Morgunblaðið - 22.05.1981, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MAÍ1981
23
Guðráður Davíð
Bragason - Minning
Fæddur 9. nóvember 1966.
Dáinn 16. maí 1981.
Við kveðjum elskulegan bróður
okkar Guðráð Davíð með sárum
söknuði. Skilnaðarstundin kom
svo skjótt og óvænt. Við, sem
áttum svo margar góðar stundir
með honum, bárum þá von í
brjósti að enn myndum við eiga
eftir saman svo margar gleði-
stundir í lífi okkar.
í sárum söknuði biðjum við
góðan Guð að blessa minninguna
um bróður okkar og varðveita
hann.
.Drottinn er minn hirftir. miic mun ekkert
brenta.
Á xrtenum icrundum lætur hann miic hvllaxt.
leiftir mÍK að vötnum. þar sem ég mé næðin
njóta.
Ilann hressir sál mina.
leiðir mÍK um rétta veuu (yrir sakir nafns
sins.
Jafnvel þútt ég (ari um dimman dal.
úttast én ekkert illt. þvi aA þú ert hjá mer.
spruti þinn ok stafur huKKa mÍK
Já. Ktefa ok náA fyÍKja mér alla a vidaKa
mina.
uk i húsi Drottins bý éx lanKa ævi.“
Vigdís, Stefania,
Sigríður, Ilelga og Erla.
Það er stundum svo óskiljanlega
stutt á milli gleði og sorgar, lífs og
dauða, að menn standa orðvana
frammi fyrir þessari torráðnu
lífsgátu.
Menn spyrja hvers vegna og til
hvers, og þeim gengur oft erfið-
lega að finna viðunandi svör.
Svona var okkur mörgum farið,
kennurum og nemendum í Víði-
staðaskóla, þegar við heyrðum þá
hörmulegu fregn að einn úr hópi
okkar, Guðráður Davíð Bragason,
hefði lent í slysi og væri ekki
lengur í tölu lifenda. Hann, þessi
ljúfi og jákvæði félagi og vinur,
væri horfinn á burt yfir móðuna
miklu aðeins 14 ára að aldri. Þetta
var svo ótrúlegt — en þó samt sem
áður bitur og miskunnarlaus
sannleikur.
Guðráður, eða Go/fi eins og
félagar hans kölluðu hann, var
horfinn úr þessum heimi. En eftir
sat minningin um hugþekkan og
glaðan félaga. Og það er hún sem
eftir lifir í hugskoti okkar, þegar
lengra líður og sárasta sorgin
sefast.
Guðráður Davíð Bragason var
fæddur 9. nóvember 1966, sonur
hjónanna Ernu Þorleifsdóttur og
Braga Guðráðssonar. Hann ólst
upp á góðu heimili foreldra sinna
og naut ástúðar þeirra og um-
hyggju. Þar undi hann sér vel með
foreldrum sínum og systrum.
Guðráður Davíð hóf skólagöngu
sína í Grindavík en flutti til
Hafnarfjarðar með foreldrum sín-
um árið 1976 og hefur verið
nemandi í Víðistaðaskóla síðan.
Ekki kom Guðráður í Víðistaða-
skóla feginn og fagnandi, frjáls og
léttur í spori, þegar hann lagði
þangað leið sína fyrst.
Nei, þá var hann bæði kvíðinn
og vansæll, því að vini og kunn-
ingja hafði hann skilið eftir í
Grindavík og þar var hugur hans
allur. Hann vildi helst alls ekki
koma í Víðistaðaskóla.
En Guðráður vissi, að oft verður
maður að gera fleira en gott þykir.
Og i skólann kom hann. Hann
kynntist brátt skóiasystkinum og
kennurum og ekki leið á löngu þar
til hann var orðinn einn í hópnum,
góður og gegn skólaþegn í Víði-
staðaskóia, hress og glaður dreng-
ur og góður félagi.
Guðráður reyndist dagfarsprúð-
ur og jákvæður nemandi og bæði
kennurum hans og skólafélögum
féll hann vel í geð og þótti vænt
um hann. Námshestur var hann
enginn, en hann seig á bæði í námi
og kynningu eftir því sem tíminn
leið.
