Morgunblaðið - 30.05.1981, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1981
37
fclk í JéÉ
fréttum L.
„P-2“-maður
+ betta er ítalski dómsmálaráft-
herrann Adolfo Sarti. sem sat?ði
af sér á dögunum í sambandi við
mesta hneykslismál, sem upp
hefur komist um þar syðra, frá
því að lýðra“ðið var endurreist
þar í landi að heimstyrjöldinni
lokinni. Tentcist þetta stórmál
stúku einni innan frímúrarareKl-
unnar. en stúkan heitir „P-2“.
Eru retduhræður i stúkunni
sagðir m.a. hafa haft uppi ráða-
gerðir um stórpólitiskar aðgerð-
ir. sem hefðu geta orðið lýðræð-
inu i landinu ha’ttulegar.
Hefur listi með nöfnum rúm-
lega 950 „P-2-manna" verið birt-
ur opinberlexa. Er þar að finna
nöfn ráðherra og þinnmanna.
dómara. ok yfirmanna i her og
löKreKlu ok ráðamanna i banka-
kerfi landsins. ásamt blaða-
mönnum.
Fyrsti fundurinn
+ Hér heilsast þeir í fyrsta skipti, eftir þjóðarleiðtogaskiptin í
Frakklandi, Francois Mitterrand Frakklandsforseti og Helmut
Schmidt kanslari Vestur-Þýskalands. — Fundur þeirra fór fram í
frönsku forsetahöllinni í París, Elysee-höll, á sunnudaginn var.
Stóð sá fundur yfir í þrjá og hálfa klukkustund. — Schmidt kom til
Parísar beint frá Washington, þar sem hann átti fundi með
Bandaríkjaforseta og öðrum frammámönnum þar vestra. Kanslar-
inn sagði að vinátta Þýskalands og Frakklands væri ekki aðeins
bundin þeim persónulega heldur væri vinátta þjóðanna orðin að
óhagganlegri staðreynd.
78 ára
boxari!
+ Ymsir töldu sig sjá hylla undir
meiriháttar íþróttaviðburð vest-
ur í Ameríku um daginn. Þá
setti 78 ára gamall maður (til
hægri) upp boxhanskana, vatt
sér inn í hringinn og virtist
albúinn að berjast við sjálfan
heimsmeistarann í veltivigt,
Sugar Ray Leonard. — Gamli
„boxarinn" reyndist vera gam-
anleikarinn bandaríski Bob
Hope. Hér var um að ræða
upptöku fyrir sjónvarpsþátt. —
Andlit dómarans sem sést á
milli boxaranna, er andlit kvik-
myndaleikarans Mickey Roon-
eys!
+ Þessi mynd er frá fundi í
Lions-klúbbi sem starfar í stór-
borginni Chicago og heitir Park
Ridge-klúbburinn. Er myndin
tekin er forsetar klúbbsins,
heiðruðu forstöðumann Flug-
leiðaskrifstofunnar í borginni,
Tom Loughery (á miðri mynd-
inni). Klúbbforsetarnir eru:
Denis Owens, fráfarandi for-
maður, til hægri og Dave Mast,
nýkjörinn formaður (til vinstri).
Var Loughery þakkað fyrir ára-
langt starf í þágu Miðvesturbúa
að gefa þeim kost á góðri og
ódýrari ferðaþjónustu yfir Atl-
antshafið og fyrir framlag hans
til bættra alþjóðlegra sam-
skipta. Tom Loughery, Flug-
leiðamanninum, var afhent skjal
þessu öllu til staðfestingar, þann
sama dag og Flugleiðir tóku
aftur upp ferðir sínar til Chi-
cago-borgar frá Luxemborg í
maíbyrjun.
Smávörur
í bílaútgerðina
09 ferðalagið!
-sækjum við í bensínstöðvar ESSO
• Viltu líta út eins og Tarzan eöa Bo Derek, eða viltu
bara losna viö umframþungann? Þaö er sama hvaða
markmiö þú hefur, við hjálpum þér til að ná þeim í
Apolló.
• Við lofum ekki árangri á örskömmum tíma. Viö
höldum því ekki heldur fram aö þaö sé sérstaklega
auðvelt að ná góðum árangri. Við leggjum áherzlu á
varanlegan og heilbrigöan árangur og einnig þaö aö
þú hafir nokkra ánægju af öllu saman.
• Við bjóöum frábæra aðstööu til líkamsræktar í
sérhæfðum tækjum. Leiöbeinendur eru ávallt til
staöar og reiöubúnir til aö semja æfingaáætlun, sem
er sérsniðin fyrir þig. Á eftir æfingu slappar þú af í
gufubaöi og hvílir þig í aðlaöandi setustofu.
Opnunartímar í júní:
Konur: Karlar:
Mánud. 8.30-12.00 Mánud. 12.00-22.30
þriöjud. 8.30-22.30 miðvikud. 12.00-22.30
miövikud . 8.30-12.30 föstud. 12.00-22.30
fimmtud. 8.30-22.30 sunnud. 10.00-15.00
föstud. 8.30-12.00
laugard. 10.00-15.00
Komutími á æfingar er frjáls.
Nýjung!
Fyrsta sólin veröur tekin í notkun hjá okkur um
mánaðamótín. Þaö er ný gerö sóla hérlendis —
hreinleg og fljótvirk.
— Pantiö tíma.
Nú nærö árangri í Apolló.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU