Morgunblaðið - 12.10.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
3
SJÓMENN UM ÁKVÖRÐUN FISKVERÐS OG OLÍUGJALDIÐ:
bera saman eitt kíló af fiski og
eina klukkustund í tímavinnu.
Það má deila heilmikið um
það, hvort það sé rökréttur
samanburður.
í lokin sagði Sigfinnur
Karlsson á Neskaupstað: „Ég
vonast til þess, að það geti
orðið alvarleg breyting í þessu
efni við næstu fiskverðs-
ákvörðun í janúar og að þá
verði tekið upp allt annað
fyrirkomulag á þessum málum
heldur en er í dag.“
Guðjón Jónsson
á Akureyri:
Sjómanna-
sambandið
lætur frá
sér heyra
„VIÐ ERUM auðvitað mjög
óhressir með þessa síðustu
verðlagningu," sagði Guðjón
Jónsson, formaður Sjómanna-
félags Eyjafjarðar. „Síst af
öllu áttum við von á að fá þetta
olíugjald sett á aftur, við
höfum verið mótfallnir því og
viljað afnema það algerlega og
það áttu stjórnvöld að vita.
Og undanfarin ár höfum við
orðið fyrir kjaraskerðingu og
verðum fyrir ennþá meiri
skerðingu núna. Það hefur
aldrei staðið á sjómönnum að
gefa eftir til þess að ná niður
verðbólgunni í landinu, ef aðr-
ir gerðu það líka. En við erum
mjög óhressir yfir því, að
ævinlega þegar kemur að því,
að við fáum þá kauphækkun,
sem aðrir hafa fengið, þá er
byrjað að skera niður.
Eftir þessa verðlagningu fór
ég fljótlega suður til Reykja-
víkur, svo ég hef ekki haft
tækifæri til þess að kynna mér
rækilega afstöðu sjómanna hér
við Eyjafjörð, en þeir eru
sjálfsagt mjög óhressir eins og
sjómenn sjálfsagt eru um allt
iand. Ég geri ráð fyrir því, að
Sjómannasambandið láti frá
sér heyra, og þá fyrr en
seinna," sagði Guðjón Jónsson
á Akureyri.
Elías Björnsson í
Vestmannaeyjum:
N,
„Þetta er
hrein
og klár
ósvífni44
„VIÐ ERUM alveg furðu lostn-
ir yfir þessu,“ sagði Elías
Björnsson, formaður Sjó-
mannafélagsins Jötuns í Vest-
mannaeyjum. „Það var búið að
reyna olíugjaldið og það gaf
ekki góða raun. Aðferðin er
náttúrulega kolvitlaus. Við vit-
um að það þarf að greiða niður
olíuna fyrir útgerðina, það er
alveg á hreinu, en það er
spurning hvort örfáar hræður
eigi að gera það, eða hvort
allur landslýður eigi að taka
þátt í því.
Við héldum nú, að stjórn-
völdum hefði verið bent það
rækilega á, hvað sjómenn eru
algerlega mótfallnir því að
hafa þennan háttinn á. Það
hefur margsinnis verið bent á
það hvað þetta er í rauninni
vitlaust í öllum atriðum. Ég
veit hreinlega ekki hvað
stjórnvöld eiga við með þessu.
Það er gefið mál að þetta er
hrein og klár kjaraskerðing og
það verður að gera einhverjar
ráðstafanir gegn þessu, hvern-
ig sem brugðist verður við í
þeim málum. Heildarsamtök
sjómanna eiga eftir að taka
ákvarðanir um það.
Mér finnst hrein og klár
ósvífni, að ætlast til þess, að
þessi fámenna stétt, sjómenn,
borgi þetta einvörðungu í stað-
inn fyrir að láta alla þjóðina
taka þátt í þessu. Ég veit ekki
betur en olíustyrkur til fólks,
sem kyndir með olíu, sé tekinn
beint úr ríkishítinni, en nú
eiga aðeins sjómenn að greiða
niður olíuna fyrir útgerðina.
Ég hreinlega botna bara ekki í
því, að það skuli alltaf ráðist á
þessa fámennu stétt, sjómenn-
ina, sem þó allir eru sammála
um að afli gjaldeyristekna
þjóðarinnar," sagði Elías
Björnsson í Vestmannaeyjum.
Bárður Jensson
í Ólafsvík:
„Vil ekki
spá um af-
leiðing-
arnar“
„ÞETTA er mjög neikvætt,"
sagði Bárður Jensson, formað-
ur Verkalýðsfélagsins Jökuls á
Ólafsvík. „Sjómenn eru orðnir
langt á eftir öðrum með sínar
kröfur. Annars hefur maður
varla áttað sig á þessu, þetta
er það nýtilkomið.
En þessi 8% skiptaverðs-
hækkun er engin hækkun, gæti
kannski orðið um 3% í reynd
og það er auðvitað engin hækk-
un. Og það er ofboðslegt, að
sjómenn skuli ævinlega fara
svona út úr þessu, þeir sem
vinna að þeim störfum, sem
raunverulega standa undir öllu
efnahagslífinu. Og svo verða
verkamennirnir verst úti í
landi. Það verður að búa þann-
ig að þessu fólki, að það fái
a.m.k. sambærileg laun og
starfsfólk ríkis og bæja, að það
sé tryggt.
