Morgunblaðið - 12.10.1980, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 12.10.1980, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 Gamli Ögri í reynslusiglingu við Molde í Noregi 1%4. Sverrir Hermannsson stjórnarformaður Ögurvikur: Gefðum fyrst- ir Islendinga samninga um kaup og smíði á skuttogurum Útgerðarfélagið Ögurvík er 10 ára um þessar mundir. var formlega stofnað 1970 af hlutafélögunum Ögra og Vigra. en aðaleigendur þeirra voru Þórður og Gísli Jón Hermannssynir og Halldór Þorbergsson og Pétur Gunnars- son. Ögurvík hf. varð svo fyrsti islenzki aðilinn til að semja um nýsmíði skuttogara erlendis og á það nú og rekur skuttogarana ögra og Vigra. Auk þess á Ögurvík einn þriðja hlut í fyrstihúsinu Kirkjusandi og rekur það með SÍS. Sverrir Hermannsson er stjórnarformaður Ögurvíkur og í tilefni 10 ára afmælisins ræddi blaðamaður Mbl. við hann um aðdraganda að stofnun útgerðarinnar. Fyrst var Sverrir beðinn að segja deili á þeim Ögurvíkurbræðrum. „Við erum Djúpmenn, Vestfirð- ingar, bræðurnir, Strandamenn í föðurætt og Skötfirðingar og Djúp- menn í móðurætt. Foreldrar okkar bjuggu í Ögurvík á Svalbarði, en fyrstu átta ár búskapar síns áttu þau reyndar heima í Ögri. í Ögurvík byggðu þau þurrabúð, grasbýli, og voru þar til 1945 er þau fluttu til ísafjarðar. Faðir okkar stundaði auðvitað sjóinn eins og aðrir og þá fyrst á árabátum, en frá 1930 reri hann á trillu og var þá vor og haust sótt á hin gjöfulu Djúpmið, á vetri ,n lágu fiskveiðar að mestu niðri og á sumrum milli vertíða var heyjað fyrir þessar 30 til 40 rollur og einu kú, sem foreldrar okkar voru með. Ég var alltaf sjóveikur og slakur til róðra og því var brugðið á það ráð að senda mig í skóla. Allir hinir bræður mínir fimm, urðu hins vegar skipstjórar, enda aldir upp á trill- unni og síðar stærri bátum frá ísafirði. Nú er það bara Halldór, bróðir okkar, sem enn er skipstjóri í starfi, en hann á og gerir út rækjubát frá ísafirði. Yngstur bræðranna er Birgir, sem var skip- stjóri á vegum SÞ í Vestur-Indíum og á Malasíu um árabil, nú starfs- maður hjá Fiskifél. íslands. Ég vandist loks af sjóveikinni á síld 1947, en það var of seint og þá var ég sendur í Menntaskólann á Akureyri, en vettvangur allra hinna varð sjórinn. Gunnar heitinn var skipstjóri hjá Jóni Gíslas.vni í Hafnarfirði og var þá með Faxaborgina, mikið og gott síldarskip. Það var svo í kringum 1958, að Þórður Helgason vélstjóri og Gunnar bróðir stofnuðu Eldborg hf. Þeir létu þá smíða 140 lesta skip í Molde í Noregi og var ég hafður með í fyrirtækinu, sem algjör auka- maður til snúninga í landi og ég man að Jóhann Hafstein lánaði mér 20 þúsund, svo að ég gæti orðið hluthafi. Þeim vegnaði strax vel og það sýndi sig, að samvinna skip- stjóra og vélstjóra, sem báðir unnu um borð, var skynsamlegt skipulag. 1964 létu þeir byggja nýja Eldborg á sama stað og áður og var hún 220 lestir. Þremur árum seinna byggðu þeir svo þriðju Eldborgina, sem þá var stærsta fiskiskip byggt hérlend- is og var það Slippstöðin á Akureyri, sem byggði það, og var kostnaður- inn 28 milljónir og 136 þúsund og þótti það geypiverð. Lokahnykkur- inn í samstarfi þeirra var svo nýjasta Eldborgin, sem er stærsta fiskiskip flotans og byggt í Udevalla í Svíþjóð. Þórður og Gísli Jón voru framan af togarasjómenn, Þórður var með Þorstein Ingólfsson hjá Bæjarút- gerðinni og Gísli bátsmaður og stýrimaður á togurum. Upp úr 1960 fara þeir að hugsa sér til hreyfings, en þá var Gísli Jón orðinn stýrimað- ur hjá Gunnari á Eldborginni. Þeir taka saman höndum við vélstjóra, Þórður við Halldór Þorbergsson og strofnar Ögra hf., og Gísli Jón við Pétur Gunnarsson og stofnuðu þeir Vigra h.f., en ég var snúningamaður í landi hjá báðum fyrirtækjunum. Þessi fyrirtæki sömdu síðan um smíði tveggja 200 lesta skipa í Molde í Noregi, þar sem fyrstu tvær Eldborgirnar voru smíðaðar og fet- uðu þannig í fótspor þeirra Gunnars og Þórðar Helgasonar. Þessi skip, Ögri og Vigri, komu síðan til landsins 1963 og hófu þegar síld- veiði, sem þá var