Morgunblaðið - 30.05.1981, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
I0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Aldrei fyrirgal Stal-
ín 77 sinnun 7 sinnum
Húsmóðir skrifar:
„í öllu því mikla áróðursmold-
viðri sem búið er að þyrla upp til
styrktar helstefnu Karls Marx,
finnst mér þó fráleitast þegar
kommúnistar eru að nudda sér
utan í Krist, eins og í kvæðinu
stendur. Fyrirgefningarboðskapur
Krists á ekkert skyit við kúgun-
arstefnu Marx. Til að byrja með
sagði Karl Marx sjálfur, að kristin
trú væri bara deyfilyf ágjarnra
atvinnurekenda til þess að sætta
fátækan almúgann við knöpp kjör
sín. Hefur sósíalisminn í Rúss-
landi nokkurn tíma boðið upp á þá
kenningu að vera við aðra eins og
hann vill að aðrir séu við sig? Og
aldrei fyrirgaf Stalín, besti fram-
kvæmdastjóri Marx, 77 sinnum 7
sinnum.
Þekkti sovét-
kerfið betur
Fyrsta vinstri stjórn á íslandi
hafði svo mikið við Kremlherrana,
að hún bauð hingað þáverandi
menntamálaráðherra Sovétríkj-
anna, félaga Fúrtsevu. Hún þekkti
betur sovétkerfið en þessar friðar-
nefndarkonur. Þegar þær hafa
„Kristindómurinn ósamrýman-
legur kommúnismanum.“
gleypt í sig veislumatinn sem
borinn er á borð fyrir útlend-
ingana, á kostnað alþýðunnar,
borga þær fyrir sig með yfirlýs-
ingum um blessun skipulagsins
fyrir almúgann, sem býr við skort
og sífellda hræðslu við að fara
einhvern tíma á ævinni í fanga-
búðir. Fúrtseva sagði hér, að
kristindómurinn væri ósamrým-
anlegur kommúnismanum.
Eina leikritið um
þrælabúðalífið
Það þurfti nú ekki að segja
manni það, þó að maður hefði
bara verið fermdur upp á Faðir-
vorið. Þessir trúboðar heimsvalda-
stefnu Rússlands ættu að lenda í
því, að stjórnvöld í hinum frjálsa
heimi tæki af þeim ferðafrelsið,
eins og gert er í kommúnistaríkj-
um, og segðu þeim í staðinn að
fræðast um Rússland með því að
lesa bækur þeirra rithöfunda, sem
hafa þurft að hrökklast undan
kúguninni og leita á náðir NATO-
ríkja og vita svo um alla hina, sem
heima kveljast á geðveikrahælum
eða í fangabúðum. Leikarar hafa
gott af því að lesa leikrit Solzhen-
itsyns um þetta efni; það er eina
leikritið í veröldinni sem skrifað
hefur verið um þrælabúðalífið, og
það þekkir hann af eigin reynslu."
Opið bréf til Renn-
arasambands íslands
Grettisgötu 39,115, Reykjavik
Oddur A. Sigurjónsson.
Hólagötu 24, Vestm., skrifar:
„Gömlu starfssystkin.
Eftirfarandi bréf, dags. 2/5
1981 barst mér í pósti þ. 20.
maí. „Orlofsheimilanefnd
Kennarasambands íslands
hefur lokið störfum. Umsóknir
reyndust nærri tvisvar sinn-
um fleiri en þær vikur, sem
voru til ráðstöfunar.
Starfsaldur var látinn ráða
um úthlutun að öðru jöfnu.
Því miður var ekki hægt að
gefa þér kost á húsi nú, en falli
einhver frá umsókn sinni, sem
hefur fengið úthlutun, kemur
þín umsókn til greina eins og
annarra.
Með félagskveðju
orlofsheimilanefnd KÍ.“
Tilefni þessa furðulega
bréfs var umsókn mín um
vikudvöl í orlofshúsi KÍ 3.—10.
júlí þ-á.
Ég verð að líta svo á, að svar
orlofsheimilanefndar þarfnist
ýmissa skýringa: Um starfs-
aldur minn er það að segja, að
frá og með 1937 og til 31/8
1974 var ég við skólastjórn í
samfelldu starfi. Þá hafði ég
starfað þrem árum lengur en
þurfti, til þess að komast á full
eftirlaun. Síðar var ég í hálfu
starfi við skóla eitt ár, er ég
varð að láta af störfum, vegna
heilsubrests.
Nú óska ég eindregið eftir
því að fá undanbragða- og
refjalaust svör við eftirfar-
andi sþurningum:
1. Hve margir voru umsækj-
endur um orlofshús nú með
hærri, eða jafnan starfsald-
ur og ég?