Guðráður var dulur og hlédræg-
Björksaga húsgagnalínan einkennist af þæg-
indum, léttu yfirbragði, ásamt styrkleika og góðri
endingu.
Komdu og prófaðu Björksaga línuna — þú
getur valið úr 14 mismunandi gerðum borða og
stóla í Ijósum eða dökkum viði meö tau- eða
skinnáklæði.
„Þú œttir
aö prófa aö
sitja i þeim”
■ j. ~ 2232
——
"ÆuK'
_
KRISTJPfl
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
ur þar sem hann þekkti sig ekki,
en hreinskiptinn og hjartahlýr,
þegar menn og umhverfi höfðu
öðlast trúnað hans og traust. Og
áhugamálum sinum sinnti hann
hverju sinni af einlægni og áhuga.
Nú stöndum við frammi fyrir
því að þurfa óvænt og óundirbúin
að kveðja góðan dreng, nemanda
og skólabróður, félaga og vin.
Okkur er orðs vant, en við kveðj-
um með þökk.
Við, nemendur, kennarar og
annaö starfsfólk Viðistaðaskóla,
þökkum Guðráði margar sam-
verustundir og góðar minningar
um hann sem eftir lifa. Við biðjum
honum allrar blessunar og felum
hann í forsjá þess sem öllu ræður.
Foreldrum hans, systrum og
systrabörnum, ömmum hans og
öfum, svo og öllum öðrum vanda-
mönnum hans og vinum, sendum
við samúðarkveðjur og biðjum
góðan guð að styrkja þau og styðja
á sorgarstundu.
Við kveðjum Guðráður Davíð,
nú og ævinlega. Hafi hann þökk
fvrir allt.
H.Z.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför bróöur okkar,
SIGURÐAR VILHJÁLMSSONAR
frá Hátúni, Neakaupstaö.
Systkinin.
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður gfein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi
á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal
einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um
hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
VERZLUNARSKOLI ISLANDS
STOFNAÐUR 1905
Innritun
næsta skólaár
Verzlunarskóli íslands tekur inn nemendur af öllu
landinu og úr öllum hverfum Reykjavíkur, án tillits til
búsetu.
Umsóknir skal senda til Verzlunarskóla islands,
Grundarstíg 24,101 Reykjavík. Skrifstofa skólans er
opin alla virka daga kl. 9—15.
VERZLUNARDEILD
Nemendur eru teknir inn í 3. bekk.
Inntökuskilyrði er grunnskólapróf.
Reynist ekki unnt aö taka inn alla sem sækja um
skólavist, verður höfö hliðsjón af árangri nemenda á
grunnskólaprófi.
Umsóknarfrestur er til 5. júní 1981 og skulu umsóknir
þá hafa borizt skrifstofu skólans, en æskilegt er aö
umsóknir berist sem fyrst eftir að grunnskólaprófum
er lokiö, ásamt prófskírteini eöa staöfestu afriti en
ekki Ijósriti.
LÆRDÓMSDEILD
Nemendur eru teknir inn í 5. bekk. Inntökuskilyröi er
einkunnin 6,50 á verzlunarprófi. Umsóknareyöublöö
fást á skrifstofu skólans. Umsóknarfrestur er til 5.
júní.
NÁMSEFNI
Vikulegur fjöldi kennslustunda í einstökum náms-
greinum.
Verzlun ardeild Lærdé xnsdeild
3. b«kkur 4. bekkur 5. bekkur 6. bekkur
íslenska 4 4 4 4
Enska 5 5 5 5
Þýzka 4 4 3 3
Danska 4 4 *
Franska 0(4) 0(6)
Latína . 0(6) 0(6)
Stærðfræði 4 4 8(4) 7(3)
Bókfærsla 5 5 3(0)
Hagfræði 3 3 5(0) 5(0)
Lögfræði 3
Saga 3 2 2
Líff. — efnafr. 5 5
Vélritun 3 3
Tölvufræði 3 3
Leikfimi 2 2 2 2
Valgreinar 0 0 3 3
Samtals 40 40 37(38) 39(39)
Tölur innan sviga sýna tímafjölda í máladeild en tölur
utan svigasýna tímafjölda í hagfræöideild.