Morgunblaðið - 30.05.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981_1 1
Skattheimtuþvingunum mótmælt
eítir Gunnar Snorrason,
íormann
Kaupmannasamtaka íslands
Á fyrstu vordögum staðfestu
stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar
með hjásetu Alþýðuflokksmanna,
skattastefnu ríkisstjórnarinnar,
með því að framlengja lög um
sérstakan skatt á verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði, þrátt fyrir ein-
dregin mótmæli Kaupmannasam-
taka íslands, allt frá því að þessi
óréttlátu skattalög tóku gildi, en
það var í fyrsta skipti við álagn-
ingu gjalda á árinu 1979 og aftur
1980 og svo enn aftur nú á árinu
1981. Um óréttmæti þessara laga
greindi ég ítarlega frá í grein í
Morgunblaðinu þann 8. nóvember
sl., og mun ég því ekki endurtaka
það nú, en vil hins vegar undir-
strika mismunun og það óréttlæti
sem fylgir þessari skattheimtu.
Sem dæmi um hvernig þessi lög
virka, mætti hugsa sér þjónustu-
miðstöð í einu úthverfi borgarinn-
ar, sem væri í leiguhúsnæði. Ef
eigandi húsnæðisins leigir út
hluta af byggingunni undir ýmis
þjónustufyrirtæki sem þörf er
fyrir í hverfinu, til dæmis skó-
verzlun, bóka- og ritfangaverzlun,
vefnaðarvöruverzlun, blóma- og
gjafavöruverzlun, búsáhalda- eða
raftækjaverzlun, þá greiðir hús-
eigandinn áðurnefndan skatt. Ef
húseigandinn hins vegar leigir
húsnæði sitt undir rakarastofu,
hárgeiðslustofu, þvottahús, fata-
hreinsun, pökkun á hverskonar
varningi, kjötvinnslu, saumastofu,
skóvinnustofu, eða einhvern iðnað,
sleppur hann við skattinn. Hér er
beinlínis verið að vinna að því að
flæma ákveðnar þjónustugreinar
úr hverfunum og úr verzlunar-
miðstöðvunum, hvar sem þær eru
á landinu. Það er því ekki hægt
annað en líta á þessa innheimtu
sem beina árás á verzlunina í
landinu og ekki sú síðasta ef að
líkum lætur, áður en þetta ár er
l'ðið. er £ afkomu smásölu-
verzlunarinnar og stuðst við tölur
Þjóðhagsstofnunar, þá er spurn-
ing hvort afkoman fyrir árið 1980
er í plús eða mínus, svo nálægt
núllpunktinum er hún og er þá átt
við samanlagða útkomu allra
greina smásölu. Þetta vita ráða-
menn mæta vel og hafa viður-
kennt opinberlega, að eitthvað
verði að gera, svo væntanlega
fyrirtækin iognist ekki út af, sem
því miður dæmi eru nú fyrir. En
þrátt fyrir allt og allt, þá er ekkert
horft á afkomu og getu fyrirtækj-
anna, svo ég tali nú ekki um, að
hlustað sé á forystumenn hinna
ýmsu atvinnurekendasamtaka. Á
hinn bóginn heldur ríkisbáknið
áfram að mergsjúga hvern þann
sem færi gefst á og nú síðast með
sérstökum eignaskatti á fast-
eignamatsverð á þá sem eru svo
seinheppnir að hafa fjárfest í
húsnæði undir verzlun.
Hvað skyldi næsti skattur heita,
sem skattasérfræðingarnir senda
frá sér, það væri fróðlegt að vita,
en eitt er víst, að það virðist vera
sama hvað peningainnstreymið er
ört í rikiskassann, hann er alltaf
tómur.
Þakka ber þó það sem vel er
gert, en nú nýlega gaf ríkisstjórn-
in leyfi til uppfærslu vörulagera í
smásölu til raunvirðis. Hér er um
Gunnar Snorrason
„Hvað skyldi næsti skatt-
ur heita sem skattasér-
fræðingarnir senda frá
sér, það væri fróðlegt að
vita, en eitt er víst að það
virðist vera sama hvað
peningainnstreymið er ört
í ríkiskassann, hann er
alltaf tómur“.
