Morgunblaðið - 12.10.1980, Page 41

Morgunblaðið - 12.10.1980, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1980 41 Ending heimilistækja minnkar NIÐURSTÖÐUR könnunar á veg- um norrænnar emhættismanna- nefndar um neytendamál ligKja nú fyrir. en i henni voru á Islandi sendir út á vegum Kvenfélagasam- bandsins spurningaiistar tii 3000 heimila, þar sem spurt var um kaup, notkun og endurnýjun elda- véla og þvottavéla. En ástæðan var að margir hafa haidið því fram að þær vörur, sem við kaupum. endist okkur i æ styttri tíma, að gæði varanna hafi versnað smám saman. Voru á Norðurlöndum sendar út spurningar um þvottavélar ryksug- ur og eldavélar. en af fjárhags- legum ástæðum var hætt við að fjalla um ryksugur hér. Svör bárust frá 13.500 heimilum á Norðurlönd- unum öllum. Þar kom m.a. fram að sjálfvirku þvottavélarnar virðast ekki vera eins endingargóðar og gömlu þvottavél- arnar. Enda eru þetta flóknari tæki og mikið reynir á þau þegar þeyti- vindunin fer fram. Kom fram að ekkert var því til fyrirstöðu að gömlu vélarnar gætu enst í 20—30 ár. En það kom jafnframt fram að þvottavélar, sem endurnýjaðar voru á árunum 1975—1977/ 1978 hafa að mestu verið endurnýjaðar vegna bilana. Jafnvel kom fyrir að þvotta- vélar voru endurnýjaðar af þeim sökum eftir þriggja ára notkun. í Danmörku og á Islandi bila þvotta- vélar mikið. I Danmörku er lítið hirt um að gera við þær, en Islendingar leggja hins vegar mikið upp úr því að gera við þvottavélar, og endast þær því 45% lengur en í Danmörku. Ryksugur hafa ekki breyst eins mikið á síðari áratugum og þvotta- vélar. En um 1960 tóku framleiðend- ur að smáauka vélaraflið, láta í rykpoka o.fl. Ending eða notkunar- tími ryksuga hefur styst mikið hin síðari ár. Breytingar á framleiðsl- unni, sem í raun og veru voru ekki stórvægilegar en voru auglýstar sem mikil tæknileg framför, hafa valdið því að notkunartími ryksuga er sífellt að styttast, sérstaklega í Svíþjóð. Mismunandi ástaeður eru fyrir því að menn hafa skipt um eldavél hjá sér, í fæstum tilfellum af því hún sé útslitin. Eldavélar geta enst öll hjúskaparárin, en svo virðist sem endingin sé aðeins 15—20 ár. Elda- vélaframleiðendur hafa á undan- förnum árum smám saman breytt framleiðslunni, sett á þær hraðsuðu- plötur, látið glóðarrist í bakaraofn- inn, úr og klukkurofa fylgja eldavél- inni og eru sífellt að breyta útlitinu á vélunum. Þar með finnst mönnum að eldri gerðir eldavéla séu gamal- dags og það flýtir fyrir því, að þær séu endurnýjaðar. Þetta kemur allt fram í skýrslu um niðurstöður. I nefndinni eiga sæti af hálfu íslands Björgvin Guð- mundsson, skrifstofustjóri, dr. Jónas Bjarnason og Sigríður Haraldsdótt- ir. Gerir hún ýtarlegri grein fyrir rannsókninni á ráðstefnu um neyt- endamál hjá Bandalagi kvenna í Reykjavík 11. október. Espigerði Til sölu glæsileg 5 herb. íbúö í háhýsi viö Espigeröi. íbúöin er meö vönduðum innréttingum og sér þvottahúsi. Stæöi í bílhýsi getur fylgt. Laus strax. Uppl. í síma 83324 í dag og næstu kvöld. Akranes Til sölu m.a.: 2ja herb. íbúö við Deildartún. Sér inngangur og hiti. 3ja herb. rúmgóö risíbúö viö Sandabraut. 4ra herb. sér hæð viö Hjarðarholt. Einbýlishús ásamt innbyggðum bílskúr viö Brekkubraut. Hallgrímur Hallgrímsson, lögg. fasteignasali, Deildartúni 3, sími 93-1940. Látiö fagmanninn annast innréttingarnar. Nýjar innréttingar í sýningarsal okkar aö Nýbýlavegi 4, Kóp. Komum heim, teiknum og gefum ráöleggingar yöur aö kostnaöarlausu. Hagstæöir greiösluskilmálar. Opiö laugardag 13—17, sunnudag 13—18. íslenskar innréttingar inn á íslensk heimili. - - ,i rmmSmí't WmmBm Aralöng reynsla i framleiöslu tlSjg 'ýv-i * m RYOBI480 D ---------^ TIL SÖLU Lítið notuð offset prentvél St: 48 x 36 cm. PRENTSMIÐJAN r-nriTi SIMI 66416 Barnaúlpur Stærðir: 104—176. Litir: blátt, drapp, vínrautt. Verð 22.900.- 24.900.- Skíðagallar Stærðir: 104—176 Litir: svart, blátt. Verö: 24.900.- 29.900 - Póstsími 30980. HAGKAUP I- og loft- klæðningar 8 viöartegundir. Verö frá kr. 3.250- pr. m2 meö söluskatti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.