglegan hátt. Það
er rétt að taka fram að þetta er
milliákvörðun, það er að koma
að stórri ákvörðun um áramótin
og mikil óvissa framundan, t.d.
með samningana. En einhvern
veginn verður þetta að velta
áfram, sagði Eyjólfur.
Ingólfur Ingólfsson:
Stefnir beint í
átök sjómanna og
útgerðarmanna
„ÞAÐ, sem gerzt hefur nú, er
það, að ríkisstjórnin, að
minnsta kosti sjávarútvegsráð-
herra hennar, beitir sér þannig
i þessu máli. að staðfestur er
fullur fjandskapur við hag sjó-
manna,“ sagði Ingólfur Ingólfs-
son. „Þetta gerist á sama tima
og rikisstjórnin hefur gert
kjarasamninga, ótímabæra að
visu, við rikisstarfsmenn og vill
stuðla að samningum á almenn-
um vinnumarkaði, sem eiga að
færa mönnum umtalsverðar
kauphækkanir. Sjómenn eiga
hins vegar að búa við umtals-
verða kjaraskerðingu.
Það er greinilegt, að með
þessari fiskverðsákvörðun stefn-
ir beint í átök sjómanna og
útgerðarmanna, því það er óhjá-
kvæmilegt, að sjómenn verji
sinn hlut á öðrum vettvangi og
það innan tíðar. Það hljóta allir
að sjá, hver staða sjómanna er
með þessari ákvörðun, þegar það
er haft í huga, að launahækkun
ríkisstarfsmanna hefur verið
metin 6%, þótt allir viti að hún
skili allt að tveimur prósentum
meira, verðbótavísitalan hækk-
aði um 8,57% 1. september og 1.
desember stefnir í að minnsta
kosti 10% hækkun verðbótavísi-
tölu. Við þetta eiga sjómenn að
búa óbreytt til áramóta meðan
laun almennings eiga hins vegar
að hækka um allt að 20%.“
Gengissig hefur
skapað svigrúm til
fiskverðshækkunar
- segir Árni Benediktsson
ÞAÐ SEM hefur gerst á undan-
förnum vikum er það, að gengið
hefur lækkað mjög verulega og
líkur eru á þvi að það verði um
einhverjar frekari lækkanir að
ræða. Aður en til gengislækk-
unarinnar kom var staða frysti-
húsanna mjög tæp en það hefirr
breyst þannig að nokkurt svig-
rúm er til fiskverðshækkunar,
sagði Árni Bencdiktsson. fram-
kva'mdastjóri hjá Sambands-
frystihúsunum, annar fulltrúi
kaupenda, en Árni greiddi at-
kvæði með fiskverðsákvörðun-
inni í yfirnefnd í gær.
— Staða útgerðarinnar var
mjög tæp líka, sagði Árni, sér-
staklega hafa kostnaðarliðir eins
og olía hækkað verulega. Olíu-
gjaldið hefur lækkað á þessu ári
og hefur næstum horfið, var
komið niður í 2'k%. Nú var
óhjákvæmilegt að breyta þessu
gjaldi eitthvað til hækkunar, til
þess að hægt væri að fá þolan-
lega stöðu fyrir útgerðina. Ég
held að með þessari verðlagn-
ingu megi telja að frystiiðnaður-
inn sé hallalaus, en ekki meira
samt og hefði gjarnan mátt vera
betra. Útgerðin er með einhverj-
um halla en þó með viðnnandi
stöðu.
— Komu fram mótmæli hjá
sjómönnum vegna olíujrjaldsins?
— Sjómönnum er mjög illa
við þetta olíugjald. Það er á
vissan hátt verið að fara fram-
hjá hlutaskiptum en staðan er
einfaldlega sú, að það eru ýmsir
kostnaðarliðir útgerðarinnar,
sem eru háðir svo miklum breyt-
ingum, að það verður að finna
einhverja aðferð til frambúðar
„VEGNA hækkunar oliugjalds-
ins til útgerðarinnar batnar
halli hrnnar, sem var rösk 10%,
í það að vera að meðaltali
3,1%,“ sagði Kristián Ragnars-
son, formaður LIÚ, en hann
greiddi atkva'ði mcð nýja verð-
inu. „Ég samþykkti þetta með
til þess að þær geti orðið án þess
að þær hafi líka áhrif á hluta-
skiptin. Olíugjaldið hefur verið
notað í þessu skyni en það er
ekki nógu góð aðferð, það verður
að finna aðra og betri aðferð.
— Lágu fyrir einhverjar aðr-
ar stjórnvaldaaðgerðir en láta
gengið síga?
— Það er í athugun með
breytingar á vaxtakostnaði. Ég
vona að það komi eitthvað í ljós í
þeim efnum innan fárra daga.
tilliti til þess, að cg met mikils
þá viðleitni til að bæta hag
útgerðarinnar vegna olíuverðs-
vandans, sem felst i þessari
hækkun oliugjaldsins, enda
þótt þcssi verðákvörðun skili
ekki hallalausum rekstri.“
Kristján Ragnarsson:
Samþykkti vegna
hækkunarinnar á
olíugjaldinu