Morgunblaðið - 02.04.1981, Side 37

Morgunblaðið - 02.04.1981, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. APRIL 1981 37 föður mínum, Eggert Claessen hæstaréttarlögmanni. Áður hafði Georg búið að Laugabökkum í Ölfusi. Síðan fluttist fjölskyldan að Melshúsum á Seltjarnarnesi og þaðan að Reynistað. Árið 1927 kvæntist Georg Mar- gréti Kjartansdóttur og eignuðust þau tvö börn. Önnu sem gift er Gunnari Má Péturssyni, deildar- stjóra hjá Almennum Trygging- um, eiga þau fimm börn og Kjartan, sem nú er bóndi að Ólafsvöllum á Skeiðum. Hann er kvæntur Sigríði Pétursdóttur og eiga þau þrjú börn. Þau Margrét og Georg gengu Jónu, frænku Margrétar í for- eldrastað. Hún er gift Þórði Adolfssyni, skrifstofumanni. Þau eiga fjögur börn. Reyndist Jóna fóstra sínum einstaklega vel í veikindum hans síðasta árið, þar sem hún og fjölskylda hennar bjuggu hjá honum. Þannig hagaði til hér áður fyrr, að tvö hús tilheyrðu jörðinni Skildinganesi, sem faðir minn keypti og nefndi Reynistað. Bjugg- um við í öðru husinu, en Georg og fjölskylda hans í hinu, sem áður fyrr var kallað „gamli bærinn". Þessi hús eru byggð um 1870. Georg sat jörðina með miklum ágætum. Hann ræktaði upp mikið af túnum, sem hann sléttaði af kostgæfni. Hann hafði margt vinnufólk, einkum á sumrin og alltaf var mannmargt þar á heim- ilinu. Meiri vinnusemi og dugnað hef ég aldrei reynt, hvorki fyrr né síðar. Honum gleymdist að líta á klukkuna ef hey þurfti að nást inn að kvöldi og honum sýndist á himninum að væri rigningar að vænta. Hann var sérstaklega veð- urglöggur. Á heimilinu voru tvær ömmur. Halldóra, móðir Margrét- ar og Ólöf móðir Georgs. Þær kenndu okkur Önnu bæði að kemba og spinna ull. Eins var Niels þar á heimilinu, bróðir Ólafar, minnisstæður maður. Ólöfu man ég best, þar sem hún gekk um túnið, féll henni þá aldrei verk úr hendi, þar sem hún prjónaði á göngunni, er hún var að hóa fólkinu í matinn. Alltaf var nóg husrými, því að Anna systir Georgs átti lengi heima þar með fjölskyldu sína. Jón bróðir Margrétar bjó þar með fjölskyldu sína um tíma. Seinna var Guðrún, móðir Jónu þar til húsa með mann og börn í nokkur ár. Ég minnist vel að harðbannað var að hlaupa á túninu rétt fyrir sláttinn og áttum við Anna og krakkarnir mjög bágt með að skilja það, en gengið var hart eftir því að við hlýddum. Bót var þó á máli þar sem við fengum ómælt að leika okkur í hlöðunni nokkru seinna. Fjöldi kúa var í fjósinu og var það okkar besta skemmtun þegar þeim var hleypt út fyrst á vorin. Einnig voru hestar og höfðum við mikið dálæti á þeim. Georg byggði seinna sitt eigið hús á jörðinni, sem hann nefndi Rey- nivelli. Mikil breyting varð á búskap hans, þear beitarlandið var tekið undir flugvöll, en búskapurinn dróst smámsaman saman eftir því sem byggð þéttist á þessum slóðum. Hænsnarækt stundaði hann síðustu árin og eignaðist hann margar góðar vinkonur, sem keyptu af honum egg. Hrognkelsaveiði stundaði hann af kappi, þegar sá tími ársins var. Margrét lést langt fyrir aldur fram árið 1960 og var mér mikill söknuður að henni, því að ég mat hana sérstaklega mikils. Hún var svo hrein og bein og hjálpsöm við alla. Georg lést 24. mars siðastliðinn. eftir stranga legu frá því á aðfangadag jóla Karlmennska hans og kjarkur brugðust ekki til hinstu stundar. Kristín Claesscn Mér er ljúft að minnast nokkr- um orðum heiðursmannsins Georgs Jónssonar bónda, Reyni- völlum Skerjafirði, f. 24. febrúar 1895, d. 24. mars 1981. Georg var um áratugaskeið stórbóndi á Reynistaðajörðinni í Skerjafirði, en hús það er hann byggði i Reynistaðatúninu upp úr 1940, nefndi hann Reynivelli. Ég átti því láni að fagna að alast upp í húsi hans. Foreldrar mínir leigðu hjá honum og eigin- konu hans, Margréti (d. 5. apríl 