Morgunblaðið - 30.05.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAI1981
15
Spurt er:
Hvers vegna lætur
Guð almáttugur allt
þetta illa viðgangast?
Dr. Sigurbjörn Einarsson
biskup.
á neina þá skoðun, sem með
einu eða öðru móti gerir hið
illa að rökrænni nauðsyn í
tilverunni og réttlætir það
þar með.
Vissulega vita kristnir
menn að mannleg sjón dreg-
ur skammt og að framundan
er önnur yfirsýn.
Ó. blossuð stund. or burtu þokan líftur.
si m hlindar þossi dauAlfK auKU vor.
söguhugtak eða tákn, sem
segir: Hið illa er uppreisn
gegn góðum Guði. Mannleg
synd, hver vond hvöt og gjörð
og öll grimmileg örlög, er
gagnstæð vilja hans. Með
þessu er þá jafnframt sagt,
að það sé svigrúm í tilverunni
fyrir annan vilja en Guðs.
Þar er m.ö.o. frjálsræði. Það
er dýrmæt gjöf. En engin
gjöf er eins misnotuð. Það
þekkja allir af nærtækum
dæmum og reynslu.
Hverju sinni sem þú ferð
með Faðir vor minnir þú þig
á, að lífið á jörð er ekki í
samræmi við vilja Guðs:
Verði þinn vilji, svo á jörðu
sem á himni. Þú biður hér, að
vilji Guðs sigri í lífi þínu og
lífi jarðar eins og hann ræður
á himni. Og himininn er ekki
staður. Hann er sú tilvera,
sem lýtur vilja Guðs að fullu.
Þar er ríkið hans og dýrðin.
Svo er ekki hér á jörð. En
hugmyndin eða táknið um
fallinn heim hefði aldrei
fæðst, ef vér hefðum ekki
fengið að vita um fullkomna
tilveru, albjartan heim. Jesús
Kristur hefur svipt hulunni
af þeirri veröld. Og hann
Allir krossberar skyldu muna aö
Guð hefur tekið á sig þeirra vegna
Hér er spuming, sem flest-
ir myndu spyrja. Hvar er
fullnœgjandi svar aö finna
við henni? Þrautir og þján-
ingar hafa fylgt mannkyni
alla tíö, meinleg örlög hafa
blasaö viö og margan þjáö.
Hvaö veldur? Svo hefur veriö
spurt síðan menn fóru aö
finna til og hugsa.
En nú á dögum er sjónar-
sviðið stærra en áður. Menn
hafa ekki aðeins vitneskju
um það, sem gerist hið næsta.
Vér fáum daglega fréttir af
hvers kyns hörmungum og
djöfulskap. Fréttaburður
nútímans sér um það, að öll
brjálsemi, illviki og hrika-
legar slysfarir hvar sem er á
hnettinum bylja í eyrum og
blasa við augum daginn út og
inn. Sú mynd af mannheimi,
sem vér fáum með þessu
móti, er ekki fögur. Sem
betur fer er hún mjög ein-
hliða. Það gerist ekki illt eitt
í heimi hér. En hin af-
skræmda mynd frétta-
mennskunnar er ekki búin til
úr engu. Öðru nær. Og allir
lifa í skugga hryllilegra at-
burða, sem dunið hafa yfir á
þessari öld. Þeir skuggar
minna á það náttsvarta
myrkur, sem ný stórstyrjöld
myndi steypa yfir jörðina.
Af hverju er þetta svona?
Hver svarar því? það þarf
reyndar ekki að hugsa um
skelfilegusut ódæmi til þess
að spurningin vakni og svíði.
Nægir ekki að horfa upp á
eitt sært barn, jafnvel eina
kvalda skepnu? Hermdarverk
og fantabrögð í pólitískum
tilgangi eru óðra manna æði,
þótt stundum megi skilja þær
tilfinningar og hvatir, sem að
baki eru. Allt drápið á fiski
og fénaði er ill nauðsyn. En
hvers vegna þarf náttúran að
líða svona mikið til þess að
við getum lifað? Ennþá síður
skil ég það, a menn skuli hafa
gaman af því að drepa. Ég
get ekki skilið þá, sem skjóta
fugla eingöngu af því að þeir
hafa ánægju af að hæfa þá og
sjá þá falla, oft þannig særða,
að þeir eiga kvalafullt hel-
stríð eftir. Og ég skil ekki, af
. hverju það er svo mikil
skemmtun að kvelja laxinn á
önglinum, helst sem Iengst,
áður en hann fær að deyja.
