Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.05.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981 25 Sambandið og KRON: Sækja um leyfi fyrir stórmark- að í Holtagörðum Á FUNDI borgarráðs í gær var tekið fyrir erindi frá KRON og Samband- inu, en fyrirtækin óska eftir að fá leyfi til að setja á laggirnar stórmarkað í Iloltagörðum. Ilugmyndir komu fram um að vísa málinu til hafnarstjórnar og umferðarráðs, en meiri- hlutinn vildi ræða málið nánar áður en því yrði vísað til umsagnaraðila. Síðastliðinn vetur óskaði Sambandið eftir að fá leyfi til að byggja stórt hús í Holtagörð- um m.a. fyrir stórmarkað, en fallið var frá þeirri hugmynd, m.a. eftir mótmæli Sundasam- takanna. Nú hefur Sambandið, í samvinnu við KRON, hug á að fá leyfi til að reka stórmarkað í byggingu þar sem nú er starfs- mannaverzlun Sambandsins og fyrirtækið Holtakex. Er leyfi var veitt til þeirrar byggingar var ein af forsendunum að þar færi fram „hafnsækin starf- semi“. Landsstjóri Kanada til Is- lands í opinbera heimsókn LANDSTJÓRI Kanada Edward R. Schreyer og kona hans munu dveljast hér á landi i opinberri heimsókn dagana 3.-5. júni nk. eins og áður hefur verið tilkynnt. I fylgdarliði þeirra verður m.a. Mark MacGuigan utanrikisráð- herra Kanada. Heimsóknin hefst með opinberri móttöku á Keflavíkurflugvelli miðvikudaginn 3. júní kl. 11.15. Ekið verður til Bessastaða, þar sem forseti íslands Vigdís Finn- bogadóttir býður til hádegisverð- ar, en síðdegis munu gestirnir heimsækja Árnastofnun, Háskóla íslands og Þjóðminjasafn íslands. Að því loknu munu landstjóra- hjónin taka á móti forstöðu- mönnum sendiráða í Reykjavík. Um kvöldið kl. 20.00 heldur forseti íslands kvöldverðarboð að Hótel Sögu -til heiðurs landstjóra og konu hans. Á fimmtudagsmorgun 4. júní verður dælustöð Hitaveitu Reykjavíkur að Reykjum í Mos- fellssveit heimsótt árdegis, en síðan ekið til Þingvalla. Þar verð- ur þingstaðurinn forni skoðaður og síðan snæddur hádegisverður í Valhöll í boði ríkisstjórnarinnar. Frá Þingvöllum verður haldið til Hveragerðis og m.a. skoðaðar bor- holur á vegum Orkustofnunar og Garðyrkjuskóli ríkisins heimsótt- ur. Að kvöldi þess dags hefur landstjóri kvöldverðarboð að Hót- el Sögu. Föstudagsmorguninn 5. júní verður ekið til Svartsengis og orkuverið þar skoðað. Um kl. 12.30 er áætluð brottför landstjórans frá Keflavíkurflugvelli og lýkur þar með hinni opinberu heimsókn. 3 prestar vígð- ir á sunnudag BISKUP íslands vigir guðfræði- kandídatana Döllu Þórðardóttur, Torfa Stefánsson Iljaltalin og Ólaf Þór Ilallgrímsson til prests- þjónustu á sunnudaginn. Vigslan fer fram í Dómkirkjunni og hefst kl. 11.00. Vígsluvottar verða sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, sr. Bernharð- ur Guðmundsson, sr. Lárus Þor- valdur Guðmundsson, prófastur, og dr. Kjell Ove Nilsson frá Norrænu kirkjustofnuninni í Si- gtuna, auk sr. Þóris Stephensens, dómkirkjuprests sem þjónar fyrir altari. Fylgt verður prestsvígsluformi hinnar nýju handbókar. Dalla Þórðardóttir vígist til Bíldudalsprestakalls. Hún er 23 ára gömul, lauk guðfræðiprófi sl. föstudag. Foreldrar hennar eru Þórður Örn Sigurðsson og sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir í Þykkvabæ. Torfi Stefánsson Hjaltalín vig- ist til Þingeyrarprestakalls. Hann er 28 ára að aldri, Reykvíkingur, sonur Stefáns Hjaltalins Uluga- sonar og Marsibilar Bernharðs- dóttur. Hann lauk guðfræðiprófi vorið 1980. Ólafur Þór Hallgrímsson er 42 ára að aldri, Austfirðingur, sonur Laufeyjar Ólafsdóttur og Hall- gríms Helgasonar að