Morgunblaðið - 09.10.1980, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.10.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980 27 Sýnir í Eden í Hveragerði í Kaupmannahöf n FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI Kjólar — Peysur Dagkjólar frá kr. 25.000.-, kvöldkjólar, allar stæröir, einnig tækifæriskjólar. Glæsilegt úrval. — Hagstætt verö. Ódýrar skólapeysur í miklu úrvali. opiö fostudag 9—19. Fatasalan Brautarholti 22. Lauaardag fra 10—12. . . / . Inngangur fra Noatum. Frá Happdrætti Hjartaverndar Enn eru nokkrir vinningar í Hapdrætti Hjartaverndar 1980 ósóttir. Vinningsnúmerin eru: Nr. 99793 Ford Fairmont Chia 100 þúsund króna vinningar: Nr. 866 — 44537 — 74525 — 7336 — 52563 — 80983 — 10392 — 88169 — 39301 — 61900 — 90985 — 43158 — 67321 Vinninga má vitja á skrifstofu Hjartaverndar aó Lágmúla 9, 3. hæð. Símsvari okkar er 8-39-47. Happdrætti Hjartaverndar. ÞÓRSTEINN Þórsteinsson list- málari opnaði málverkasýninKU i Eden í Hveragerði si. fostudajf ok verður hún opin í tvær vikur. Þórsteinn hefur dvalið siðustu þrjú árin í Hvcraiíerði og sækir fyrirmyndir sinar gjarnan i um- hverfið þar í kring. Fréttaritari Mbl. i Hveragerði hitti lista- manninn að máli og spurði hann um sýninguna, nám hans og störf. Sagði hann svo frá: — ÉG er fæddur í Reykjavík 9. maí árið 1932. Ég sótti fyrst samtímis nám í kvölddeildum skóla Félags íslenzkra frístunda- málara og Handíða— og myndlist- arskólanum og lauk þaðan burt- fararprófi 1950. Árið 1951 lærði ég síðan hjá prófessor Aage Stor- stein í Listaakademíunni í Osló. Árið, sem leið á milli, fór að hluta í einkanám hjá Jóni heitnum Engilberts. Fyrstu sjálfstæðu sýninguna hélt ég árið 1953 hjá Gallerie Arnaud í París, sem ýmsum ís- lendingum er kunnugt, m.a. vegna sýninga Gerðar Helgadóttur myndhöggvara þar, en veturinn á undan stundaði ég listnám í París. Ég hef haldið nokkrar einkasýn- ingar á Fróni og ber helzt að nefna sýningu á afstrakt lágmyndum, sem ég hélt í árslok 1954 í Bogasalnum. Málverkin (pastel- verkin) á yfirstandandi sýningu í Eden í Hveragerði eru mest fyrir- myndir úr Ölfusinu síðan í sumar er leið. Hefi ég reynt að stilla verðinu í hóf. Kirkjukór Landakirkju: Flytur Messu Haydn á Selfossi og í Reykjavík Á ÞESSU ári er Landakirkja í Vestmannaeyjum 200 ára og verður þessara tímamóta minnst með ýmsum hætti á afmælisár- inu. M.a. flutti kór Landakirkju ásamt einsöngvurum og hljóm- sveit Mariezellermesse eftir Jos- eph Ilaydn á hvitasunnunni, en þetta er frumflutningur verksins hér á landi. Kórinn var skipaður um 40 söngvurum og 4 einsöngv- urum, þeim Þórhildi Óskarsdótt- ur sópran. Hrönn Hafliðadóttur úr Rvk. alt. Reyni Guðsteinssyni tenór og Geir Jóni Þórissyni bassa. Kammersveit skipuð 15 manns úr Sinfóniuhljómsveit fs- lands lék undir og stjórnandi var Gúðmundur H. Guðjónsson org- anisti. í stuttri kynningu á verkinu segir m.a.: „Það var í marz 1781 að einn af vinum Haydns, Anton Liebe, úr gamalli og frægri her- mannafjölskyldu, aðlaður sem uppg,afa herforingi með 24 ára virka. heiðvirða þjónustu að baki, bað vin sinn Haydn að semja „Þakkarfórn" í formi messu fyrir hina frægu Mariezell pílagríma- kirkju í Steiermark. Haydn byrj- aði á verkinu árið 1782. Fyrir u.þ.b. 20 árum fundust uppruna- legu hlutar Missa Cellensis (Cell- ensis er latína og þýðir klefi) á orgellofti hinnar glæsilegu bar- okkkirkju í Mariezell. „Mariezellermesse" Haydns hef- ur alltaf verið eitt vinsælasta kórverk hans. Lýðhylli hennar stafar af hinni undursamlegu sameiningu margra radda með máli og formi hins klassíska Vínarskóla. Það kemur fram í verkinu glæsilegur hljómsveitar- flutningur þar sem trompetar og trumbur stuðla að hátíðlegri gleði. „Mariezellermesse" skiptist í 6 kafla og er sungið á latínu. Allt hefur verkið unnið hjörtu áheyr- enda, hvar sem messan hefur verið flutt". Vegna framúrskarandi undir- tekta í Eyjum og fjölda áskorana af fastalandinu hyggst Kór Land- akirkju nú leggja land undir fót og flytja verkið í Selfosskirkju föstud. 10. okt. kl. 21 og í Há- teigskirkju í Reykjavík laugard. 11. okt. kl. 17. Flytjendur eru flestir hinir sömu og í vor, nema nú mun Sigrún Gestsd. úr Reykjavík syngja sópranhlutverkið. Á undan „Messunni" flytja Guð- ný Guðmundsdóttir konsertmeist- ari og Guðmundur H. Guðjónsson organisti Landakirkju, Sonata in D fyrir fiðlu og orgel eftir Pietro Nardini. Opið a laugardögum STARMYRI 2 AUSTURSTRÆTI 17 Sumir versla dýrt — aörir versla hjá okkur Okkar verð eru ekki tilboð heldur árangur af hagstæðum innkaupum I.. í sláturtíð . J .. Aðeins kr. 5 Slátur íkassa Q aukavambir uk mör I # 1 V II VI f • V/ V/ V/ fyrirlijíjíjandi Lifur 1.980. Rúgmjöl (5 kg.1.880. (kr. 376.- pr. kg)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.