Morgunblaðið - 28.05.1981, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAÍ1981
Skálafell
29922 29924
Opiö í dag.
Krummahólar
2ja herb. rúmgóð íbúö á 3. hæö. Suöursvalir. Verö 340 þús.
Hamrahlíö
2ja herb. 55 fm. eins árs gömul íbúö meö sér inngangi. Verö 340
þús.
Blikahólar
2ja herb. ca. 70 fm íbúð á 3ju hæö til afhendingar í júní. Verö 350
þús.
Þverbrekka Kópavogi
2ja herb. íbúö í lyftublokk, vestursvalir. Verö 330 þús., útb. 240
þús.
Orrahólar
3ja herb. einstaklega vönduö endaíbúö meö stórkostlegu útsýni.
Verð tilboö.
Mávahlíö
4ra herb. ca. 100 ferm. risíbúð í þríbýlishúsi. Til afhendingar
fljótlega. Verö 450 þús.
Fellsmúli
4ra—5 herb. 120 ferm. endaíbúö á 1. hæö. Tvennar svalir. Verö
630 þús.
Brekkubyggð, Garöabæ
3ja herb. iítiö endaraöhús. Verö tilboö.
Grettisgata
Efri hæö og ris, allt endurnýjaö. Laust nú þegar. Verö ca. 400 þús.
Lyngmóar Garðabæ — Byggingaframkvæmdir
2ja og 3ja herb. íbúöir meö og án bílskúrs til afhendingar tilbúnar
undir tréverk í júní '82. Verð tilboð.
Asparfell
3ja herb. 85 fm vönduö endaíbúö á 3. hæð. Laus 1. sept. Verö 400
þús.
Öldutún Hafnarfirði
3ja herb. 95 fm vel umgengin íbúö á 1. hæö í nýlegu fimmbýlishúsi.
Verö tilboö.
Flyörugrandi
3ja herb. íbúö á 2. hæö. Vandaöar innréttingar. Verö 460 þús.
Nönnustígur Hafnarfiröi
3ja herb. hæö í þríbýlishúsi. Bílskúr. Verö 400 þús.
Æsufell
3ja—4ra herb. íbúö á 3. hæö. Suöursvalir. Þvottahús í íbúöinni.
Verö: Tilboö.
Eskihlíö
4ra herb. endaíbúð á efstu hæö í eldri biokk. Möguleiki á aö taka
minni eign upp í.
Langholtsvegur
4ra herb. portbyggö rishæö með sér inngangi. 50 fm iönaöar- eöa
bílskúrspláss fylgir. Laus strax. Verö 420 þús.
Flúöasel
4ra til 5 herb. 110 fm íbúö á 2. hæö, suöursvalir. Verö tilboö.
Laufvangur
120 ferm. 4ra—5 herb. íbúð á 3. hæö. Þvottahús og búr inn af
eldhúsi. Suöursvalir. Æskilegur rúmur afhendingartími. Verö 580
þús.
Asparfell
4ra—5 herb. 127 ferm. íbúö á 6. hæö. Tvennar svalir. Þvottahús á
hæöinni. Vönduö eign. Verö ca. 500 þús. Æskil. skipti á 3ja herb.
Laugarnesvegur
4ra—5 herb. efsta hæö ásamt risi í fjölbýlishúsi. Panelklætt loft og
nýjar innréttingar í risi. Verö: tilboö.
Kóngsbakki
5 herb. íbúö á 2. hæö. Suöur svalir. Þvottahús í fbúöinni. Verö 550
þús.
Engihjalli Kópavogi
4ra herb. rúmgóö endaíbúö á 3. hæö. Tvennar svalir. Þvottahús á
hæöinni. Vandaöar innréttingar. Verö tilboö.
Seljahverfi Breiöholti
8 herb. 193 fm. íbúö á 2 hæðum. Vandaðar innréttingar. Verö
tilboö.
Eyrarbakki
Eldra einbýlishús, heppilegt sem sumarbústaður. Verö tilboö.
Teigahverfi — Mosfellssveit
140 ferm. fullbúiö einbýlishús á einni hæö ásamt stórum bílskúr.
Verð 850 þús.
Hlíðarnar
330 ferm. einbýlishús, sem er 2 hæöir og kjallari. Möguleiki á sér
íbúö.
Víöigrund — Kópavogi
135 fm. einbýlishús á einni hæö. Innréttingar og frágangur í
sérflokki. Bílskursréttur. Verö tilboö.
Sumarbústaöaland
1 ha. í Grímsnesi. Verö 55 þús.
és FASTEIGNASALAN
^Skálafell
Mjóuhlíð 2 (viö Miklatorg).
Sölustjóri: Valur Magnússon.
