Morgunblaðið - 12.10.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
Pétur Sigurðsson, alþingismaður:
Má vera að ríkisstjórnarmenn
telji nú heppilegt að gera krata
sér handgengnari með öllum ráðrnn
„ÉG VAR valinn til embættis
fyrri varaforseta Sameinaðs Al-
þinKÍs i fyrra ágreininKslaust,
með 40 samhljóða atkvæðum, og
þvi sá ég ekki ástæðu til annars
en vera aftur í framboði nú. enda
vissi ég. að þinKflokkur Alþýðu-
flokksins hafði ekki óskað eftir
þessari breytini?u o»? voru kratar
mjöK undrandi á þessu boði
Gunnars Thoroddsens og for-
manna þinKflokka stjórnarlið-
sins. Mér fannst því rétt, að fá
það á hreint, hvort fleiri en
Gunnar »k hans allra nánustu
hefðu skipt um skoðun frá i
fyrra,“ saxði Pétur Sigurðsson
alþinKÍsmaður i samtali við Mbl.
í Kær. en Pétur var einn þingfor-
seta ekki endurkjörinn á fyrsta
fundi Alþin^is á föstudaginn.
„Nú, éj{ fékk svo 20 atkvæði
sjálfstæðismanna svo það voru
bara forsætisráðherra »K einhver
einn annar. sem ekki skiluðu sér
i okkar raðir í kosninj?unni,
þannÍK að ekki hafa allir liðs-
menn rikisstjórnarinnar verið
hrifnir af þessu leynimakki for-
sætisráðherra.“
Björgvin hafnaði
i f jórða sæti
BJÖRGVIN Halldórsson sönRvari
varð fjórði í röðinni í alþjóðleKU
sönKvakeppninni i Castlebar á
trlandi sem lauk nú um helKÍna. í
keppninni tóku þátt fjölmarKÍr
sönjfvarar ok hljóðfæraleikarar
frá nærri tuttuKU þjóðlöndum, en
alls bárust um 1800 Iök til keppn-
innar.
Þá voru í keppninni valin bestu
löRÍn frá Bretlandi, írlandi og frá
löndum utan Bretlandseyja. Var lag
Björgvins valið besta lagið í keppn-
inni, af lögum sem ekki komu annað
hvort frá Englandi eða írlandi.
„Með þessu voru mennirnir ekki
að verja lýðræðið, frekar en þeir
eru vanir,“ sagði Pétur. „Það var
auðvitað vitað mál, að sá alþýðu-
flokksmaður, sem til greina kom,
var Karl Steinar Guðnason, vara-
formaður Verkamannasambands-
ins. Má vera, að nú, þegar Guð-
mundi J. Guðmundssyni þykir
ekki nóg að stökkva í Stykkishólm,
heldur hyggur á ferð alla leið til
New York eftir að hafa sett fram
þá skoðun, að Alþingi eigi að taka
við, þar sem hann, Karl Steinar og
væntanlegt forsetaefni Alþýðu-
sambands Islands eru búnir að
koma málum launþega í strand,
þyki ríkisstjórnarmönnum heppi-
legt að gera Alþýðuflokkinn og
Karl Steinar sér handgengnari
með öllum tiltækum meðölum."
Pétur Sigurðsson
Mbl. spurði Pétur, hvers vegna
hann hefði síðan hafnað því að
vera í framboði til annars varafor-
seta. „Mér þótti það eðlilegt í
framhaldi af hinu,“ svaraði Pétur.
„Mér fannst ekki rétt, að þing-
flokkur Sjálfstæðismanna yrði
látinn gjalda þess, ef þessu væri
beint gegn mér persónulega. Það
var í alla staði eðlilegt, að hann
fengi annan varaforseta og ég
vildi ekki standa í vegi þess.
Það er svo rétt að minna á það,
að það var Gunnar Thoroddsen,
sem upphaflega var kosinn fyrri
varaforseti Sameinaðs Alþingis í
fyrra og þegar hann óskaði eftir
lausn frá því embætti, var ekki
talið óeðlilegt, að maður úr okkar
röðum tæki við og ég fékk ágrein-
ingslausa kosningu."
