Morgunblaðið - 30.05.1981, Side 43

Morgunblaðið - 30.05.1981, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. MAÍ1981 43 Enn sigra Teitur og félagar - Öster vann áttunda leikinn í röö ÖSTER vann áttunda leik sinn í röð i saensku deildarkeppninni í knattspyrnu i fvrrakvöld. en þá mætti liðið Malmö FF á útiyclli. Lokatölur urðu 1—0 fyrir Öster ojí er veljrenKni liðsins um þessar mundir með hreinum ólíkindum. I>á var íslendinKaslaKur þar sem ÖrKryte ok AIK áttust við á heimavelii fyrrnefnda liðsins. Ok Örn laKði Ilörð að velli. lokatöl- urnar 3—1 ÖrKryte í haK. Crslit leikja urðu sem hér seKÍr: EINS OG fram hefur komið i fréttum. fóru tveir fimleikapiltar frá íslandi ásamt þjálfara ok fararstjóra á Norðurlandameist- aramót í IlelsinKÍors. Þeir sem fóru. eru þessir: Heimir Gunn- arsson. Davíð InKason. Guðni SÍKÍússon. þjálfari. Jóhann Þor- valdsson, fararstjóri FSÍ. Einnig kom til Helsingfors Jón- as Tryggvason fimleikamaður, sem átti að keppa á Norðurlanda- meistaramótinu, en varð að hætta við keppni vegna meiðsla í baki. Ragnheiður RAGNIIEIÐUR Ólafsdóttir úr FII tók þátt í 800 ok 3.000 metra hlaupum á frjálsíþróttamótum í V-Þýzkalandi um síðustu heÍKÍ, ok sýndi þar að hún er i KÓðri æfingu ok til alls líkleK á hlaupa- hrautinni í sumar. Ragnheiður hljóp 800 metra hlaupið létt og lipurt á 2:08,7 mínútum, aðeins sekúndu frá sínu bezta, sem gefur von um góðan árangur, því hún er á þungu prógrammi enn sem komið er, þar sem miðað er við að ná sem beztum árangri í júlí og ágúst. Daginn eftir hljóp Ragnheiður Frestað AF óviðráðanlegum ástæðum hef- ur öðrum hluta Meistaramóts Íslands í frjálsiþróttum verið frestað um nokkra daga. Verður keppt í 4x800 metra hoðhlaupi karla ok 3.000 metra hlaupi kvenna þriðjudaginn 2. júní næstkomandi ok 10.000 metra hlaupi karla niiðvikudaginn 3: júní. Keppt verður á I.augardals- vellinum, og hefst keppni kl. 19.30 báða dagana. A-keppnin í körfu: Sigur hjá Vestur-Þjóöverjum A-KEPPNIN í körfuknattleik er fyrir nokkru hafin í Tékkóslóv- akíu ok hefur Mbl. haft spurnir af tveimur fyrstu leikjunum. Vestur-Þjt»ðverjar sigruðu Tyrki G6—51 í Havirov, en í Bratislava sÍKruðu ísraelsmenn Englend- inKa 82—71. Þar voru islensku landsliðsmennirnir i knatt- spyrnu meðal áhorfenda. 12 þjóðir eiga lið í keppninni, en undanrásir fara fram í Havirov og Bratislava. Úrslitaleikirnir fara síðan fram í Prag í næstu viku. Brage — Atvidaberg 2—0 Djurgarden — Elfsborg 1—2 Halmstad — Sundsvall 1—0 Kalmar — Hammarby 5—1 Malmö FF — Öster 0—1 Norrköping — Gautaborg 1—0 Örgryte — AIK 3—1 Öster hefur nú 16 stig, en næsta lið, Norrköping, hefur 12 stig. Síðan kemur Sundsvall með 10 stig og Atvidaberg og Brage hafa 9 stig hvort félag. Örgryte og AIK hafa bæði 8 stig eftir 8 umferðir. Jónas er við nám í íþróttafræðum í Moskvu, og hélt hann þangað á ný frá Helsingfors. Heimir og Davíð bættu árangur sinn um mörg stig, frá því sem var á íslandsmeistaramóti ’81, þótt þeir væru í neðstu sætum NM-keppninnar. Eftir