Morgunblaðið - 02.11.1980, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
37
bessar byggingar voru reistar á
tímum námuvinnslunnar ok þjónuðu
þær við útskipun blýsins. bær eru enn
nýttar. er birgðaskipin koma' einu
sinni á ári með aðdrætti til Meistara-
víkurstöðvarinnar. bá hafa danskir
visindamenn aðstöðu sina á þessum
stað.
fjölskyldu sem samanstóð af föð-
ur, tveimur bræðrum og mér. Við
erum hér sem ein stór fjölskylda
og ég er vön að standa á mínu í
karlasamfélagi." Lisbeth sagðist
hafa góð laun og hefði það ráðið
nokkru um að hún sló til og tók
starfið í Meistaravík. Þá væri
starfið gott veganesti til að fá
starf heima. Hún sagðist hafa í
hyggju að verða sér út um meiri
menntun, er hún kæmist heim og
hafði hún auðheyranlega ekki í
hyggju að ílengjast fram yfir tvö
árin. Hvernig verð þú tímanum í
einangruninni yfir vetrarmánuð-
ina, þegar flugvöllurinn er lokað-
ur? Ég les heil ósköp, bækurnar
eru mitt athvarf," var svarið.
Röðull var vinsæll
Nú var kominn tími til að halda
heimleiðis og hafði þá nokkuð
fjölgað í flugvélinni, því bætt var
stöðvarmönnum í vélina eins og
sæti og flugreglur leyfðu. Ætluðu
þeir að eyða helginni í Reykjavík
og fá far með næsta ískönnunar-
flugi til baka. Að þeirra sögn fara
stöðvarmenn í ferðir til Reykja-
víkur eða Akureyrar þegar tæki-
færi gefast og gera sér dagamun á
skemmtistöðum borgarinnar. Má
sjá á nafngiftum húsa í Meistara-
vík, að þetta er engin nýlunda hjá
þeim Meistaravíkurmönnum, því
eitt húsið ber heitið Röðull, og að
sögn þeirra eftir vinsælasta
reykvíska skemmtistað þess tíma,
er húsunum voru gefin nöfn, en
stöðin hóf starfsemi sína 1952.
Á heimleiðinni sagði Paul að
hann hefði góða samvinnu við
Veðurstofuna íslenzku, fengi hann
að senda þaðan niðurstöður ís-
kannananna og veðurstofumenn
fengju þess í stað teikningar hans,
og kæmu þeir upplýsingum um
ísrek á framfæri við sjómenn og
aðra er þyrftu á þeim að halda.
Ferðinni lauk með mjúkri lend-
ingu Cessna-vélarinnar á Reykja-
víkurflugvelli um kvöldmatarleyt-
ið. Undirrituð sendir Flugleigu
Sverris Þóroddssonar þakkir fyrir
skemmtilega og fróðlega ferð, svo
og samferðamönnum og stöðvar-
mönnum í Meistaravík fyrir góðar
móttökur.
bróðir hans
bessi skýli á Bass Rock voru reist um aldamótin.
Síðari hluti. Texti og myndir: Fríöa Proppé.
Orðsending
til stjórnenda fyrirtækja
og stofnana
Bjóðum barinn undir fundi í hádeg-
inu alla virka daga. Tilvalið fyrir
stjórnarfundi, eða minni fundi þar sem
menn þurfa að vera í ró og næði, en
njóta samt alls hins bezta í mat og
þjónustu.
Því ekki að leita
upplýsinga
í síma 17759
Terylenekápur í sérflokki.
Laugalæk, sími 33755.