Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAI 1981
Skoðanakönnun Vísis um ríkisstjórnina:
55,9% töldu verð-
stöðvunaraðgerð-
irnar gagnslitlar
í SKOÐANAKÖNNUN Vísis um
síAustu hcliíi voru 700 manns
spurðir álits á vorðstóAvunaraA-
(forðum ríkisstjórnarinnar. Var
spurninKÍn orðuð þannÍK: Alitur
þú að verðsti)ðvunarað){crðir rík-
isstjórnarinnar heri tilætlaðan ár-
anuur eða að þær komi að litlu
sem en(?u Kasni?
Þeir sem töldu að aðgerðirnar
baeru árangur voru 200 eða 28,7%,
389 eða 55,9% töldu aðgerðirnar
gera lítið sem ekkert gagn og 107
voru óákveðnir eða vildu ekki
svara, en það er 15,4% þeirra. I
skoðanakönnun þessa var fengið
890 manna úrtak, sem Reiknistofn-
un Háskólans tók saman og náðist
til um 700 manns af úrtakinu.
Þá var í skoðanakönnuninni
spurt um afstöðu manna til aukins
frjálsræðis í rekstri útvarps. I
niðurstöðum könnunarinnar af
landinu öllu kemur fram að 28,8%
vildu einungis ríkisrekið útvarp,
63,6% vildu einnig veita öðrum
heimild til útvarpsrekstrar, óákv-
eðnir voru 6,7% og 0,9% neitaði að
svara. Sé aðeins litið á svör Reyk-
víkinga eru tölurnar þessar: 24,1%
vilja einungis ríkisrekið útvarp,
69,5% vilja einnig veita öðrum
leyfi, 4,6% eru óákveðnir og 1,7%
neitaði að svara.
Ólafur Ragnar:
Efnahagsstefnan
ber svipmót stefnu
Alþýðubandalags
- meira tillit tekið til Alþýðubandalags nú
„EFNAHAGSSTEFNA ríkis-
stjórnarinnar ber mjög svipmót
þeirrar afstoðu. sem Alþýðu-
handalagið hefur haft síðan
1978“, segir Ólafur Ragnar
Grímsson, formaður þingflokks
Alþýðubandalagsins í viðtali við
Þjóðviljann í fyrradag. I viðtali
þessu segir formaður þingflokks
Alþýðubandalagsins, að meira
tillit hafi verið tekið til efna-
hagsstefnu flokks hans í núver-
andi ríkisstjórn en vinstri stjórn
Ólafs Jóhannessonar 1978—1979.
Þannig segir Ólafur Ragnar orð-
rétt: „Sú afstaða varð undir i
ríkisstjórninni 1978—79. Nú hef-
ur hins vegar verið tekið tillit til
sjónarmiða Alþýðubandalagsins
og árangurinn er að koma í ljós.“
Engar viðræður við lækna
VH) höfum talast við í síma og hist
nánast af tilviljun. en engar form-
legar viðra“ður hafa átt sér stað,
sagði Þróstur Ólafsson aðstoðar-
maður fjármálaráðherra er Mbl.
Forsætisráðherra
til Svíþjóðar
GUNNAR Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, hélt í gær til Svíþjóðar,
þar sem hann mun sitja fund
forsætisráðherra Norðurlanda.
Forsætisráðherra er væntan-
legur heim á sunnudag.
spurði hvort nokkrar viðræður
hefðu farið fram milli fulltrúa
rikisvaldsins og lakna um kjör
lækna.
Þröstur Ólafsson kvað enga
skipulagða fundi vera framundan,
hugsanlega yrðu mál þessi rædd um
helgina, en það væri þó allt óvíst.
Sigurður Hektorsson framkvæmda-
stjóri Læknaþjónustunnar sagði að
læknar, sem hætt hefðu störfum,
væru kallaðir til starfa af yfirlækn-
um, sem skrifuðu upp á reikninga.
Á mánudag kæmi í ljós hver yrðu
viðbrögð fjármálaráðuneytisins við
reikningum lækna, en fyrstu reikn-
ingarnir hefðu verið lagðir inn í
ráðuneyti fyrir viku.
Ólafur P. Er-
lendsson látinn
Ólafur P. Erlendsson
ÓLAFUR P. Erlendsson, fulltrúi
hjá Flugleiðum, lézt í Kaup-
mannahöfn síðastliðinn fimmtu-
dag. en í Kaupmannahnfn hafði
hann viðkomu á leið til Berlinar
á ílvrópuþing Kiwanis-manna.
ólafur fæddist i Reykjavik þann
27. júni 1924 og var því 56 ára
gamall er hann lézt.
Ólafur starfaði í fjölda ára að
málefnum íþrótta og þá einkum
knattspyrnunnar. Hann gegndi
margvíslegum trúnaðarstörfum
fyrir Knattspyrnufélagið Víking
og síðastliðin 11 ár var hann
formaður Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur.
Eftirlifandi kona Ólafs er Dag-
mar Gunnlaugsdóttir og áttu þau
fjögur born.
Holunxarvík. 27. maí 1981.
1>ETTA bjarg íéll á óshlíðarveg í gær, en
Óshlíðarvegur er þekktur fyrir grjóthrun og
skriðuföll.
