Morgunblaðið - 12.10.1980, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
STRÁKARNIR á Garðeynni frá Hornafiröi
hafa aflaö vel þaö sem af er vertíöinni og
á þriöjudag voru þeir komnir meö mestan
afla reknetabáta eöa um 2.800 tunnur.
Garöey lá inni á Eskifirði þann dag eins
og tugur annarra báta frá Hornafirði, en
úti fyrir beljaöi noröanáttin svo ekki var
viölit aö reyna veiöar, jafnvel þó miöin
hafi aöeins verið steinsnar frá bryggjunni
eins og veriö hefur undanfariö á Eskifiröi,
Reyðarfiröi og öörum fjöröum eystra.
Síldveiðar í reknet máttu byrja 25.
ágúst og hafa 62 reknetabátar leyfi til aö
veiða alls 18 þúsund tunnur, þannig aö
hver bátur má aö meöaltali veiöa um þrjú
þúsund tunnur. Ekki er um kvóta á hvern
reknetabát aö ræöa heldur aöeins heild-
arkvóta á þau skiþ, sem leyfi hafa til
veiöanna. Skipstjóri á Garöey er Ágúst
Þorbjörnsson og er hann einnig eigandi
bátsins ásamt Erni bróöur sínum og
vélstjóranum. Skiptast þeir bræöur á um
skipstjórnina. Ágúst sagöi í samtali viö
blaöamann á þriöjudag, aö sú síld, sem
fengizt heföi undanfariö, væri mjög góð
og heföu 90% fariö í 1. og 2. flokk. Síldin
heföi í mörgum tilvikum fengizt upp undir
fjöru og jafnvel haröa klettum, hún heföi
komið upp svo nærri landinu, aö stund-
um heföi legið viö, aö bátarnir fengju
botnhreinsun við veiöarnar.
„Fyrst maöur kemst í návígi viö
blaöamann verö ég aö koma því á
framfæri, aö viö sjómenn erum mjög
undrandi á hegöun fiskifræðinga í sam-
bandi viö síldina," sagöi Ágúst Þor-
björnsson. „Þaö er vitaö, aö síldin er
dyntóttur fiskistofn, en þessi stofrr hefur
gefið þjóöarbúinu hvaö mest, en einnig
leikiö þaö mjög grátt. Því finnst okkur
skrýtiö aö fiskifræðingar eöa rannsókna-
skip skuli ekki sjást hér fyrir austan. i
fyrra birtist loks fiskifræöingur á miöun-
um þegar vika var eftir af vertíöinni hjá
okkur , en þá voru þau vandamál úr
sögunni, sem viö höföum átt viö aö glíma
viö veiöarnar. Maöur hefði haldiö, aö
þessir menn myndu sýna meiri áhuga en
þetta eftir allt, sem á hefur duniö í
sambandi viö síldina.
Þá finnst mér þaö ekki nokkur hemja
hvernig endalaust er fariö meö okkur
sjómenn og vonandi fara okkar forystu-
menn aö ranka viö sér hvaö úr hverju.
Þegar ég byrjaöi á síldinni fyrir 6 árum
var veröið á kílói af síld einni eöa tveimur
krónum hærra en á kílói af þorski. Nú er
þetta þannig, aö fyrir síldina fæst helm-
ingi minna en fyrir þorskinn. Verölagning-
in er þannig, aö fyrst er hugsaö fyrir
þörfum allra nema sjómannanna, sem
veiöa fiskinn, og þegar þeir eiga að fá
sitt, er ekki neitt eftir,“ sagöi Ágúst
Þorbjörnsson.
Þeir á Garöeynni hafa landaö mestu af
afla sínum á Austfjaröahöfnum og aöeins
lítilræöi í heimahöfn í Hornafiröi. í fyrra
lönduöu Hornafjaröarbátar hins vegar aö
langmestu leyti heima nema rétt í byrjun
vertíöarinnar. „Þá kom þaö nokkuð oft
fyrir aö vísa þurfti bátum frá heima vegna
þess hve mikiö barst af síld og var þá
landaö á Djúpavogi, Fáskrúösfiröi eöa
annars staðar á Austfjöröum. Undanfariö
hefur veriö unniö aö því aö fyrirbyggja aö
slíkt þyrfti aö endurtaka sig meö því aö
bæta alla aöstööu á Hornafiröi og þá
gerist þaö, aö engin síld berst til Hafnar.
Eg held aö söltunarkerfiö, sem veriö er
aö setja upp hjá Fiskimjölsverksmiöjunni,
kosti hátt í milljarö, þannig aö ástandiö
hlýtur aö vera hrikalegt hjá fyrirtækinu og
bætast þeir erfiöleikar viö önnur vanda-
mál, t.d. þaö aö engri loönu hefur veriö
landaö á Höfn í háa herrans tíö.
Þaö kæmi mér ekki á óvart þó síldin
yröi áfram hér inni á fjöröunum fram eftir
hausti og næstu sumur nema þá aö síldin
veröi drepin upp eins og reyndar viröist
vera stefnan. Á sama tíma og viö erum aö
fárast yfir því aö Norömenn veiði 10
þúsund tonn viö Noreg hleypum viö
stööugt fleiri skipum á síldina, t.d.
loðnubátunum. Um leið og bátunum
fjölgar minnkar hlutur hvers og eins og ef
ég væri aö byrja í útgerö núna myndi ég
hugsa mig tvisvar um áöur en ég gerði
klárt á síld. Ef viö fengjum ekki aö veiða
nema þrjú þúsund tunnur myndi ég varla
leggja í þann 20-30 milljóna króna
kostnaö, sem veiöarfæri og annar búnaö-
ur kostar," sagöi Ágúst Þorbjörnsson.
Á sama tíma og allt hefur veriö á
öörum endanum vegna síldarinnar á
Eskifiröi hefur veriö dauft yfir mönnum á
Höfn í Hornafiröi vegna síldarleysisins. Á
Eskifirði hafa 10-15 bátar Hornfiröinga
bætzt viö flotann í haust og eru þessi
atvinnutæki viöbót við þaö sem fyrir var.
Heimabátar frá Eskifirði eru t.d. núna
fyrst aö tygja sig af staö, en þeir hafa
flestir veriö á fiskitrolli og margir siglt
meö aflann. Skuttogarinn Hólmanes hef-
ur aflaö ágætlega í sumar og haust
þannig aö jöfn og góö atvinna hefur verið
í frystihúsinu. Nú síöari hluta vikunnar
berast þær fréttir aö austan, aö síld hafi
veiözt viö Ingólfshöföa og aöeins þrír
bátar frá Hornafiröi séu enn á miöunum
noröar, en hinir séu komnir á heimamiö
Hornafjaröarbáta. Því er trúlegt að heldur
fari aö hýrna yfir Hornfiröingum, en t.d. á
Eskifirði þarf þó ekki aö draga mikiö úr
atvinnu því firöirnir munu enn svartir af
síld og auk heimabáta eru allmargir
nótabátar í viöskiptum viö söltunarstööv-
ar á Eskifiröi.
Agúst Þort.;örnsson, skipstjóri á Garðey, og Páll Dagbjartsson,
skipstjóri á Lyngey, bera saman bækur sínar, e.t.v. eru það
olíureikningarnir, sem þeir eru að skoða.