að keppni lauk, gafst þeim kostur á að æfa með finnsku fimleikafólki nokkra tíma og var það bæðilærdómsríkt og ánægjulegt. Við áttum kost á að skoða nokkrar íþróttahallir, þar sem öll áhöld fyrir fimleika- fólk eru tilbúin til notkunar þegar fimleikafólkið kemur til æfinga. Davíð Ingason fór frá Helsing- fors til Þýskalands og mun dvelja þar í mánaðartíma við æfingar. Hinir komu heim þrem dögum eftir keppni. á réttri leið 3.000 metra hlaup á 9:40,7 mínút- um, sem einnig er hennar lang- bezta, og jafnframt næstbezti ár- angur sem Islenzk kona nær frá upphafi. Aðeins Lilja Guðmunds- dóttir ÍR hefur náð betri árangri í 3.000 metra hlaupi, 9:36,0 mín. Lilja á einnig íslandsmetið í 800 metra hlaupi, 2:06,2 mínútur. Jóná 8:20,2 JÓN Diðriksson UMSB hljóp 3.000 metra hlaup á 8:20,2 minút- um á frjálsíþróttamóti í V-Þýzka- landi um helgina. Jón leiddi allt hlaupið en undir lokin sprettu einhverjir Þjóðverjar fram úr honum. Jón á íslandsmetið í þessari grein. og er það 8:09,2 mínútur. Jón hefur að undanförnu verið á þungu æfingaprÓKrammi, ok því ef til vill ekki í sem beztu keppnisformi um þessar mundir, en þess má vænta af honum í sumar, að hann verði sterkari en áður. ok því viðbúið að einhver íslandsmetin i milliveKalengdum og langhlaupum falli. HEIL UMFERÐ er á daKskrá í 2. deild fslandsmótsins i knattspyrnu um hclgina. Leikirnir i daK hefjast allir klukkan 14.00. í BorKarnesi eiKast við Skalla-Grimur oK Haukar, i Kefiavik lið ÍBK oK VöisunKa ok á Neskaupstað • Alan Kennedy hampar Evr- ópubikarnum eftir að mark hans hafði fært Liverpool bikarinn i þriðja skiptið á fimm árum. Liverpool siKraði Real Madrid 1 —0 í París. 1978 siKraði liðið FC BruKKe 1—0 á Wembley oK árið áður sigraði liðið Borussia MönchenKladbach 3—1 í Róm. Millivegalengdarhlauparinn Jón Diðriksson er í góðri æfingu um þessar mundir. lið Þróttar oK ÍBÍ. Annað kvöld klukkan 20.00 mætast á Selfossi lið heima- manna og Reynis frá Sand- gerði og á mánudagskvöldið eigast við Þróttur og Fylkir á Melavellinum. Hefst leikur þeirra klukkan 20.00. Heimir og Davíö bættu árangur sinn Heil umferð í 2. deild á dagskrá Jíu stórtitlar a sjö arum! ÞEGAR Liverpool vann Evrópu- bikarinn eftir úrslitaleik gegn Real Madrid i fyrradag, var það tíundi meiri háttar bikarinn sem liðið hreppir undir stjórn Boh Paisley. en hann tók við stjórn- inni hjá Liverpool árið 1974. Nánar tiltekið. hefur félagið unn- ið Evrópuhikarinn þrivegis. ensku meistaratignina fjórum sinnum. UEFA-bikarinn, „Super Cup" kcppnina og deildarbikar- inn. Fimm leikmenn liðsins hafa leikið í öllum Evrópuhikarleikj- unum. Ray Clemence, Phil Neal. Ray Kennedy. Terry McDermott og Jim Case. En Ray Kenndy á örugglega metið í herbúðunum, því hann hafði unnið slatta af verðlaunum með Arsenal áður en hann gekk til liðs við Liverpool. Kennedy hefur unn- ið 12 titla á ferli sínum, fimm enska meistaratitla, þrjá Evrópu- bikartitla og fleira, svo sem UEFA-bikar titil. Saunders hafði ekki áhuga