Morgunblaðið - 30.05.1981, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
19
Villandi frásögn af
fundi sexmannanefndar
í Morgunblaðinu þ. 28. maí sl.
birtist á baksíðu grein með yfir-
skriftinni: Fundur í sexmanna-
nefnd leysist upp. Astæðan var
bókun fulltrúa kaupmannasam-
takanna, þar sem krafist er hækk-
unar smásöluálagningar á land-
búnaðarvörur.
Því miður er greinin mjög
villandi. Aðeins er rétt skýrt frá
einu atriði. Rétt er, að Magnús E.
Finnsson lagði fram tillögu að
bókun, að vísu ekki þá sem birt er
í Morgunblaðinu, samanber það
sem síðar segir.
Atburðarás var þessi:
Um kl. 11.15 f.h. þann 27. maí
komu þrír fulltrúar kaupmanna-
samtakanna á fund með sex-
mannanefnd. Eftir að menn höfðu
ræðst við á formlegan og rólegan
hátt um þær hækkanir á dreifing-
arkostnaði smásöluverslunar, sem
óvefengjanlega hafa átt sér stað
síðan smásöluálagning var síðast
ákvörðuð, án þess að Magnús E.
Finnsson tæki markverðan þátt í
þeim umræðum, dró hann upp úr
pússi sínu og lagði fram vélritað
plagg, sem sé fyrri útgáfu af
umræddri bókun. Sú útgáfa var
öðru vísi orðuð — og ef unnt er
meira móðgandi — en sú sem birt
er í Morgunblaðinu.
Sexmannanefndarmenn, bæði
fulltrúar framleiðenda og neyt-
enda, voru sammála um, að bók-
unin gæfi ranga mynd af þeim
samskiptum, er reglulega hafa átt
sér stað milli kaupmannasamtak-
anna og sexmannanefndar undan-
farin ár.
Fundarstjóri, Torfi Ásgeirsson,
gaf því fundarhlé, þótt matmáls-
tími væri kominn, þannig að menn
gætu áttað sig og komið umræðum
í eðlilegan farveg, þ.e. um hvernig
meta bæri dreifingarkostnað í
smásölu við væntanlega verðlagn-
ingu í byrjun júnímánaðar.
Þegar klukkan var langt gengin
í eitt kom Magnús E. Finnsson inn
í fundarsal og afhenti ritara
áðurnefnt plagg, þó nokkuð breytt.
Plaggið var undirritað af honum
einum af þeim þrem fulltrúum
kaupmannasamtakanna, er fund-
inn sátu.
Ég hirði ekki að rekja allar þær
skekkjur, sem heimildarmanni
Morgunblaðsins hefir tekist að
troða inn í greinina. Til gamans
má þó geta þess, að Magnús er
talinn fulltrúi kaupmannasamtak-
anna í sexmannanefnd. Ef svo er,
þá hefir öðrum nefndarmönnum
ekki áður verið kunnugt um það.
Máske hefir „heimildarmaðurinn",
sem gloprað hefir niður nafni eins
viðstaddra nefndarmanna, þ.e.
Þórarins Þorvaldssonar, þótt við-
eigandi að fylla töluna með því að
gera Magnús að sexmannanefnd-
armanni.
Við þetta vil ég bæta, að næsti
fundur nefndarinnar um vanda-
mál kaupmanna við væntanlega
verðlagningu í júníbyrjun var
haldinn næsta dag með fulltrúum
kaupmannasamtakanna og fór þá
að sögn vel á með mönnum.
Magnús E. Finnsson mætti ekki á
þeim fundi.
F.h. sexmannanefndar,
Torfi Ásgeirsson.
Ferðamálaráð Islands
Unni0 að aukningu ferða-
laga Islendinga um landið
FERÐAMÁLARÁÐ tslands vinn-
ur nú ötullcga að aukningu
ferðalaga íslendinga um eigið
land, cnda er það ekki síður
vcrkefni Ferðamálaráðs en að
vinna að aukningu á ferðalögum
útiendinga til landsins.
