Morgunblaðið - 02.04.1981, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1981
Hvorki rætt við banka
né viðskiptaráðuneyti
„MISSKILNINGURINN hjá út-
gerðarmanninum er auðvitað sá,
að þó skip séu á frílista, þá ber að
tilkynna gjaldeyrisyfirvöldum og
þau fylgjast með þvi hvernig
gjaldeyris er aflað til skipakaupa
og hvernig þau eru greidd,“ sagði
Þðrhallur Asgeirsson, ráðuneytis-
stjóri i viðskiptaráðuneytinu, i
samtali við Mbl. i gær, er hann var
spurður um viðbrögð ráðuneytis-
ins við fyrirhuguðum innflutningi
á skuttogara til Þorlákshafnar.
Benti Þórhallur á reglugerð
númer 519 frá 1979 þar sem segir,
að engar vörur megi tollafgreiða
nema með vöru- og innkaupareikn-
ingum fylgi staðfesting gjaldeyris-
banka um að varan hafi verið
greidd. eða greiðslan tryggð með
öðrum hætti.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hefur Hafsteinn
Ásgeirsson í Þorlákshöfn undan-
farið staðið í viðræðum við fyrir-
tæki í Fleetwood um kaup á
skuttogara. Skipið hefur Hafsteinn
fengið skráð til bráðabirgða hér-
lendis og kaupsamningur mun hafa
verið gerður 23. marz. Um er að
ræða 550 rúmlesta skuttogara, sem
áður hét Irvana, en nú Guðfinna
Steinsdóttir ÁR 10. Skipið var
smíðað í Skotlandi árið 1972, en
hefur verið gert út af fyrirtækinu
Marr & Sons í Fleetwood.
íslenzkur skipaskoðunarmaður
skoðaði skipið í Englandi í byrjun
marz og þarf aðeins að gera
Rætt við Þórhall
*
Asgeirsson og
Kristján Ragnars-
son um Þorláks-
hafnartogarann
lítilsháttar breytingar á skipinu
svo það uppfylli íslenzkar reglur.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins ætlaði Hafsteinn að koma
með skipið til landsins fljótlega, en
eins og mál hafa þróast hafa
líkurnar á að svo verði dvínað.
„Hafsteinn hefur ekki sýnt neina
viðleitni til að leggja fram upplýs-
ingar um þetta mál og hefur ekki
haft neitt samband, hvorki við
banka né okkur," sagði Þórhallur
Ásgeirsson. „Þegar við fyrst frétt-
um af þessu máli um áramótin.
báðum við Landsbanka Islands að
vekja athygli mannsins á skyldum
hans ef hann væri að hugsa um
svona viðskipti. Landsbankinn
sendi manninum símskeyti 2. janú-
ar og þar segir: „Samkvæmt tii-
mælum viðskiptaráðuneytisins vill
Landsbankinn benda yður á, að
óheimilt er að gera samning um
erlend lán vegna skipakaupa eða
gera leigu- eða leigukaupasamn-
inga um skip erlendis frá án leyfis
viðskiptaráðuneytisins. Þung við-
urlög liggja við ef út af er brugðið."
Viðskiptaráðuneytið sendi selj-
andanum síðan símskeyti í gær og
sagði honum frá því, að tilskilin
leyfi hefðu ekki verið fengin hjá
opinberum aðilum á íslandi og þó
Siglingamálastofnun hefði gefið út
vottorð væri það ekki nein heimild
til innflutnings eða gjaldeyris-
viðskipta. í dag sendi viðskipta-
ráðuneytið Hafsteini skeyti til
Fleetwood þar sem athygli hans
var vakin á þessari skyldu og
minnt var á skeytið, sem Lands-
bankinn sendi honum.
Ég vil gjarnan fá að leiðrétta
þann misskilning, sem ekki aðeins
kemur fram í þessu máli, um að
frílisti þýði að hver sem er geti
flutt inn hvað sem er af þeim
vörum, sem þar eru. Þetta er allt
undir eftirliti gjaldeyrisyfirvalda. í
sambandi við tollafgreiðslu er þess
gætt, að samræmi sé á milli
innflutnings og gjaldeyrissölu.
Skipið fæst ekki tollafgreitt ef
eitthvað er óklárt í sambandi við
gjaldeyrisviðskipti," sagði Þórhall-
ur Ásgeirsson að lokum.
Morgunblaðið ræddi í gær við
Kristján Ragnarsson, formann
LÍÚ, og sagðist hann lítið vita um
þetta mál. „Ef um það er að ræða,
að skipið eigi að greiðast af sölu-
andvirði afla, sem seldur er erlend-
is, eins og heyrzt hefur, erum við
því eindregið andvígir. Með því er
ekki annað að gerast, en menn eru
að gerast leppar erlendra aðila á
íslandi til að koma skipum inn í
íslenzka landhelgi," sagði Kristján
Ragnarsson.
