Morgunblaðið - 28.05.1981, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MAI 1981
t
Konan mín
KRISTÍN M. SÆMUNDSDÓTTIR.
Austurbrún 4,
lést á Landsp/talanum 27. maí.
Fyrir mína hönd og barna okkar,
Jóhannes Gíslason.
+
Móöir mín, dóttir okkar og systir,
RÓSA HELGA,
lést í Danmörku 13. maí sl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk
hinnar látnu. Þökkum af alhug auösýnda samúö.
Marlín Birna Haraldsdóttir,
Guðrún Haraldsdóttir,
Bjarni Bogason og systkini.
t
Eiginmaöur mlnn,
PÁLLLÚTHERSSON,
kristniboði,
er látinn.
Útförin veröur auglýst síöar.
Aöalbjörg S. Ingólfsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaölr og afi,
JÓHANNES E. LEVY
tyrrv. oddviti,
Hrísakoti, Vatnsnesi, V.-Hún.
lést aö heimili sínu 26. þ.m.
Jenný J. Levy,
Erla J. Levy, Gunnlaugur Guðmundsson,
Agnar J. Levy, Hlíf Sigurðardóttir,
Eggert J. Levy, Ingunn Sigurðardóttir,
og barnabörn.
t
Maöurinn minn, faöir og sonur,
SIGURDUR PÁLSSON,
veröur jarösunginn frá Eyrabakkakirkju laugardaginn 30. maí kl.
2 e.h.
Marta Pálmadóttir,
Einar Albert Sigurðsson,
Elín Þórðardóttir.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
ARNBJÓRG SIGURÐARDÓTTIR,
Fagragarði 6, Keflavík,
sem andaóist i sjúkrahúsi Keflavíkur 21. maí, veröur jarösungin frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 29. maí kl. 14. Þeim, sem vildu
minnast hennar, er bent á sjúkrahús Keflavíkur.
Börn og tengdabörn.
t
Eiginmaöur minn,
VILMUNDUR GÍSLASON
frá Króki í Garöabæ,
sem lézt aö Hrafnistu 22. maí, veröur jarösunglnn frá Garöakirkju,
laugardaginn 30. maí kl. 14.00.
Þeir, sem vildu minnast hans, láti Hrafnistu njóta þess.
Þorbjörg Guöjónsdóttir.
Auður Guðmunds-
dóttir - Minning
Fædd 26. nóvember 1916
Dáin 18. maí 1981
Mamma mín
Krtu horfin? Ertu dáin?
Er nú lokuú ularta bráin?
Angurs horfi ók út í hláinn.
autt or rúm ok stofan þín.
olskuloKa mamma min.
(■osturinn moA Krimma Ijáinn
kIokkí hofir unniA vorkin sin.
Ék hof þinni loiAstiKn lotiA.
líka þinnar ástar notiA.
finn. hvo allt or hoiskt ok hrotlA.
burt or víkur aAstoA þin.
olsku K<Wia mamma min. —
Allt som Kott ók hofi hlotiA.
hofir oflzt viA ráAin þin.
l»o skal okki vila ok vola.
vorbld þótt oss hrjóti i mola.
Starfa. hjálpa. þjóna. þola.
þaA var alltaf huKsun þin.
olsku Koóa mamma min. —
Ok úr rústum kaldra kola
kvoiktlrAu skærust hlysin þin.
FlýK ók hoim úr fjarla KÓinni.
fylKÍ þór í hinzta sinni.
krýp moA þokk aA kistu þinni.
kyssi í anda sporin þin.
olsku K<W>a mamma min. —
Okkur soinna i oilifAinni
oilift Ijos frá kuAí skin.
(Árni IlolKason. MóAir min)
Kveðja frá börnum.
