Morgunblaðið - 12.10.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
7
Umsjón: Gísli Jónsson
69. þáttur
Oft er gott það er gamlir
kveða, segir á fornum bók-
um. Sannast það enn, þegar
litið er í bréfasafnið, og hér
er þá sönnunargagnið.
Jón Helgason í Hafnarfirði
skrifar mér svo:
„Góðan dag, Gísli Jónsson.
Ávallt hef ég lesið þætti
þína „íslenskt mál“ í Morg-
unblaðinu og stundum lang-
að til að leggja þar „orð í
belg“.
Mér finnst, að orðið fall í
eignarfalli ætti ekki að ber-
ast fram á þann veg sem gert
er. Það heyrist ekki síst, þá
verkföll eru á dagskrá. Þá er
talað um verk- falsrétt, -fals-
menn, -falsverði. Og hvernig
er ekki með börnin hans
Halls. Þau eru bara sögð
halsbörn, eins og raunar öll
börn eru.
í eftirfarandi Ijóðlínum
finnst mér að í rímorðunum
ætti að heyrast ellin bæði:
Ék hraðaði ferð til hans Ilalls.
mitf hungraði til hans skyrdalls.
Drífa sig marKÍr til danspalls,
dratfast þar oft til marií-s hralls.
Ferleií er beiskja fiskKails,
furðu þungt áslaK tréhnalls.
Berist til óklcyfs herKsstalIs
bolvaldur þráláts verkfalls.
Svo er orðið fallegt alltaf
borið fram sem væri það með
þremur ellum. Um það, eða
út af því, er þessi visa:
Mörg er blóma fylking frið,
falIeK eftir sumartið,
en að hausti fallleK fljótt
fyrstu eftir hélunótt.
Þetta lætur nægja og þér
biður heilla hálfníræður
karl.“
Þannig var þetta skemmti-
lega og elskulega bréf Jóns
Helgasonar. Ég þakka hon-
um kærlega fyrir og öllu
öðru góðu fólki sem leggur á
sig að skrifa mér. Ég fæ
aldrei vond bréf.
Skemmtilegur er leikur
Jóns í Hafnarfirði með orð-
myndirnar fal-legur og fall-
legur. Líklega er svo að
skilja, að hið fyrra hafi verið
notað um það sem menn
vildu falast eftir, en fall og
dauði bíður blómsins eftir
fyrstu frostnóttina.
Haraldur Guðnason í
Vestmannaeyjum segir sér
virðist að tískuorð og orða-
tiltæki vaði uppi í „ríkara
mæli“ en nokkru sinni fyrr.
„Nú er flest að verða „í
ríkum mæli“, svo að notuð
séu hans óbreytt orð. Gott er
þó meðan orðið mælir í þessu
sambandi heldur kyni sínu.
Oft hef ég séð það í hvorug-
kyni. Eitthvað verður þá „í
ríku mæli“.
Haraldur hefur heyrt í
útvarpinu dæmi þess, að
menn kunni ekki að beygja
orðið fé. Að sjálfsögðu verð-
ur til þess að ætlast, að svo
algengt orð sé ekki ranglega
beygt í ríkisfjölmiðlum.
Hinu er ekki að neita, að
orðið fé er býsna sérstakt.
Það er eina hvorugkynsorðið
í íslensku, þeirra er hafa
sterka beygingu, sem ekki
endar á s i eignarfalli, er því
í sama beygingarflokki og
hönd og köttur (u-stofn). Þar
af kemur hið sérkennilega
eignarfall sem var fé-ar, srb.
hand-ar og katt-ar. Orð-
myndin féar breyttist síðar í
fjár, eins og t.d. þegar sögnin
að séa verður sjá. Þessi
breyting er ekki fátíð og
nefnist samdráttur. Eftir
þessa breytingu er rétt að
segja að ekki verði allar
ferðir til fjár, hvorki fjárs né
fés. En mikil vorkunn má
það vera fólki að vilja hafa s
í eignarfalli þessa orðs, svo
sem er í öllum öðrum sterk-
um hvorugkynsorðum. Mér
er nær að halda að orðmynd-
in fjár hefði alveg glatast og
eignarfallið hefði með
áhrifsbreytingu orðið fés, ef
danska tökuorðið fés í
merkingunni andlit (óvirðu-
leg merking) hefði ekki fyrir
guðs miskunn komið í veg
fyrir þessa breytingu með
tilveru sinni.
Haraldur Guðnason hefur
margt að segja um ofnotkun
forsetningarinnar yfir. Áður
en dæmi eru tekin af því
þykir ekki úr vegi að minna á
hvernig forsetningin handa
fer nú ómaklega í felur vegna
ofnotkunar fyrir. í auglýs-
ingum er löngum sagt að
allir skapaðir hlutir séu fyrir
þennan eða hinn eða jafnvel
fyrir alla, en ekki handa
öllum.