1960), frænku minni, frá því ég fyrst man eftir mér, þar til ég var fimmtán ára gamall, og er systir mín, Jóna, fósturdóttir þeirra hjóna. Margs er að minnast frá þessum árum og tengjast margar minn- ingarnar Dæja, eins og við börnin kölluðum Georg. Hann var sér- staklega duglegur maður og ósér- hlífinn, féll aldrei verk úr hendi, enda í mörgu að snúast á stóru búi. Georg var víðlesinn og hafði áhuga á hverskyns bókmenntum. Hann hafði gaman af kveðskap og fór létt með að varpa fram vísu ef tilefni gafst. Hagur var hann bæði á tré og járn, allt lék í höndum hans. Georg átti í húsi sinu sérstakt smíðaherbergi með hefil- bekk og öllum algengustu verk- færum og áhöldum. Þar voru unnin mörg handtökin og margt smíðað bæði fyrir heimilið og búið. Og ekki lét hann sig um muna að smíða hin vönduðustu leikföng fyrir börnin. Þó Georg væri á margan hátt ihaldssamur og fastheldinn á gamla siði og venjur, þá var hann fljótur að tileinka sér nýjungar sem fram komu í landbúnaði. Var hann í fararbroddi meðal bænda í vélvæðingu og tækninýjungum við búskapinn. Eins og margir góðir bændur var Georg bæði sparsam- ur og nýtinn. En hann var að sama skapi örlátur og gjöfull þegar það átti við og mátti hvergi bágt vita án þess að vilja bæta úr. Heimilið að Reynivöllum var oft mannmargt hér á árum áður, bæði af skylduliði og vinnufólki. Oft voru þar útlendingar í vinnu t.d. á árunum fyrst eftir stríðið, voru það Þjóðverjar sem áttu um sárt að binda eftir heimsstyrjöldina, Danir o.fl. öllu þessu fólki reynd- ist Georg góður og sanngjarn húsbóndi og naut þar góðrar samvinnu við eiginkonu sína, Margréti, sem var einstaklega góðgjörn og gestrisin. Eitt af því sem ég man sérstaklega eftir frá uppvexti minum, er hve gott mér þótti að koma í stofuna til þeirra Möggu og Dæja á kvöldin, en þar ríkti nokkurskonar baðstofuand- rúmsloft, friður og ró, hann sat og las i bók eða hlustaði á útvarpið en hún sat með hannyrðir í höndum. Það var gengið snemma til náða enda fór Georg á fætur um sexleytið og stundum upp úr fjögur á vorin þegar rauðmaga- veiðarnar voru stundaðar, en þær stundaði hann árum saman. Þó að hliðargreinar eins og kartöflurækt og hænsnarækt væru stundaðar á Reynistað, þá var kúabúskapur aðalbúgreinin og var jafnan mikill fjöldi mjólkandi gripa í fjósinu þar. Eins og gefur að skilja dró búskapurinn og þau umsvif sem honum fylgdu oft að sér mikinn fjölda barna úr ná- grenninu. Var það því oft myndar- leg hersing sem hjálpaðist að við að reka kýrnar úr haga á kvöldin. Margar ævintýraferðir fórum við börnin með Georg er við hjálpuðum til við heyskapinn, en auk þess að heyja túnin í Skerja- firðinum, heyjaði hann á ýmsum stöðum sem þóttu langt í burtu þá, en það voru staðir eins og skóg- ræktin í Fossvogi, Landspítala- og Háskólatúnin, smáspildur úti á flugvelli og víðar. Við strákarnir í Skerjafirðinum nutum þess að kynnast hjá Georg öllum venju- legum sveitarstörfum þó við byggjum inni í miðri borg. Voru okkur falin ýmis trúnaðarstörf, svo sem að aka með mjólkina spenvolga á hestvagni heim til viðskiptavinanna, en þeir voru í Litla- og Stóra-Skerjafirðinum, Prófessorabústöðunum og á Þormóðsstöðum. Einnig seldum við fyrir hann spriklandi rauðmaga og signa grásleppu úr vagni við íþróttavöll- inn á Melunum. Voru störf þessi ávallt vel launuð og kom það sér að sjálfsögðu vel fyrir okkur. Upp úr 1960 fór að þrengja mjög að búskapnum í Skerjafirðinum. Ásókn var mikil í byggingarlóðir og túnin hurfu smámsaman undir íbúðarhús. Georg lagði þá niður kúabúið og hóf eggjabúskap og var við hann mörg síðustu árin. Eins og áður hefur verið vikið að var eiginkona Georgs, Margrét Kjartansdóttir, úr Önundarfirði. Börn þeirra eru: Anna, gift Gunn- ari Má Péturssyni, framkvæmda- stjóra