Ludvig Hjálmtýsson ferðamála-
stjóri hélt nýlega fund með framá-
mönnum í ferðamálum á ísafirði,
þar sem ræddir voru möguleikar á
aukinni og bættri þjónustu við
ferðamenn þar og í nágrenni
Isafjarðarkaupstaðar. Einnig hef-
ur ferðamálastjóri nýverið haldið
fund á Akranesi og voru sömu
málaflokkar til umræðu á þeim
fundi. Bæði á Akranesi og ísafirði,
svo og í nágrenni þessara bæja, er
margt forvitnilegt að sjá og er
gistiaðstaða á hótelum beggja
staðanna til fyrirmyndar.
Ferðamálastjóri mun á næstu
vikum og mánuðum heimsækja
fleiri byggðarlög og er þess að
vænta, að í kjölfar heimsókna
hans fylgi stofnun ferðamálafé-
laga og -nefnda, sem sérstaklega
fjalla um úrbætur til bættrar
aðstöðu varðandi móttöku ferða-
manna.
(Fréttatilkynning)
Fundur um laxveidar í N-Atlantshafi:
Enn deilt um
veigamikil atriði
Fjórði fundur starfshóps, er sér
um undirbúning samnings um lax-
veiðar á Norður-Atlantshafi, fór
fram í Osló dagana 19. til 22. þ.m.
Aðalmál fundarins voru veiðar
strandríkja á laxi sem upprunninn
er i ám annarra landa: annars
vegar veiðar Grænlendinga á laxi
sem upprunninn er í ám Kanada og
Evrópulanda, en hins vegar veiðar
Færeyinga á laxi, sem upprunninn
er við ísland, Noreg, Sviþjóð og
fleiri ríki.
Sjö aðilar áttu fulltrúa á fundin-
um: Efnahagsbandalag Evrópu,
Kanada, Bandaríkin, Noregur, Is-
land, Svíþjóð og Færeyjar. Er þetta
annar fundurinn sem íslendingar
taka þátt í.
Að sögn Guðmundar Eiríkssonar
þjóðréttarfræðings hjá utanríkis-
ráðuneytinu, var á fundinum gert
ráð fyrir, að samkvæmt samningum
yrði starfrækt allsherjarráð og
þrjár svæðanefndir, sem fjalla
skyldu um laxveiðar við N-Ameríku,
við V-Grænland og á Norðaustur-
Atlantshafi. „Síðan verður það hlut-
verk allsherjarráðsins að samræma
starfs^mi nefndanna þriggja," sagði
Guðmundur.
„Óleyst mál í þessu sambandi eru
einkum tvö; jafnvægi milli uppruna-
ríkja og þeirra ríkja sem veiða lax í
hafi. Þar er deilt um túlkun ákvæðis
í drögum að hafréttarsáttmála, þar
sem talað er um að það séu fyrst og
fremst upprunaríkin er beri ábyrgð
á hagnýtingu þeirra stofna sem um
er rætt í samráði við önnur ríki sem
veiða þá.
Þá er deilt um hlutverk ráðsins —
hvaða vald það hafi til að gera
tillögur um veiðar á laxi fyrir hvert
ríkjanna. í raun og veru kemur
þetta þannig út, að sum ríki telja, að
stofn samningsins eigi að fjalla um
verndunarmál almennt en önnur, að
samningurinn eigi aðeins að fjalla
um laxveiðar í sjó, en ekki um
laxveiðar í ám eða vötnum."
ÖI^mí^eVRiMOrfEiq'
hlÍÓmplaTaN
INNIHELDUR L0GIN=
LIFE TRANSMISSION
&HEIMA ERBEZT
láTiÐ nísta mi&iLsetjykldJr í sAmbAnd
ÞEVR
heldur tónleika
í kvöld í Hafnarbíói
og hefjast þeir
kl. 8.30.
Aö auki koma fram hljómsveitirnar Tóti Tíkarrass, Clitoris og Bruni B.B. Þá
mun fjöllistamaöurinn Rúnar Guðbrandsson stýra fjölda „rítúali".
FÁLKINN ESKVIMÓ
Keramikhúsið h/f
10 ára
Opnum í dag í nýju húsnæði
að Sigtúni 3, Reykjavík.
Kennsla hefst að nýju í næstu viku.
Innritun í síma 26088.
Mánudag
Þriöjudaga
Miðvikudaga
Fimmtudaga
Föstudaga
Laugardaga
og 20—22
og 20—22
kl. 13—18
kl. 13—18
kl. 13—18
kl. 13—18 og 20—22
kl. 13—17
kl. 13—15.30
I Keramikhúsið hf.
Sigtúni 3, sími 26088.