Morgunblaðið - 12.10.1980, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 12.10.1980, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SÚNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 Minnstu reyk- ingar hættulegar MIÐALDRA menn geta minnkað hættu á banvænu hjartaslagi um helming með því að hætta reykin«um. breyta mataræði sínu og leggja af, að því er fram kemur í niðurstöðum rann- sókna norsks læknis við Ulle- vál sjúkrahúsið í Osló á 1.200 mönnum á fimmtugsaldri. í niðurstöðum sínum segir læknirinn, að reykingar verki með öðrum hætti á hjarta- og æðakrefið en aðrir áhættu- þættir. Reykingar virkuðu beint á hjartavöðvann og gætu valdið örum hjartslætti, hjartastöðvun og skyndilegu andláti. Háþrýstingur, hins- vegar, og mikil blóðfita stífl- uðu smám saman slagæðar. Læknirinn segir ennfremur, að minnstu vindlingareykingar séu skaðlegar, og það sé engin lausn að draga úr daglegri neyzlu eða skipta yfir í pípu eða vindla, eða a.m.k. afar varasöm. Hann segir miklar hættur fylgja minnstu reyk- ingum ef minnstu hjartaveilur eru fyrir hendi. í klakstöðinni Noróurlax hf. að Laxamýri biða nú i kerjum 80 hrygnur og 36 hængir eftir þvi að þau verði „kreist“ eftir miðjan þennan mánuð. en þau eru öll veidd i Laxá. Á myndinni er stöðvarstjórinn, Halldór Daviö Benediktsson, að taka á móti siðasta hængnum. sem veiddur var i Hólmavaðslandi. LjÓNm. Mbl. Spb. AFgefnu tilefnierverðiðá nýjum Volvobilum sem hérsegir VÖlVO244: Gengi 29/9 10.960.000 kr. Við lækkum ekki veróin VOLVO varanleg fjárfesting ISTOÐUCRISOKN PEPSIOCFRAM \ íslandsmótið í handknatt- leik 1. deild í kvöld kl. 20 í Laugardalshöll FRAM ÞRÓTTUR STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17 Bakaríið Kringlan Starmýri 2. /ÉÍ\ TRYGGINGAR ^82800 Tónllst eftir JÖN ÁSGEIRSSON Píanó- tónleikar ÞAÐ VERÐA að teljast töluverð tíðindi er píanó- leikari sunnan úr heimi stefnir til móts við norðan- garðinn alla leið til Is- lands, með op. 111, eftir Beethoven og úrtak úr Prelúdíunum eftir De- bussy, sem veganesti. Það er því nokkuð leitt til þess að hugsa að hann skuli ekki hafa erindi sem erfiði og tilstandið allt verða heldur lítil tíðindi. Anker Blyme, prófessor í píanóleik við Tónlistar- skólann í Kaupmannahöfn, hefur eflaust átt góðar stundir við píanóið, en flutningur hans á op. 111 og nokkrum af prelúdíum Debussys var eitt það kaldranalegasta sem und- irritaður hefur heyrt lengi og svo mjög, að það var notalegt að komast út und- ir bert loft að loknum tónleikunum. Jón Asgeirsson Farþegum * til Islands fer fækkandi I septembermánuði kom alls 13.541 maður til landsins, þar af 9.163 íslendingar en 4.378 útlend- ingar. Fjölmennastir i hópi útlend- inga eru Bandaríkjamenn, eða 1.253, þá eru Norðurlandabúar einnig tíðir gestir. Er þetta fækk- un frá fyrra ári, en í september- mánuði komu alls 16.663 Íslend- ingar voru 10.405 en útlendingar 6.258. Frá áramótum til 30. sept. hafa alls komið til landsins 115.276 menn, 56.805 íslendingar og 58.471 útlend- ingar. Er þetta einnig fækkun frá fyrra ári, en þá komu á sama tíma alls 128.196 til landsins, 60.843 íslendingar og 67.353 útlendingar. Aðalfundur SÁÁ á þriðjudaginn AÐALFUNDUR SÁÁ — Samtaka áhugafólks um áfengisvandamálið, verður haldinn næstkomandi þriðjudag, 14. október. í Kristals- sal Hóteís Loftleiða. Auk venju- legra aðalfundarstarfa og al- mennra umra-ðna um starfsemi Samtakanna mun Jóhannes Berg- sveinsson yfirlæknir, fjalla um ástand áfengisvarnarmála á ís- landi i dag. SÁÁ starfrækir nú sjúkrastöð að Silungapolli, eftiemeðferðarheimili að Sogni, Ölfusi, fræðslu- og leið- beiningastöð í Lágmúla 9, Rvík., í samvinnu við Áfengisvarnardeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur- borgar, kvöldsímaþjónustu (sími 81515) alla daga ársins frá kl. 17.00 til 23.00. Ennfremur gefur SÁÁ regiubundið út Tímarit SÁÁ og kynninarpésa um áfengisvandamál- ið. Fulltrúar SÁÁ mæta á fundum, í félögum og skóium til umræðna um áfengisvandamálið og til kynningar á þeim leiðum sem SÁÁ beitir í starfi sínu, auk þess sem almenn starfsemi SÁÁ er rædd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.