Morgunblaðið - 02.11.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
33
sagði Magnús Einar að með útgáfu-
starfseminni myndi félagið efla
baráttuanda félagsmanna um að
standa vörð um atvinnuöryggismál
félagsins og hag þeirra í hvívetna.
Fjárhagslega ætti rekstur félagsins
að verða hagkvæmari og það þess
megnugt að veita félagsmönnum
betri þjónustu en áður. Takist þetta
myndi það sanna gildi sterks sam-
eiginlegs vettvangs bókagerðar-
manna, sem myndi takast að sækja
fram á veginn í réttindabaráttunni.
Samningamálin
Þá ræddi Magnús Einar Sigurðs-
son nokkuð um samningamálin í
kjölfar þess að samningar hefðu
tekizt milli ASÍ og VSÍ. Eftir 10
mánaða samningsþóf kvaö hann
hafa tekizt samkomulag um svokall-
aðan 4. kafla í samningum HÍP, sem
bókagerðarfélögin öll hefðu viljað
standa að. Hann kvaðst vona, að það
samkomulag, sem tekizt hefði,
myndi tryggja betur atvinnuöryggi
félagsmanna og aðstöðu þeirra til
þess að tileinka sér hina nýju tækni.
Eftir væri þó að semja um öll önnur
sérmál, auk launanna og kvað hann
viðræður standa yfir við viðsemj-
endur félaganna.
Hið íslenzka
prentarafélag
HIP eins og félagið hefur verið
kallað í daglegu tali er stofnað 1897
af 12 prenturum og hefur það verið
brautryðjandi í kjaralegu tilliti í
íslenzku þjóðfélagi. Undanfari fé-
lagsins var gamla Prentarafélagið,
sem stofnað var 1887 og var fyrsti
vísirinn að stéttarfélagi hérlendis.
Það lognaðist þó út af eftir nokkur
ár. Fyrsta vandamál HÍP var at-
vinnuöryggi, þar sem prentsmiðju-
eigendur léku gjarnan þann leik á
þessum árum að ráða nema í
prentiðn, sem olli því að lærðir
prentarar gengu atvinnulausir. í
fyrstu lögum félagsins var svo
ákveðið um tilgang þess: að auka
samheldni milli prentara; að hindra
það að gengið sé á rétt prentara á
vinnustöðum og að styðja við allar
framfarir, sem snerta fagið — eins
og það var orðað. Félagsþroska
gætti strax í félaginu og það stofnar
hinn 18. ágúst 1897 fyrsta sjúkra-
samlag landsins. Blómlegt félagslíf
var innan félagsins.
Fyrsta verkfall félagsins skall á
sumarið 1899, en því var stefnt gegn
einni prentsmiðju í Reykjavík og
stóð í einn dag. Að öllum líkindum
er þetta fyrsta verkfall á íslandi, en
eftir það samþykkti atvinnurekand-
inn allar kröfur félagsins, sem
lagðar höfðu verið fram. Þrátt fyrir
þetta dróst það í 7 ár, að atvinnu-
rekendur viðurkenndu félagið að
fullu sem samningsaðila.
Árið 1941 ákvað HÍP að fjárfesta
í fasteign til að skapa traustari
grundvöll undir starfsemi félagsins.
Félagið keypti þá jörðina Miðdal í
Laugardal með það fyrir augum að
koma þar upp orlofsaðstöðu fyrir
félagsmenn. Þar er nú fjöldi orlofs-
húsa í eigu félagsmanna, auk þess
sem félagið á þar hús til afnota fyrir
félagsfólk. Þetta sama ár keypti
félagið og húseignina Hverfisgötu
21, þar sem starfsemi félagsins er
enn til húsa, lífeyrissjóður bókbind-
ara og prentara og bókasafn félags-
ins. Þá keypti félagið árið 1979 6.
hæð húseignarinnar Lágmúla 7 í því
augnamiði að flytja starfsemi sína
frá Hverfisgötunni, en vegna sam-
einingaráforma hefur ekki verið
tekin ákvörðun um flutning, en þess
mun eigi langt að bíða, að Félag
bókagerðarmanna ákveði, hvar það
ætlar sér búsetu.
Bókbindarafé-
lag íslands
Fyrsta félag bókbindara á íslandi
var stofnað 11. febrúar 1906. í 1.
grein laga félagsins sagði: „Félag
vort heitir „Hið íslenzka bókbind-
arafélag““ og í 2. grein félagslag-
anna segir: „Tilgangur félagsins er
að efla og styðja að samheldni
meðal bókbindara í Reykjavík, að
koma í veg fyrir að réttur vor sé
fyrir borð borinn af vinnuveitend-
um, að styðja að öliu því er til
framfara horfir í iðn vorri og að svo
miklu leyti sem hægt er, tryggja
velmegun vora í framtíðinni."
