Morgunblaðið - 06.11.1980, Page 32

Morgunblaðið - 06.11.1980, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980 32 „Eldsmatur" í innri umræðu „I þinKflokki Alþýðuflokksins voru marKÍr unKÍr ok reynslulitlir menn ok sumir þeirra höfðu óhóf- leKt sjálfstraust. Ok svo reyndust ráðherraefnin fleiri en stólarnir. Nú er það reKla. að þeir, sem að lokum eru kjörnir til þess að fara með málin. fái frið ok ráðrúm til að vinna að sínum verkum. Þessi re^la var ekki virt i þintcNokki Alþýðuflokksins. RukIíó ok hama- KanKurinn í þinKflokknum var slikur. að ráðherrar flokksins höfðu ekki starfsfrið. Þeir þurftu að berjast á tvennum víKstöðvum; í ríkisstjórninni við erfiða sam- starfsaðila ok í þinKflokknum við stráksskapinn. Svo kom minni- hlutastjórnin. Ráðherrastólunum fjölKaði um helminK. Ok þá fenKU menn frið.“ ÞannÍK mælti Finnur Torfi Stefánsson, fyrrum alþinKÍs- maður, m.a. í ræðu á flokksþinKÍ Alþýðuflokksins um helKÍna. Finnur Torfi hafði eftir ræðu Sighvats BjörKvinssonar, formanns þinKflokksins, á flokksþinKÍnu á föstudaKÍnn Kötið þess, að hann væri sammála SÍKhvati í því, að metnaður manna K*ti teyKt þá of lanKt. Verst væri þó, að SÍKhvatur hefði ekki verið kominn á þessa þinKmenn í síðustu kosninKum. „Tapið hefði orðið meira, ef leiftur- sókn Sjálfstæðisflokksins hefði ekki aðstoðað okkur við að halda í fólk,“ saKði MaKnús. En svo héldi Alþýðuflokkurinn áfram að tapa í skoðanakönnunum, þegar óvinsæld- ir leiftursóknarinnar dygðu ekki lenKur. MaKnús sagði erfitt að dæma, hvort eitt atriði ylli þessu eða fleiri, en þó væri hann þeirrar skoðunar, að ekkert eitt atriði hefði eins mikið þarna um að segja og stjórnarslitin 1979, þegar Alþýðu- flokkurinn hefði hlaupizt undan árum, þegar fór að kula á móti. „Ég var ekki og er ekki enn viss um réttmæti þessarar ákvörðunar. Það voru ýms teikn á lofti um það, að Framsóknarflokkurinn að minnsta kosti hefði uppi tilburði til þess að reyna að nálgast okkar sjónarmið og væri að manna sig upp í samstöðu með okkur. Um Alþýðubandalagið er erfiðara að dæma,“ sagði Magnús. Hann sagði, að tvímælalaust hefði átt að láta það koma í ljós, að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur væru þeir flokkar, sem þyrðu, en Alþýðu- bandalagið sá flokkur, sem ekki 1978 hefðu frambjóðendur Alþýðu- flokksins talað um samningana í gildi, nýja og breytta efnahags- stefnu og upprætingu spillingar. Vel mætti vera, að þingmenn hefðu reynt að koma málunum fram, en efndirnar hefðu í stuttu máli sagt engar orðið. Eini sýnilegi árangur- inn væru stórhækkaðir vextir og hans vegna væru nú fjölmargar íbúðir fólks undir hamrinum. Ákvörðun um þingrof hefði svo verið tekin að formanni flokksins fjarstöddum og flokksstjórn stillt upp við vegg. Það hefði ekki verið um annað að ræða en samþykkja stjórnarslit, því ella hefði orðið algjör klofningur í Alþýðuflokkn- um. „Þetta var vanhugsuð aðgerð hinna ungu þingmanna," sagði Björgvin. „Aiþýðuflokkurinn átti ekki að slíta, eins og hann gerði. Það átti að draga fram eitt sterkt mál og segja; Ég stend og fell með þessu ákveðna máli.