Rikisstjórnin óskaði lánsheimilda fyrir starísmenn Flugleiða:
„Útlánsaukningunni verður
að halda í vissum skef jum“
ekki
— segir Ragnar Arnalds fjármálaráðherra
„RÍKISSTJÓRNIN sneri
sér til Seðlabanka íslands
ok óskaði eftir því að hann
aðstoðaði viðskiptabank-
ana við það að lána starfs-
mönnum Flugleiða fé í
þeim tilgangi að kaupa
hlutabréf í Fluj'leiðum og
var talað um lánsfé allt að
200 millj. kr.,“ sagði Ragn-
ar Arnalds fjármálaráð-
herra í samtali við Mbl.
Hins vegar kvaðst Ragnar
vita hvort tryggt
væri að allir starfsmenn
Flugleiða gætu átt þarna
hlut að máli, en kvaðst
ekki vita annað en að allir
starfsmenn sem þess ósk-
uðu gætu fengið lán og til
greina kæmi að hækka
upphæðina ef þess þyrfti.
Aðspurður um það hvort þessi
afgreiðsía ríkisstjórnarinnar sam-
ræmdist stefnu stjórnarinnar um
samdrátt í útlánum, sagði Ragnar:
„Það segir sig sjálft að þó okkur í
ríkisstjórninni blöskri stundum
hvað útlánaaukningin er mikil hjá
viðskiptabönkunum, þá er ekki
þar með sagt að við séum andvígir
öllum útlánum, en eftir sem áður
verður að halda útlánaaukning-
unni i vissum skefjum.”
Sigfinnur Karls-
son, Neskaupstað:
Gengið
á rétt
sjómanna
„VIÐ erum náttúrulega ekkert
hressir, þegar það er tekið
svona mikið í þennan olíusjóð,"
sagði Sigfinnur Karlsson for-
maður Sjómannafélagsins á
Neskaupstað. „Reyndar er nú
starfandi nefnd, kosin í tíð
Kjartans Jóhannssonar og
kölluð hlutaskiptanefnd og
hún á að koma saman í síðasta
skipti næstkomandi föstudag.
Þar hafa verið uppi hugmyndir
um breytingar á hlutaskipta-
kerfinu, sem ég get samt ekki
greint frá á þessari stundu í
fjölmiðlum, því enn hefur ekk-
ert verið ákveðið í þessu sam-
bandi.
En í sem stystu máli sagt, þá
er með þessari hækkun á
olíugjaldinu, verið að ganga
töluvert á rétt sjómanna. Hins
vegar fá þeir 8% hækkun á
gamla fiskverðið, og við vitum
ekki hver hækkunin í landi
verður, en 8,57% er þó komið
inn í þetta frá því að síðasta
fiskverðsákvörðun var gerð og
þetta er þó alltaf rúmu hálfu
prósenti lægrá, hver sem
framtíðin verður. En það er ef
til vill ekki alveg rökrétt að
Helgarskákmót
á Akureyri
Samvizkufangar Amnesty International 1980:
Frelsissvipting í
margvislegri mynd
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International gangast árlega
fyrir „viku samviskufangans" í
þriðju viku október til stuðnings
þeim sem eru ofsóttir og kúgaðir
vegna skoðana sinna. Að þessu
sinni verður sérstök athygli vakin
á „frelsissviptingu í margvíslegri
mynd„. Þá er átt við aðferðir, sem
notaðar eru til þess að komast
hjá pólitískum réttarhöldum. At-
hygli er einnig beint að mönnum,
sem dæmdir eru í fangelsi vegna
skoðana sinna.
Amnesty International eru
samtök sjálfboðaliða með rúm-
lega 250 þúsund félaga og stuðn-
ingsmenn í 134 löndum. í viku
samviskufangans 1980 er ljósi
beint að eftirfarandi kúgunarað-
ferðum:
Menn eru látnir „hverfa“.
Þúsundum manna, sem gagnrýna
stjórnvöld eða eru grunaðir um
andstöðu, hefur verið rænt á
heimilum sínum eða á götum úti.
Margir finnast síðar myrtir. í
Argentínu er giskað á að um 15
þúsund manns hafi „horfið" síðan
1975. Þeir, sem hafa sloppið, hafa
lýst fjölda leynilegra fangabúða,
þar sem pyndingar og morð eru
daglega. I Guatemala er talið, að
25 þúsund manns hafi „horfið"
síðan 1%6 og mörg þúsund í
Chile. I ýmsum öðrum heimshlut-
um „hverfa" menn.