Þetta félag hóf verkfall 1. ágúst
1906 og stóð það í 2 til 3 daga. Ekki
munu til skráðar heimildir um
árangur verkfallsins, en samþykktir
þess frá þessum tíma eru um 18
krónu kaup á viku, 10 stunda vinnu
á dag og að einn nemi sé á móti
hverjum tveimur sveinum í hverri
vinnustofu. Árið 1908 er nafni
félagsins breytt í Bókbandssveinafé-
lag Islands, sem þremur árum síðar
lognaðist út af, þar sem margir
félagsmanna höfðu sett á stofn eigin
bókbandsvinnustofur og samheldni
og baráttuhugur hafði dvínað.
Árið 1915 er stofnað Bókbands-
sveinafélag Reykjavíkur. Félagið
gerði samning við atvinnurekendur í
júlí sama ár og var þá hafinn
undirbúningur að stofnun Alþýðu-
sambands Islands, en fulltrúi fé-
lagsins var formaður undirbúnings-
nefndar. Þetta félag fór sömu leið og
hið fyrra 1922, er samþykkt var að
leggja það niður og munu ástæður
þess hafa verið hinar sömu og áður.
Bókbindarafélag íslands, sem nú
sameinast HÍP og GSF í Félagi
bókagerðarmanna var hins vegar
stofnað 15. febrúar 1934, þá undir
nafninu Bókbindarafélag Reykja-
víkur. 1951 var félagið gert að
landsfélagi og nafni þess breytt.
Félagið réðst í byggingu orlofs-
húss í Ölfusborgum 1964 og var það
fyrsta fasteign félagsins. Tveimur
árum síðar keypti félagið efstu hæð
hússins Óðinsgata 7 ásamt nokkrum
öðrum verkalýðsfélögum í Reykja-
vík. Þar hefur verið aðsetur félags-
ins, fundarsalur og skrifstofa, en
lífeyrissjóðurinn hefur eins og áður
er getið verið rekinn í samvinnu við
prentara og er til húsa að Hverfis-
götu 21.
Grafiska
sveinafélagið
Grafiska sveinafélagið er stofnað
3. marz 1973 af rúmlega 50 sveinum
fleiri atkvæði en 10. F'lest atkvæði
fékk Hið íslenzka prentiðnaðarfélag
eða 69 og næstflest eða 68 atkvæði
fékk það nafn, sem valið var, Félag
bókagerðarmanna. Sameiningar-
nefndin ákvað að kjósa um nafn
innbyrðis og varð þá niðurstaðan að
Félag bókagerðarmanna, skamm-
stafað FBM, hlaut 5 atkvæði, Graf-
iska stéttarfélagið 4 atkvæði og Hið
íslenzka prentiðnaðarfélag 2 at-
kvæði. Nefndin lagði því til nafnið
Félag bókagerðarmanna.
Stjórn FBM hefur verið kjörin, en
framvegis mun formannskosning
fara fram í janúarmánuði annað
hvert ár, en aðrir stjórnarmenn eru
kjörnir á aðalfundi og mun helm-
ingur stjórnarmanna víkja sæti
árlega, séu þeir ekki endurkjörnir.
Núverandi stjórn skipa: Magnús
Einar Sigurðsson, formaður; Ársæll
Ellertsson, varaformaður; Svanur
Jóhannesson, ritari; Ólafur Emils-
son, gjaidkeri og meðstjórnendur:
Þórir Guðjónsson, Guðrún Guðna-
dóttir og Gísli Elíasson. í varastjórn
eru: Arnkell B. Guðmundsson, Grét-
ar Sigurðsson, Ómar Franklínsson,
Jóhann Guðmundsson, Sæmundur
Árnason og Ólafur Björnsson.
Félag bókagerðarmanna þarf að
eignast merki. Ákveðið hefur verið
að efna til samkeppni um merki
félagsins meðal félagsmanna.
Fyrstu verðlaun eru 500 ’þúsund
krónur, önnur verðlaun 200 þúsund
krónur og þriðju verðlaun 100 þús-
und krónur.
Formenn gömlu
félaganna
Undir lok blaðamannafundarins
spurði Morgunblaðið formenn félag-
anna, sem verið er að leggja niður,
spurningarinnar, hvernig tilfinning
það væri að vera síðasti formaður
stéttarfélags. Arnkell B. Guð-
mundsson, formaður Bókbindarafé-
lags íslands kvað það vera ákveðna
upplifun. Ólafur Emilsson, for-
maður Hins íslenzka prentarafélags
í prentmyndagerð og offsetprentun.
