Morgunblaðið - 06.11.1980, Page 7

Morgunblaðið - 06.11.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980 7 Islandsmótiö í körfuknattleik úrvalsdeild Í.S. — Valur í íþróttahúsi Kennaraháskólans kl. 20.00 í kvöld. Í.S. vann Val síðast, hvor vinnur í kvöld? Í.S. Orðsending frá Nausti til stjórnenda fyrirtækja og stofnana Bjóðum barinn undir fundi í hádeginu alla virka da«a. Tilvalið fyrir minni stjórnarfundi, eða minni fundi þar sem menn þurfa að vera í ró og næði, en njóta samt alis hins besta í mat og þjónustu. Því ekki að leita upplýsinga í síma 17759 CPM-AÆTLANAGERÐ Stjórnunarfélag íslands efnir til námskeiðs um CPM-áætl- anagerð í fyrirlestrasal félags- ins að Síðumúla 23, dagana 13. og 14. nóvember kl. 14—19 og 15. nóvember kl. 09—12 og 14—18. - CPM eöa Crltical Path Method er kerfisbundin aöferö viö áætlanagerö, sem á aö tryggja aö fljótvirkasta og ódýrasta leiðin sé farin aö settu marki og sparar þannig tíma, mannafla og fjármuni. - CPM hentar hvers konar fram- kvæmdum hjá fyrirtækjum, hinu opinbera og einstaklingum. - CPM á aö gefa stjórnendum meiri yfirsýn yfir framkvæmdirnar, bæöi sem heild og einstaka verkhluta. - CPM á aö gera stjórnendur fram- kvæmdanna aö raunverulegum stjórnendum. Námskeiöiö er ætlaö stjórnendum fyrir- tækja, yfirverkstjórum og öðrum þeim sem standa fyrir framkvæmdum. Þátttaka tiikynnist til Stjórnunarféiags- ins í síma 82930. Trygovi Stgurb|arnarson varktraaötngur SUÓRNUNARFÉLAG fSIANDS SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVlK SÍMI 82930 Glókollur á ferð Glókollur Alþýðu- bandalagsins, Ólafur R. Grimsson, hefur verið iðinn við sérfag sitt að undanfornu. en það er að efna til upphiaupa. sem renna út i sandinn. vegna þess, að þau snú- ast ýmist um ekki neitt cða eru byggð á blekk- ingum. dylgjum og bein- um ósannindum. Nú síð- ustu daga hefur Glókoll- ur staðið fyrir sérkenni- legu upphlaupi í sam- bandi við Flugleiðamál- ið. Þetta upphlaup Gló- kolls hefur snúizt um tvennt. í fyrsta lagi hef- ur það heinzt að þvi að fá Fluglciðamcnn til að gefa út yfirlýsingu um. að þcir hafi beðið um aðstoð rikisvaldsins til þess að halda Amerlku- fluginu áfram. þótt þcir hafi aldrei gert það og ólafur R. Grímsson viti það fullvei. í öðru lagi hefur þetta upphlaup beinzt að því að dylgja um það, að fjárhags- staða Flugleiða sé verri en félagið hafi látið uppi. Iiið furðulega við þetta uppnám. eða reyk- bomhu, er það. að Ólafi R. Grímssyni hefur tek- izt að gera formann Framsóknarflokksins. Steingrím Iiermanns- son. áttavilltan i málinu. Stcingrímur Ifer- mannsson stóð sig vel framan af í Flugleiða- málinu og tók m.a. frum- kva'ði um það ásamt Gunnari Thoroddsen að ræða við Luxemborgara. Niðurstaðan af þeim við- ræðum var sú, að ríkis- stjórnir þessara tveggja landa buðu fram fjár- framlog til þess að halda þessu flugi áfram. Þetta var ekki gert vegna þess, að þcim væri annt um að greiða niður far- gjðld fyrir útlendinga BALDUR ÓSKARSSON STEINGRÍMUR HERMANNSS Glókollur og upphlaup hans Nú er aö renna út í sandinn síðasta upphlaup Ólafs R. Grímssonar vegna Flugleiöamálsins. Hann ýtir öörum á foraöiö og fylgir svo sjálfur í kjölfarið. Hvers vegna? yfir Atiantshafið. heldur vegna þess að þeir vildu tryggja atvinnu þess fólks, sem við flugið starfar, og þær tekjur. sem bæði londin hafa af þessu flugi með öðrum hætti. En það er auðvit- að