Steinþór Steingrímsson við eitt nokkur verka sinna i Ásmundar-
sal. Mynd Rax
Steinþór Steingríms-
son í Ásmundarsal
STEINÞÓR Steingrímsson
heidur um þessar mundir
málverkasýningu í Ásmund-
arsal. Fjörutíu og fimm verk
eru á þessari 7du einkasýn-
ingu Steinþórs, og hafa þegar
7 þeirra selst, en aðsókn á
sýninguna mun hafa verið
mjög góð.
Steinþór sagði í spjalli við
Mbl., að hann hefði byrjað að
mála þegar hann var strákur:
—Ég var mikið í þessu framyf-
ir tvítugt, að ég fór í músíkina.
Svo var ég atvinnumúsíkant í
nokkuð mörg ár eða þar til ég
sneri mér aftur að málverkinu
fyrir 10 árum eða svo. Nei, ég
hef unnið bæði til sjós og lands
og reikna ekki með að ég geti
haft atvinnu af málverkinu
næstu árin. Ég mála mér til
hugarhægðar, en ekki af nein-
um metnaði. Ég losnaði við
alla þörf til að sýna sjálfan
mig gegnum músíkina, og kæri
mig ekki um neina frægð. Ég
var nógu frægur að endemum í
músíkinni.
Þessar myndir mínar eru
raunar ekkert nema uppstill-
ingar. Ég hef áhuga á lands-
lagi, en ekki í málverki. Lands-
lag er ekki hægt að flytja inn í
stofu, sagði Steinþór Stein-
grímsson.
Sýningu Steinþórs lýkur
næstkomandi sunnudagskvöld.
Erna Hrólfsdóttir yfirflugfreyja Flugleiða. Uónm. Mbl. Kristján
Ný yfirflugfreyja Flugleiða:
„Góðir hlutir gerast hægt“
Rætt við Ernu Hrólfsdóttur yfirflugfreyju
FLUGLEIÐIR hafa ráðið nýja
yfirflugfreyju úr röðum flug-
freyja félagsins, en um skeið hefur
entfin yfirflugfreyja verið starf-
andi hjá Flugleiðum. Hin nýja
yfirflugfreyja er Erna Hrólfsdótt-
ir sem starfað hefur sem flug-
freyja sl. 17 ár, fyrst hjá Loftleið-
um <>K siðan Fluifleiðum. Morgun-
blaðið átti samtal við Ernu um
starf yfirflugfreyju.
„í samráði við Flugleiðir tók ég
þetta starf að mér,“ sagði Erna, og
það er vilji til þess að gera starf
yfirflugfreyju virkara á þann hátt
að hún fljúgi áfram eins og aðrar
flugfreyjur. Ég mun því sinna
áfram mínu starfi í vélum Flug-
leiða að mestu leiti, en að öðru leiti
mun ég leggja á það áherslu að
hafa samráð við aðrar flugfreyjur,
gera 1. freyjur, sem eru yfir í
hverri ferð, ábyrgari fyrir sínu
starfi og með hjálp allra flugfreyja
mun ég leitast við að hver flug-
freyja verði virkari í mikilvægu
starfi, þar sem starf flugfreyjunn-
ar er á margan hátt andlit flugfé-
lagsins út á við. Þótt vel hafi verið
unnið má sífellt gera betur. Flug-
freyjustarfið er keðjuvinna og það
gengur ekki upp nema með sam-
stilltu átaki jákvæðs starfsfólks og
ég tel mig finna best hjartslátt
starfsins með því að vera áfram
einn hlekkurinn í keðjunni.
Ég mun halda fundi með flug-
freyjum reglulega til þess að ræða
málin, því sífellt þarf að vera með
vakandi auga yfir því að vandað sé
til þjónustunnar. Ég mun þannig
reyna að brúa bilið sem er milli
flugfreyja og ráðamanna Flugléiða,
því þótt markmiðið sé eitt og hið
sama þá þarf samvinna að koma til
og þetta get ég eingöngu með hjálp
annarra flugfreyja. Það er mikill
kostur að flugfreyjur hafa mjög
jákvæða afstöðu til félagsins og
vilja til þess að stuðla að því að
Flugleiðir geti rétt úr kútnum.
Þegar félaginu hefur gengið illa
hefur myndast uppgjafatónn innan
raða starfsfólks, en sá tónn er
greinilega að hverfa og mér finnst
koma glöggt í ljós að fólk vill leggja
sitt af mörkum við að byggja
félagið áfram upp og sigrast á
vandamálunum.
Það er margt sem ég tel að þurfi
að hyggja að, en góðir hlutir gerast
hægt. Ég mun leggja mig alla fram
og stend vel að vígi að því leiti að ég
hef starfað með öllum flugfreyjum
félagsins um árabil og það er
líklega þess vegna sem leitað er til
mín í þetta starf, en meðal atriða
sem ég mun leggja áherslu á að fá
fram er að einn og sami einkennis-
búningurinn verði fyrir allar
flugfreyjur, því annað er óeðlilegt
fyrir eitt flugfélag."