Félagið er sameinað úr tveimur
félögum, Prentmyndasmiðafélagi
Islands og Offsetprentarafélagi Is-
lands, sem upphaflega hafði heitið
Ljósprentarafélag íslands, en nafni
félagsins var breytt 1957. Hið fyrr-
nefnda félag var stofnað 1947 og hið
síðarnefnda 1951. Prentmynda-
smiðafélagið varð aðili að ASÍ 1948,
en Offsetprentarafélaginu var synj-
að um aðild að ASÍ, þar sem félagið
var of fámennt.
Grafiska sveinafélagið var stofn-
að aö undangengnum sameiningar-
viðræðum allra bókagerðarfélag-
anna fjögurra, en niðurstaðan varð
sú að aðeins tvö áðurnefnd félög
sameinuðust. Fyrstu samningar fé-
lagsins voru gerðir að afloknu 8
vikna verkfalli, sem háð var með
HÍP. Sú þróun, sem hófst á miðjum
sjöunda áratugnum í prentiðnaði
hefur valdið fjölgun iðnlærðra
offsetprentara, en að sama skapi
hefur dregið úr prentmyndagerð.
Félagsmenn GSF eru nú 106, þar af
innan við tugur prentmyndasmiða.
Nýja félagið
Þegar velja þurfti hinu nýja
Félagi bókagerðarmanna nafn var
óskað eftir tillögum meðal félags-
manna félaganna þriggja. Alls bár-
ust á milli 70 og 80 tillögur. Síðan
var allsherjaratkvæðagreiðsla með-
al félagsmanna og fengu 8 heiti
Formennirnir fjórir á
blaðamannafundinum. Frá
vinstri: ólafur Emilsson. form-
aður HÍP. Arnkell B. Gu(V
mundsson, formaður BFÍ,
Ársœll Ellertsson, formaður
GFS og Magnús Einar Sigurðs-
son, formaður FBM.
IJósin. Mhl. KrÍNtján.
sagði: „Mér fellur það ákaflega
þungt, að HÍP sé lagt niður, enda
reyndi ég að stuðla að því að nafni
félagsins yrði haldið, en því var
hafnað." Er Ólafur hafði gefið þetta
svar kváðu viðstaddir kímnir hann
geta vel við unað, málgagnið yrði
áfram „Prentarinn". Ársæll Ell-
ertsson, formaður Grafiska sveina-
félagsins kvaðst ekki hafa íhugað
þessa stöðu sína. Hins vegar kvaðst
hann hafa kynnst nú nýlega tveimur
félagsfundum í HÍP og eftir þá
reynslu „þykir mér þeim mun
vænna um félagsfundi Grafiska
sveinafélagsins." — Eins og af
þessum svörum má sjá er að vonum
tilfinningatregi í mönnum, er gömlu
stéttarfélögin eru lögð niður. En
eins og formaður hins nýja félags
sagði horfa menn til framtíðarinnar
og vænta góðs af sameiningunni,
nýja félagið megi „efia einingu
félagsmanna og standa vörð um
hagsmuni þeirra í hvívetna“, eins og
segir í lögum félagsins um tilgang
þess.
— mf.
: ': llúsnæðisinálaslol'nun
rikÍSÍllS Lau&ncdi 77
ÚtboÓ
Framkvæmdanefnd um byggingu leigu- og
söluíbúöa á Þingeyri óskar eftir tilboöum í
byggingu á 5 íbúöa raöhúsi á Þingeyri.
Húsinu skal skila fullbúnu meö grófjafnaðri
lóö 1. júlí 1982.
Útboðsgögn veröa til afhendingar á skrif-
stofu Þingeyrarhrepps og hjá Tæknideild
Húsnæðismálastofnunar ríkisins frá 3. nóv.
1980 gegn 50.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila til sömu aöila eigi síöar
en fimmtudaginn 20. nóv. 1980 kl. 14.00 og
veröa þau þá opnuö aö viöstöddum
bjóöendum.
Framkvæmdanefnd um byggingu
leigu- og söluíbúöa á Þingeyri.
Langbestu
eldavélakaupin sem viö getum boöiö frá
Þessi fullkomna glæsilega eldavél er á
óvenju hagstæöu verði kr. 572.400.- meö
viftunni (ef vifta á ekki aö blása út kostar
kolasía kr. 67.000.- verð pr. 29.10. 1980.)
Þú færö allt meö þessari vél: 2 fullkomnir stórir bakaraofnar,
efri ofninn meö grilli og rafdrifnum tein, sjálfhreinsandi,
hraöhitun er á ofninum, Ijósaborð yfir rofum. 4 hellur,
fullkomin vifta meö digitalklukku og fjarstýribúnaöi fyrir
vél. Glæsilegir tízkulitir: Avocado grænn, karrý gulur, inka
rauöur, svartur og hvítur. Eigum einnig kæliskápa,
frystiskápa, uppþvottavélar og frystikistur. — Greiöslu-
skilmálar.
EINAR FARESTVEIT 4, CO. HF.
BERGSTAÐASTRATI I0A - SlMI I6995