áratugagamalt baráttumál Kaup-
mannasamtaka íslands að ræða,
sem nú er loks komið í höfn.
En það grátbroslega í þessu öllu
saman er svo það, að með þessari
sérstöku skattlagningu á skrif-
stofu- og verzlunarhúsnæði, er
ríkisvaldið að ráðast á sína bestu
innheimtumenn sem eru kaup-
mennirnir og aðrir þeir, sem við
verzlun og viðskipti fást, því þeir
innheimta söluskattinn fyrir ríkið
ásamt mörgum öðrum sköttum, í
sjálfboðavinnu. Kaupmenn fáeng-
in innheimtulaun fyrir fjöldann
allan af sköttum, sem þeir eru
þvingaðir til að innheimta fyrir
ríkið og einnig launþegafélög í
landinu. Þessar skattheimtu-
þvinganir hafa ýmist verið settar
á beint með löggjöf, eða þá, að þær
hafa borist í svokölluðum „félags-
málapökkum", þegar hlaupið hef-
ur á ríkisstjórnina.
Fyrir hönd Kaupmannasamtaka
íslands og kaupmannastéttarinn-
ar, mótmæli ég þessum aðförum
að stéttinni og bendi viðkomandi
ráðamönnum á, að það hefur
aidrei gefist vel að slátra bestu
mjólkurkúnni.
VWNvreVTWIVC-----
"GöÖflN WöNNÁftj 'Mm.mft 0ÁW'
Patreksfirð-
ingar óánægð-
ir með Skipa-
útgerðina
PatreksHrfti. 2f». maí.
KAUPMENN hér á Patreksfirði
eru heldur óhressir með þjón-
ustu Skipaútgerðar ríkisins.
Finnst mönnum að lítt sé hægt
að treysta á Ríkisskip, þjónust-
an geti verið góð í nokkrar
vikur, en svo með afbrigðum
léleg þess á milli. Finnst þeim
hart að búa við slíka þjónustu
og hafa verður í huga, að við
Patreksfirðingar verðum að
treysta á þessa þjónustu átta
mánuði á ári. Vöruflutningabíl-
ar geta t.d. ekki flutt vörur
hingað fyrr en eftir mánaðamót
vegna þungatakmarkana. Ef-
laust myndu menn nota sér
flutninga á landi meira en hægt
er vegna hinna bágu sam-
gangna, sem við búum við.
Nú bjóðum við ykkur að líta
við í versluninni um helgina
bæði laugardag og sunnu-
dag og kynnast nýjustu
tækni í sambandi við mat-
reiðslu í örbylgjuofnum.
Einnig verður boðið upp á
pizzur og Seven-Up, sem
ætti að renna Ijúflega niður.
VIÐ BJÓÐUM YKKUR AÐ HEIMSÆKJA VERSLUN KALMAR-INNRÉTTINGA H/F í
SKEIFUNNI 8, REYKJAVÍK NÚ UM HELGINA OG NJÓTA ÞESSARA ELDHUSDAGA OKKAR.
Einar Farestveit h/f
kynnir
örbylgjuofna hjá okkur í versluninni í
dag, laugardag, kl. 14—16 og sunnu-
dag kl. 15—17. Dröfn Farestveit kynnir
þá nýja tækni í matreiöslu meö notkun
örbylgjuofna frá TOSHIBA.
Halti
haninn
gefur okkur aö
smakka á pizzum
bæöi laugardag og
sunnudag og Sev-
en-up frá Sani-
tas hjálpar okkur
svo aö renna þessu
niður.
c ískalt
Seven up.
hressir betur.
Opið laugardag kl. 10—16 og sunnudag kl. 13—17.
ka|mar
Innréttingar hf.
EINAR FARESTVEIT A. CO HF
MRGSTAOASrtATI lOA SlMl i»«ts
Halti
ninn
Sanitas