Morgunblaðið - 28.05.1981, Síða 1
44 SÍÐUR
118. tbl. 68. árjí. FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
íbúar höfuðborgarinnar hafa notað sólskinsstundirnar upp á síðkastið til sólhaða. Þessa mynd tók Ólafur K. Magnússon
af sóldýrkendum í Sundlaug Vesturbæjar í gær.
Habib til Washington
eftir mikinn mótblástur
Washington. 27. maí. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti hafnaði fullyrðingum um
að Philip Ilabib, sendimaður hans í Miðausturlöndum, hefði
verið kallaður heim vegna mótblásturs við tilraunir hans til
að miðla málum í eldflaugadeilu Sýrlendinga og ísraela.
Ilahih hélt í dag heimleiðis með viðkomu í París.
Fyrsti fundur
Mitterrands
París. 27. mai. — AP.
FRANCOIS Mitterrand Frakk-
landsforseti stýrði sínum fyrsta
ríkisstjórnarfundi í dag. Að sögn
formælanda forsætisráðuneytis-
ins var forsetanum skýrt frá
áætlunum um framkvæmd lof-
orða hans i málefnum láglaun-
aðra og fatlaðra, en engar
ákvarðanir hefðu verið teknar.
Pierre Mauroy forsætisráðherra
skýrði seinna frá því, að á næsta
fundi stjórnarinnar, sem yrði 3.
júní nk., yrði tekin ákvörðun um
hækkun lágmarkslauna, en verka-
lýðsleiðtogar hafa farið fram á 10
til 20% hækkun við Mitterrand.
Mauroy sagði að ýmsar aðrar
bætur yrðu hækkaðar 3. júní.
Þá sagði Mauroy, að í undirbún-
ingi væri lagafrumvarp er gerði
ráð fyrir því að menn fengju
ellilífeyrir við 60 ára aldur, en
með því móti mætti draga úr
atvinnuleysi.
Átök í
Afgan-
istan
Islamahad. 27. maí. AP.
Áreiðanlegar heimildir skýrðu í
dag frá átökum afganskra skæru-
liða og sovézkra hersveita í Afgan-
istan i síðustu viku.
Skæruliðar sprengdu í loft upp
tvær brynvarðar sovézkar her-
flutningabifreiðir 20. maí við þorp-
ið Irriaw í Wardak-héraði suðvest-
ur af Kabúl með þeim afleiðingum
að sjö sovézkir hermenn létu lífið.
Sovétmenn hefndu þessa með því
að draga sex eldri menn frá heimil-
um sinum i þorpinu og taka þá af lifi
einn af öðrum er þeir neituðu að
skýra frá hverjir komu sprengjun-
um fyrir.
Þá skýrðu sjónarvottar frá því,
að afganskir skæruliðar hefðu tek-
ið fimm parchamista af lífi í
bænum Kargah við Kabúl 21. maí.
Fimmmenningarnir tilheyrðu
þeirri deild sem fer með völd í
lýðræðisflokki alþýðu.
Daginn eftir tóku skæruliðar tvo
parchamista til viðbótar af lífi í
þorpinu Bini Hissar að viðstöddu
fjölmenni. Þá var haft eftir íbúum
þorpsins Deh Mozang í nágrenni
Kabúl, að þar hefði stuðningsmað-
ur stjórnarinnar legið í valnum
eftir átök.
„Sýrland og ísrael voru að stríði
komin fyrir þremur vikum, en átök
hafa þó enn ekki brotist út,“ sagði
Reagan og hældi sendimanni sín-
um á hvert reipi. Reagan sagði, að
Habib héldi aftur til Miðaustur-
landa í næstu viku, eftir að hafa
ráðfært sig við ráðamenn í Hvíta
húsinu.
Margt þykir benda til þess, að
Habib hafi mistekist. Kunnugir
segja að honum hafi ekki tekist að
fá Saudi-Araba til að þrýsta á
Sýrlendinga um að fjarlægja eld-
flaugarnar umdeildu frá Líbanon.
Begin forsætisráðherra ísraels
sagði í dag, að tilraunir Habibs
hefðu engan árangur borið, en
ástæðulaust væri að gefa upp alla
von, og ísraelskir embættismenn
kepptust í dag við að lýsa því yfir,
að heimför Habibs bæri ekki að
skilja á þann veg, að tilraunir hans
til að miðla málum í eldflaugadeil-
unni hefðu mistekist.
Bandarískur embættismaður
taldi ólíklegt, að ísraelar myndu
nota brottför Habibs sem afsökun
fyrir árás á eldflaugastöðvar Sýr-
lendinga í Líbanon. Hann gaf til
kynna, að Reagan væri farinn að
taka beinan þátt í tilraunum til að
miðla málum, og mun hann ræða
einslega við Habib. Bandaríkja-
stjórn hafði vonast til þess, að
Saudi-Arabar fengjust til þess að
beita Sýrlendinga þrýstingi og fá
þá til að fjarlægja eldflaugarnar
gegn loforðum Israela um að þeir
áreittu ekki friðargæzlusveitir
Sýrlendinga í miðhluta Líbanon.
