Morgunblaðið - 09.10.1980, Síða 35

Morgunblaðið - 09.10.1980, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 1980 35 Sigríður Ásgeirsdóttir hdl.: Tvær greinar í ís- lenskri hegningarlöggjöf Fyrir nokkru síðan átti ég erindi í stjórnarráðið. Er ég kom að dyrum þess var þar fyrir mannsöfnuður mikill, og mátti ég hafa mig alla við, að komast inn í húsið. Er inn kom litaðist ég um og þekkti fá viðstadda. Flestir voru þetta unglingar, en þó nokkrir eldri innanum og meðal þeirra bar ég kennsl á Pétur útvarpsþul og nokkra fleiri æsingamenn komm- anna. Eg spurði einn unglinginn hvað væri um að vera, en hann svaraði því til, að verið væri að mótmæla því hróplega ranglæti, að vísa frönskum manni úr landi. Hins- vegar vissi unglingurinn ekki nafn Frakkans, né heldur gat hann frætt mig nánar um málavexti. Það hefir hinsvegar ekki staðið á því, að upplýsingar hafi fengist um málavexti, því vart hefir verið hægt að opna blað eða fyrir útvarpið svo ekki hafi verið rætt um þennan alræmda mann: Gervasoni. Varla mun vera til íslendingur, sem ekki hefir verið fræddur um þetta furðulega mál í smáatriðum. Er langt síðan fjölmiðlar hafa fengið slíkt móðursýkiskast, en þó ber ríkisfjölmiðillinn hljóðvarp af, er hann vitnar í einn ræðumanna aðeins, þ.e. félaga Guðrúnu þing- mann kommúnista á útifundi, sem haldinn var í tilefni af „ódæðinu". Og hvað var það svo, sem Ríkisútvarpið taldi svo fréttnæmt, að það ætti erindi til allrar þjóðarinnar? Jú, það var þetta: Félagi Guðrún sagði (öskraði, segja sjónarvottar) „„Við höfum valdið — og við höfum ákveðið að Gervasoni verði kyrr á íslandi.“ í tilefni af þessu datt mér í hug, að við hefðum lög sem kallast Almenn hegningarlög. Lögum þessum er ætlað að vernda borg- ara landsins gegn ýmiskonar at- ferli manna, sem talið er að þeim stafi hætta af t.d. landráðum, brotum gegn valdstjórninni, skjalafalsi og líkamsmeiðingum, svo eitthvað sé nefnt. I 12. kafla hegningarlaganna segir svo í 106 grein: Hver sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfs- mann, þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða út af því og eins hver sá, sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks eða neyða starfsmanninn til þess að framkvæma einhverja athöfn í embætti sínu eða sýslan, skal sæta varðhaldi eða fangelsi allt að 6 árum. Geri maður á annan hátt opinberum starfs- manni tálmanir í því að gegna skyldustörfum sínum, þá varðar það sektum, varðhaldi eða fang- elsi, allt að 2 árum.“ Þetta mættu þeir athuga, sem stofna til múgæsinga og hafa í hótunum við opinber stjórnvöld, um að hindra með aðstoð „Alþing- is götunnar að löglega teknar ákvarðanir, af til þess bærum yfirvöldum, verði framkvæmdar. í 17. kafla hegningarlaganna segir svo, í 155. grein: „Hver sá sem notar falsað skjal til að blekkja með því í lögskiptum, skal sæta fangelsi allt að 8 árum. Skal það einkum metið refsingu til þyngingar, ef skjalið er notað sem opinbert skjal, viðskiptabréf eða erfðaskrá." í fjölmiðlum hefir komið fram að Frakki þessi komst inn í landið á fölsuðum persónuskilríkjum og hefi ég hvergi séð því mótmælt. Þetta ættu þeir að athuga, sem krefjast þess, að maður þessi fái hér landvistarleyfi. Og þeir ættu jafnframt að hugleiða það, að hér bíður Frakkans einnig fangelsis- vist, ef hann á að lúta sömu lögum og rétti og landsmenn, sem fremja skjalafals. Eg treysti því að dómsmálaráð- herra láti ekki ógna sér, með uppþotum og tilvitnunum í gömul æsingamál, en framfylgi lögum og rétti, því það er vægast sagt hræðileg tilhugsun að eiga eftir að búa á Islandi, undir ógnarstjórn félaga Péturs og félaga Guðrúnar. Nýtt símanúmer frá 12. október: 26011 skiptiborð — innanlandsflug 26622 farpantanir — innanlands og upplýs- ingar FLUGLEIDIR »T 11 Ollv ““ Olöv VERÐ: 381.435,- Útborgun 95.000.- rest 3 mán. CROWN SHC - 3350 VERÐ: 596.990.- Útborgun 150.000.- rest 4 mán. CROWN SHC - 5300 VERÐ: 718.860.- Útborgun 200.000,- rest 5 mán. CROWN SIIC - 5500 VERÐ: 727.815.- (itborgun 200.000.- rest 5 mán. CROWN SIIC - 5600 VERÐ: 819.705.- Útborgun 250.000.- rest 5 mán. Fastar áætlunarferöir. GAUTABORG Umboðsmenn: Borlind, Bersén & Co. P.O.Box 2511 S-403 17 GÖTEBORG Skeyti: Borlinds Telex: 2340 borlind s Sími: 31/139122 ia SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavik Sími 28200 Telex 2101 Hefur þú séð úrval okkar af Bambus og Tágahúsgögnum? Bambussófar og stólar. Glæsilegt úrval af hillum og smávörum. Opiö föstudaga til kl. 8. Opiö laugardaga kl. 9—12. Vörumarkaðurinnhl. Sími 86112.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.