Mínar spurningar eru ekki
færri en þínar, það er víst. Og
svör hef ég ekki fleiri og
einhlítari en þú. Ekki slík
svör, sem „skýri" neitt. Hér
eru allir sömu ómálga börnin.
Af hverju lætur Guð allt
þetta gerast? spyrð þú. Ég
orða ekki spurninguna þann-
ig. Því mér finnst þá gefið í
skyn, að Guð „Iáti“ menninga
fremja ilivirki eða sæta illum
sköpum. Það er ekki kristin
trú. Eitt er það, sem Guð
lætur mennina gera, annað
hitt, sem hann verður að
horfa upp á, að þeir geri.
En hvers vegna er hið illa
til, vondar hvatir og alls kyns
böl af margvíslegum og al-
gerlega huldum orsökum?
Trúarbók og trúarhugsun
kristinna manna hefur ekki
skýringu á þessu. Og viður-
kennir hiklaust, að hún hefur
það ekki. Ekki skýringu. Þar
með er ekki sagt, að kristnir
menn hafi ekki fundið svar.
En það er ekki þess háttar
úrlausn, sem leysir gátuna.
Hið kristna svar bregður
samt ljósi yfir hana, sem
nægir til þess, að maður
getur horfst í augu við hana í
allri hennar nekt og dimmu
dýpt án þess að glata trausti
á lífinu og á sigri hins góða.
Ýmsar skýringar hafa
komið fram á tilvist hins illa.
Sumir hafa sagt: Það, sem
vér köllum illt, er ekki eins
vont og það sýnist vera. Það
hefur sínar jákvæðu hliðar,
Guð er jafnvel líka í synd-
inni, böl og brestir, kvöl og
illska eru skuggar í mann-
legum augum af því að við
erum á svo lágri þúfu. Þegar
hærra kemur mun allt sjást
betur. Þá mun koma í ljós, að
myrkrið er líka birta, aðeins í
öðru formi.
Kristinn maður tekur ekki
undir þetta. Hann fellst ekki
en a*ðri da«ur dýrAarskær o»c bliður
mcð Drottins IjÓKÍ skin á oll vor spor.
Þetta er upphaf á kunnum
sálmi (441 i Sálmabók). Þessi
strengur ómar sterklega í
öllum kristnum trúarvitnis-
burði. Og þau sigurmál eru
einmitt svo sterk vegna þess,
að engin tilraun er gerð til
þess að hjúpa staðreyndir eða
falsa veruleikann með nein-
um glitvefjum. Kristin trú
veit að það eru andstæður í
tilverunni, gagngerar.
Myrkrið er ekki ljós á ófull-
komnu stigi, illskan er ekki
góðleikur í ófullgerðri mynd,
grimmd er ekki gæska í
dulargervi. Þetta þýðir ekki
það, að neinn maður sé alls
kostar illur. Illt og gott er
blandað í hverjum manni. En
það eru ósættanleg öfl að
verki í tilverunni. Þau berj-
ast um völdin og vígvöllurinn
nær inn í hverja mannsál.
Þessi skilningur, sem setur
mót á orð og gjörðir Jesú,
gerir málið ekki auðveldara
fyrir hugsunina. Því Guð
kristinnar trúar er algóður.
Og hans er mátturinn. Þess
vegna er sá heimur, sem
hann vill og skapar, góður í
grunni, að eðli til. Hið illa er
brestur í tilverunni, krabbi í
holdi heimsins.
Hvaðan er það komið?
Pascal spurði: Ef Guð er
til, hvaðan er þá hið illa? Ef
Guð er ekki til, hvaðan er þá
hið góða?
Það er kristnum manni
engin spurning, hvaðan hið
góða er. En einmitt þess
vegna er hið illa óskýranleg
gáta. Það eitt er unnt að
skýra, sem býr yfir einhverj-
um skynsamlegum rökum.
Hið illa er samkvæmt krist-
inni skilgreiningu rökleysan
sjálf, sú botnlausa truflun
eða brjálsemi, sem ekkert vit,
ekki einu sinni guðlegt vit,
getur komið heim við rök.
Sú veröld, sem er vor, er
„fallinn heimur", segir krist-
in trú. Það er engin skýring.