hjá Almennum tryggingum hf., Kjartan, bóndi á Ólafsvöllum á Skeiðum, kvæntur Sigríði Pét- ursdóttur. Fósturdóttir þeirra er Jóna Sigurjónsdóttir, gift Þórði Adólfssyni, gjaldkera hjá Pharm- aco. Hafa þau Jóna og Þórður ásamt börnum sínum í mörg ár haldið sameiginlegt heimili með Georg, að Reynivöllum eða Skild- inganesi 4 eins og það heitir nú. Við Georg hittumst sl. haust og rifjuðum upp ýmsar hugstæðar minningar. Var þar af mörgu að taka. Éin þeirra var um Rauð, gamla vagnhestinn hans góða, sem eitt sinn týndist úti í mýri hjá Tívolí en fannst þar sokkinn niður í skurði og stóð aðeins höfuðið upp úr. Varð að draga hann upp með jeppa og miklum viðbúnaði. Var honum gefið heitt kaffi og brenni- vín er heim í hesthús var komið og varð honum ekki meint af volkinu. Mörgum árum síðar þurftum við Dæi að fylgja Rauð gamla sem þá var orðinn tuttugu vetra, á þann stað sem hann átti ekki aftur- kvæmt frá. Þá vorum við þung- stígir. Margar endurminningar ræddum við aðrar, flestar góðar. Nú hefur Georg stigið skrefið inn í móðuna miklu og víst er að hann hefur í veganesti fjársjóð þess manns sem lifað hefur langa farsæla og blessunarrika ævi. Sigurjón G. Sigurjónsson Ekkert er eðlilegra heldur en að 86 ára maður kveðji þetta líf, en það er nú svo, að mjög er það misjafnt þegar svo háum aldri er náð, hversu mikill þátttakandi svo aldraður maður er í lífinu um- hverfis sig. Georg var einn þeirra, sem naut lífsins og gat sett sig inn í breytta tíma og sætt sig við breytingarnar. Hann var sístarfandi maður meðan heilsan leyfði, hafði gaman af að ferðast, fá til sín gesti, rabba eða spila. Þótti gott að sitja í rólegheitum í stofunni sinni og hlusta á útvarpið eða lesa góðar bækur. Georg naut þess, eftir að hann missti konu sína, sem hann treg- aði mjög, að geta búið áfram í húsi sínu með börn sín og barnabörn þar og í næsta nágrenni. Georg var einstakur barnavin- ur, hafði ánægju af að hafa greinda krakka kringum sig, og segja þeim til við lestur og tölur, enda hændust börn mjög að hon- um. Hann hafði alla tíð góða heilsu þar til á miðju ári 1979 að hann kenndi þess meins, sem dró hann til dauða. Var hann þá um tíma á sjúkrahúsi, en komst aftur heim, og gat notið þess að vera með sínu fólki í rúmt ár við sæmilega heilsu. Síðustu þrjá mánuðina var hann á Borgarspítalanum, og naut þar mjög góðrar umönnunar þar til hann lést 24. mars sl. Einmitt fyrir það hve Georg var ávallt hress í bragði og jákvæður gagnvart öllu, hefðum við í eigin- girni okkar viljað hafa hann hjá okkur svolítið lengur. Með þessum fáu kveðjuorðum vil ég þakka Georg Jónssyni meira en 40 ára kynni okkar, og allt hið góða, sem hann hefur látið í té mér og mínum á lífsleiðinni. Ég mun aldrei gleyma þeim kveðju- og blessunarorðum, sem hann mælti til mín fyrir stuttu. Það er svo margt, sem ekki er hægt að þakka með orðum, en geymist í huga og minni. Gangi hann í guðs friði. Guðrún I. Jónsdóttir Trúirðu því aö í Toshiba-örbylgjuofninum geturöu matreitt: Soöiö — hitaö — steikt — bakaö og jafnvel poppað á allt aö 5 sinnum styttri tíma en á venjulegri eldavél? Og samt notaö aöeins 600 wött af rafmagni? — Nei, nú trúiröu ekki: En þetta er rétt. Komdu til okkar og sjáöu ofninn í gangi. Ræddu viö okkur og þú færö fullkomna kennslu á Toshiba-ofninn. — Og maturinn, í langflestum tilfellum, miklu betri. ER-638 ET meö snúningsdisk. Verö: kr. 3.740.- örbylgjuofnarnir eru heimsþekktir fyrir gæöi og öryggi og viö bjóöum upp á fullkomna kennslu hjá húsmæörakennara, sér- menntuöum í meöferö örbylgjuofna. EF EINAR FARESTVEIT 4, CO HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995 3 gerðir af ofnum. Verd frá 3.180.-. Greiðslukjör.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.