Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981 í Radio City-söngleikahöllinni eru daglega sýn- ingar með frábærum skemmtiatriðum og dagskrá- in um þessar mundir heitir Ameríka, en tekin eru fyrir atriði úr skemmtanalífi heimsálfunnar. Sviðsmynd úr hinum vinsæla söngleik, Evita, sem sýndur hefur verið um árabil á Broadway. Á götum New York bregður ýmsu fyrir. Þarna er negrastrákur á gangstétt í spilaleik, veðmálum, en slíkt er ólöglegt. Margir freistast þó til að taka þátt í leiknum því ekki eru stórar upphæðir í veði. Að fleyta rjómann Grein: Arni Johnsen_________________________________Seinni grein Þegar íslendingur ætlar að bregöa sér bæjarleiö til New York til þess aö skemmta sér er úrvaliö slíkt í því sem boöiö er upp á í skemmtunum, mat, listum og næturlífi aö þaö er eiginlega vænlegasti kosturinn aö snúa viö heim aftur í gamla góöa hafragrautinn. En landinn er þekktur fyrlr allt annaö en að gefast upp þótt hræringar séu undir niöri og á auöveldan hátt er hægt aö afla sér upplýsinga um möguleikana og velja úr þaö sem þykir spennandi og fróðlegt, og til þess er hægt aö nota urmul bæklinga og bóka eöa þjónustu feröaskrifstofa. Þaö er auövelt aö feröast á eigin vegum í New York, en þaö er líka auövelt aö komast inn í hópferöir fyrir þá sem það vilja. Þegar veröskrár eru skoöaöar frá New York fyrir þjónustu viö feröamenn viröist margt vera dýrt, en viö nánari athugun eru alls kyns afslættir og pakkar sem unnt er a kaupa fyrir lítinn pening, t.d. gistingu á góöu hóteli í 2—3 nætur meö mat, leikhúsferö, skoöunarferö og fleira og þetta allt getur kostaö 200—400 kr. fyrir mannlnn. Ef menn kynna sér möguleikana er hægt aö komast aö ótrúlegum kjörum í þessari persónulegu stórborg sem hefur upp á aö bjóöa allt milli himins og jaröar. [ fyrsta skipti hafa Flugleiöir boöiö sérstaklega upp á feröir til New York fyrir einstaklinga og hópa og þar sem þaö er nýstárlegt fyrir marga aö hugleiöa skottúr tii New York til þess aö skemmta sér sjálfsagt aö velta aöeins fyrir sér því sem hægt er aö gera. Úr einu í annaö Á daginn er þaö yndi margra aö ráfa um bæinn, kikja í búöir eins og landanum er tamt, fara í almenningsgaröa og staldra viö á hinum fjölmörgum útivistarsvæöum og veitingastööum í borginni þar sem oft fara fram margskonar skemmtiatriöi, heimsækja listasöfn sem skipta tugum, sýningar alls konar sem eru í hundraöa tali og úrval matstaöa er hvergi meira ( heiminum, bíó meö nýjustu kvikmyndir eru opin allan daginn og þegar kvölda tekur taka skemmtistaöirnir upp þráöinn, leikhúsin á Broadway meö stórkostlegar skemmtanir, söngleiki, danssýn- ingar og leiksýningar Þaö þarf ekki mikla enskukunnáttu til þess aö skemmta sér konunglega. Listafólkiö í leikhúsunum á Broadway er sérstakur þáttur í mannlífi og skemmtanalífi New York, leikhúsin yfirleitt ekki mjög stór og þaö er snjallt liö sem ber uppi sýningarnar enda samkeppnin hörö. Mörgum finnst þaö á viö margra vikna frí aö skreppa til New York í nokkra daga og þræða staöina sem þykja forvitnilegastir hverju sinni. Smáfuglinn skyggir á skýjakljúfinn Á síöustu árum hefur veriö gert átak í því aö halda New York hreinni og hefur þaö tekist meö ágætum vegna samvinnu borgaryfirvalda og íbúa borgarinnar þannig aö í þeim hlutum borgarinnar sem skynsamlegast er aö íslendingar heimsæki er víðast snyrtilegt og gott aö vera. Þá hefur veriö gert talsvert af því aö byggja upp víöa lltla garöa innan um skýjakljúfana, setja þar gróöur og skreytingar, gosbrunna og litla fossa og bekki fyrir gesti og gangandi. I þessum göröum í hjarta stórborgarinnar er víöa ótrúlega friösælt og mönnum finnst jafnvel smáfuglinn sem syngur þar skyggja á skýjakljúfinn. Margir íslenskir feröamenn gista á Summit-hóteli viö Lexington og 51. stræti, en þar er rólegt hverfi en stutt í hin fjölbreyttustu tilþrif. Lexington er ein af götunum tólf sem liggja í noröur og suöur, en síöan liggja nær tvö hundruö götur í austur og vestur og aöeins ein af þessum götum öllum er ekki bein, Broadway. Frá Summit er t.d. stutt aö fara í Central Park, 