Morgunblaðið - 30.05.1981, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
33
Hilmar Jónsson
sjómaður 75 ára
í dag, 30. maí, er einn kunnasti
leiðtogi sjómanna, Hilmar Jóns-
son, frv. formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur 75 ára.
Hilmar Jónsson fæddist á Ytri-
Vogum í Vopnafirði 30. maí árið
1906 og voru foreldrar hans þau
Jón Jónsson, útvegsbóndi og síðar
verkamaður í Reykjavík, og kona
hans Helga Ólafsdóttir.
Hilmar Jónsson hóf sjómennsku
á unga aldri, fyrst á mótorbátum
og síðan á togurum. Fyrsta fleyt-
an sem hann sigldi á var Njörður
frá ísafirði, en með honum fór
hann á síldveiðar. Hilmar fór af
bátnum um haustið og varð það
honum til lífs, því skömmu síðar
fórst báturinn með allri áhöfn.
Var Hilmar eftir það við sjósókn á
ýmsum bátum næstu fimm árin,
en fór þá á togarann Andra með
Kristjáni Kristjánssyni, skip-
stjóra, en með honum var hann
næstu 25 árin, þar af seinustu 15
árin sem bátsmaður.
Hilmar Jónsson mun snemma
hafa byrjað að skipta sér af
kjaramálum sjómanna, enda ekki
vanþörf á. Kjör sjómanna á fyrstu
áratugum þessarar aldar voru
vond, og spanna raunar aftur til
miðalda. Sjómenn fóru í verið, á
skútur og um borð í togara sem
vinnumenn bænda, en ekki sem
frjálsir menn. Bóndinn, húsbóndi
þeirra, samdi um kjörin, tók
launin og greiddi síðan venjulegt
vinnumannskaup til sjómannsins.
Þetta var að vísu aflagt, þegar
Hilmar Jónsson fór fyrst til sjós,
en vinnutími var þó ótakmarkað-
ur, eða allt að því og kjörin voru
bágborin, svo ekki sé meira sagt.
Árið 1954 fór Hilmar í land eftir
góðan sjómennskuferil og gerðist
starfsmaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, en hann hafði þá átt
sæti í stjórn félagsins um nokk-
urra ára skeið, eða frá árinu 1951.
Hefur hann síðan verið starfs-
maður félagsins og einnig formað-
ur þessa merka stéttarfélags, en
það segir nokkuð um það traust, er
honum var þar sýnt.
Hilmar hefur nú látið af for-
mannsstarfi, en vinnur enn að
hagsmunamálum sjómanna. Þá
hefur hann um margra ára skeið
átt sæti i Sjómannadagsráði og í
stjórn þess, og í tilefni af 75 ára
Guðrún Þórðar-
dóttir -
I gær, 29. maí, varð áttræð frú
Guðrún Þórðardóttir, Túngötu 30.
Guðrún er af sunniensku bergi
brotin. Faðir hennar var Þórður
Eyjólfsson, bóndi í Vogsósum,
Selvogi, og síðar að Vindheimum,
Ölfusi, en móðir hennar var Guð-
rún Sæmundsdóttir, síðari kona
hans. Guðrún var mjög ung, er
fjölskylda hennar fluttist úr Sel-
voginum og í Ölfusið með stuttri
viðkomu í Hvassahrauni og Hafn-
arfirði. Er samt undravert, hve
margs Guðrún minnist frá
bernskustöðvum sínum og er ákaf-
lega gaman að heyra hana rifja
upp minningar og greina frá þeim.
Um tvítugt hélt Guðrún til
Reykjavíkur, þar sem hún kynnt-
ist brátt mannsefni sínu, Eggert
Kristjánssyni, síðar stórkaup-
manni. Þau gengu í hjónaband
árið 1922 og nutu samvista, þar til
Eggert lést árið 1966. Lengst af
bjuggu þau á Túngötu 30, en það
hús byggðu þau árið 1929.
Eggert Kristjánsson var með
mestu athafnamönnum þessa
lands um sína daga og var heimili
þeirra Guðrúnar annálað rausnar-
heimili. Var tíðum mjög gest-
kvæmt þar og einnig áttu margir
leið í hús þeirra, sem þurftu á
ráðum eða aðstoð að halda og voru
þau hjón samhent um að greiða
götu slíkra eftir bestu getu.
Standa margir í þakkarskuld við
þau hjón og þá ekki síður Guð-
rúnu, sem er gefin mikil höfð-
ingslund ásamt trygglyndi.
Guðrún og Eggert voru sam-
áttræð
rýnd mjög. Ferðuðust þau mikið
saman bæði innanlands og utan.
Gestrisin voru þau og héldu ekki
aðeins myndarlegt heimili hér í
borg, heldur áttu og glæsilegan
sumarbústað við Laxá í Kjós, þar
sem þau eyddu sumrunum. Það
var því Guðrúnu þungur missir, er
Eggert féll frá árið 1966.
Guðrún Þórðardóttir ber aldur
sinn mjög vel. Hún er gáfuð kona,
stálminnug og ákaflega ættfróð.
Hefur hún haldið góðri heilsu, sem
hefur gert henni fært að halda
sínu fallega heimili að Túngötu og
sumrunum hefur hún eytt í Kjós-
inni, þar sem börn hennar og ekki
síður barnabörn hafa notið
margra ánægjustunda með henni
fyrr og síðar.