Þrátt fyrir frægð sína á þessu sviði er það
ekki á hverjum degi sem slík björg rúlla úr
hlíðinni og á veginn.
Talsverðar umræður hafa verið undanfarið
um aðgerðir á óshlið til að minnka þá hættu
sem vofir yfir vegfarendum af völdum þessa
ofanhruns, og hefur verið mikið fjallað um
svokallaðar vegsvalir í því samhandi.
Óshlíðarvegur er mikilvægasta samgönguæð
okkar Bolvikinga þar sem vegurinn er eina
tenging byggðarlagsins á landi við önnur
byggðarlög, og er því talsverð umferð um
veginn nánast allan ársins hring.
Það liggur fyrir að Vegagerð Rikisins hefur
gert athuganir á hugsanlegum vegsvölum á
Óshlíðarveg fyrir allnukkru, en síðan gerist
ekkert meir.
Þykir Bolvíkingum vera þarna á ferðinni
undarlegur seinagangur í þessu máli sem
snertir svo mjög öryggi og einnig tryggari
samgungur um þessa aðal samgönguæð byggð-
arlagsins.
Óshlíðarvegur er einn af þessum svokölluðu
(>-vegum ásamt Ólafsvíkurenni og Óiafsfjarðar-
múla. sá sem fyrir þessu bjargi hefði orðið hefði
sennilega ekki einu sinni ná að segja Ó.
Gunnar
Reykjavikurborg:
Undirritaðir samning-
ar um kaupaukakerfi
við 7 verkalýðsfélög
REYKJAVÍKURBORG
hefur undirritað ramma-
samning við nokkur
verkalýðsfélög um
kaupaukakerfi, sem tekið
hefur verið upp og gildir
samningurinn í ár. Að
undanförnu hafa staðið yf-
ir margháttaðir útreikn-
ingar og tilraunir með slík
kaupaukakerfi hjá mörg-
um stéttum.
Magnús Óskarsson hjá
Reykjavíkurborg tjáði Mbl. að
samningurinn næði til eftirtal-
inna félaga: Félags járniðnað-
armanna, Félags bifvélavirkja,
Trésmiðafélags Reykjavíkur,
Starfsmannafélags Reykavíkur-
borgar, Sveinafélags húsgagna-
smiða og Félags bifreiðasmiða
og Verkstjórasambands íslands.
Sagði hann einn heildarsamning
vera gerðan fyrir öll félögin og
mætti telja margt í þessum
samningum nýmæli.
Magnús Óskarsson sagði að
Tvær sölur
í Englandi
TVÖ fiskiskip lönduðu afla sín-
um í Bretlandi í gær. Freyja seldi
51,7 lestir í Fleetwood fyrir 282,2
þúsund krónur, meðalverð á kíló
5,48 krónur. Álsey seldi 67,2 tonn
fyrir 507,5 þúsund krónur, með-
aiverð á kíló' 7,56 krónur. Afli
beggja skipanna var metinn 1.
flokks af umboðsmönnum.
tilraunir og útreikningar hefðu
staðið lengi yfir og reyndar gilt
lengi t.d. í sorphreinsun. Nú
væru teknir inn í slík kaupauka-
kerfi ýmsir vinnuflokkar á veg-
um gatnamálastjóra, starfs-
menn hitaveitu og vatnsveitu,
vélamiðstöðvar, umferðarmerk-
inga, starfsmenn við malbikun,
trésmíði, pípugerð, efnisflutn-
inga og fleiri. Sagði Magnús
kosti slíkra samninga þá, að með
auknum afköstum og hagræð-
ingu myndaðist hagnaður, sem
báðir aðilar skiptu með sér.
Stefán Ásgrímsson.
Erfitt væri að nefna nokkrar
tölur, en þetta kæmi t.d. í ljós
þar sem hægt væri að sinna
auknum verkefnum án þess að
fjölga starfsmönnum, en um leið
og þessir kaupaukasamningar
eru teknir upp verður ekki um
uppsagnir að ræða. Þá sagði
Magnús að með aukinni rcynslu
af slíkri samningagcrð væri unn-
ið að frekari útvíkkun og mætti
t.d. 'nugsa sér að koma henni við
í margs konar skrifstofustörf-
um, t.d. vélritun og götunar-
vinnu.
STEFÁN Ásgrímsson. bóndi á
Stóru-Þúfu í Miklaholtshreppi lézt
hinn 27. þessa mánaðar. Stefán
var mikilvirkur félagsmálamað-
ur. hreppsnefndarmaður um ára-
bil og cin driffjöðrin I Héraðssam-
bandi Ungmennafélaganna á
Snæfellsnesi og stjórnarmaður
þar um árabil.
Stefán fæddist 28. nóvember
1919 að Borg í Miklaholtshreppi,
sonur hjónanna Önnu Stefánsdótt-
ur og Ásgríms Þorgrímssonar
bónda þar. Hann hóf búskap á
Stóru-Þúfu 1949 ásamt konu sinni
Laufeyju Stefánsdóttur frá Hrísum
í Fróðarárhreppi. Stefán lét mikið
málefni æskulýðs og íþróttamála
til sín taka. Þau hjón eignuðust tvö
börn og hefur sonur hans Ásgrímur
tekið við búi föður síns, en dóttir
hans er búsett í Borgarnesi.
Stefán Asgrímsson
bóndi látinn