Drop- laugarstöðum í Fljótsdal. Ólafur lauk guðfræðiprófi nú í vor, og mun nú vígjast til Bólstaðar- hlíðarprestakalls. Nú eru ósetin prestaköll aðeins Arnes á Ströndum og Ásar í Skaftártungu og Sauðlauksdalur, en þar eru varla húsnæði í boði. Auk þess er annað prestsembættið í Vestmannaeyjum óskipað sem stendur. Lýsa stuðningi við sjúkrahúslækna- AÐALFUNDUR Læknafélags Vesturlands var haldinn 23. mai í Borgarnesi. Á fundinum voru eftirfarandi samþykktir gerðar: Að fundurinn lýsir yfir samstöðu með sjúkrahúslæknum þeim sem sagt hafa stöðum sinum lausum vegna óánægju með kjör sín. Lýsir fundurinn yfir stuðningi við réttmætar kröfur þeirra um breytingar á grunnlaunum. Fundurinn skoraði einnig á heil- brigðisyfirvöld að beita sér fyrir breytingum á ákvæðum trygg- ingalaga, þannig að vitjana-, feröa- og dvalarkostnaður þeirra sjúklinga, sem byggju langt frá heilbrigðisstofnunum, yrði sam- bærilegur við þá sem í þéttbýli búa. Lýsa stuðningi við stjórn Skák- * sambands Islands MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing írá 16 skákmönnum: Við undirritaðir skákmenn lýsum yfir fullum stuðningi við núverandi stjórn Skáksambands íslands og forseta þess dr. Ingimar Jónsson. Jafn- framt hörmum við vinnubrögð þau, sem viðhöfð hafa verið að undanfornu af hálfu nokkurra manna og tilraunir þeirra til að kasta rýrð á stjórn Skáksam- bandsins. Jóhann Hjartarson fyrrum ís- landsmeistari, Guðmundur Sigur- jónsson stórmeistari og fyrrum Islandsmeistari, Helgi Ólafsson aiþjóðlegur meistari og núverandi Islandsmeistari, Jón L. Árnason alþjóðlegur meistari og fyrrum Islandsmeistari, Ingi R. Jóhanns- son alþjóðlegur meistari og fyrr- um Islandsmeistari, Ingvar Ás- mundsson fyrrum Islandsmeist- -ari, Haukur Angantýsson fyrrum íslandsmeistari, Elvar Guð- mundsson, Bragi Kristjánsson, Jó- hannes G. Jónsson, Sævar Bjarna- son, Jóhann Þ. Jónsson, Júlíus Friðjónsson, Jón Pálsson, Jón Torfason skákmeistari Norður- lands og Gylfi Þórhallsson. Seðlabanki íslands um gengislækkunina: Svavar Garðarsson, fyrirliði Útsýnarliðsins. færir forstjóra Útsýn- ar. Ingúlfi Guðbrandssyni, verðlaunagripinn. sem liðið fékk eftir leikinn á Mallorca. Útsýnarlið í fyrstu bikarkeppni Mallorca FYRSTA bikarkeppni á Mallorca, þar sem áttust við lið skipað farþegum Útsýnar og úrvalslið frá bænum Bunola — 3000 manna bæ á Mallorca, fór fram á Mallorca 23. þ.m. í liði Útsýnar voru knattspyrnukempur frá ýmsum stöðum landsins — sumir vel þekktir að fornu og nýju. Þótt Útsýnarliðið ætti við ofurefli að etja, sýndi það mikið baráttuþrek og baráttuvilja, en spilað var á malarvelli í 25 stiga hita að viðstöddu fjölmenni. Fyrirliði Útsýnarliðsins var Svavar Garðarsson frá Akranesi og fyrir þátttökuna í leiknum fékk Útsýnarliðið fagran verðlaunagrip, sem gefinn var af aðalhóteli Útsýnar á Mallorca — Porto ^ova í Palma Nova. Evrópugjaldmiðlar hafa lækk- að gagnvart krónu um allt að 11% og verðbætur launa hækka um 14,5% frá áramótum MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi frá Seðla- banka íslands. „Frá síðustu áramótum hefur gengi krónunnar verið haldið föstu í samræmi við efnahagsáætlun ríkisstjórn- arinnar, fyrst gagnvart Bandaríkjadollar en síðan 10. febrúar gagnvart meðalgengi gjaldmiðla í út- og innflutn- ingi. Var við það miðað, að með þessu móti gæti gengið veitt útflutnings- og samkeppnisatvinnuvegum hæfileg rekstrarskilyrði fyrstu mánuði ársins, jafn- framt því að tekið var tillit til viðleitni stjórnvalda til hjöðnunar verðbólgu. Meðan genginu hefur verið haldið þannig