Morgunblaðið - 12.10.1980, Page 1

Morgunblaðið - 12.10.1980, Page 1
80 SÍÐUR 226. tbl. 68. árg. SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Lengstu dvöl í geimnum lokið Moskvu, 11. október. AP. LENGSTU geimferðinni lauk í dag þegar tveir sovézkir geimfarar, Leonid Popov og Valery Ryumin, sneru aftur til jarðar í Soyuz 37 frá Carter að sækja sig New York, 11. október. AP. JIMMY Carter forseti vinn- ur á samkvæmt nýrri skoð- anakönnun. en hefur enn miklu minna fylgi en Ronald Reagan í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Skoðanakönnun ABC sýnir, að Reagan hefur forystuna í 26 ríkjum með 234 kjör- mannaatkvæði, en Carter hef- ur forystuna í 13 ríkjum með 136 kjörmannaatkvæði. Fyrir hálfum mánuði sýndi skoð- anakönnun ABC, að Reagan hafði forystu í 27 ríkjum með 255 atkvæði, en Carter í 10 ríkjum með 82 atkvæði. For- setaframbjóðandi þarf 270 kjörmannaatkvæði til að sigra. Samkvæmt skoðanakönnun Louis Harris-stofnunarinnar mundu 45% kjósenda kjósa John Anderson, ef frambjóð- andinn, sem þeir kjósa, „gæti ekki sigrað", 20% mundu kjósa Carter og 16% Reagan, en 5% eru óákveðnir. geimstöðinni Salyut 6. að sögn Tass. Geimförunum var skotið frá sovézku Mið-Asíu 9. apríl. Þeir voru 185 daga í geimnum. Moskvu-útvarpið sagði að læknisrannsókn eftir lendinguna hefði leitt í ljós, að geimfararnir hefðu þolað vel sex mánaða dvöl í geimnum. Popov var sæmdur orðunni „Hetja Sovétríkjanna" og Ryum- in annarri Lenínorðu. Ryumin átti fyrra geimdvalarmet ásamt öðrum geimfara, 175 daga og 36 mínútur. Geimfar þeirra lenti kl. 12.50 að Moskvutíma, 180 km suðaust- ur af bænum Dzhezkazgan í Kazakhastan. Eyðileggingin í E1 Asnam var gífurleg. Á símamynd AP sést nýlegt íbúðarhús gjörónýtt. „Neyðaróp slasaðs fólks í rústunum ómar um allt“ Óttast að allt að 20 þúsund manns hafi beðið bana í jarðskjálftanum í E1 Asnam Aliíoirsboru, Genf, 11. október. AP. ÓTTAST er, að allt að 20 þúsund manns hafi beðið bana í jarðskjálftanum mikla í Alsír i gær. Ekki liggja neinar áreiðan- legar tölur fyrir, en að sögn hjálparstofnana er talan ein- hvers staðar á bilinu 5 til 20 þúsund. „Guð einn veit hvenær tölur liggja fyrir, það gæti orðið eftir margar vikur,“ sagði tals- maður Rauða kross-félaganna i Genf. Borgin E1 Asnam er í rúst — 75% bygginga hrundu í jarð- skjálftanum. Talið er að 250 þúsund manns hafi á einn eða annan hátt orðið fyrir barðinu á jarðskálftanum, sem mældist 7,5 íraksher sækir að olíubænum Abadan Beirút, 11. október. AP. IIERSVEITIR og skriðdrekar ír- aka sóttu yfir fljótið Karun með stuðningi herflugvéla i dag til þess að gera lokaárásina á olíu- bæinn Abadan að sögn íraka. í tilkynningu írösku herstjórn- arinnar sagði, að eftir sóknina yíir fljótið yrði borgin umkringd Friðarverðlaun til Carringtons? Ósló, 11. október. AP. NORSKA Nóbelsnefndin hefur endaniega ákveðið að veita friðarverðlaun i ár að sögn formanns nefndarinnar. Jakob Sverdrup, í dag. Tillögur hafa komið fram um 57 einstaklinga og 14 stofnanir. Sverdrup sagði, að Carrington lávarður, utanríkisráðherra Breta, og Robert Mugabe, for- sætisráðherra Zimbabwe, væru meðal þeirra sem helzt kæmu til greina. Nokkur norsk blöð hafa hermt, að þeir muni fá verð- launin í sameiningu. og allur austurbakki Shatt EI Arab tekinn herskildi. Þar með er lítil von til þess að lýst verði yfir vopnahléi á víg- stöðvunum eins og Kurt Wald- heim, framkvæmdastjóri SÞ, hvatti til í gærkvöldi, svo að unnt yrði að bjarga erlendum skipum, sem hafa lokazt inni. írakar lýstu því áður yfir, að þeir hefðu slitið stjórnmálasam- bandi við Sýrland, Líbýu og Norður-Kóreu og lokað sendiráð- um þeirra, þar sem þessi lönd hefðu