Saudi-Arabar hafa reynst tregir til
þessa og í staðinn farið fram á
heildarlausn mála í Libanon í stað
þessa einangraða máls.
Þetta er visst áfall fyrir Banda-
ríkjastjórn, sem, að sögn heimilda,
vildi hverfa til þess jafnvægis sem
ríkti áður en átök Sýrlendinga og
hægrimanna brutust út í april.
Annar bandarískur embættis-
maður sagði, að vissrar bjartsýni
London. 27. mni AP.
DOLLAR hefur styrkst verulega
í sessi á gjaldeyrismörkuðum í
Evrópu síðustu daga. og i dag
var hann ha'rri en nokkru sinni
fyrr á Ítalíu. Þá hefur hann ekki
verið verðmeiri í Vestur-Þýzka-
landi í fjögur ár, og í Noregi var
dollarinn ha*rri en nokkru sinni
frá 14. febrúar 1974.
Gullverð lækkaði örlítið í dag,
eftir meiri hækkun í gær. Fór
verð á únsunni í gær niður fyrir
470 dollara í fyrsta skipti frá því
í desember 1979, og viö lok
viðskipta í dag kostaði únsan 467
dollara í London, eftir 1,50 doll-
ara lækkun í dag.
Þá stórlækkaði silfur í verði í
dag, og hefur ekki verið lægra fr^
því í ágúst 1979. Mikið framboð á
silfri olli lækkuninni.
, Dollarinn hækkaði fyrst og
fremst í V-Þýzkalandi vegna
stjórnmálaóvissu þar í landi og
vegna áframhaldandi viðskipta-
halla. Vestur-þýzki seðlabankinn
gætti með lausn mála í Washing-
ton. Bæði ísraelskir og sýrlenzkir
leiðtogar hefðu sagst vilja koma í
veg fyrir að vopnuð átök brytust út,
og Saudi-Arabar hefðu ákveðið að
senda sendiherra sinn aftur til
Beirút eftir tveggja ára fjarveru
þaðan, en það styrkir stöðu stjórn-
arinnar í Líbanon.
Bandaríkjastjórn hefur sóst eftir
samstarfi við Sovétmenn til að
leysa eldflaugadeiluna, en þeir
hafa ekki beint reynst hjálplegir,
eins og bandarískur embættismað-
ur orðaði það í dag.
greip til aðgerða til að styrkja
markið, en allt kom fyrir ekki.
Dollar hækkaði í Evrópu, vegna
stjórnmálaóvissu í mörgum lönd-
um.
Mótmæla-
svelti
Varsjá. 27. maí. AP.
TALSMAÐUR Samstöðu skýrði
frá því í dag. að sex manns til
viðbótar hyggðust hefja mótmala-
svelti til að fylgja eftir kröfum
sínum um að látnir yrðu lausir úr
haldi einstaklingar sem sætu i
fangelsi vegna stjórnmálaskoðana
sinna.
Fyrir viku hófu fimm menn svelti
í stöðvum Samstöðu nærri Katow-
ice og þrír gengu í lið með þeim í
gær. Þingnefnd kemur saman á
laugardag til að endurskoða mál
þeirra, sem hungurverkfallsmenn
vilja fá lausa úr haldi.
Hryðjuverkamaður
úr hungurverkf alli
Bclfast. 27. mai. AP.
IRSKI hryðjuverkamaðurinn
Brendan McLaughlin hætti í dag
hungurverkfalli sem hann hóf
fyrir tveimur vikum. þar scm
magasár og innvortis hlæðingar
hafa ágerst með degi hverjum.
McLaughlin er fyrsti hryðjuverka-
maðurinn i mótmælasvelti sem
hættir föstu. Fjórir hafa látið lífið
síðustu vikur eftir hungur.
McLaughlin þoldi miklar þján-
ingar síðustu daga vegna maga-
sársins og innvortis blæðinga.
Hann þáði aðstoð lækna af þessum
sökum í gær, og ákvað síðan í dag
að hætta svelti og þiggja læknis-
hjálp.
Stuðningsmenn McLaughlins,
með stjórnmálaarm hins ólöglega
lýðveldishers í broddi fylkingar,
lýstu því yfir í gær, að þótt
McLaughlin hefði þegið læknis-
hjálp, mundi hann halda hungur-
verkfallinu áfram.
Þeir lýstu hins vegar stuðningi
við þá ákvörðun McLaughlins í dag
að hætta sveltinu.
McLaughlin afplánar 12 ára dóm
í Maze-fangelsinu fyrir ólöglegan
vopnaburð og aðild að hryðju-
verkum. Hann hóf sveltið 13. maí,
daginn eftir að félagi hans, Franc-
is Hughes, lézt eftir hungurverkfall.
Hann var fluttur í sjúkrahús sl.
fimmtudag. Læknar sögðu, að hann
hefði dáið innan fárra daga vegna
magasársins, ef hann hefði ekki
hætt svelti og þegið læknishjálp.
Dollar styrkist