Þann 18. þ.m. andaðist á Borg-
arspítalanum eftir stutt, en erfitt
sjúkdómsstrið, frú Auður Guð-
mundsdóttir Fornhaga 19 í
Reykjavik
Mér er bæði ljúft og skylt að
minnast þessarar einlægu og
tryggu vinkonu minnar, eftir ára-
tuga vináttu, sem óhætt er að
segja að aldrei bar skugga á. Hún
var mér einna kærust af öllum
þeim, sem ég hef mætt á lífsleið-
inni, vegna mannkosta hennar,
sem komu fram í svo mörgum
myndum. Ung að árum giftist hún
Gunnari Gíslasyni, harðduglegum
manni, sem ætíð hefur séð fjöl-
skyldu sinni farborða með mestu
prýði. Hann stundaði alla tíð
sjómennsku og gerir enn, eftir því
sem heilsan leyfir. Það kom því að
mestu í hennar hlut að sjá um og
annast uppeldi barnanna þeirra
fimm, sem hún rækti með miklum
sóma og af miklu ástríki. Einnig
ólu þau upp tvo dætrasyni, sem
hún annaðist af sömu elsku og
fórnarlund. Auður var mikil fyrir-
myndarhúsmóðir, gestrisin og
hjartahlý. Hún lagði alla tíð hart
að sér við að búa fjölskyldunni
hlýlegt, aðlaðandi og fallegt heim-
ili, gekk jafnvel um árabil að
vinnu utan heimilis þegar færi
gafst. Þó börnin yxu úr grasi og
eignuðust sín eigin heimili, voru
þau ætíð hjartanlega velkomin á
æskuheimilið í faðm sinnar ást-
ríku og fórnfúsu móður. Barna-
börnum sínum var hún ætíð mjög
kærleiksrík fram á síðustu stund
og voru þau henni mikill gieði-
gjafi. Hér verður ekki rakin ævi-
saga Auðar vinkonu minnar. Mig
langar aðeins til að kveðja hana
að leiðarlokum og þakka henni allt
sem hún var mér og minni fjöl-
skyldu.
Það er þroskandi að eiga þess
kost að kynnast svo göfugri per-
sónu sem Auður var.
Undanfarin ár gekk hún ekki
heil til skógar og mun oft hafa
verið þreytt og þjáð, þótt hún
hefði hljótt um það. Hún var hetja
í dagsins önn og ekkert lét hún
buga sig uns kallið kom, sem
öllum er búið og enginn fær undan
skorist.
Meðan Auður lá banaleguna
gerði fjölskyldan allt, sem í henn-
ar valdi stóð ti) að lina þjáningar
hennar og börnin vöktu yfir henni
til skiptis dag og nótt uns yfir lauk
og hefur slík umhyggja án efa
veitt henni mikinn andlegan
styrk.
Ég lifi í þeirri von og trú að þar
sem Auður dvelur nú muni ég
mæta henni og að við þurfum þá
ekki framar að skilja. Þar hlýtur
að vera gott að eiga samastað.
Komið til mín allir þér sem erfiði
og þunga eruð hlaðnir og ég mun
veita yður hvíld. Ég lifi og þér
munuð lifa eru fyrirheit hins
blessaða Guðssonar Jesú Krists.
Þessara fyrirheita tel ég að Auður
muni njóta nú, fyrir Drottins náð.
Ég flyt Auði innilegar kveðjur
frá mér og fjölskyldu minni fyrir
órofa tryggð og vinsemd. Við
vottum innilega samúð eigin-
manni, einkasyninum, dætrunum
fjórum, tengdabörnum, fósturson-
unum, barnabörnum og öðrum
aðstandendum, sem um sárt eiga
að binda við hinn mikla missi og
biðjum algóðan Guð að græða
sárin og gefa þeim styrk, ásamt
von og vissu um endurfundi.
Blessuð veri ávallt minning
hennar.
Margrét Sigurpálsdóttir
Kveðja írá tengdasyni
Á morgun, föstudaginn 29. þ.m.,
fer fram frá Neskirkju útför
Auðar Guðmundsdóttur, Forn-
haga 19 hér í Reykjavik. Auður
andaðist á gjörgæsludeild Borg-
arspitalans þann 18. þ.m.
t
Innilegar þakkir og kveöjur sendum vlö þelm, sem auösýndu
samúö vegna andláts eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur,
ömmu og langömmu,
ÁGÚSTU JÓNASDÓTTUR
Guömundur K. Gislason,
börn og barnabörn.
t
Alúöarþakkir til allra er sýndu okkur hlýhug viö andlót og jaröarför
móöur okkar og tengdamóöur,
STEINUNNAR GUDMUNDSDÓTTUR,
húsfreyju,
Hala.