10—15 mínútna ganga. Central Park spannar 440 hektara svæöi í miöri borginni, milli 59. götu og 110. götu og 5. Avenue og Central Park West. Þar eru tveir dýragaröar, grasvelllr, stööuvötn, gosbrunnar, tennisvellir, hlaupabrautir, reiöhjóla- brautir og veitingahús, tívolí fyrir börn og á vetrum stunda New York búar skautaíþróttina þar. Á sumrin leikur New York Philharmonic-sinfóníuhijómsveitin tónleika þar reglulega auk fjölda frægra listamanna og hljómsveita og viö innganginn í Central Park standa hestvagnar upp á gamla móöinn í rööum og ökumenn bjóöa feröamönnum akstur um garöinn. Til skamms tíma sóttu misindismenn í garöinn á kvöldin og rán voru þar tíö, en herör var skorin upp og nú fær fólk aö njóta sín í Central Park á ný. Þó ber feröamönnum ávallt aö fara varlega, þvt þótt þorri New York búa sé mjög vingjarnlegt og opinskátt fólk, leynast svörtu sauöirnir innan um og menn þurfa að varast aö bjóöa ekki hættunni heim Heimar í hnotskurn Skammt frá Broadway er hin fræga tónlistarmiöstöö, Lincoln Center, byggö fyrir um þaö bil 20 árum. Þangaö liggur leiö allra feröamanna ýmist til aö njóta þeirra sýninga sem boðiö er upp á eöa til aö skoöa hinar glæsilegu bygglngar. Þar er glæsilegt umhverfi: New York State Theater, Metropolitan-óperuhúsiö, Fílharmoníuhöllin og fleira og fleira sem forvitnilegt er. Urmull af kaffi- og veitingahúsum er um alla borgina og til dæmis má benda á byggingu skammt frá Summit, skýjakljúf sem heitir City Corp, en í kjallara þeirrar byggingar eru fjölmargir mjög góöir veitingastaöir frá ýmsum löndum, verzianir meö allt til heimllis, og í miöri byggingunni er skáli þar sem tugir metra eru til lofts. Þar fara daglega fram ókeypis skemmtiatriöi og menn geta setiö við borö án þess aö kaupa nokkuö, komiö meö nesti meö sér eöa keypt í verzlunum og veitingastööum í kjallara hússins. Þessi bygging er eins og heimur út af fyrir sig. Og þannig er þaö einmitt svo víöa í New York. Þarna er bókabúö, sælgætisbúö, bakarí, blómabúö og svo mætti lengi telja, en þetta glæsilega hús sem er upp á 59 hæöir, silfraö aö llt, er einnig sérkennilegt fyrir þaö aö þak hússins er byggt tll þess aö nýta orku sólarinnar og er eitt hiö fyrsta sinnar tegundar í heiminum. New York City-bankinn á húsiö, en sá banki er einmitt aöal viöskiptabanki íslands í Bandaríkjunum. Ástæöa er til aö benda sælkerum sérstaklega á sælgætisbúöina í City Corp, þar sem t.d. er hægt aö fá ný jaröarber hjúpuö úrvals súkkulaöi auk alls annars. Allt um kring á svæöinu milli 57. götu og 86. götu er fjöldi listasafna, tískuhús meistaranna og sérverslanir þar sem vissara er aö hafa nóg í buddunni. Þarna eru tvö þekktustu söfn New York, Metropolitan Museum of Art viö 81. götu og Guggen- heim-safniö viö 88. götu. Hiö þekkta nútíma myndlistarsafn Museum of Modern Art er eilítiö sunnar viö 53. stræti og 5. götu. Feikilegur fjöldi safna er á Manhattan og má þar t.d. nefna listamannahverfiö Soho. Viö sjötugustu og fimmju götu er American Museum of Natural History, þar sem dýr frá öllum heimshornum eru sýnd uppstoppuö í eölilegu umhverfi og er safniö mikiö sótt af fjölskyldum. I World Trade Center sem er hæsta bygging heims er útsýnisturn sem margir heimsækja til þess aö sjá yfir hiö sérkennilega borgarstæði New York og sama er aö segja um Empire State-bygginguna sem er meö útsýnisturn og í kjallara hússins er heimsmetasafn Guinness meö allan fjárann í fórum sínum. Þeir sem vilja fara hærra en í hæstu skýjakljúfana geta brugöiö sér í útsýnisflug meö þyrlu og sveimaö inn á milli skýjakljúfanna. Þá má nefna staöi eins og Coney Island þar sem er vinsælt tívolí fyrir börn og sædýrasafn, bátsferö um Hudson-fljótiö á stórri snekkju er ævintýrl út af fyrir sig á lygnu fljótinu sem liggur um skógi vaxiö land, margir möguleikar eru á strandferöum til þess aö baöa sig og njóta sólar viö bæjardyrnar og einnig má benda á skemmtiferö í New Jersey-garöinn í rútu eða bílaleigubíl, en þar eru margs konar leiktæki fyrir fólk á öllum aldri, rússíbanar, sundlaugar og fleira til útlvistar. Fjölbreytni