föstu, hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað frá 31. desember til 1. maí um 10,8% og verðbæt- ur launa munu nú um mán- aðamótin hækka öðru sinni og þá alls um 14,5% frá áramótum. Gerir þessi fram- vinda óhjákvæmilegt að rétta við samkeppnisaðstöðu at- vinnuveganna út á við, með hliðsjón til verðlagsþróunar erlendis og viðskiptakjara þjóðarinnar út á við. í þessu sambandi veldur það einnig vanda, að gengi Evrópugjaldmiðla hefur beinlínis lækkað gangvart krónu, um allt upp í 11%, og bitnar það sérstaklega á ýms- um framleiðslugreinum, sem flytja út til Vestur-Evrópu eða keppa við innflutning þaðan. Hefur meðalgengi þessara gjaldmiðla lækkað um 5,7% frá áramótum, met- ið eftir hlutdeild landanna í útflutningi undanfarin ár. Með hliðsjón af þessu, svo og af nauðsyn þess að halda gengislækkun í lágmarki með tilliti til verðlagsþróunar, hefur bankastjórn Seðla- bankans ákveðið, að höfðu samráði við bankaráð og fengnu samþykki ríkisstjórn- arinnar, að hækka meðal- gengi erlendra gjaldmiðla um 4% miðað við áður greinda vog út- og innflutnings, sem hefur í för með sér 3,85% gengislækkun krónunnar. Er áformað að halda þessu með- algengi óbreyttu næstu mán- uðina, með sama hætti og gert hefur verið frá áramót- um. Breyting þessi tekur gildi í dag, og var gengisskráning gjaldmiðla í morgun miðuð við það.“ Sinfónían komin heim úr vel- heppnaðri ferð til Austurríkis Sinfóníuhljómsveit íslands er 30 ára, en kom nú fram í fyrsta sinn á alþjóðleKum vettvantfi i tónleikaför um Þýzkaland og Austurríki. Eins oií þegar hefur komið fram i fréttum. hófst þessi för með tónleikum hljóm- sveitarinnar á listahátið í Wies- baden i Þýzkalandi, og fyrst og fremst var þó förin farin vegna þess, að hljómsveitinni var boð- ið að leika á 8 stöðum i Austurríki. I Vínarborg lék hljómsveitin í Grosser Musikvereinsaal og var það stór stund, því þetta hús er einskonar Mekka í hugum margra atvinnumanna í klass- ískri tónlist. Tónleikarnir þar tókust afburða vel og var ekki ráðizt á garðinn þar sem hann er lægstur: Flautukonsertinn sem Manuela Wiesler lék einleik í er mjög erfiður í flutningi og sama má segja um hina glæsilegu orgelsinfóníu eftir Saint-Sáens. Þriðju þýðingarmestu hljómleik- arnir fóru fram í Graz, en auk þess lék hljómsveitin í Eis- enstadt, Judenburg, Blundens, Dornbirn, Egg og Zell am See. Stofnun í Austurríki hafði veg og vanda af undirbúningi og réði hún einnig efnisskránni. Eitt íslenzkt verk var þar með: Minni Islands eftir Jón Leifs. Stjórn- andinn á hljómleikunum í Áust- urríki, Páll P. Pálsson, hafði þó fyrir fasta venju að leika eitt aukalag: Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns í mjög fjör- ugri útsetningu Páls. Hljóm- sveitinni var mikill sómi sýndur; þrívegis sat hljómsveitarfólk og aðrir gestir í förinni boð opin- berra aðila og í tvígang mætti þessi rúmlega 100 manna hópur þeim höfðingsskap, að einstakl- ingar höfðu boð inni fyrir allan hópinn. Fararstjórar voru Sig- urður Björnsson, framkvæmda- stjóri Sinfóníunnar og Björn Sv. Björnsson, en eins og áður er sagt, var Páll P. Pálsson stjórn- andi á tónleikunum í Austurríki, en í Wiesbaden stjórnaði Jean- Pierre Jacquillat. Hljómsveitin kemur heim ánægjulegri reynslu ríkari og var það mál hljóðfæra- leikaranna, svo og annarra, sem slógust í förina, að ótrúlegur munur væri að heyra hljóm- sveitina leika í hinum frægu hljómlistarhúsum, Kurhaus í Wiesbaden og Musikvereinsaal í Vín eða Háskólabíói, sem er einasta athvarf hljómsveitarinn- ar hér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.