Slysavarnarfélag íslands — Happdrætti 1981:
Bifreið, sumarbústaðaland
og tíu gíra hjól í vinninga
Öllum ágóða varið til björgunarstarfa
og endurnýjunar björgunarbúnaðar
SLYSAVARNARFÉLAG íslands
hleypir nú af stokkunum enn einu
deiídahappdrætti, en siík happ-
drætti hafa verið árlegur viðburð-
ur og eru ein aðalfjáröflunarleið
félagsins. Vinningar i happ-
drættinu nú eru eftirsóknarverðir
að vanda: Galant GLX-fólksbifreið
árgerð 1981, land undir sumarbú-
stað að Svalvogum við Dýrafjörð
og átta DBS-reiðhjól með tiu
girum og öryggisbúnaði. Vinn-
ingar eru skattfrjálsir að heildar-
verðmæti 135.000,00. Miðaverð er
20 kr. og dregið verður 17. júni
nk. öllum ágóða af happdrættinu
verður að venju varið til björgun-
arstarfa og búnaðar Slysavarnar
félagsins, en nú eru starfandi 90
björgunar8veitir á vegum 200
deilda félagsins.
Á fréttamannafundi, sem hald-
inn var á vegum Slysavarnarfé-
lagsins í gær í tilefni af happdrætt-
inu, kom fram að björgunarstarf-
semi félagsins hefur verið óvenju-
mikil það sem af er vetrar vegna
slæmrar veðráttu og nefndi Hann-
es Hafstein framkvæmdastjóri fé-
lagsins, að í óveðrinu mikla í vetur
hefðu 270 tilkynningar borist Til-
kynningarskyldunni frá skipum og
bátum á hafi úti. 21 manni hefur
verið bjargað af björgunarsveitum
félagsins með fluglínum á vetrin-
um. Þá sögðu þeir slysavarnarfé-
lagsmenn að ekki væri unnt að
tölusetja bjarganir og aðstoðir,
sem veittar hefðu verið beint og
óbeint frá upphafi, því margar
væri ekki vitað um, en þær skiptu
áreiðanlega tugum þúsunda. Þeir
nefndu sem dæmi, að frá því
Slysavarnardeildin Þorbjörn í
Grindavík vígði fyrstu fluglínutæki
sín, svo til um leið og hún fékk þau,
og bjargaði 38 manns af franska
togaranum Cap Fognet úr brim-
garðinum við Grindavík fyrir 50
árum hefði deildin bjargað 194
sjómönnum með fluglínum.
öllum ágóða af happdrættinu
verður varið til björgunarstarfa og
endurnýjunar búnaðar björgunar-
sveitanna, en það er mjög kostnað-
arsamur liður, ef sveitirnar eiga að
geta verið búnar bezta og vandað-
asta öryggisútbúnaði á hverjum
tíma, að sðgn Gunnars Friðriks-
sonar forseta Slysavarnarfélags-
ins. Deildirnar fá sjálfar 30% af
andvirði seldra miða en félagið
70%, en þess ber að geta að félagið
sér um kostnaðarhlið happdrættis-
ins.
Þá er framundan hjá Slysavarn-
arfélaginu mjög kostnaðarsöm
breyting á fjarskiptabúnaði félags-
ins, en hún þarf að fara fram á
þessu ári og næsta til að fullnægja
alþjóðakröfum og reglugerðum um
fjarskiptabúnað.
Hannes Hafstein sagði aðspurð-
ur á fundinum, að sjómenn sinntu
tilkynningarskyldu betur nú en
áður, en þó vantaði mikið á að
hlustunarvarsla um borð í bátum
og skipum væri sem skyldi og
þyrfti að iagfæra það.
öll störf björgunarsveitanna eru
unnin í sjálfboðavinnu og mikill
hluti af kostnaði við rekstur, þar
með talinn kostnaður við æfingar
o.fl., er greiddur af deildunum
sjálfum og félagsmönnum. Þá hafa
deildirnar einnig aflað fjár til
starfseminnar með ýmsu móti.
Deildirnar hafa byggt og séð um
rekstur björgunarskýla með
ströndum landsins og á erfiðum
fjallvegum og komið fyrir í þeim
talstöðvum og símum og hafa þessi
skýli orðið mörgum til bjargar,
sem kunnugt er.
Gunnar Friðriksson og slysa-
varnarfélagsmenn sögðust vonast
til, að undirtektir almennings við
happdrættinu yrðu góðar og bentu
á, að aldrei væri að vita hvar og
hvenær neyðin yrði næst og að það
væri í höndum almennings að
aðstoða Slysavarnarfélagið við að
geta veitt sem bezta og fullkomn-
asta aðstoð þegar neyðin kallar.
LjÓNm. Mbl. Emilía Björg.
Frá fréttamannafundinum i gær. Gunnar Friðriksson forseti S.V.F.Í.
lengst til vinstri, þá Guðjón Jónatansson og Gisli Sveinbergsson en þeir
eru i happdrættisnefnd félagsins.