Morgunblaðið - 12.10.1980, Side 19

Morgunblaðið - 12.10.1980, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 19 „Ég trúi að Guð hafi læknað migu nGuð læknaði mig á sam- komunum hjá Rolf Karlson. Ék finn það sjálf og hef enga ástæðu til að trúa öðru.“ sagði RaKnheiður Maríasdóttir í samtali við hlaðamann Mbl. „Fyrir fimm árum klemmd- ist afltaugin í hægra arminum. Ég missti allan þrótt úr hend- inni og var send í þjálfun á Ragnheiður Mariasdóttir. rétt upp fyrir olnboga. Mér fannst hendin hitna. Eg var bíllaus og gekk því heim að lokinni samkomu. Það var kalt en ég fann aldrei til kulda á hendinni, mér var heitt á hægri hendinni. Það gerðist ekkert meira þarna um kvöldið. En morgun- inn eftir hugsaði ég með mér að best væri að athuga hend- ina, athuga hvort eitthvað hefði gerst. Þegar ég snerti fingurgómana fann ég að ég hafði fengið tilfinningu í þá aftur og ég gat á ný hreyft hendina eðlilega. Það var svo eftir aðra sam- komu hjá Rolf að ég fann að ég hafði ekki lengur verki í fótun- um. Ég finn stundum fyrir þreytuseyðingi í fótunum enn- þá en hef enga verki. Ég get nú sofið vært á hverri nóttu og á ekki lengur erfitt með gang.“ — Hefur þú farið til læknis síðan þetta gerðist? „Ég hef ekki gert það en ég finn að ég hef fengið lækningu. Áður átti ég t.d. mjög erfitt með að sauma og halda á nál. En nú finn ég ekkert fyrir því. Ég hafði líka lengi þurft að ganga í sjúkrabelti vegna brjósklosins en hef ekki þurft að fara í það síðan ég læknað- ist. Ég finn ekki annað en að ég sé fullfrísk bæði í hendinni og fótunum." Reykjalundi um tíma. Ég fékk mikla bót þar en fékk ekki aftur tilfinningu í fingurgóm- ana og gat ekki hreyft hendina nema takmarkað. Ég hef líka verið með brjósklos í fótunum í mörg ár. Ég gat oft ekki sofið á nóttunni fyrir verkjum og átti orðið mjög erfitt með gang. Á einni samkomunni sagði Rolf að í salnum væri fólk með slæmar hendur. Bað hann fólk um að rétta upp hendurnar. Ég gerði það og um leið fann ég hitastraum líða um hendina — Fórstu á samkomuna í þeirri von að þú læknaðist? „Nei, ekkert frekar. Ég hef mína barnatrú og hef oft sótt samkomur hjá Hvítasunnu- söfnuðinum." — Hefur þetta atvik breytt þínu trúarlífi? „Ég get ekki sagt það. Ef einhver læknir hefði læknað mig hefði ég trúað því. Ég trúi því að Guð hafi læknað mig og ég trúi því einnig að hann haldi áfram að hjálpa mér,“ sagði Ragnheiður. uðið. Ég fann mikið til í bakinu á samkomunni en siðan þá hef ég ekki fundið fyrir verkjum í bakinu. Daginn eftir samkomuna fór ég í vinnuna og erfiðaði mikið. Ég bar þunga kassa upp og niður tröppur en fann hvorki til þreytu né verkja. Ég hef alltaf þurft að fara í nudd af og til til að lina upp vöðvana í bakinu. Ég fór til nuddlæknisins stuttu eftir sam- komuna en hann fann ekkert að bakinu lengur. Hann sagði að það væri orðið alveg slétt og mjúkt." — Komstu á samkomuna í þeirri von að þú læknaðist? „Nei, ég hugsaði aldrei út í það. Ég bið oft Guð um að hann megi hjálpa mér eins og öðrum. Ég hef alla tíð verð trúaður og trúað því að Guð muni hjálpa mér og ég held að þetta atvik komi til með að styrkja mig enn meira í trúnni." Jóhannes G. Svavarsson. fT & Sjávarrétta- vika Dagana 12. —19. október kynna matreiöslumeistarar Esjubergs ótal tegundir Ijúffengra sjávarrétta á hlaöboröi. Djúpsteiktur skötuselur, djúpsteiktur kolkrabbi og djúpsteiktar gellur. Grillaöar úthafsrækjur (heilar). Heilagafiski, kavíar og kræklingur. Humarsúpa. Síldarréttir, blandaöir sjávarréttir og margt fleira. Auk þess nýr lax, reyksoðinn lax, gravlax og silungur. — Og auðvitað Salatbarinn vinsæli. Esjutríóið leikur fyrir matargesti í há- deginu og um kvöldið. Munið ókeypis sérrétt fyrir börn 10 ára ogyngri. Irfi Ódýrir fataskápar ^ Kr. 68.000 Kr. ► 84.000 Breidd 60 sm Dýpt 60 sm Hæö 210 sm Odýru Kalmar-fataskáparnir með hvítu hurðunum verða til afgreiðslu fljótlega. Pantanir óskast staöfestar. Kr. ► 150.000 Breidd 100 sm Dýpt 60 sm Hæð 210 sm K, . 1 t (<A kajmar innréttingar hf. SKEIFAN 8. REYKJAVÍK SÍMI 82645

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.