Morgunblaðið - 12.10.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980
27
Áttræðis-
afmæli
ÁTTRÆÐUR er í dag, 12. okt.,
Sigurður Jónsson fyrrverandi brú-
arsmiður á Sólbakka Borgarfirði
eystra.
Sigurður stofnaði nýbýlið Sól-
bakka 1938 og hefur búið þar
síðan. Hann hefur gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir sveit sína,
fyrst í Loðmundarfirði en seinna á
Borgarfirði, sat í hreppsnefnd og
hefur enn með höndum starf
byggingarfulltrúa Borgarfjarðar-
hrepps.
Framan af smíðaði hann hús og
báta, með búskap. 1972 iauk hann
störfum hjá Vegagerð ríkisins og
hafði þá verið brúarsmiður í 27 ár
samfleytt.
Síðan hefur hann unnið við
smærri smíði heima fyrir, þá
aðallega á minjagripum renndum
úr Hallormsstaðabirki.
Sigurður hefur verið til lækn-
inga á Landspítalanum en dvelst
hjá skyldfólki í dag.
S.E.
^'kuldahúfur...
íslenskar, kínverskar
og finnskar skinnkulda-
húfur á börn og fullorðna.
Af hverju ekki aó kaupa
jólagjafirnar meðan
úrvalið er mest og best?
RAMMAGERÐ1N
HAFNARSTRÆTI 19
Bátar frá
Hornafirði eru
flestir komn-
ir á heimamið
Ilöfn. Hornafirdi. 10. október.
IIINGAÐ til Hafnar bárust sam-
tals 2.600 tunnur af síld. sem
fékkst austan við Ingólfshöfða.
800 tunnur fara í söltun hjá
Stemmu, 500 tunnur i frystingu
hjá Fiskiðjuveri KASK og 12—
1300 tunnur í söltun hjá Fiski-
mjölsverksmiðju Hornafjarðar.
Ileldur er farið að hýrna yfir
mönnum hér eftir að síldin kom
austur fyrir Höfða, en svo sann-
arlega voru margir orðnir þung-
ir á brúnina yfir síldarleysinu.
Þrátt fyrir að síldin sé komin á
þessar slóðir, er enn mikil síld í
fjörðunum fyrir austan og þrír
Hornafjarðarbátar eru enn á þeim
miðum. Síldin, sem veiddist í nótt,
er á austurleið og mætir hún
vonandi síldinni, sem kemur suður
með Austfjörðum, hér úti af
Hornafirði. Einn heimabátanna
fékk 5—600 tunnur af fallegri síld
rétt austan við Höfðann, þrátt
fyrir að hann legði ekki fyrr en
undir morgun og var hann afla-
hæstur þeirra báta, sem lönduðu
hér. — Einar
TIL HAMINGJU PER—INGI.
Já, aö sjálfsögöu erum viö stoltir yfir sigri 'V0UV0343
í Evrópu Rally Cross, enda er hann eins og allir
VOLVO bílar einstakur í sinni röö.
í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI
RALLY SPECIAL 1980
KL. 13.30 í DAG Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI.
VIÐ SÝNUM
VOLVO 343 og 345.
VELTIR HF
Suðurlandsbraut 16 • Simi 35200