2. Hvað þýðir klausan „að
öðru jöfnu“ í greininni um
starfsaldur. Á að skilja það
svo, að þar séu menn flokk-
aðir eftir einhverjum verð-
leikum?
3. Finnst ekki nefndinni það
einstök náð, að falli ein-
hver, sem hefur verið í
II.G. skrifar:
„Velvakandi!
Mig langar til að leggja nokkur
orð í belg varðandi bílbeltaum-
ræðurnar sem átt hafa sér stað
hér í blaðinu undanfarið, með því
að varpa fram eftirfarandi spurn-
náðinni um úthlutun nú,
komi mín umsókn til greina
eins og annarra!?
4. Hverskonar afgreiðsla er
það bréf þurfi 18 daga til að
berast frá Rvík til Vest-
mannaeyja (gerum ráð fyr-
ir að dagsetning sé óföls-
uð)?
Ósk mín er, að svarað sé
opinberlega, til að hreinsa
burtu þokuna, sem mér finnst
grúfa hér yfir.
Með kveðjum.“
ingu til Inga Bergmanns og
áhangenda hans: Hvaða skýring
er á þeirri staðreynd að í öllum
þeim löndum, þar sem notkun
bílbelta hefur verið lögleidd, hefur
dauðaslysum fækkað um 30—70%
— ef bílbeltin eru ekki skýringin?"
Hver er þá skýringin?
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgefélag
Skagfirðinga
Jón Hermannsson
— Ragnar Hansen 127
Guðmundur Eiríksson
— Sverrir Kristinsson 126
Oli Andreasen
— Sigrún Pétursdóttir 122
Erlendur Björgvinsson
— Sveinn Sveinsson 113
Meðalskor 108
Þetta var síðasta spilakvöld í
vetur.
Bridgedeild
Skagfirðinga
Einn 16 para riðill. Úrslit urðu
þessi:
Stig
Bjarni Pétursson —
Ragnar Björnsson 259
Kristinn Gústafsson —
Þorsteinn Þórðarson 246
Baldur Árnason —
Jón Stefánsson 243
Kristinn Sigurðsson —
Sigmar Jónsson 236
Guðrún Hinriksd. —
Haukur Hannesson 232
Jón Hermannsson —
Ragnar Hansen 225
Erlendur Björgvinsson —
Sveinn Sveinsson 225
Meðalskor 210
Næst verður spilaður
tvímenningur 26. maí kl. 19.30 í
Drangey.
Bridgedeild
Breiðfirðings
Urslit í einmenningskeppn-
inni:
Stig
Guðjón Kristjánsson 314
Benedikt Björnsson 296
Ellert Ólafsson 293
Þorvaldur Matthíasson 286
Sigríður Karvelsdóttir 285
Þórarinn Árnason 284
Þórarinn Alexandersson 280
Gróa Guðnadóttir 269
Meðalskor y270
Einnig var spilaður tvímenn-
ingur í einum 12 para riðli.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Stig
Erla Eyjólfsd. —
Gunnar Þorkelsson 186
Jóhann Jóhannsson —
Kristján Sigurgeirsson 182
Birgir Sigurðsson —
Sveinn Helgason 177
Elín Jónsdóttir —
Sigrún Ólafsdóttir 175
Ása Jóhannsdóttir —
Sigríður Pálsdóttir 173
Meðalskor 165
'Spilamennsku er nú lokið hjá
Bridgedeild Breiðfirðinga.
Útboð
Patrekshreppur óskar eftir tilboöum í smíöi grunn-
skóla á Patreksfiröi. Húsiö er steinsteypt á tveimur
hæöum. Grunnflötur þess er 720 ferm. og rúmmál
5780 rúmmetrar.
Útboðiö miöast við aö gera húsiö fokhelt. Útboös-
gögn veröa afhent á Verkfræöistofu Stefáns Ólafs-
sonar hf., Borgartúni 20, Reykjavík og á skrifstofu
Patrekshrepps, Aöalstræti 63, Patreksfirði frá og
meö föstudeginum 29. maí nk.
Tilboöin veröa opnuð á Verkfræöistofu Stefáns
Ólafssonar hf. 16. júní 1981 kl. 11.00.
Við flytjum
lögmannsstofu okkar frá Laufásvegi 12.
Frá 1. júní 1981 veröur skrifstofa okkur aö Lágmúla
7, V. hæö.
Símanúmer breytast einnig og verða:
82622 (3 línur)
Guömundur Ingvi Sigurösson hrl.
Jónas A. Aöalsteinsson hrl.
Sveinn Snorrason hrl.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
VI GLVSING A
SÍMINN ER:
22480