Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 29
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA? MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981 29 Myndlistarþing á Hótel Sögu: Staða mynd- listar í Um helgina, 30.—31. maí, verð- ur haldið myndlistarþing á Hótel Sögu. Yfirskrift þingsins er staða myndlistar í dag og er þetta fyrsta þing sem myndlistarmenn halda. Að þessu þingi standa fimm félög, en þau eru Félag íslenskra mynd- listarmanna, Textilfélagið, íslensk grafik, Myndhöggvarafélagið og Hagsmunafélag myndlistar- manna. A þinginu verður fjallað um aðstöðu og félagsmál myndlist- armanna og hlutverk myndlistar í samfélaginu í dag. Vöxtur myndlistar hefur verið mikill undanfarin ár og hefur starfsvettvangur myndlistar- manna orðið æ fjölbreyttari. Þetta má sjá á þeim fjölda sýninga sem sett hafa svip á menningarlífið síðastliðin ár. I framsöguerindum verður rætt um safnamál og tengsl milli lista- manna og almennings, starfs listamanna og þá ekki síst um dag höfundarrétt sem hefur verið mjög til umræðu að undanförnu. Á þingið verður boðið fulltrúum ýmissa ríkisstofnana og nefnda er fjalla um myndlistarmál. Þá er sérstaklega boðið fulltrúum frá öllum fjölmiðlum, þar sem starf fjölmiðla og myndlistarmanna verður eitt af umræðuefnum þingsins. Ýkjulaust má segja, að þörf fyrir þetta þing sé mikil og gefur þessi vettvangur möguleika á skoðanaskiptum almennt um myndlistarmál, milli listamanna og gesta þingsins. Samvinnunefnd á vegum fyrr- nefndra félaga hefur unnið að undirbúningi þessa þings undan- farna mánuði. Þingforseti verður Björn Th. Björnsson, fundarstjóri verður Hörður Ágústsson og fleiri. Þingið hefst í dag, laugardag 30. maí, kl. 10 með ávarpi forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur. (Fréttatilkynning) Ein af myndum Jakobs Jónsson- ar á sýningunni. Listasafn alþýðu: Sýningu Jakobs lýkur um helgina Um helgina lýkur sýningu Jak- obs Jónssonar í Listasafni Alþýðu að Grensásvegi 16, en þar sýnir hann 69 myndir, teikningar, olíu- pastel- og vatnslitamyndir. Sýningin verður opin í dag og á morgun frá kl. 14—22. Myndlist á Akureyri: Sýningu Jóns Reykdals og Þórðar Hall lýkurannað kvöld Annað kvöld lýkur sýningu Jóns Reykdals og Þórðar Hall, sem staðið hefur í sýningarsaln- um að Klettagerði 6 á Akureyri. Á sýningu þeirra eru 40 verk. Jón Reykdal sýnir vatnslita- og grafíkmyndir og Þórður Hall gra.fíkmyndir. Allar myndirnar eru til sölu. Sýningin verður opin í dag og á morgun frá kl. 15-22. Myndlistarsýning í Hvassaleitisskóla Á uppstigningardag opnaði Myndlistarklúbbur Hvassaleitis sýningu á 136 myndum í Hvassa- leitisskóla, en þar hefur klúbbur- inn haft aðstöðu fyrir starfsemi sína þau þrjú ár, sem hann hefur starfað. Klúbbfélagar eru um 25 talsins, áhugafólk, sem hittist vikulega yfir vetrarmánuðina til starfs og fræðslu. Sýningin verður opin í dag og á morgun frá kl. 15—22, en henni lýkur annað kvöld. Nokkrir félaganna i Myndiistarkiúbbi Hvassaleitis voru að vinna við að hengja upp myndirnar fyrir sýninguna þegar ljósm. Mbl.. Emilíu. bar bar að garði. Tvennir tónleikar í Breiðholtsskóla í dag heldur Skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts tvenna tónleika í Breiðholtsskóla og hefj- ast þeir fyrri kl. 14 og hinir síðari kl. 17. Kemur yngri deild sveitar- innar nú fram í fyrsta sinn og leikur nokkur lög. Stjórnandi er Ólafur L. Kristjánsson. Á milli tónleikanna sér for- eldrafélag hljómsveitarinnar um kaffisölu í anddyri skólans. Hljómsveitin er nú á förum til Noregs og tekur þar þátt í móti með 40 norskum skólalúðrasveit- um. Allur ágóði af tónleikunum og kaffisölunni rennur í ferðasjóð hljómsveitarinnar, en svona ferð er að sjálfsögðu mjög kostnaðar- söm. Skagfirska söngsveitin held- ur tónleika í Austurhœjarbíói I dag kl. 15 heldur Skagfirska son. Einsöngvarar með kórnum og er uppistaðan í söngskránni söngsveitin tónleika í Austur- eru Halla Jónasdóttir, Einar sú sama og verður í Kanadaferð- bæjarbíói. Stjórnandi er Snæ- Gunnarsson og Snorri Þórðar- inni. Miðar verða til sölu við björg Snæbjarnardóttir og und- son. innganginn. irleikari Ólafur Vignir Alberts- í sumar fer kórinn til Kanada Vm þessar mundir stendur ytir sýning Sigurðar Örlygssonar í Gallerí Djúpinu við Hafnar- stræti. Þar sýnir hann 20 myndverk. sem unnin eru með hlandaðri tækni, akrýllit, sprautum, skapalónum, silki- orenti. liásmvndum o.fl. Storm P. dagskrá í Norræna húsinu Á morgun kl. 16 hefst dagskrá um Storm P. í fund- arsal Norræna hússins í til- efni af sýningu á verkum hans, sem þar verður opnuð í dag. Danski leikarinn Lars Knutzon flytur eintöl eftir Storm P. Jens Bing, forstjóri Storm P.-safnsins í Kaup- mannahöfn, segir frá lista- manninum og sýnir lit- skyggnur. Nú stendur yfir sýnintr Ilafsteins Austmanns i vestursal Kjarvalsstaða. Þar sýnir hann 90 myndir, olíu- og vatnslitamyndir og einnig nokkrar með hlandaðri tækni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.