Morgunblaðið - 02.04.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1981
23
hefði stolið einum Óskarnum fyrir
framan allar Hollywoodstjörnurn-
ar og milljónir sjónvarpsáhorf-
enda. Óþekktur maður reis upp úr
sæti sínu meðal áhorfenda við
úthlutunina og tók við styttunni
fyrir hönd ungverska framleið-
andans Ferec Rofusz. Þeir sem
úthlutuðu verðlaununum höfðu
tilkynnt að framleiðandinn hefði
Robert Redford flytur ávarp eft-
ir að hafa tekið við óskarsverð-
laununum fyrir leikstjórn kvik-
myndarinnar „Ordinary People“
AP-símamynd.
Henry Fonda
ekki fengið vegabréfsáritun frá
Ungverjalandi og því myndi kvik-
myndaakademían taka við verð-
laununum fyrir hans hönd. Rofuzs
hafði fengið verðlaunin fyrir
stutta gamanmynd.
Forsvarsmenn kvikmyndaaka-
demíunnar segja að Óskarnum
hafi ekki verið stolið, þetta hafi
aðeins verið skrítið tilfelli.
De Niro gekk út
Hollywood, 1. apríl. AP.
Á BLAÐAMANNAFUNDI sem
haldinn var að lokinni úthlutun
óskarsverðiaunanna var Robert
De Niro spurður álits á þeirri
frétt að kvikmyndin Taxi Driver
sem hann lék í ásamt Jody Foster
hafi á einhvern hátt orðið til þess
að John Hinckley reyndi að
myrða Ronald Reagan.
De Niro sagðist ekkert hafa
heyrt um þessa frétt og sagði
blaðamönnunum að hann' vildi
ekki ræða málið. Er blaðamenn-
irnir gáfust ekki upp og fóru að
spyrja hann nánar um málið sagði
hann argur: „Ég hef sagt það sem
ég viidi segja hér.“ Með það gekk
hann út.
Deng Xiaoping.
Veitzt að Deng
í veggspjöldum
Hong Kong, 1. apríl. AP.
KÍNVERSKIR haía af því vax
andi áhyggjur. að upp á siðkastið
hafa sprottið upp veggspjöld i
Kina þar sem Deng Xiaoping er
harðlega gagnrýndur, að þvi er
timarit vinstrimanna i Hong
Kong skýrir frá í dag.
Tímaritið segir, að veggspjöldin
hafi verið fest upp að undirlagi
stuðningsmnna fjórmenningaklík-
unnar svonefndu og ýmissa hátt-
settra foringja í hernum.
Segir tímaritið að af þessum
sökum sé í gangi mikil hreinsun-
arherferð í hernum. Hafi margir
yfirmenn verið „látnir fjúka" þar
sem þeir hafi viljað halda í
byltingarhugmyndir Maos og
lagst gegn breyttum hugmyndum
núverandi valdamanna um starf
og stefnu hersins.
Tímaritið segir, að í veggspjöld-
unum hafi þess verið krafist að
Deng yrði vikið frá völdum og
hann sakaður um að sveigjast um
of til hægri. Jafnframt var nýrrar
menningarbyltingar krafist, og í
ýmsum veggspjöldum var lögð
fram málsvörn fyrir Jiang Qing
ekkju Maos.
Fögnuðu
árásinni
áReagan
Tul.sa. Oklahoma, 1. april. AP.
ÞEGAR rektor Academy
Central-grunnskólans í
Tulsa skýrði nemendum sín-
um frá þvi að gerð hefði
verið skotárás á Ronald
Regan Bandaríkjaforseta
kváðu við fagnaðaróp úr
hópi nemenda.
Rektorinn segist hafa
skýrt nemendum frá árás-
inni skömmu áður en
kennslu lauk á mánudag.
Sagði hann nemendunum frá
þvi að forsetinn hefði særst í
skotárás en væri á batavegi,
og að tveir til viðbótar hefðu
særst í árásinni.
Kennarar lýstu hneykslan
sinni á framkomu nemend-
anna, en þeir sögðust hafa
orðið hálf vandræðalegir og
ekki beinlínis vitað hvaðan á
sig stóð veðrið, er nemend-
urnir fögnuðu að skotárás
hefði verið gerð á forseta
landsins.
Hjartanlegar
þakkir
sendi ég öllum kunningj-
um og vinum, sem
glöddu mig, gamlan
manninn, á margvíslegan
hátt á afmæli mínu í
síðustu viku.
Skeggi Asbjarnarson.
Bretland:
Velmegunin hefur
aldrei verið meiri
Frá Einari K. Guðfinnssyni. fréttaritara
Mbl. i Bretlandi, 1. apríl.
BRETAR hafa aldrei haft það
jafn gott fjárhagslega og nú.
Þetta er meginniðurstaða
skýrslu sem gefin hefur verið út í
Bretlandi.
Laun hafa hækkað talsvert
umfram aukningu verðbólgu. en
verðbólga minnkar nú stöðugt.
Fyrir vikið, segir í skýrslunni.
hefur almenn velmegun aukist
þrátt fyrir að atvinnuleysi sé
talsvert meira en fyrir ári.
Á síðasta ári dróst þjóðarfram-
leiðsla saman. Það hefur í för með
sér að á sama tíma og ráðstöfun-
artekjur manna aukast minnkar
fjárfesting. Einnig er ljóst að
hagnaður fyrirtækja er nú mun
minni en hann var fyrir um það
bil ári.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna
jókst á síðasta ári um tvö prósent.
Með hugtakinu kaupmáttur ráð-
stöfunartekna er átt við heildar-
tekjur fjölskyldna að frádregnum
verðbólguáhrifum og sköttum.
Ljóst er þó að kauphækkanir á
þessu ári í Bretlandi verða mun
minni en í fyrra. Með minnkandi
dýrtíð hafa verðbóiguvæntingar
minnkað og því hafa verkalýðsfé-
Finnland:
Frá Harry (iranberR, fréttaritara Mbl.
í Finnlandi 1. april.
FYRSTA verkfall vorsins í Finn-
landi er hafið. Járniðnaðarmenn
sem hafa lýst andstöðu við launa-
máiastefnu rikisstjórnarinnar
hófu i dag tveggja daga verkfall
sem miðar að því að hraða
samningaviðræðum.
Járniðnaðarmenn krefjast
lög og vinnuveitendur yfirleitt
samið um minni kauphækkanir en
á árunum á undan.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar
telja þessa þróun góðs viti og tala
um að meira raunsæi ríki á
vinnumarkaðnum en áður.
launahækkunar sem er meiri en
gert er ráð fyrir að launþegar í
Finnlandi fái.
Ýmsir opinberir starfsmenn
hafa einnig lýst andstöðu sinni við
launamálastefnuna. Fremstir í
flokki þar eru bankastarfsmenn
sem m.a. krefjast fyrrifram-
greiðslu launa. Þeir hafa hótað
verkfalli á mánudag.
Járniðnaðarmenn í
tveggja daga verkfalli
„í okkar starfi er naudsynlegt
ad eiga góð vmnuföt"
„Þau þurfa að vera vatns- og vindþétt, sterk,
lipur og mega ekki harðna í kulda"
smellum á báðum hliðum
leilar blússur
„Við mælum óhikað með
Max sjó- og regnfatnaði“
ÁRMÚLA 5 — SÍMAR 86020 OG 82833
Rafsoðnir saumai
Smekkbuxur með
Þægilegt hálsmál
Flúor öryggislitir
Smelltir jakkar, 1
Tvær þykktir