Ég bið þig að strika rækilega
undir það. En það er leið-
hefur vakið kristnum mönn-
um það bjargfasta traust, að
ríkið, sem hann birti, muni
sigra.
Hið illa á ekki heima í
sköpun Guðs.
Öll gæska kemur Guði frá,
öll grimmd á rætur hér,
segir sr. Matthías og túlkar
næsta vel það, sem Biblían
boðar um fallinn heim.
Reyndar boðar hún ekki þann
heim, heldur hinn fullkomna,
ríkið, þar sem hvorki harmur
né kvöl er framar til. Þann
heim er Guð að skapa með
mætti sínum. Og það er vissa
og reynsla kristinnar trúar,
að engin takmörk séu fyrir
því, hvernig hann getur snúið
illu til góðs, böli í blessun.
Það sést best á Golgata.
Oft er sagt, að erfitt sé að
koma því heim og saman, að
Guð sé bæði almáttugur og
algóður, úr því að heimurinn
er eins og hann er. En
hvernig vitum við, að Guð er
algóður og almáttugur? Það
er einn, sem hefur kennt
þetta og gefið trúna á það,
einn smáður, kvalinn, dæmd-
ur, krossfestur maður. Það er
myndin af þeim krossfesta
manni, sem birtir þann föður,
sem á máttinn og kærleik-
ann. Þann máttuga kærleika,
að hann getur breytt öllu,
sem er grimmt og dimmt og
gagngert andstætt vilja hans,
í líkn og ljós og sigur. Og
mun gera það.
Mannlegar hugmyndir um
guðlegt almætti eru ófull-
komnar. Það er kross, sem í
augum kristins manns er
lykillinn að hjartalagi Guðs.
Og allur máttur stjórnast af
hjartalagi. Vegur Guðs al-
mættis getur sem sé verið
krossferill, leiðin að því
marki hans, þegar öll tilver-
an ljómar í páskasól. Allir
krossberar skyldu muna, að
Guð hefur tekið á sig kross-
inn þeirra vegna. Ög taka
undir þá dýru játningu krist-
innar trúar, að ekkert geti
gjört oss viðskila við kær-
leika Guðs í Kristi Jesú,
Drottni vorum.
TIL ÍSLAI
■k
LESTUNÍ
ERLENDUM
fiw
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Berglind 15. júní
Bakkafoss 22. júní
NEW YORK
Berglind 17. júní
HALIFAX
Goöafoss 1. júní
Hofsjökull 22. júní
BRETLAND/
MEGINLAND
ROTTERDAM
Álafoss 1. júní
Eyrarfoss 8. júní
Álafoss 15. júní
Eyrarfoss 22. júní
ANTWERPEN
Álafoss 2. júní
Eyrarfoss 9. júní
Álafoss 16. júní
Eyrarfoss 23. júní
FELIXSTOWE
Álafoss 3. júní
Eyrarfoss 10. júní
Álafoss 17. júní
Eyrarfoss 24. júní
HAMBORG
Álafoss 4. júní
Eyrarfoss 11. júní
Álafoss 18. júní
Eyrarfoss 25. júní
WESTON POINT
Urriöafoss 3. júní
Urriöafoss 17. júní
Urriöafoss 1. júlí
Urriöafoss 15. júlí
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 1. júní
Dettifoss 15. júní
Dettifoss 29. júní
KRISTIANSAND
Mánafoss 8. júní
Mánafoss 22. júní
Mánafoss 6. júlí
MOSS
Dettifoss 2. júní
Mánafoss 9. júní
Dettifoss 16. júní
Mánafoss 23. júní
GAUTABORG
Dettifoss 3. júní
Mánafoss 10. júní
Dettifoss 17. júní
Mánafoss 24. júní
KAUPMANNAHÖFN
Dettifoss 4. júní
Mánafoss 11.júní
Dettifoss 18. júní
Mánafoss 25. júní
HELSINGBORG
Dettifoss 5. júní
Mánafoss 12. júní
Dettifoss 19. júní
Mánafoss 26. júní
HELSINKI
Múlafoss 10. júní
irafoss 22. júní
VALKOM
Múlafoss 11. júní
írafoss 23. júní
RIGA
Múlafoss 13. júní
írafoss 25. júní
GDYNIA
Múlafoss 5. júní
írafoss 26. júní
THORSHAVN Dettifoss
frá Reykjavík 20. júní
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-framog til baka
frá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI alla þriöjudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SÍMI 27100