Morgunblaðið - 30.05.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
17
i
Hægt er að bregða sér í skoðunarferð með þyrlum.
Það er yfirleitt frjálslegt fólk sem maður mætir í hjarta
New York.
Empire State-turninn.
Stórkostlegir tónleikar
Gunnar Kvaran sellóleikari
lét þess getið í sjónvarpsvið-
tali fyrir stuttu, að á næstu 20
árum væri að vænta mikilla
tíðinda á sviði tónlistar hér á
landi. Tuttugu ár eru langur
tími í skammri þróunarsögu
og þegar þess er gætt, að fyrir
aðeins 55 árum, heyrðu Reyk-
víkingar í fyrsta sinn til sin-
fóníuhljómsveitar, og að á
þessum stutta tíma hefur svo
skipast, að nýlokið er ferð
íslenskrar sinfóníuhljómsveit-
ar til Vínarborgar, er ljóst að
framsýni Gunnars er ekki
óraunhæf draumsýn, heldur
það sem er í rauninni að ske.
Meðal þeirra viðburða er hæst
ber þessa dagana eru tónleik-
ar Dorriet Kavanna og Krist-
jáns Jóhannssonar. Það ríkti
spenna og eftirvænting á tón-
leikunum og eftir tónleikana
voru allir í sjöunda himni af
hrifningu. Dorriet Kavanna er
mikill „tekniker", eins og kom
fram í glæsilegum söng henn-
ar í aríu Zerbinettu, úr óper-
unni Ariadne auf Naxos, eftir
Richard Strauss. Zerbinetta
hefur það motto, að njóta
lífsins og var flutningur söng-
konunnar frábær í þessari
erfiðu aríu. Annar hápunktur
tónleikanna var söngur Kav-
Tónllst
eftir JÓN
ÁSGEIRSSON
Það verður spennandi,
hversu þessum ágætu
söngvurum tekst að kveða
sér hljóðs úti í hinum
stóra heimi, hvernig þeim
tekst að festa sér það, sem
þau hafa hæfileika til 44
anna í aríu Ofelíu, úr óperunni
Hamlet, eftir franska tón-
skáldið Thomas. Það er að
bera í bakkafullan lækinn að
telja fram fleira, en allur
söngur Kavanna er borinn upp
að sterkri tilfinningu fyrir
tónlistinni og leikrænu inni-
haldi. Hún hefur frábæra
rödd, hefur hlotið gríðarlega
góða þjálfun, hefur allt til að
ná því marki að verða stór-
stjarna.
Kristján Jóhannsson söng
einnig mjög vel. Það má
merkja mikla framför í tón-
taki og túlkun hjá Kristjáni,
frá því hann „debúteraði“ í
Gamla Bíó. Best tókst honum
upp í lögum eftir Giordano og
í Recondita Armonía, úr óper-
unni Tosca, eftir Puccini. Una
furtiva lagrima, eftir Doni-
setti, var vel sungið, en ekki
tókst Kristjáni áð „kóróna“
lagið. Dúettarnir tveir, eftir
Verdi, úr Rigoletto og La
Traviata og dúettinn úr Lucia
di Lammermoor voru mjög
glæsilega fluttir. Það verður
spennandi, hversu þessum
ágætu söngvurum tekst að
kveða sér hljóðs úti í hinum
stóra heimi, hvernig sem þeim
tekst að festa sér það, sem þau
hafa hæfileika til. Undirleik-
arinn Edoardo Múller er auð-
heyrilega vel heima í allri
óperutónlist og lék undir í
bestu merkingu orðsins og var
samspil og öryggi í tónlflutn-
ingi frábærlega af hendi leyst.
Það verður fróðlegt að
heyra Kristján Jóhannsson í
La Bohéme, sem nú verður
tekin aftur upp í Þjóðleikhús-
inu, á þriðjudaginn kemur.
I
i
Sjáið
prýða fegurðardrottningu íslands í
auglýsingatíma sjónvarpsins í kvöld.
mun fást í flestum apótekum og
snyrtivöruverslunum um land allt.
0§SiS§E® fyrir sólarlandaferðina, fyrir sólar-
lampann, fyrir sundlaugina, fyrir skíðaferðina,