Morgunblaðið - 12.10.1980, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.10.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 17 TEXTI: Ágúst I. Jónsson. MYNDIR: Ragnar Axelsson. „Eg held að þetta brölt okkar við síldarsöltun eigi allan rétt á sér“ FJÓRIR ungir athafnamenn á Eski- firöi voru í þann mund aö hefja eigin útgerö er síldin hvarf af miöunum fyrir austan áriö 1968. Nú, 12 árum síðar, reka þeir síldarsöltunarstöö, saltfisk- og skreiöarverkun og gera út bátinn Sæljón SU 104, 140 lesta bát, sem byggöur var á Akureyri 1974. Fyrirtækiö hefur vaxiö meö hverju árinu og er nú orðinn snar þáttur í atvinnulífi á Eskifirði. Þegar Morg- unblaösmenn litu viö í söltunar- stöð Friðþjófs, en þaö er nafn þessa fyrirtækis, var þar í nógu aö snúast. Unnar Björgólfsson gaf sér þó tíma til aö ræöa viö blaðamann, Unnar Björgólfsson og einn starfsmanna hans í söltunarstöð Friöþjófs. en hann rekur fyrirtækiö ásamt þeim Árna Halldórssyni, Kristni Karlssyni og Bjarna Stefánssyni. Þeir fjórmenningarnir keyptu gamla Sæljóniö áriö 1968 og geröu þaö út í 4 ár, m.a. reru þeir frá Vestmannaeyjum á vertíðinni og voru síöan á útilegu á grálúöu yfir sumariö. Nýr bátur var keyptur 1972 og fékk hann nafniö Friöþjóf- ur, áöur Jón Finnsson, á honum voru þeir m.a. á reknetum og söltuöu síldina um borö, en síld- veiöar voru aö byrja frá Hornafiröi um það leyti. Sá bátur var seldur nokkrum dögum eftir aö útgerðin fékk nýtt Sæljón frá Slippstöðinni á Akureyri 1974. „Árið 1973 byrjuöum viö að reisa þetta hús, en það er hverri útgerö nauðsyn aö eiga eitthvert afdrep," segir Unnar. „Síöan viö byrjuðum þessa útgerö okkar höf- um viö alltaf verkaö hluta aflans meö okkar skylduliöi og einkum höfum viö veriö í saltfiskverkun. Síöan höfum viö einnig fariö út í skreiöarverkun og upphafiö aö síldarsöltun hér hjá Friöþjófi var áriö 1975. Þá tók Gunnar heitinn Hermannsson á Eldborginni sinn síldarskammt hér á Eskifiröi og bað mig um aö ganga frá síldinni til útflutnings, en þeir söltuöu sjálfir um borö í Eldborginni. Þetta var byrjunin, en eftir aö leyfð var veruleg veiöi á síld höfum viö veriö með okkar kvóta á Sæljóninu og verið með aöra báta í viðskiptum. Viö höfum byggt tvisvar sinnum viö þetta hús okkar og þegar mest er aö gera þá þyrftum viö á mun stærra húsi aö halda. Viö erum í rauninni ennþá á hrakhólum meö dótiö, sem tilheyrir útgeröinni og byggt var yfir í upphafi. Það kemur af sjálfu sér, aö þegar maöur fer aö brölta í þessu þá hlýtur þetta aö vaxa, hvort sem nokkurt vit er í þeim vexti eöa ekki. Þó held ég aö það sé Ijóst, aö eins og þetta er nú, þá eigi þetta brölt okkar viö síldarsöltun allan rétt á sér. AÐALATRIÐIÐ AÐ VERA MEÐ GÓÐUM MÖNNUM Ef síldin heldur sig í skamman tíma hérna fyrir austan í veiöan- legu ástandi, eins og margir gera ráö fyrir, þá á hver vinnslustöö svona nálægt miöunum fullkominn rétt á sér. Hún hlýtur bæöi aö bjarga og skapa verðmæti, ekki sízt með það í huga hversu dýrt er oröiö að sækja aflann vegna olíukostnaðar, sem hlýtur að vera aö gera hvern mann gráhæröan. Fyrir mína parta tel ég þó aðalat- riðið aö vera meö góðum mönnum þar sem samkomulagiö er gott. Meöan svo er held ég aö maöur veröi í þessu brölti," sagöi. Hann og Kristinn Karlsson, sem verið hefur skipstjóri á Sæljóninu á móti Árna Halldórssyni, sögöust telja að hitinn í sjónum heföi gert þaö að verkum, aö firðir fyrir austan væru nú fullir af sfld, en einnig skynsamleg uppþygging síldarstofnsins. Þá sagöi Unnar, aö sér finndist mikill munur á því hvaö síldin væri miklum mun betri vara núna heldur en í fyrra og hittifyrra. í lokin var talinu vikiö aö öörum fisktegundum og sögöu þeir, aö það kostaði Eskfiröinga mikiö, aö sækja fiskinn suöur fyrir Ingólfs- höfða auk þess, sem þetta væri vond leið, þannig aö frá Eskifiröi yröu ekki stundaöir dagróðrar á vetrarvertíöinni, eins og t.d. frá Eyjum. Afli sögöu þeir, að hefði veriö heldur rýr í fiskitroll úti fyrir Austurlandi þangað til í súmar og þökkuöu aflaaukningu aö verulegu leyti hagstæðum hitaskilum í sjón- um í ár. Síöastliöiö sumar voru um og yfir 10 manns í vinnu í landi hjá Friðþjófi, en á síldarvertíöinni hef- ur fjöldi starfsmanna farið upp í 50. Söltun byrjaöi síðar hjá Friö- þjófi en víöa annars staöar þar sem allt var yfirfullt af saltfiski og skreiö hjá fyrirtækinu er vertíöin hófst. Þegar blaöamaöur heimsótti Eskifjörö hafði söltun staðiö þar í tvær vikur og var búiö aö salta í um þrjú þúsund tunnur, en 1978 voru 5.600 tunnur af síld fluttar út frá Friöþjófi og 5.200 í fyi -a.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.