Anna Þóra Steinþórsdóttir, Olafur Guójónsson,
Torfi Steinþórsson, Ingibjörg Sophoníasdóttir
og aörir vandamenn.
t
Sonur minn, bróöir okkar og mágur,
ÞORBERGUR MAGNÚSSON,
Þinghólsbraut 20, Kópavogi,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 29. maí kl.
10.30.
Fyrir hönd vandamanna.
Bergþóra Þorbergsdóttir.
t
Þökkum innilega samúö sem okkur var sýnd viö andlát og útför
MARGRÉTAR KRISTINSDÓTTUR.
Sveinn Sölvason,
Sigurlaug Sveinsdóttir, Bragi Þ. Sigurósson,
Herdis Sveinsdóttir,
Sölvi Sveinsson, Magnea Jóhannsdóttir.
Auður Guðmundsdóttir var
fædd að Görðum við Önundarfjörð
þann 26. nóv. árið 1916, og hefði
því orðið 65 ára á þessu ári.
Foreldrar hennar voru þau Þur-
íður Kristjánsdóttir og Guðmund-
ur Jónsson bóndi að Görðum.
Auður ólst þar upp hjá fóstru
sinni, Gróu, sem hún ætíð síðan
mat mikils. Lífsbaráttan var hörð
á þessum tíma og kynntist Auður
því fljótt, hún fór að vinna fyrir
sér strax og aldur leyfði og kom 17
ára til ísafjarðar þar sem hún
réðst í húsmennsku.
Auður mun hafa kynnst þeirri
fátækt og því umkomuleysi, sem
ætíð síðan mótaði hennar lífsvið-
horf.
Á ísafirði kynntist Auður eftir-
lifandi manni sínum, Gunnari
Gíslasyni sjómanni. Árið 1937,
þann 9. okt., gengu þau í hjóna-
band, og hófu búskap á ísafirði.
Þau Gunnar og Auður eignuðust 5
börn sem eru: Elfa og Valur fædd
á ísafirði, ína, Þuríður og Sigríð-
ur, ö)l fædd í Reykjavík, ennfrem-
ur ólu þau upp tvo dóttursyni sína,
þá Gunnar Gíslason og Örn Har-
aldsson.
Árið 1939 flytjast þau búferlum
frá ísafirði og setjast að í Reykja-
vík þar sem þau bjuggu ætíð
síðan.
Það var árið 1963 sem ég
kynntist Auði og Gunnari, en ég
fór þá að venja komur mínar á
Fornhagann. Ári síðar gekk ég að
eiga dóttur þeirra hjóna, Þuríði.
Auði Guðmundsdóttur er ekki
hægt að Iýsa í fáeinum orðum, svo
stórkostleg persóna sem hún var.
Alla sína lífstíð lifði hún fyrir
aðra, og var boðin og búin að veita
þeim skjól og huggun, sem á
þurftu að halda. Grunar mig að
hennar æsku- og uppvaxtarár hafi
öðru fremur mótað þetta lífsvið-
horf hennar. Þeir voru margir sem
leituðu skjóls og huggunar hjá
Auði á Fornhaganum. Áldrei voru
lífskjör hennar það kröpp, að hún
ætti ekki eitthvað eftir að gefa
öðrum.
Þau Gunnar og Auður lifðu ætíð
í hamingjusömu hjónabandi og
voru hvort öðru stoð og stytta.
Nú þegar hún er horfin yfir
móðuna miklu, kveð ég hana með
söknuði og þakklæti fyrir allt sem
hún var mér og mínum.
Megi góður Guð blessa minn-
ingu Auðar tengdamóður minnar.
Edvard Skúlason
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði. að berast i
siðasta iagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera i sendibréfs-
formi. bess skal einnig getið,
af marggefnu tilefni, að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línuhili.