í algleymingi. Skipin stunduðu svo síldveiðarnar þar til síldin hvarf af miðunum, en eftir það sneru þau sér aðallega að togveiðum, þar sem loðnuveiðar voru ekki byrjaðar enn að marki. Þeim félögum þótti annars lítil framtíð í þessum veiðum, þetta gerði ekki meira en svo að standa á jöfnu. Svo er það haustið 1968 að bæði Ögri og Vigri höfðu verið teknir upp í slipp í Reykjavík og lágu í höfninni eins og nýjar mublur. Þá kemur maður hingað til lands, fulltrúi útgerðarfyrirtækis í Valvis Bay í Suðvestur-Afríku, sem líklega heitir Namibía nú, og var hann að leita eftir kaupum á notuðum nótaskip- um. Hann gerir tilboð í bæði skipin og býðst til að borga þau út í hönd, verði þeim siglt suður eftir og þeim kennt að fara með þau. Árið 1968 var mikið kreppuár, þá var verðfall og mikið atvinnuleysi, þó Viðreisninni tækist reyndar á ótrúlega skömmum tíma að bjarga þeim málum. Okkur var fullkunnugt um að útflutningsleyfi þurfti til að selja skipin úr landi og ég fór því til Bjarna Benediktssonar þáverandi forsætisráðherra og spurði hann, hvort við mættum selja skipin úr Sverrir Hermannsson landi. Hann sagði að slíkt leyfi fengjum við ekki vegna þess hve slæmt atvinnuástand væri í Reykja- vík, nema að við hæfumst handa um framtak í atvinnuskyni, sem að minnsta kosti yrði jafngilt því sem áður var. Bræður mínir höfðu áður rætt og fengið áhuga á skuttogaraútgerð, en á þessum tíma höfðu íslendingar verið uppteknir um langa hríð af síldinni og síldargróðanum og því var togaraútgerðinni ekki sinnt sem skyldi. Viðreisnarstjórnin hafði þó, áður en þetta var, skipað nefnd til að athuga þessi mál. Það verður svo ofan á að fyrir- tækin Ögri og Vigri taka ákvörðun um að láta smíða tvo skuttogara í Póllandi og 1969 var gerður bráða- birgðasamningur við skipasmíða- stöðina í Gdynia og er það fyrsti samningur um kaup og smíði á skuttogurum á íslandi. Við fengum því útflutningsleyfið og litlu bátunum var siglt suður eftir og þeir borgaðir út í hönd og gerði það þetta allt saman mögu- legt. Bæði skipin, Ogri og Vigri, komu svo hingað 1972, en formlega var Ögurvík hf. stofnað 1970 og því er fyrirtækið 10 ára um þessar mundir. Aðaleigendur eru gömlu hlutafé- lögin Ögri og Vigri og þeir sem að þeim fyrirtækjum stóðu. Nýir hlut- hafar eru svo skipstjórarnir Hans Sigurjónsson og Brynjólfur Hall- dórsson, Þórður Jónsson, bókari Ögurvíkur, og Björn Þórhallsson, félagi minn, sem hafði verið með í Ögra og Vigra. Við keyptum strax í upphafi skrifstofuhúsnæði við Týs- götu 1 og höfum við verið þar síðan. 1975 keyptum við svo einn þriðja hlut í frystihúsinu Kirkjusandi og eigum það og rekum með sjálfu Sambandinu. Framkvæmdastjóri Ögurvíkur er Gísli Jón Hermanns- son og skrifstofustjóri Þórður Her- mannsson. Þeir bræður ásamt félög- um þeirra hafa haft allan veg og vanda af rekstri þessa fyrirtækis. Það hefur gengið vel, enda hafa þeir haft á að skipa eínvala liði mann- skaps frá upphafi. Það var nýlega í athugun hjá okkur að bæta við einu skipi, en samkvæmt útreikningum okkar hefði það aldrei gengið upp, og ef út í það hefði verið farið, hefðum við lent í endalausu skulda- feni, sem við treystum okkur ekki til vegna þess að við þurfum að reka fyrirtækið sjálfir og getum ekki skattlagt neina aðra til að bjarga okkur. Jafnvel þó vel hefði fiskazt og allt gengið eins og í sögu, blasti tap við. Það er ekki gott að verða að fullnýta skipin án þess að geta endurnýjað þau. Nú stendur til að lengja bæði skipin og kassavæða þau, auk annarra eðlilegra breyt- inga og viðhalds og verður það gert í Póilandi. Ögurvík er sjálft með neta-, hlera- og víraverkstæði og sá ágæti maður, Pétur Gunnarsson vélstjóri, hefur umsjón með skipun- um í landi, svo við þurfum ekki að sækja mikið til annarra. Við erum bjartsýnir á framtíð útgerðar á íslandi, fiskurinn er alltaf að aukast í sjónum svo það hlýtur að vera bjart framundan," sagði Sverrir Hermannsson að lok- um. Nýi Ögri í Reykjavíkurhöfn, nýkominn til landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.