Viðskiptafræöingur: Brynjólfur Bjarkan.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
29922
29924
Bragi Ásgeirsson
listmálari fimmtugur
Hér hafði ástmögurinn, Jónas
Hallgrímsson, drukkið síðasta
fullið. Hér sátum við þrír íslenzkir
listamenn að sumbli og kneyfuð-
um Carlsberginn, þjóðardrykk
Dana. Hér við Kóngsins-nýjatorg
hefir þessi elzta krá Kaupmanna-
hafnar, Hviids vinstue, staðið í
meira en hálfa þriðju öld. Hér
hefir ábyggilega heilu Þingvalla-
vatni af dönskum bjór verið sporð-
rennt af íslenzkum gestum síðan
fyrst var rennt hér í glös, ein-
hverntíma upp úr árinu 1720. Hér
sátum við síðast saman haustið
1979 í góðu yfirlæti, sá skemmti-
legi landi vor Tryggvi Ólafsson,
listmálari í Höfn, undirritaður og
sá margslungni myndlistarmaður,
sem er fimmtugur í dag, Bragi
Asgeirsson listmálari. Þá var hér
mikið líf og fjör og glaðzt við
margan ímyndaðan „sólskinsblett
í heiði" í þykkri tóbakssvælu
kjallarans og edikssýrðum alkó-
hóldömpum þessa aldna öldur-
hqss. Bragi lék á als oddi og var
engu líkara, en honum fyndist
hann sjálfur vera sá eini og sanni
frjálsi maður aldarinnar. Hann
hafði skroppið austur fyrir Járn-
tjald og það alla leið til Rússlands
og var nú fagnandi yfir að vera
kominn aftur frá fjarlægum
náströndum Gúlagsins til andlegs
frelsis Norðurlanda, glaöur yfir að
fHttgmt*
naupmannanoTn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
Ljós-
ritunar
vélar
Allar stærðir og
gerðir.
GlSLI J. JOHNSEN HF. lrt1N
M*N|I • - Kml F3111
vera kominn aftur til hins frjálsa
heims, þar sem hann gæti aftur
hugsað upphátt, uppréttur og óá-
reittur. Hann var víst enginn-
aufúsugestur þar austur. Hann
spurði margs að hætti glöggra og
gáfaðra og vildi fá skýr svör við
ýmsu varðandi andlegt líf og
einstaklingsfrelsi, menningarmál
og fagrar listir, sem heimamönn-
um og gestgjöfum geðjaðist lítt að
og vafðist því tunga um tönn af
völdum þessa sérkennilega, heyrn-
arlausa og spurula mörlanda ein-
hversstaðar langt norðan af freðn-
um fjöllum og óbyggðum heims-
menningarinnar. Mæðulegir og
lamaðir spurðu þeir loks þar
austur: „Af hverju senda þeir
okkur málhaltan og heyrnarlaus-
an listmálarahálfvita, þessir
þorskhausar þarna uppi á Is-
landi?" Það stóð ekki á geníölu
svari Braga frekar en fyrri dag-
inn: „Það er af því, elsku vinir, að
við eigum enga blinda listmálara
til að geðjast ykkur."
Gleðin jókst jafnt og þétt á
Hviids vinstue. Heimsmálin þok-
uðu fyrir léttum og leikandi gleði-
sögum af vörum Braga. Hann er
heill hafsjór mergjaðra sagna
skops og fyndni. Fyrir utan ein-
stæðar gáfur er minnið eins og
innbyggð tölva af súpergerð. Sög-
urnar og brandararnir komu nú
eins og á færibandi frá kappanum.
í gegnum alkóhólþokur minn-
inganna læðist að mér ein lítil
skopsaga, sem Bragi lét þá fjúka
með öðru kræsilegu góðgæti. Af
meðfæddum prakkaraskap get ég
ekki stillt mig um annað en láta
hana flakka hér með í blaðinu til
að lífga upp á sjálft afmæli
listamannsins. Sagan hans Braga
var eitthvað á þessa leið: „Það var
einu sinni maður, sem vann í
kjötvinnslustöð. Hann kom heim
til konu sinnar, niðurbrotinn, um
miðjan dag og kvaðst hafa verið
rekinn úr vinnunni. „Hví í ósköp-
unum?“ spurði blessuð eiginkon-
an. Þá svaraði maðurinn: „Ég fór
með tippið á mér í hakkavél."