Ég get ekki ímyndað mér
það, að menn sætti sig við
þetta. Þetta getur ekki endað
nema á einn veg, það er alveg
hreint og klárt, en ég vil nú
ekki spá um hverjar afleið-
ingar þetta getur haft í för
með sér.“
Lárus Benedikts-
son í Bolungarvik:
Skammar-
legt af
Steingrími!
„MÉR FINNST þetta alveg
fráleitt," sagði Lárus Bene-
diktsson, ritari Verkalýðs- og
sjómannafélags Bolungarvík-
ur. „Þetta er eins og að skvetta
olíu á eld, því þetta var nú það
sem eiginlega hjó á hnútinn í
sjómannadeilunni á ísafirði í
vor, þegar þeir lækkuðu olíu-
gjaldið niður í 2,5%. Mér
sýnist ekki friðvænlegt í þess-
um efnum. Og satt að segja
skil ég ekki þessa fiskverðs-
ákvörðun og það sem á undan
er gengið, því það er ekkert
vafamál, að sjómenn hafa orð-
ið fyrir stórkostlegri kjara-
skerðingu undanfarið.
Ég skil nú ekki Steingrím
Hermannsson, að ætla að
flytja frumvarp um hækkun
olíugjalds nú í byrjun þings! í
vor fóru fulltrúar sjómanna á
ísafirði suður og ræddu við
félagsmálaráðherra og í kjöl-
far þess voru gerðar breyt-
ingar á sjómannalögunum. Og
í framhaldi þeirra viðræðna er
ég hissa á, að ríkisstjórnin
skuli ekki vera vinveittari sjó-
mönnum. Þetta er skammar-
legt af Steingrími Hermanns-
syni,“ sagði Lárus Benedikts-
son i Bolungarvík.
Forsjáll ferðamaður
velur
ÚTSÝNARFERÐ
ALLIR
FARSEÐLAR
Á LÆGSTA VEROI.
LONDON
— heimsborgín, sem býður eitthvað viö allra hæfi —
Leiklist — tónlist — myndlist — úrval matsölustaða —
knattspyrnuleikir — söfn — verzlanir og fjölbreytt
skemmtanalít. Enn sem fyrr býður Útsýn hagstæðustu .
kjörin vegna margra ára viöskipta og hagkvæmra
samninga við gististaði í hjarta borgarinnar.
Starfsmaöur Útsýnar tekur á móti farþegum á flugvelli
og veröur til aöstoöar meöan á dvölinni stendur.
Vikuferdir
— brottför alla laugardaga.
Verö frá kr. 292.300.-
Helgarferöir
— brottför annan hvern fimmtudag.
Verö frá kr. 261.200.-
HVERT SEM
FERÐINNI ER HEITIÐ,
GETUR ÚTSÝN
SPARAÐ YÐUR FÉ
OG FYRIRHÖFN.
Ódýr jólafargjöld
Kaupmannahöfn kr. 133.880.-
Glasgow kr. 99.700.-
London kr. 115.500.-
Luxemborg kr. 142.000.-
Oslo kr. 121.900.-
Stokkhólmur kr. 142.600.-
Farseðlar og ferðaþjónusta
Útsýn hefur á aó
skipa færustu sér-
fræöingum í far-
seölaútgáfu og
skipulagningu
einstaklingsferóa
hvert sem er í
heiminum. Með
hvaöa flugfélagi
viltu fljúga?
Útsýn útvegar þér
lægsta fáanlegt
fargjald á hvaóa
flugleió sem er á
áætlunarleiðum
allra helstu flugfé-
laga heimsins. Þú
færó flugfarseóil-
inn hvergi ódýrari
en hjá Útsýn meó
hvaóa flugfélagi
sem þú flýgur.
FLUGLEIDIR Æ
AerLingus *
oiyjifPfC
Al
A3PCKPAOT ÚAPAN Alff L/NCS
British © Lufthansa gPg
airways German Airlmes
M/STWiAM A/*l /*//
swissair
•22*
KLM
Roysl Dutch Airlines
^3TfH,í ÍLuGAt
jy/f
AIRFRANCE
Helstu vörusýningar
í Evrópu 1980—’81
Birmingham:
Kaupmannahöfn:
Kaupmannahöfn:
Helsinki:
Kaupmannahöfn:
Kaupmannahöfn:
Frankfurt:
Diisseldorf:
Ifit. Motor & Commercial Motor Show
15—26okt.' 80.
Int. Boat Show 8—16 nóv. '80.
Scandinavian Dental Fair 3—5 jan.
•81.
Finnish Fashion Fair 27—29 jan. ’81.
Building for Billions 21 feb.—1. mars
'81.
Scandinavian Fashion Week 12—15
mars 81.
Int. Sanitation, Heating & Air Con-
dition'g Exbn. 17—22 mars '81.
Int. Footwear T rade Fair 21—23 mars
'81.
Austurstræti 17.
Símar 26611 og 20100?
Ferðaskrifstofan
UTSYN