á United! RON Saunders, framkvæmda- stjóri ensku meistaranna hjá Aston Villa. var í gær boðið að taka við liði Manchester Utd., sem rak á dögunum stjóra sinn Dave Sexton. En Saunders sagði nei takk og er hann þar með þriðji maðurinn sem neitar til- boði frá United eftir brottrekstur Sexton. Engin furða. United-liðið er frægt orðið fyrir meðferðina á stjórum sinum. Áður höfðu Lawrie McMenemy hjá South- ampton og Bobby Robson hjá Ipswich neitað að fara til United. Talið er að félaKið muni fara næst á fjörurnar við Ron Atkin- son hjá WBA. Takist félaginu ekki að narra hann yfir til sín, hefur heyrst að gamla kcmpan Tommy Docherty sé í sigtinu. en hann þjálfar í Ástralíu um þessar mundir. Alkmaar sigraði tvöfalt AZ ’67 ALKMAAR varð hollcnsk- ur bikarmeistari í knattspyrnu í fyrrakvöld, er liðið sigraði Ajax na sta auðveldlega í úrslitaleik að viðst(>ddum 40.000 áhorfendum. Þar með sigraði Alkmaar tvöfalt í Hollandi, hafði áður unnið deildarkeppnina með miklum yf- irburðum. Og liðið lék einnig til úrslita um UEFA-bikarinn. en tapaði þar geKn Ipswich. Alkmaar hafði yfirburði í fyrri hálfleik, en tókst þó aðeins að skora einu sinni, það gerði Pier Tol á 24. mínútu eftir góða send- ingu frá Kristen Nygaard. Ajax sótti í sig veðrið framan af síðari hálfleik og tókst loks að jafna á 53. mínútu, er Gerard Vanenburg skoraði, Aðeins fimm mínútum síðar hafði Alkmaar náð foryst- unni á nýjan leik, Ronald Spelbos skoraði, og Kristen Nygaard inn- siglaði sigurinn með góðu marki á 74. mínútu. Fjórir leikir í 1. deild um helgina FJÓRIR leikir eru á dagskrá í 1. dcild íslandsmótsins i knattspyrnu um helgina, þrir í dag, en einn á morgun. Rétt er að taka fram strax, að loksins, loksins, verður leikið á grasi. Fram og Þór mætast á Laug- ardalsvellinum í dag klukkan 14.00 og á sama tíma hefst í Vestmannaeyjum viðureign ÍBV og KR. Klukkan 16.00 í dag hefst hins vegar leikur UBK og ÍA á Laugardalsvell- inum. Annað kvöld klukkan 20.00 eigast síðan við Valur og Víkingur á Laugardalsvelli. Haukar halda upp á fimmtugsafmælið Knattspyrnufélagið Haukar i Ilafnarfirði varð 50 ára 12. aprii siðastliðinn. Af því tilefni verður mót- taka fyrir Haukafélaga og gesti í Haukahúsinu við Platahraun laugardaginn 30. mai frá klukkan 15.00 til 18.00. Þar fara fram heiðr- anir og ávörp og á boðstól- um verða veitingar sem Haukakonur munu sjá um. Afmælishóf yngri félaga verður haldið á sama stað, föstudaginn 5. júní, þar verð- ur meðal skemmtiatriða, dans, tískusýning og fleira. í tilefni afmæjisins verður efnt til sögusýningar Hauka í félagsheimilinu og verður hún opnuð að afmælishófinu loknu. Stendur hún í eina viku. Efnt verður til margs konar íþróttamóta og kapp- leikja á árinu, en nýlokið er knattspyrnumóti í yngri flokkunum með þátttöku fjölda félaga á Faxaflóasvæð- inu. Formlegur vígsluleikur grasvallarins á Hvaleyrar- holti verður í sumar og verð- ur sérstaklega til hans vand- að.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.