„Bannsetning", stofufangelsi.
útlegð innanlands. í Suður-
Afríku er talið, að rúmlega 1400
manns hafi verið settir í „bann“
síðan 1950, eingöngu að skipun
ráðherra. Fólkið býr árum saman
við strangar hömlur, má ekki
vera á ferli utandyra nema á
tilteknum tíma daglega, má
hvorki skrifa hverjum sem er né
ræða við hvern sem er. Það er í
einangrun og undir ströngu eftir-
liti. Sovétríkin og Chile eru dæmi
um lönd þar sem menn eru sendir
í útlegð til afskekktra staða
innanlands. Suður-Kórea og
Mið-Afríkulýðveldið eru tvö
dæmi af mörgum um lönd þar
sem menn eru settir í stofufang-
elsi til þess að bæla niður andóf.
Skammtímafrelsissvipting. í
Kolombíu eru baráttumenn fyrir
réttingum indíána og verkalýðs-
félaga handteknir og settir í
fangelsi skamman tíma. í senn
hvað eftir annað, og stundum eru
þeir pyndaðir áður en þeir eru
leystir úr haldi. Pakistan og
Pólland eru tvö dæmi af mörgum
um lönd, þar sem menn eru með
síendurteknum hætti settir í
fangelsi í skamman tíma, oft án
þess að vera leiddir fyrir rétt.
Tilbúnar sakargiftir. Rúm-
enskur hagfræðingur sótti um
útflytjendaleyfi til þess að geta
verið samvistum við eiginkonu og
börn erlendis. Hann var settur í
fangelsi, ákærður og dæmdur
fyrir „kynvillu". Samviskufangar
í Rúmeníu og Sovétríkjunum
hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir
„óspektir á almannafæri",
„sníkjulíf" og aðrar sakir. í Mex-
íkó hefur fólk, sem staðið hefur í
landareignadeilum, eða staðið
framarlega í samtökum stúdenta
eða verkalýðsfélaga, verið sett í
fangelsi, borið sökum sem virðast
tilbúnar. Margt bendir til þess að
kúgun af þessu tagi færist í
aukana í mörgum löndum.
I tilefni af „viku samviskufang-
ans 1980“ efnir íslandsdeild
Amnesty International til ljós-
mynda- og veggspjaldasýningar í
anddyri Kjarvalsstaða.
(Fréttatilkynning)
Akureyri. 10. októher.
FIMMTA helgarskákmót tíma-
ritsins Skákar og Skáksambands
íslands var sett á Hótel KEA kl.
14 í dag. Við upphaf skákmótsins
töluðu Ingimar Jónsson, forseti
Skáksambands íslands, og Freyr
Ófeigsson, forseti bæjarstjórnar
Akureyrar, en siðan lýsti Jóhann
Þ. Jónsson, skákstjóri mótsins og
ritstjóri tímaritsins Skákar,
leikreglum.
Að því búnu bað hann Elías
Elíasson bæjarfógeta að leika
fyrsta leiknum fyrir Birgi Sig-
urðsson, sem tefldi við Helga
Ólafsson í fyrstu umferð.
Á helgarmótinu á Akureyri
keppa um 60 manns eða 18 fleiri
en áður hafa tekið þátt í sams
konar mótum. Meðal keppenda eru
margir kunnustu skákmanna
þjóðarinnar, en yngsti keppandinn
er Bogi Pálsson, 9 ára, Akureyr-
ingur.
Sv.P.
Elías Elíasson bæjarfógeti opnar mótið og leikur fyrsta leiknum i
skák þeirra Helga ólafssonar og Birgis Sigurðssonar.
Ljósm. Sverrir Pálssun.
Sjálfstæðismenn f unda
um þingnefndirnar
STEFNT ER að nefndakjöri á
Alþingi á mánudaginn, en í gær
höfðu stjórnarliðar og stjórnar-
andstæðingar í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins ekki náð sam-
komulagi um nefndaframboð. I
gær hittust Ólafur G. Einarsson,
formaður þingflokksins, og
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, og í dag er ráðgerður
fundur stjórnar þingflokksins og
ráðherra sjálfstæðismanna.
Bæði framsóknarmenn og al-
þýðubandalagsmenn leggja höf-
uðáherzlu á að ríkisstjórnin fái
meirihluta í þingnefndum.