Við hjónin og börn okkar árnum
„Mjög athyglis-
verð hugmynd“
- segir Þór Magnússon, þjóð-
minjavörður um fornleifagröft í
grunni gömlu Reykjavikurkirkju
afmælinu, býður Sjómannadags-
ráð til kaffidrykkju ásamt afmæl-
isbarninu kl. 16.00 í dag, laugar-
dag, 1 Hrafnistu í Hafnarfirði.
Verður þar eflaust margt um
manninn.
Kona Hilmars er Sigurlaug
Jónsdóttir, Tómassonar úr
Reykjavík.
Guðmundur II. Oddsson,
skipstjóri.
Guðrúnu allra heilla á þessum
degi og biðjum henni Guðs bless-
unar til framtíðar, sem við vonum
að gefist henni björt og hlý.
E.S.
NOKKUR áhugi er fyrir því að
framkvamidur verði fornleifa-
gröftur í grunni gömiu Reykja-
vikurkirkju við Aðalstræti og
útlínur gömlu kirkjunnar
hlaðnar upp. Reifaði séra Þórir
Stephensen þessa hugmynd í
útvarpsprédikun á sunnudag
og var í framhaldi af því fjallað
um málið hér í Morgunhl. á
þriðjudag. í því skyni að kanna
málið nánar hafði Mbl. sam-
band við Þór Magnússon. þjóð-
minjavörð. og var hann spurður
hvort Þjoðminjasafnið hefði
áhuga fyrir þessari fram-
kva'md.
„Já, við höfum vissulega mik-
inn áhuga fyrir að þarna verði
gerður fornleifagröftur og það er
mjög skemmtileg hugmynd að
útlínur kirkjunnar verði hlaðnar
upp,“ sagði Þór. „Það hafa sem
kunnugt er farið fram nokkrar
fornleifarannsóknir á gamla
Reykjavíkur-bæjarstæðinu við
Aðalstræti og einmitt verið tal-
að um að æskilegt yrði að síðasti
áfangi þeirra rannsókna væri að
framkvæma rannsókn á gamla
kirkjugrunninum við Aðal-
stræti.
Fyrsta kirkjan sem reist var
þarna hefur trúlega verið meðal
fyrstu kirkna hérlendis en þarna
stóð kirkja allt til ársins 1796 en
þá var reist kirkja á sunnanverð-
um Austurvelli og var það elsta
mynd núverandi dómkirkju.
Ég held að það standi ekkert
sérstakt í vegi fyrir þessari
hugmynd nema það vantar fjár-
magn og mannskap til að fram-
kvæma þetta, — og svo þyrfti
náttúrulega að gera miklar
breytingar á skipulaginu þarna
ef það ætti að hlaða útlínur
kirkjunnar upp. Rannsókn á
þessum kirkjugrunni er mjög
merkilegt verkefni því það er
ekki mikið vitað um kirkjur hér
á íslandi fyrr á öldum og lítið
verið gert af rannsóknum á
gömlum kirkjugrunnum. Ef
sæmileg mynd fengist af
grunnfleti kirkjunnar þá væri
hægt að sjá greinilega hversu
stór hún hefði verið og hvernig í
laginu — það gæti komið mjög
Þór Magnússon, þjóðminjavorð-
ur.
vel út að hlaða útlínur hennar
upp.
Mér finnst þessi hugmynd
semsé mjög athyglisverð og
sjálfsagt að taka hana til athug-
unar. Ég á hins vegar ekki von á
að það verði farið í þetta verk-
efni næstu árin en þarna verður
örugglega einhvern tíma fram-
kvæmdur fornleifarannsókn —
það liggur alveg beint við þar
sem rannsókn á þessum kirkj-
ugrunn yrði örugglega mjög
merkilegt framlag til byggðas-
ögu Reykjavíkur," sagði Þór
Magnússon að lokum.
Afmæli:
Kristján Þorvalds-
son stórkaupmaður
Einn af góðborgurum Reykja-
víkur, Kristján Þorvaldsson, er
sextugur í dag, 30. maí.
Kristján hefur rekið fyrirtæki
sitt, Kr. Þorvaldsson & Co, af
alkunnum dugnaði um áratugi, og
nýtur mikils trausts viðskipta-
manna sinna.
Hann hefur m.a. verið vara-
formaður Félags ísl. stórkaup-
manna og formaður Lions-klúbbs-
ins Baldurs, sem eins og kunnugt
er hefur unnið mikið að líknar-
málum.
Heimili Kristjáns og eiginkonu
hans, Guðnýjar Eyjólfsdóttur, ber
fagurt vitni hinum listræna áhuga
þeirra. Hjálpsemi hans og dreng-
lyndi er mörgum kunn.
Við vinir hans samfögnum hon-
um og fjölskyldu hans á þessum
merkisdegi.
Á.K.
Kristján og Guðný dveljast um
þossar mundir hjá dúttur sinni
og tengdasyni i Handarikjunum.
og er heimilisfang þeirra:
C/o Ásgeir Theódórs. MD,
3802 Freemont Rd..
South Euclid.
Cleveland,
11121 Ohio. USA
ÍSLANDSMÓTIÐ 1.DEILD - ÁFRAM FRAM!
Laugardalsvöllur kl. 14
Fyrsti leikur sumarsins á Laugardalsvelli.
Fram - Þór, Akureyri
VALINN VERÐUR LEIKMAÐUR LEIKSINS