Morgunblaðið - 12.10.1980, Side 32

Morgunblaðið - 12.10.1980, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 FRÁ DALVÍK Texti og myndir Hjörtur Gíslason Trausti Þorsteinsson, skólastjóri: Nýtt hverfi einbýlishúsa hefur risið á skömmum tíma Við erum hér með alla bekki xrunnskólans og einn bekk framhaldsdeildar, í skólanum eru rúmlega 300 nemendur og 22 settir kennarar og eru þeir nær undantckningarlaust með réttindi. Það hefur gengið alveg ágætlega að fá kennara með réttindi hingað undanfarin ár, cn það hcfur auðvitað nokkuð að segja að við höfum hjálpað þeim við að útvega húsnæði og tekið þátt í kostnaði af búferla- flutningum þeirra,“ sagði Trausti Þorsteinsson skólastjóri Grunnskóla Dalvikur og bæjar- fulltrúi, er biaðamaður rabbaði við hann. „Við erum einnig með heimavist hér á staðnum þó að um kaupstað sé að ræða og hún er aðallega ætluð fyrir nemend- ur úr nágrannasveitunum, Hrís- ey, Arskógsströnd og Svarfaðar- dal en þessi sveitaríélög haía gert samning við skólann um að fá að senda börn í 8. og 9. bekk skólans. Trausti Þorsteinsson. Ráðhús Dalvíkur. Þar eru meðal annars til húsa Héraðsskjalasafnið og Sparisjóðurinn. > JÚIÍUS Kristjánsson, netagerðar- maður: Svarfdælingu gerð góð skil Það er margt handtakið við netagerðina. Dalvíkurhöfn. Netagerð Dalvikur. _Ég er nú ekki ánægður með Moggann þessa dagana. þeir mega nú fyrr láta illa. en að fara svona með Gunnar. Þetta er engan veginn til að sameina flokkinn og líkist miklu meira óvönduðum Þjóðvilja-skrifum og slíkt finnst mér ekki hæfa Morg- unblaðinu. Og hafi einhverntíma þ<>tt tímaba‘rt að vara sjálfstæð- ismenn við villuljósi, þá þykir mér það nú,“ sagði Júlíus Krist- jánsson netagerðarmaður á Dal- vík. þegar blaðamaður Mbl. kom til að rabba við hann. Nóg að gera í netagerðinni Hvenær byrjaðir þú á netagerð- inni? „Við erum nokkrir eigendur að Netagerð Dalvíkur og við byrjuð- um á þessu 1964, þá tókum við við af „Netamönnum"* verkstæði sem Kristinn Jónsson átti. Hann er kannski þekktari undir nafninu Kiddi sund, því hann hefur senni- lega kennt flestum Svarfdæling- um að synda. Þetta er eina netagerðin á staðnum og hefur alltaf gengið vel, þrátt fyrir að síldarævintýrið hafi orðið enda- sleppt. Það hefur einnig orðið nokkur breyting á netagerðinni og hún er nú komin mest yfir í þorskveiðarfæri, troll og net og svo er nú orðið talsvert að gera í rækjutrollum og með nýju síldar- göngunni hefur verið nokkuð mikil vinna við lagnetin. Við vinnum hér eigendurnir, svona 5 til 6 og fleiri ef þörf krefur. Við vinnum eingöngu úr efni frá Hampiðjunni og líkar það vel, enda hefur það alltaf verið ætlun okkar að vinna úr innlendri framleiðslu. Við byggðum þetta húsnæði sjálfir að mestu leyti 1974 á gömlum grunni Dráttarbrautar Dalvíkur og fengum þannig mjög góðar undirstöður. Þetta húsnæði hentar okkur mjög vel og er af heppilegri stærð." Héraðsskjalasafnið stór þáttur í menningarlegu sjálfstæði okkar Nú ert þú formaður stjórnar Héraðsskjalasafns Svarfdæla. Getur þú ekki sagt mér eitthvað um það? „Jú, Dalvíkurbær og Svarfaðar- dalshreppur standa að því, en aðalhvatamaðurinn að stofnun þess er Kristmundur Bjarnason, sem hefur nokkuð mikið komið inn á þetta svið við heimildarsöfnun sína til Dalvíkursögunnar og má eiginlega kalla það fósturbarn hans. Skráning og innköllun skila- skyldra gagna er þegar hafin, en

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.