“ Síðan vék Björgvin að samstarfi meirihluta borgarstjórnar, sem hefði reynzt miklu farsælla en samstarf sömu flokka í ríkisstjórn. „Við leysum okkar ágreiningsmál í kyrrþey, en hlaupum ekki með þau í hannessonar. Og í þingflokknum „kom Magnús [H. Magnússon] út til varnar stjórninni, en ég var harð- astur á móti.“ Vilmundur sagði, að það sem skipti sköpum fyrir stjórn- málaflokk væri heiðarleiki. Hann væri fyrir öllu. Og raunvaxtastefn- an væri rétt, því hún upprætti ýmiss konar spillingu í fjármálalíf- inu. Þá, sem töluðu um annað, sagði Vilmundur vera „vanmetakrata". „Það sem var gott við þessa stjórn var það, að Benedikt var góður utanríkisráðherra, Kjartan góður sjávarútvegsráðherra og Magnús góður félagsmálaráðherra. En það var bara ekki nóg. Og þess vegna sprengdum við. Auðvitað sprengj- um við stjórnir, ef þær reynast ekki góðar stjórnir. Það er stæll." „Vanmetakratar skammast sín fyrir sögu flokksins. Við hinir erum stoltir kratar og framsæknir og það er miklu meira elegant. Vanmeta- kratarnir trúa andstæðingum en ekki samflokksmönnum ... Þeir trúa því til dæmis, að Gylfi Þ. Gíslason hati bændur ... Þeir trúa því, að Eggert G. Þorsteinsson hafi verið lélegur sjávarútvegsráðherra. Hvort tveggja er lygi ... Og Stefán Jóhann Stefánsson hafði rétt fyrir sér, en pabbi hafði rangt fyrir sér ... Við eigum að vera stolt af sögunni ... Við eigum að trúa því, sem við gerum. Einar kosningar býtta engu ...“ Gagnrýnin svo áköf að það jákvæða týndist „Allt tal um vinstri krata, van- metakrata og einhverja aðra krata er tómt bull. Þegar svona orð eru notuð, fitna andstæðingar okkar," sagði Bjarni Guðnason, þegar hann sýna dugnað, framtak og sam- stöðu." Ætlum að verða stærsti flokkur þjóðarinnar Jón Baldvin Hannibalsson sagði það vera raunsætt mat, að þegar næst yrði talið upp úr kjörkössum á íslandi, gæti Alþýðuflokkurinn orð- ið stærsti flokkur þjóðarinnar. „Það var pólitískt umferðarslys að fara í stjórn. Við eigum aldrei að selja stefnu okkar og sál fyrir ráðherra- stóla," sagði hann. Jón Baldvin sagði engan málefna- ágreining fyrir hendi í Alþýðu- flokknum. Það væri á hreinu, að Alþýðuflokkurinn tæki ekki þátt í því að gera þjóðfélagið að einu allsherjarspilavíti verðbólgunnar, heldur berðist hann af alefli gegn því. Þá benti Jón mönnum á „stórkostlegt málefni", sem hann sagði felast í lífeyrissjóðatillögum Jóhönnu Sigurðardóttur og Jóns Sæmundar Sigurjónssonar. Þetta væri einmitt mál af því tagi, sem Alþýðuflokkurinn ætti að setja á oddinn og hefja sókn sína með, ekki aöeins til að heimta fylgi frá hægri, Sjálfstæðisflokknum, heldur einnig frá Alþýðubandalaginu, sem hefði „svikið og forklúðrað" stefnu sinni. „Við ætlum að verða stærsti flokkur þjóðarinnar næst þegar er kosið,“ sagði Jón Baldvin í lok ræðu sinnar. Skuldum hug- sjóninni það að standa okkur „Það mikilvægasta af öllu er að vera samkvæmur sjálfum sér,“ sagði Ágúst Einarsson. „Það er mikilvægara en einhverjir ráð- herrastólar. Finnur Torfi Stefánsson Magnús H. Magnússon Björgvin Guðmundsson Vilmundur Gylfason Bjarni Guðnason Jón Baldvin Hannibalsson Ágúst Einarsson skoðun, „þegar verið var að flæma ráðherra