við hvert fótmál Svo dæmi séu nefnd um verzlanir er þaö draumur margra kvenna aö verzla í Bloomingdales, sem er dýr stórverzlun en vönduö, Alexanders er einnig góö en mun ódýrari, sérlega barnaföt, en þessar verzlanir eru aöeins um 5—10 mín. gang frá Summit á Lexington og svo gott sem á næsta horni er stærsta verzlun New York, Macy's. Um allar trissur eru aö sjálfsögöu minni verzlanir meö hvaöeina á boöstólum, dýrt og ódýrt, vandaö og óvandaö og vóa eru sérstök verzlanahverfi og jafnvel heilar götur sem bjóöa allar þaö sama, gluggatjöld og handklæöi, eöa listavörur, Ijós og svo framvegis og má til dæmis nefna verzlanagöturnar í Bowery en þar er mjög hagstætt verö og þar er oft sams konar varningur og t.d. í Bloomingdales, en miklu ódýrari. Verzlanir meö margs konar rafmagnstæki, útvörp, myndavélar og slíkt eru á hverju strái og á þeim vörum er yfirleitt gott verð fyrir Evrópubúa. Af ótrúlegum fjölda góöra matstaöa má nefna staöi nálægt Summit: Benihana of Tokyo á 56. götu en þar sitja gestir viö sama borö og kokkurinn eldar á. Einn kokkur er á hvert borö og segja má aö þaö sé eldaö upp í gestina, mjög glæsilegur matur á Japanska vísu. The Cattleman heitir vinsælt steikhús viö 45. götu þar sem boðiö er upp á dýrindis steikur í vestra stil og sama er aö segja um Beefsteak Charlie's viö Broadway. City Luck heitir kínverskur matstaöur viö 54. götu þar sem mjög góöur matur er á boöstólum í glæsilegum húsakynnum, fyrir þokkalegt verö. Bombay Palace heitir indverskur matstaöur á 52. götu sem vert er aö heimsækja og í franska stílnum má nefna La Bibliothequi mat- og dansstaö á 43. götu. vinsæll dans- og matstaöur er Adams Apple á 61. götu. Úrval beztu lista- manna á sviðinu Næturlíf New York er feikilega fjölbreytt, yfirvegaöir veitinga- staöir, dansstaöir og veitingasalir hótela, diskóstaöir, jazzstaöir, næturklúbbar eru hvarvetna um borgina þar sem boöiö er upp á allar tegundir af tónlist og skemmtikröftum. Á Broadway eru aö jafnaöi um þrjátíu leiksýningar á hverju kvöldi og þar koma fram á hverju kvöldi listamenn á heimsmælikvaröa og hvergi í heiminum er annaö eins úrval. Vinsælustu söngleikirnir um þessar mundir eru .42. street" og .Evita" en einnig er fjöldi annarra söngleikja sem eru mjög vinsælir. .42. street“-sönglelkurinn er létt og glæsileg skemmtun svo unun er á aö horfa og söngleikurinn um Evitu, draum Argentínu er búinn aö ganga lengi á Broadway og er sérkennileg skemmtun og ádeila i senn. Þá má t.d. nefna söngleikinn „Ain't Misbehavin’" meö tónlist eftir Thomas “Fats“ Waller í eldfjörugri túlkun negrasöngvara. Af leikritum má nefna Fílamanninn, sem er sýnt viö mikla aösókn og hjá New York City-ballettinum er úrval bestu verka sífellt á dagskrá og þar dansar Helgi Tómasson og nýtur mikillar viröingar, enda í þröngum hópi beztu dansara heims og aö áliti margra sérfræöinga sá besti í dag. Menn hrífast með Aögöngumiöaverð á söngleikina og í leikhúsin er mjög mismunandi, allt frá 7 dollurum upp í 35 dollara og einnig geta menn reynt aö fá miöa á hálfviröi á sýningu sama kvöld í sérstakri miöasölu TKTS á Duffy-torgi viö Broadway og 47. götu. Þar eru einnig seldir miöar í öll lelkhús, óperur, ballettsýningar bæði við Broadway og utan þeirrar rómuöu götu. Þaö er engin tilviljun aö um nokkurt skeiö hefur veriö rekinn kynningarherferö fyrir New York meö setningunni: I Love New York, því þaö er ekki hægt fyrir nokkurn sem heimsæklr New York-borg aö komast hjá því aö hrífast af einhverjum þáttum í fasi þessarar sérstæöu borgar. Eins og gengur í kjölfari mannanna býr hún yfir bæöi neikvæöum og jákvæöum þáttum, hér hefur aöallega veriö fjallaö um þá jákvæöu, því þeir eru mun fleiri og ekki skreppa menn tll New York meö þaö fyrir augum að lenda í vandamálum þótt slíkt geti alltaf komiö upp. En hvaö sem því neikvæöa líður veröur þaö ekkl af New York-borg skafiö aö hún er stórkostleg á margan hátt og býöur feröamönnum sem vita hvaö þeir vilja aö fleyta rjómann af nær hverju sem þeim dettur í hug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.