„Guð sé oss næstur," hljóðaði
konan og lá við sturlun. Hún
renndi niður buxnalás eigin-
mannsins og hrópaði í fögnuði:
„Guði sé lof og prís, það hefir
ekkert skaddast." Þá umlaði í
hrakfallabálkinum, eiginmannin-
um: „Ófétis hakkavélin var dóttir
forstjórans!" Okkur Tryggva
svelgdist á og mjöðurinn spýttist
eins og úr opnum brunahana út úr
okkur báðum vegna óstöðvandi
hláturskrampa. Ég baðaði út öll-
um öngum eins og ósjálfbjarga
hálfviti og annar handleggurinn
small stjórnlaust í mikla hægri-
handarsveiflu, sem sópaði með sér
heilli fylkingu af stútfullum öl-
flöskum af borðinu okkar og beint
yfir fínu, ljósbláu apaskinnsbux-
urnar hans Braga, sem ungu og
þrýstnu Kósenkínurnar þar eystra
dáðust hvað mest að. Fyrir rúm-
um þrjátíu árum hafði ég séð jafn
vel klæddan myndlistarmann í
París. Það var sjálfur meistari
meistaranna, Pablo Picasso. Bragi
var eins og dæmigerður „cityslick-
er“ og „playboy of the Western
World“ í þessum fjörlegu ferðaföt-
um áður en ölflóðið mikla hófst.
Bragi hefir lært að treysta á
sjálfan sig og kunnað að bjarga
sér sjálfur á lífsins ólgusjó. Því
brá hann sér í skyndi fram í hið
aldna eldhús staðarins, þar sem
góðhjartaðar danskar griðkonur
kepptust við að þerra og snurfusa
ferðabuxur listamannsins með til-
heyrandi fagnaðarlátum og píku-
skrækjum. Glaðhlakkalegur og
ánægður kom þessi glaðbeitti
skemmtimaður til baka og mælti
til mín: „Næst þegar við súpum
saman verð ég í froskbúningi til
að verða ekki holdvotur og gegn-
drepa í annað sinn.“
Lesandi góður! Hér var ætlunin
að fjalla af alvöru um einn
sérkennilegasta og merkilegasta
myndlistarmann okkar í dag, þar
sem gerzt hafa einstök undur í
þöglum heimi óvenjulegs manns,
manns mikillar náttúru, í fornri
merkingu og nýrri, manns, sem er
gæddur óvenjulegum, skapandi
gáfum, skarpskyggni, dómgreind,
stálminni og heilbrigðri skaphöfn.
Af meðfæddum húmor hefir hann
alltaf miðlað mér einhverju
skemmtilegu í hvert skipti, sem
við höfum hitzt. Því hóf ég mál
mitt með að slá á léttari strengi í
anda afmælisbarnsins, sem er svo
vel af Guði gert að geta hlegið dátt
á góðri stund. Sambandið hefir
ósjálfrátt rofnað á milli okkar
annað veifið, en við höfum ailtaf
vitað hvor af öðrum og endurnýjað
góð kynni eftir þörfum. Eitt sinn
kom Bragi óvænt heim til mín um
jólaleytið með fangið fullt af
púnsflöskum. Samtalið gekk eins
og kínverskur ping-pong-bolti á
milli okkar unz sambandið rofnaði
skyndilega og boltinn missti flug-
ið. Ég steingleymdi heyrnarleysi
viðmælanda míns og tók að kalla,
æpa og öskra eins og í gegnum
norðlenzkan stórhríðargarð unz
Kolbrún, kona hans, kom mér til
hjálpar. Bragi kvaðst hafa misst
þráðinn þegar púnsblautt skeggið
á mér hefði tekið að síga og leka
fyrir munnvikin og varirnar, sem
hann las af mál mitt. Ég brá mér í
skyndi fram að spegilborði í and-
dyri og klippti annan skeggvæng-
inn af. Þannig opnaðist menning-
arsambandið milli okkar Braga á
ný í það skiptið. Hverju er ekki
fórnað á altari lista og menningar
á slíkri stund, þegar sjálfur list-
höfðinginn er á yfirreið? Hann er
nú einu sinni óvígður biskup í
íslenzkum listheimum, með ótrú-
legt vald, sem hann hefir öðlast af
eigin rammleik með pennanum.
Ekki af því, að hann skrifar
gagnrýni í stærsta blað iandsins,
heldur af því að hann misnotar
aldrei pennann. Hann er aldrei
Stúdentar V.l ’76
útskrifaöir frá Verzlunarskóla íslands voriö 1976,
hittumst öll aö Skipholti 70, 2. hæö laugardaginn 30.
maí eftir kl. 19.00.
Hcöarishi Mah««h Yogi j
Almennur kynningar-
fyrirlestur
verður haldinn um innhverfa íhugun I
kvöld, fimmtudaginn 28. maí, kl. 20.30
aö Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóðleikhús-
inu). Tæknin er auðlærð og þroskar
huga og líkama og losar um streitu.
íslenzka íhugunarfélagiö,
símar 16662 og 35646.