alveg rétt. sem Eyjólf- ur Konráð Jónsson sagði í Morgunblaðinu í gær. að það er út i hött að vera að deila um atriði af þessu tagi. En af einhverjum ástæðum er Steingrímur Her- mannsson orðinn átta- villtur og heimtar yfir- lýsingar um það. að Flugleiðir hafi beðið um þessa aðstoð. harna er Glókollur Alþýðuhanda- lagsins auðvitað á ferð. Ilann hefur sagt for- manni Framsóknar- flokksins rangt til um það. sem fram hefur komið á fundum fjár- hags- og viðskiptanefnd- ar efri deildar, með furðulegum afleiðingum fyrir formann Fram- sóknarflokksins. Sömu- leiðis hefur ólafur R. Grimsson rcynt að telja fólki trú um. að fjár- hagsstaða Fiugleiða sé verri en upp hafi verið gefin, og þetta leyfir hann sér að gera. þótt hann hafi nákvæmlega ekkert í höndunum þessu til sönnunar. Þvert á móti liggur al- veg ljóst fyrir hver fjár- hagsstaða félagsins er og fer ekki á milli mála. Upphlaup siðustu daga i Fluglciðamálinu hefur þvi annars vegar snúizt um ekki neitt, þar sem aðdragandi áframhald- andi Amcríkuflugs fer ekki á milli mála og Eyjólfur Konráð Jóns- son, sem sæti á i fjár- hags- og viðskiptancfnd. hcfur opinherlega sagt. að ekki hafi horið i milli í frásögnum Sigurðar Ilelgasonar og Stein- grims Hermannssonar um þetta atriði. Hins vegar hefur upphlaupið snúizt um dylgjur og hlekkingar ólafs R. Grímssonar um fjár- hagsstöðu Flugleiða. sem hann getur að sjálf- sögðu ekki staðið við. Ýtir öðrum á foraðið Annars er athyglis- vert að fylgjast með þessari iðju Glókolls. Eitt er sameiginlegt með þeim upphlaupum. sem hann stendur fyrir — en það er að hann ýtir alltaf öðrum á foraðið. Þegar ólafur R. Gríms- son efndi til fyrsta upp- hlaupsins í september vegna Flugleiðamálsins atti hann lialdri óskarssyni fram. en kom síðan sjálfur í kjöl- farið. í öðru upphlaupi vegna Flugleiðamálsins, sem Ólafur R. Grímsson efndi til snemma i októ- her. atti hann Ragnari Arnalds fram og kom ' svo sjálfur í kjölfarið. f því þriðja, sem hefur verið að renna út í sand- inn siðustu daga. hefur Glókolli tekizt að ýta Steingrími Hermanns- syni fram og kemur enn sjálfur í kjölfarið. Vilji menn frekari vitnisburð um þessa sérsta-ðu hegð- an. nægir að minna á upphlaupið út af kjarn- orkuvopnum fyrr á þessu ári. Þá var það einn af fréttamönnum útvarpsins. sem varð fórnarlambið og tók að sér að vinna skítverkin fyrir ólaf R. Grímsson. Hvers vegna hefur Gló- koliur aldrei sjálfur for- ystu fyrir því uppnámi. sem hann stendur að? Það skyldi þó aldrei vera að kjarkinn skorti? HAFSKIP HF. REYKJAVIK Hluthafakynning Vegna mikillar fjölgunar á hluthöfum í félaginu er efnt til kynningar á starfsemi félagsins og framtíðarverkefnum. Kynningin fer fram fimmtudaginn 6. nóvember kl. 20.45 í Hliðarsal Hótel Sögu (gengið um stiga við lyftur í hótel anddyri). Framkvæmdastjórar félagsins og nokkrir deildarstjórar munu sitja fyrir svörum og taka þátt í panelumræðum, sem Jón Hákon Magnússon stórnar. Stjórn félagsins hvetur hluthafa, jafnt eldri sem nýja, til að sækja kynninguna og vekur athygli á, að þar gefst gott tækifæri til að kynnast málefnum félagsins og þróuninni á markaðnum umfram það, sem gerist á aðalfundum, þar sem meiri formfesta ríkir. Stjórn HAFSKIPS HF. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK 0 Þl AIGLYSIR IM ALLT LANÐ ÞEíiAR Þl Al'G- 1.YSIR I MORGINBLAÐLM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.