Morgunblaðið - 06.11.1980, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1980
47
b
Þróttur tók of seint
við sér og FH sigraði
FH-INGAR báru sÍKurorð af
Þrótturum i íslandsmótinu i
handknattleik i gærkvöldi er
liðin léku í Hafnarfirði. Sigur FH
var sanngjarn þrátt fyrir að
hann væri naumur i lok leiksins.
Aðeins eitt mark skildi liðin af.
FH skoraði 22 Þróttur 21. Á
siðustu sekúndu leiksins átti stór-
skyttan Sigurður Sveinsson skot
að marki FH en það fór naum-
lega framhjá. Síðustu mínútur
leiksins buðu upp á mikla spennu
og litlu munaði að Þrótti tækist
að ná sér i annað stigið.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleiknum, þegar 10 mínút-
ur voru liðnar af leiknum var
staðan jöfn 5—5. Varnarleikur
beggja liða var slakur og mark-
verðir liðanna vörðu varla skot í
fyrri hálfleiknum. Er líða tók á
hálfleikinn náði FH forystu í
leiknum og hafði fjögur mörk yfir
í hálfleik 14—10. Liði Þróttar gekk
illa að vinna saman og það var
Sigurður Sveinsson sem hélt lið-
inu á floti með glæsilegum mörk-
um sínúm. Sumum hverjum langt
utan af velli. Réðu FH—ingar
ekkert við hann og skoraði Sigurð-
ur síðustu fimm mörk Þróttar í
fyrri hálfleik og sex af 10 mörkum
liðsins í fyrri hálfleiknum. Fyrstu
10 mínútur síðari hálfleiksins hélt
FH forskoti sínu og staðan var þá
18—14. En þá fór að koma óöryggi
í leik liðsins og var eins og oft
áður í vetur að leikmenn voru
fullragir í sókninni. Leikmenn
Þróttar gengu á lagið og minnk-
uðu muninn og þegar sjö mínútur
voru til leiksloka var staðan 19—
18 fyrir FH. Kristján Arason
skoraði úr vítakasti og kom FH í
20—18. Næsta sókn Þróttar endaði
með þrumuskoti Sigurðar í stöng-
ina. Glæsileg samvinna óttars og
Valgarðs á línunni gaf FH mark
og liðið náði þriggja marka for-
ystu. Ólafur H. minnkaði muninn
niður í tvö mörk þegar 2 mínútur
eru eftir. Sveinn Bragason skoraði
22 mark FH. Nú var mikill
darraðadans stiginn á leikgólfinu.
FH—ingar glötuðu boltanum tví-
vegis og Þróttarar náðu að
minnka muninn niður í eitt mark.
Leiktöf var síðan dæmd á FH
þegar 16 sek eru eftir af leiknum.
FH—ingar voru einum færri á
vellinum en í öllum látunum
mistókst Þrótti að jafna leikinn
Sigurður skaut framhjá.
Lið FH lék allvel að þessu sinni
FH—Þróttur
22—21
góð barátta var í liðinu allan
leikinn Gunnlaugur varði vel í
markinu sérstaklega í síðari hálf-
leiknum en þá var honum skipt
útaf fyrir Sverri sem stóð sig
sæmilega. Sæmundur Stefánsson
átti ágætis leik í sókninni en réð
ekkert við Siguðru Sveinsson í
vörninni og var þrívegis rekinn af
leikvelli og útilokaður frá leikn-
um. Guðmundur Magnússon og
Geir Hallsteinsson áttu báðir góð-
an leik en Kristján Arasaon var í
daufara lagi.
Lið Þróttar tapaði nú sínum
öðrum leik í röð eftir góða byrjuní
mótinu. Liðið lék vörnina ekki eins
vel nú og oftast áður. Þá háði það
liðinu að Sigurður markvörður
gekk ekki heill til skógar og varði
lítið í leiknum. Sigurður Sveinsson
átti stórleik og skoraði 14 mörk,
þá var Páll ógnandi en þessir tveir
leikmenn spiluðu þannig að linan
var lítið sem ekkert nýtt og
hornaspil sást ekki. Þrátt fyrir að
JOHN OWENS, velskur hnefa-
leikari. lést eftir slagsmál við
Lupe Pintor, er þeir börðust um
HM-titiiinn i fluguvigt. Pintor
var heimsmeistari og héit hann
titli sínum óumdeilaniega. Það
eru sex vikur síðan slagurinn fór
fram í Kaliforniu og komst Ow-
ens aldrei til meðvitundar eftir
rothögg i 12 lotu.
Framkvæmdastjóri hnefaleika-
kappans Ernie Shavers hefur
boðið Mohammad Ali eina millj-
ón Bandarikjadala ef hann fallist
á að keppa við strákinn sinn á
næstunni. Ali hefur lýst yfir að
hann hafi áhuga á að reyna við
WBC-titilinn, en til þess þarf
hann fyrst að slá út einhvern
sterkan keppinaut. Weaver er
handhafi titilsins, en Shavers er
ofarlega á blaði.
þeir séu sterkir leikmenn hefur
liðið ekki efni á að nýta ekki betur
leikmenn á borð við Lárus og Jón
Viðar betur en gert var. Ólafur H.
Jónsson var í daufara lagi bæði í
vörn og sókn.
I stuttu máli íslandsmótið 1. deild
FH—Þróttur 22-21 (14-10)
Mörk FH: Sæmundur Stefánsson
6, Kristján Arason 5 3v, Guð-
mundur Magnússon 4, Geir Hall-
steinsson 3, Valgarð Valgarðsson
2, Þórir Gíslason 1, Sveinn Braga-
son 1.
Mörk Þróttar: Sigurður Sveinsson
14 2v, Páll Ólafsson 4, Lárus
Lárusson, Jón Viðar, og Ólafur H.
Jónsson 1 mark hver.
Brottvísanir af velli: Sæmundur
Stefánsson FH 6 mín útilokaður.
Sveinn Bragason FH í 2 mín, Geir
Hallsteinsson FH í 2 mín, Krist-
ján Arason FH í 2 mín, og
Guðmundur Magnússon FH í 2
mín. Einar Sveinsson Þrótti í 2
mín.
Misheppnuð vítaköst: Sigurður
Sveinsson skaut í stöngina á 59
mínútu.
Dómarar voru Rögnvaldur Er-
lingsson og Björn Kristjánsson og
dæmdu þeir erfiðan leik mjög vel.
-þr.
Owens var sterkari framan af
keppninni, en þreyttist og var
sleginn í gólfið bæði í níundu og
elleftu lotu. í þeirri tólftu lauk
síðan keppninni. Þetta var aðeins
annar ósigur Owens á glæsilegum
ferli, þar sem hann vann 26
mótherja og gerði aðeins eitt
jafntefli, auk eins taps áður.
Fari keppni þessi fram, er
líklegt að hún eigi sér stað í Ohio í
Bandaríkjunum. Stjóri Shavers
segir: „Ernie telur enn, að hann
hefði átt að bera sigur úr býtum
síðast er þeir kepptu." Það er
margt til í því, Ali vann Shavers á
stigum fyrir fáum árum og kom
það mörgum á óvart sem á horfðu,
Shavers virtist nefnilega hafa
betur í keppninni.
Banaslys í hringnum
Mætir Ali Shavers?
Dömu-ullardragtir
Fóðrað pils.
Litir: drapp, grátt, ljósgrátt, camel, blátt, brúnt.
Stærðir: 36—42.
Verð: 88.900.-.
Hönnun: Colin Porter.
2 haó Stmi 85055