Meðal dæma þeirra, sem
Haraldur telur, eru tvö úr
útvarpinu, þar sem talað var
um að taka eitthvað yfir í
merkingunni að ná valdi á
því. Ennfremur segir hann
orðrétt:
„I tímaritinu Fólki stóð
þessi fyrirsögn 9. sept.:
„Smábílarnir taka yfir í
Bandaríkjunum.““ Við þetta
er engu að bæta nema því, að
„yfirgangurinn" er þá orðinn
sýnu meiri en góðu hófi
gegnir.
Dömu
vattúlpur
Stæröir: 36—44
Litir: Drapp, grænt, blátt.
svart.
Verö: 34.900 kr.
onnon
rudidinil ovauv.
HAGKAUP
MYNDAMÓT HF.
PRENTMYNOAGERÐ
AÐALSTRETI • - SÍMAR: 17152-17355
Tilbúið undir tréverk
Var aö fá í einkasölu nokkrar af hinum eftirsóttu
íbúðum við Orrahóla í Breiðholti III:
Eins herbergis íbúð. (Aöeins 1 til á 8. hæö).
2ja herbergja íbúð. (Aöeins 1 til á 8. hæö).
3ja herbergja íbúöir. (Mjög stórar).
íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk, sameign
inni fullgerð, húsiö frágengið að utan og lóðin
frágengin að mestu. íbúöirnar afhendast strax.
Beöiö eftir húsnæðismálastjórnarláni, 3,6 milljónir.
Lyfta komin. Teikning til sýnis á skrifstofunni.
Stórar svalir yfirleitt. Frábært útsýni.
Upplýsingar á sunnudag í síma 34231.
Árni Stefánsson, hrl.
Suöurgötu 4. Sími 14314.
i **&****<?
i
*
4
3
3
i
V
260 fermetra lúxusíbúð
Til sölu er lúxusíbúð á 3. hæð viö Borgartún.
íbúðin er m.a. stofur um 65 fm., stór skáli m. arni,
boröstofa, 3 svefnherb., eldhús, 2 baðherb.,
þvottahús, geymslur o.fl. Allur frágangur í sér-
flokki.
Getur einnig hentaö sem skrifstofuhúsnæöi.
II
Upplýsingar gefa Eignamarkaðurinn Austurstr.
6, s. 26933 og Jón Magnússon hdl. og Sigurður
Sigurjónsson hdl. Garðastræti 16, s. 29411.
#J Pólýfónkórinn
Nú veröur sungiö á Sögu!
Kveðjuhóf
til heiöurs hinni stórkostlegu söngkonu
Maestra
Eugenia Ratti
í Súlnasal Hótel Sögu, sunnud. 12. okt.
Húsið opnað kl. 19.00. Kvöldverður hefst kl. 20.00.
Menu: Creme au Chouxfleur
Gigot d’agneau roti
Bavarois au Rhum
Skemmtiatriöi: Pólýfónkórinn ásamt 12 einsöngvurum
og Maestra Ratti syngja.
Dans: Hljómsveit hússins leikur.
Ath.: Vegna boröpantana: Sími yfirþjóns 20221.
Vegna ósóttra miöapantana: Sími 72037 og
13745 Pólýfónkórinn.
Vatnsþéttur
krossviður
Mótakrossviöur
Combi-birkikrossviöur
Meranti-haröviöar krossviður
Rifflaöur oregonpinekrossviöur
Mjög hagstætt verð.
Timburverzlunin
Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430
Til leigu í
miðbænum
Húseignin Hafnarstræti 7/Tryggvagata 26,
sem nú er í byggingu, er til leigu. í húsinu
fullbyggðu veröur eftirtaliö húsnæöi:
Kjailari: 719m2, bifreiöageymsla o.fl.
1. hæö: 638m2, verzlanir eöa þjónusta.
2. -4. hæd: 6x260m2, skrifstofur eöa þjón-
usta.
Húsnæöinu má skipta á ýmsa vegu. Nánari
upplýsingar veitir
Steindór Haarde, verkfræðingur,
Verkfræðistofan Vægi, Túngötu 6.
S. 29199 (e. hád.). Heimasími 19999.
betta hús, sem er á eftirsóttum stað í Reykjavík,
er til sölu. Grunnflötur hússins er 100 fermetrar,
þannig að eignin öll er ca. 320 fermetrar. Neðsta
hæöin hentar vel hvort heldur er til iðnaðar,
verzlunar eða íbúðarhúsnæðis. Nánari upplýs-
ingar í síma 32956 og 31257.