flokksins úr ríkisstjórn í fyrra. Það er stór spurning, hvaða þátt metnaðarmálin áttu í stjórn- arslitunum 1979,“ sagði Finnur Torfi. Og í síðari ræðunni sagði Finnur Torfi, að stjórnarslitin hefðu verið mistök, „skammsýn uppákoma", og valdið flokknum tjóni. Þannig hefði flokkurinn veitt sjálfum sér sár og ekki hægt að kenna andstæðingunum um það. „Við verðum að læra af þessum mistökum," sagði Finnur Torfi. „Ég er einn þeirra manna, sem geri mér stórar vonir um Kjartan í foryst- unni. En jafnvel hið ágætasta foringjaefni er hægt að eyðileggja. Því beini ég þeim tilmælum til þingflokksins, að hann veiti for- manninum frið, því hagur for- mannsins er hagur þingflokksins og hagur Alþýðuflokksins alls.“ (Þess skal getið, að við endanlega af- greiðslu þingflokksins um stjórn- arslitin á sínum tíma, sat Finnur Torfi hjá.) Forsendurnar hæpn- ar og í raun rangar Magnús H. Magnússon, sem einn þingmanna greiddi atkvæði gegn stjórnarslitunum, þegar þau voru ákveðin í þingflokknum, hóf ræðu sína með því að segja, að auðvelt væri að ofleika og hann væri anzi hræddur um, að það hefðu þing- menn flokksins gert í mörgum tilvikum. Hann sagði það í raun vel sloppið að hafa aðeins misst 4 þyrði. „Ég skal ekkert um það segja, hvort til kosninga hefði komið, en alla vega hefðum við þá staðið betur að vigi,“ sagði Magnús. „Við hefðum þá þurft að geta sýnt fólki það svart á hvítu á hverju strand- aði, en okkur tókst ekki að sann- færa þjóðina um það, að þeir, sem hlupu, hefðu verið kjarkmeiri en hinir. Ég tel því, að forsendur stjórnarslitanna hafi verið hæpnar og í raun beinlínis rangar. Því eru það margir, sem telja, að við berum öðrum fremur ábyrgð á tilurð núverandi ríkisstjórnar og þá þeim efnahagsvanda, sem nú er.“ Loks gat Magnús þess, að meðal mála, sem Alþýðuflokkurinn hefði hlaupið frá, væru 14 mikilvægar félagsumbætur, sem andstæð- ingarnir notuðu nú sem skraut- fjaðrir í sína hatta. ;Látum þetta verða okkur víti til varnaðar fyrir framtíðina," sagði Magnús. Síðan vék hann að „upplausn Sjálfstæðis- flokksins" og sagði: „Nú er lag. Okkur ber að nýta það.“ Efndirnar urðu engar Björgvin Guðmundsson talaði næst á eftir Magnúsi. Hann minnt- ist fyrst á, að ólíkt þætti sér þyngra yfir flokksþingi nú en síðast, enda flokkurinn þá í ríkisstjórn eftir glæsta kosningasigra, en nú væri flokkurinn kominn úr ríkisstjórn og áhrifalítill á landsmálin. Björgvin minnti á, að fyrir kosningarnar blöðin. Og þess vegna er samstarfið í Reykjavík mjög gott,“ sagði Björgvin. Hann vék svo að gagnrýni á Benedikt Gröndal vegna „fallandi gengis“ Alþýðuflokksins. „Forustan er ekki einn maður. Hún er sex menn og síðan koma framkvæmda- stjórn, flokksstjórn og þingflokkur. Það er því ekki hægt að hengja einn mann fyrir það sem farið hefur úrskeiðis. Ég tel Alþýðuflokkinn á tíma- mótum í dag. Spurningin er, hvort hann á áfram að vera verkalýðs- flokkur og flokkur launafólks, eða hvort hann á sveigja til hægri og sækja fylgi í Sjálfstæðisflokkinn. Ég tel, að Alþýðuflokkurinn eigi áfram að vera flokkur verkalýðs og launafólksflokkur. Alþýðuflokkur- inn á ekki að láta Alþýðubandalag- ið taka sinn sess. Alþýðuflokkurinn á ekki að hamra svona mikið á köldum efnahagsaðgerðum, heldur eiga menn að predika margs konar umbótamál fyrir launafólkið í land- inu.