Morgunblaðið - 11.06.1981, Síða 1
48 SÍÐUR
128. tbl. 68. árjj.
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fjórir menn fórust með TF-ROM á Arnarvatnsheiði
Flak TF-ROM fannst um kvöldmatarleytið í gærkvöldi á ís á vatni á I vélinni. Myndin var tekin á slysstað í gærkvöldi. er menn frá Loftferðaeftiriitinu
Arnarvatnsheiði; í austurátt frá Fornahvammi. Félagar úr Flugbjörgunarsveitinni I voru þangað komnir með TF-RÁN, þyrlu Landhelgisgæzlunnar. Sjá frétt á baksíðu.
fóru á slysstað i gærkvöldi til að sækja iík mannanna f jögurra, sem fórust með | Ljósmynd MorKunblaðiA.
Atkvæðagreiðslum um
traustsyf irlýsingar hafnað
Varsjá. 10. júní. AP.
MIÐSTJÓRN pólska
kommúnistaflokksins
hafnaði í kvöld að greiða
atkvæði um traustsyfirlýs-
ingu á framkvæmdanefnd
flokksins, sem skipuð er
11 mönnum. Stanislaw
Kania flokksleiðtogi lagði
til á miðstjórnarfundi að
greidd yrðu atkvæði um
traustsyfirlýsingu á hvern
framkvæmdanefndar-
Bani-Sadr
settur af
Nikósiu. 10. júni. AP.
UIN OPINBERA fréttastofa íran
skýrði frá þvi i dag, að Abolhass-
an Bani-Sadr forseti hefði verið
sviptur starfi forseta herráðsins,
að kröfu Khomeinis erkiklerks.
Skömmu fyrir þessa tilkynningu
tiikynnti herráðið, að Khomeini
hefði tekið við æðstu stjórn land-,
sjó- og loftherja landsins.
mann, og að þeir segðu af
sér er ekki hlytu stuðning
50 af hundraði miðstjórn-
armanna, sem eru 140 tals-
ins.
Ekki var skýrt frá því með hve
miklum mun tillagan var felld.
Framkvæmdanefndin óskaði
eftir atkvæðagreiðslu um
traustsyfirlýsingu eftir að harð-
línumenn í miðstjórninni kröfð-
ust þess að Kania yrði settur af,
ásamt nokkrum öðrum
áhrifamönnum.
Á miðstjórnarfundinum lýstu
ýmsir fulltrúar trausti við Kania
og Wojciech Jaruzelski forsætis-
ráðherra. Urðu miklar umræður
um forystuna og mönnum heitt í
hamsi, en sú skoðun helzt ríkj-
andi, að flokksþingið í næsta
mánuði ætti frekar að skera úr
um ágæti flokksforystunnar, því
þar yrðu fleiri fulltrúar er endur-
spegluðu betur viðhorf þjóðarinn-
ar til forystunnar. Við umræð-
urnar kom í ljós að hörð átök eiga
sér stað um völd í flokknum.
Háttsettir embættismenn vör-
uðu við því að afstaða miðstjórn-
arinnar til atkvæðagreiðslunnar
yrði skoðuð sem traust við Kania
og félaga hans, þótt líf flokksfor-
ystunnar hefði verið framlengt
með þessu móti.
Tadeuz Grabski fulltrúi í fram-
kvæmdanefnd flokksins lýsti því
yfir við umræður í dag, að
nefndin væri ófær um að leiða
þjóðina út úr þeim ógöngum sem
hún væri í, meðan Kania stýrði
störfum hennar.
Aðrir harðlínumenn stöppuðu
fótum og gripu frammí fyrir
ræðumönnum er héldu uppi vörn-
um fyrir Kania, einkum er Miecz-
yslaw Rakowski aðstoðarforsæt-
isráðherra taiaði.
Boðað var til fundarins vegna
viðvörunarbréfs frá Rússum, þar
sem því var m.a. haldið fram, að
„andbyltingaröfl“ réðu ferðinni
innan Samstöðu og að tilveru
Póllands væri ógnað af þeim
sökum. Víða í ríkjum hins vest-
ræna heims voru í dag látnar í
ljósi áhyggjur af þróun mála í
Póllandi síðustu daga og viðvör-
unarbréfi Rússa.
Stanislaw Kania aðalritari pólska
kommúnistafiokksins flytur ra'ðu
á fundi miðstjórnar flokksins.
sem stóð yfir í Varsjá í gær og
fyrradag. Simamynd AP.
Hætta við að selja
ísraelum þotur
WashinKton, 10. júní. AP.
BANDARÍKJASTJÓRN hefur
hætt við sölu á fjórum háþróuð-
um orrustuþotum til Israels
vegna árásarinnar á kjarnorku-
verið í írak, sem yfirvöld í Hvita
húsinu segja hafa brotið í bága
við samkomulag rikjanna frá
1952 um vopnakaup.
I bréfi sem Alexander Haig
utanríkisráðherra reit Charles
Percy formanni utanríkisnefndar
Öldungadeildarinnar, og birt var í
kvöld, segir ráðherra „að meiri-
háttar brot hafi að öllum líkindum
verið framið á samkomulaginu frá
1952“, og að vopnasölumálin séu
nú í „gagngerri" endurskoðun.
Talsmaður Hvíta hússins, Larry
Speakes, sagði að Ronald Reagan
forseti væri persónulega sam-
þykkur hljóðan bréfsins.
Haig sagði í bréfinu, að gengið
yrði vandlega úr skugga um hvort
þær skýringar ísraela að árásin
hefði verið gerð í sjálfsvörn, væru
réttlætanlegar.
Sjá nánar frétt á bls. 26 og
fréttir á bls. 22—23.