Morgunblaðið - 30.05.1981, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
Nei, nei, þú truflar mi>{ ekki neitt!
TM R©g u S Pat Ott all MQhts roserved
• 1970 Los Angetes T»mes Syndicato
ást er...
... að hjálpa henni
að lesa undir loka-
prófið.
Ef eldur brýst út, miilvið rúft-
una inn!
míns. sem væru þa-r opin biik,
en ég hef meiri ánægju af
eldhúsreyfurum!
HÖGNI HREKKVtSI
„Þ£TTA ER KIRKJUM05 / “
Eina skrauífjtiðiir í
íjaðralaiisan hatt
Vesturbæingur skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Svo er mál með vexti, að ég hef
nýverið tekið til við heilsurækt
skv. læknisráði og iðka ég sund.
Vegna búsetu minnar sæki ég
Vesturbæjarlaugina og get ég ekki
nógsamlega dásamað laugina og
heitu pottana.
ísköld gusa eða brennheit
En það er annað, sem ég get
ekki borið lof á, en það er sú
aðstaða sem boðið er upp á í
sturtuklefum laugarinnar. Tvennt
vil ég nefna: í fyrsta lagi er ekki
hægt að fá samræmdan hita á
sturturnar. Maður stendur
kannski í makindum undir nota-
legri bununni, þegar konunni í
næstu sturtu dettur í hug að
breyta hitanum sín megin. Hellist
þá yfir mann ísköld gusan eða
brennheit, allt eftir því hvort
frúin hefur aukið heita eða kalda
rennslið hjá sér.
Ná mér ekki nema
tæplega í öxl
í öðru lagi vil ég nefna að
sturtur þessar eru allt of lágar. Ég
er meðalkona á vöxt, en það eru
einugis þrjár sturtur nægjanlega
háar fyrir mig í klefanum. Hinar
allar ná mér ekki nema tæplega í
öxl. Höfum við konurnar rætt
þetta okkar í milli og erum
sammála um að ástand þetta sé
óforsvaranlegt. Það er ekki hægt
að skola almennilega á sér hárið
undir sturtunni og maður fer
einnig á mis við þá hollustu að
láta snarpheitt vatnið lemjast á
axlir og háls.
Ekki mun af veita
Með tilliti til að ekki er langt til
borgarstjórnarkosninga trúi ég
ekki öðru en núverandi borgar-
stjórnarmeirihluti muni fúslega
fá sér eina skrautfjöður í fjaðra-
lausan hatt sinn og láta lagfæra
þetta smáræði, sem snertir svo
marga borgara Reykjavíkur. Ekki
mun af veita fyrir alla aðila.
Með von um jákvæðar undir-
tektir.“
bessi mynd var tekin í íyrravetur þegar nokkrir Gaflarar voru að
blóta þorra i heitu pottunum í SundhöII Hafnarfjarðar.
Þessir hringdu .. .
Talandi skáld
Þórunn Kristinsdóttir
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Eg las í Morgunblaðinu
á þriðjudaginn um hann Símon
Dalaskáld; það var kynning á
útvarpsþætti sem fluttur var
þann sama dag kl. 11. Mig
langar til að segja þér frá því, að
einu sinni kom Símon þessi á
bæ, þar sem ég var seinna í sveit
og gætti barna. Þetta var á
Heiði í Holtum í Holtahreppi.
Símon Dalaskáld.
Þar bjuggu þrjár miðaldra syst-
ur með öldruðum föður sínum
og þóttu fremur ólaglegar. Sím-
on kastaði fram þessari vísu,
svona í gamni og kannski af
stríðni líka:
Systur þrjár á Heiði hér
hreinar í fegurð glóa.
Jómfrú hverja játum vér,
Jónína, Björg og Gróa.
Símon var ákaflega fljótur að
yrkja, bókstaflega talandi skáld.
Sundhöllinni
lokað þegar
síst skyldi
Hafnfirðingur hringdi og
sagði: — Það er kurr í okkur
fastagestum Sundhallarinnar
hér í Firðinum. Við erum alveg
undrandi á því að loka eigi eina
sundstaðnum hér í bæ frá miðj-
um júlí til ágústloka, á besta
tíma sumarsins, eða þegar síst
skyldi. Sundhöllin nýtur geysi-
legra vinsælda og er til dæmis
mikið sótt af gigtarsjúklingum,
sem eiga allt sitt undir heitu
pottunum. Er ekki að efa að
margur þeirra mun sakna þess
að geta ekki liðkað sig þar fyrir
daginn.
Ekki veit ég um þær
ástæður sem að baki liggja hjá
forsvarsmönnum Sundhallar-
innar, nema verið sé að horfa í
það að borga sumarfólki.