“ Vanmetakratar og stoltir kratar Vilmundur Gylfason talaði næst á eftir Magnúsi, Björgvini og Finni Torfa. Hann vék fyrst að stjórn- arslitunum og sagði: „En við erum og eigum að vera þeirrar skoðunar, að það sé rétt ákvörðun." Hann gat þess, að oft hefði verið þungt „að setja her.dina upp í loftið" fyrir ríkisstjórn Ólafs Jó- tók til máls á eftir Vilmundi. „Eg hvet menn til að nota ekki svona orð. Menn eiga að vera jafnaðar- menn og standa saman." Bjarni vék síðan að því, hvernig stæði á því, að Alþýðuflokkurinn tapaði fylgi við þær kringumstæð- ur, að Sjálfstæðisflokkurinn væri „í rúst“ og ríkisstjórnin „getulaus". „Ég held, að við höfum ofkeyrt baráttuna gegn verðbólgunni. Það þýðir ekkert að tala við fólk um það, að þetta eða hitt eigi að vera 27,5% af þjóðarframleiðslu, en ekki 29%,“ sagði Bjarni og kvaðst telja, að í svona talnaleik hefðu menn misst sjónar á ýmsum öðrum mál- um, sem máli skiptu. Nefndi hann sérstaklega „dreifbýlismálin", en hann lagði svo fram tillögu um starfshóp til að setja niður stefnu á því sviði og samþykkti flokksþingið hana. „Við höfum verið svo ákafir í að gagnrýna, að við höfum ekki komið til skila jákvæðri stefnu Alþýðu- flokksins. Gagnrýni krefst þess, að menn séu jákvæðir um leið. Við megum ekki verða Faxaflóaflokkur, heldur eigum við að vera og viljum vera flokkur launafólks um landið allt.“ Þá sagði Bjarni, að halda yrði áfram af krafti í „hreingerninga- málunum". „Við megum aldrei hætta baráttunni gegn spillingunni. Unga fólkið skilur hana og það fyrirgæfi okkur það aldrei, ef við létum deigan síga.“ Ræðu sinni lauk Bjarni með þessum orðum: „Framtíðin er björt. Það er ekkert að hjá okkur, ef menn Og ekki sé ég eftir þessum fjórum þingmönnum. Við náum þeim aftur og meiru i næstu kosningum. Það sem máli skiptir er að hafa ná- kvæma og vel útfærða stefnu. Að því skulum við vinna. Við skuldum hugsjóninni það að við stöndum okkur.“ Eldsmatur í innri umræðu í upphafi þessa fundar hafði Jóhanna Sigurðardóttir, fyrsti varaforseti flokksþingsins, hvatt þingfulltrúa til að afgreiða mál með „skynsamlegri yfirvegun, þannig að flokkurinn líði ekki skaða af“. Bað Jóhanna ræðumenn að vera „var- kára í orðum og gerðum" og ekki „skemmta andstæðingunum". Árni Gunnarsson kom í ræðustól- inn á eftir Ágústi Einarssyni og sagöi: „Hér er efnt til óvinafagnað- ar. Hér er búinn til eldsmatur fyrir fjölmiðla. Það er mál að linni." í stjórnmálaályktun 39. þings Alþýðuflokksins segir m.a. ... „Al- þýðuflokksmenn setja hins vegar raunhæfan árangur og trúnað við stefnu sína ofar öðru eins og fram kom, þegar flokkurinn ákvað að hverfa úr ríkisstjórn þegar ekkert samkomulag gat náðst um raunhæf úrræði í efnahagsmálum." Engar umræður urðu um þetta atriði eftir að Sighvatur Björgvinsson, formað- ur þingflokksins, hafði fylgt stjórn- málaályktuninni úr hlaði og hún var síðan samþykkt samhljóða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.