sent írönum hergögn loft- leiðis. Hussein Jórdaníukonungur kom í dag í óvænta heimsókn til Jidda, þar sem hann ræðir ástandið við Khaled Saudi-Arabíukonung. í fylgd með honum voru Mudar Badran forsætisráðherra og yfir- maður hersins. Abolhassan Bani-Sadr íransfor- seti ítrekaði í dag andstöðu gegn vopnahléi, sagði að íranir mundu berjast unz endanlegum sigri yrði náð og varaði við því, að íranir mundu hefna sín á öllum löndum, sem hjálpuðu írökum. íranir gerðu nýjar loftárásir á írak í dag og fjórir óbreyttir borgarar féllu og 12 særðust. stig á Richter. Hjálparstarf er þegar hafið og aðstoð var strax í dag farin að berast frá Sviss, Frakklandi og Túnis auk þess að alsírski herinn vann að björgun- arstarfi í E1 Asnam og nágrenni. Eyðileggingin í E1 Asnam er gífurleg. Jarðskjálftinn var 10 sinnum öflugri en sá, sem lagði borgina í rúst 1954. Þá fórust tæplega tvö þúsund manns. Borgin var byggð upp eftir þann skjálfta en sú endurbygging er nú rústir einar. Jarðskjálftinn átti sér stað kl. 13.30 að staðar- tíma. Þremur klukkustundum síðar kom annar öflugur jarð- skjálfti, 6,2 stig á Richter. Um kvöldið kom sá þriðji en hann var ekki eins öflugur. Jarð- skjálftans varð vart í Frakklandi og á Spáni. Skelfing greip um sig í Al- geirsborg og Oran, en þar urðu skemmdir litlar. Sjúkrahús borg- arinnar er nú rústir einar, svo og helsta moska staðarins, verslan- ir, bæjarskrifstofur, menntaskóli auk ýmissa annarra helstu bygg- inga. Þeirra á meðal nýtt háhýsi, Chelif-hótelið, sem var mikið sótt af útlendingum. Ekki hafa þó enn borist fréttir af láti útlendinga. Fréttamaður alsírska útvarps- ins var í E1 Asnam og skýrði frá björgunarstarfi. Neyðaróp slas- aðs fólks í rústunum óma um allt,“ sagði fréttamaðurinn. Björgunarsveitir unnu að því að bjarga fólki, sem hafði orðið undir byggingum. Eyðileggingin var meSt í miðborg E1 Asnam. Þar búa um 125 þúsund manns. Mannskaðar urðu einnig í nálæg- um þorpum, en skjálftinn var þó öflugastur í E1 Asnam. „Ilann notaði mig - þess vegna myrti ég börnin“ JohnHton. Pennsylvaníu. 11. október. AP. KONA nokkur, sem lést í sept- ember síðastliðnum. skýrði frá því í bréfi, sem hún lét eftir sig, að hún hefði myrt fimm hvítvoð- unga sína fyrir 50 árum. Lík barnanna fundust uppi á háalofti i húsi hennar i kofforti. Konan. Stella Williamson, sem var 76 ára þegar hún lést, sagðist hafa fyrir- farið börnunum fimm vegna þess að faðir þeirra hafi einungis notað hana. „Hann vildi mig aldrei — notaði mig aðeins sem leikfang og ég var nytsamur heimskingi. Hvernig ég komst upp með þetta hefur verið mér ráðgáta, en ég vil ekki að öðrum verði kennt um. Hann notaði mig — þess vegna myrti ég börnin," skrifaði Stella. Leigjandi í húsi hennar fann bréfið. Lögreglan fór þegar að rannsaka málið og fann beina- grindur fimm ungbarna upp á háalofti í kofforti. Þrjú barnanna voru vafin inn í dagblöð frá árunum 1925 til 1933. Þau voru úrskurðuð myrt, en hins vegar tókst ekki að fá slíkan úrskurð um hin tvö þar sem svo langt er liðið frá verknaðinum, en engin ástæða er til að efast um sannleiksgildi bréfsins. Tvö barnanna voru þriggja til sex mánaða gömul þegar þau voru myrt, tvö létust þegar við fæðingu, eða skömmu eftir, og eitt þeirra var ársgamalt þegar það lést. Stella Williamson nefndi föður barnanna. Hins vegar vildu yfir- völd í Johnston ekki skýra frá nafni hans. Aðeins að hann væri gamall maður og heilsulítill, og að ekki hefði tekist að fá neinar upplýsingar að gagni frá honum. „Ég hef lifað góðu lífi síðan. Guð er minn dómari, en ég bið ykkur að fyrirgefa mér ef þið getið," skrifaði gamla konan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.