Morgunblaðið - 11.06.1981, Page 12

Morgunblaðið - 11.06.1981, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981 Áróðursspjald úr síðustu kosnintfum þar sem höfðað er til ættjarðarástar Schmidt ræðir við Rea«an: Hvers vegna Schmidt á í erfiðleikum ÁÐUR en Ilelmut Schmidt kanzlari fór í heimsókn sina til WashinKton á döKunum hótaði hann tvíveKÍs að sejfja af sér ef flokkur hans, Sósialdemókrata- flokkurinn (SDP) styddi ekki þá stefnu hans að leyfa stað- setninjfu 572 PershinK II ok stýriseídflauKa. Um leið kvaðst hann mundu „standa eða falla" með áranKri i viðræðum Banda- rikjamanna ok Rússa um eld- flauKatakmarkanir i Evrópu. Kanzlarinn sá sig fljótt um hönd þegar hann sá að pólitískt líf hans yrði í höndum banda- rískra og sovézkra samninga- manna ef hótunin yrði tekin alvarlega og fékk talsmann sinn til að túlka hótunina þannig að hann hefði viljað knýja fram árangur í viðræðunum. Þegar Schmidt kom til Wash- ington sagði hann að hótunin hefði verið til þess ætluð að hræða vinstrisinna í flokknum til hlýðni. Árangurinn varð líka sá að þingmenn SDP þorðu ekki að greiða atkvæði gegn tillögu stjórnarinnar um staðsetningu eldflauganna, og aðeins sex vinstrisinnar í flokknum greiddu atkvæði gegn henni en fjórir sátu hjá. Tillagan fékk 20 at- kvæða meirihluta, en nokkrir þeirra sem greiddu henni at- kvæði lýstu efasemdum sinum vegna staðsetningar eldflaug- anna og umræður um hættu á nýju vígbúnaðarkapphlaupi og takmörkuðu kjarnorkustríði í Vestur-Evrópu munu halda áfram í Vestur-Þýzkalandi. Schmidt fór til Washington til að tryggja sér stuðning Banda- rikjamanna i kjölfar dvínandi vinsælda, aukinna efnahagserf- iðleika og ósigurs Valery Gis- card d’Estaings í frönsku for- setakosningunum, náins sam- herja hans um árabil í málefn- um Evrópu. Reagan kom eins mikið til móts við Schmidt og hann gat til að verða honum að liði. Báðir lögðu áherzlu á ein- drægni, ekki sízt í yfirlýsingum um varkárni gagnvart Rússum. Schmidt benti einkum á gífur- legan vígbúnað Rússa og íhlutun þeirra i Afghanistan. Schmidt lét aðallega í ljós áhyggjur vegna þess að honum fannst Reagan-stjórnin hafa í frammi of mikið vopnaskak gagnvart Rússum. Kanzlarinn hefur í vaxandi mæli gagnrýnt útþenslustefnu Rússa á síðustu mánuðum, en óttast að Banda- ríkin reyni ekki nógu mikið til þess að hefja viðræður við Rússa og draga þannig úr spennu austurs og vesturs. Hann vildi fá vissu fyrir því að stefna Banda- ríkjamanna gagnvart Rússum mótaðist ekki eingöngu af fjand- skap. Kanzlarinn kvartaði líka yfir áhrifum efnahagsstefnu Banda- ríkjanna í Vestur-Evrópu. Hann taldi Bandaríkin ýta undir of háa vexti er leiddi til verðhækk- unar dollarans og hækkunar á verði vestur-þýzks innflutnings. Hann spáði því að efnahags- stefna nýkjörins forseta Frakk- lands, Francois Mitterands, mundi fljótlega valda vandamál- um. En hann lagði áherzlu á að bjóða yrði hinn nýja leiðtoga Frakka velkominn í bandalag vestrænna ríkja og kom við í París á heimleiðinni, eins og hann lagði sjálfur til, til að færa Mitterand kveðjur frá Reagan. Schmidt varð gramur þegar talið barst að vaxandi friðar- stefnu í Vestur-Evrópu. Hann benti á að svipaðra tilhneiginga hefði áður gætt í Bandaríkjun- um sjálfum, en Evrópa hefði aldrei látið deigan síga í stuðn- ingi sínum við Atlantshafs- bandalagið. Schmidt benti Reag- an á að herskráning væri ekki lengur við lýði í Bandaríkjunum eins og í Vestur-Þýzkalandi og því væri meiri hætta á unglinga- mótmælum í Bandaríkjunum en í Vestur-Þýzkalandi. I skálaræðum lá við að Schmidt bæri Reagan oflofi, er hann talaði um sjálfstraust og öryggi bandaríska forsetans. Þegar hann gaf þinginu skýrslu um ferðina eftir heimkomuna var þingmönnum skemmt þegar hann lýsti viðhafnarveizlu í Hvíta húsinu og margir gripu fram í fyrir honum eins og skólapiltar í kennslustund. Helmut Kohl, leiðtogi stjórnar- andstöðunnar, lét þess getið að hann skildi vel að kanzlaranum fyndist það mikill heiður að sitja slíka veizlu og sagði að kanzlar- inn hefði átt það skilið að lyfta sér upp eftir allt erfiðið í ferðinni. Engin áþreifanleg ákvörðun var tekin á fundunum, en báðir leiðtogarnir töldu þennan fyrsta opinbera fund sinn árangursrík- an. Schmidt vonaði að hann gæti afstýrt sams konar kala og kom upp milli hans og Jimmy Carter og komið á góðu sambandi við Reagan, sem vildi greinilega svara í sömu mynt. Öllum ber saman um að vel hafi farið á með þeim. Schmidt gegnir mikilvægara hlutverki en ella í augum Banda- ríkjamanna vegna sigurs Mitter- ands, sem er ennþá óþekkt stærð í Washington og vegna aukinna pólitískra erfiðleika Margaret Thatchers í Bretlandi, en auk þess er Vestur-Þýzkaland mesta herveldi Vestur-Evrópu og burð- arás varna meginlandsins. Þar að auki telja margir bandarískir ráðamenn að þrátt fyrir mót- mæli Schmidts gangi alda frið- arhyggju yfir Vestur-Evrópu. Tímabili Schmidts og Giscards er lokið í stjórnmálum Evrópu. Þeir hafa í sameiningu ráðið mestu í málefnum álfunnar með- an bandarískir forsetar og evr- ópskar rikisstjórnir hafa komið og farið. Forsendurnar fyrir samstarfinu voru raunar brostn- ar áður en Giscard tapaði í kosningunum. Ástæðan fyrir velgengni þeirra var veik forysta Bandaríkjamanna, efnahags- vandi Breta, efnahagsvelgengni Vestur-Þjóðverja og sjálfstæði Frakka án De Gaulles. Heim- sókn Schmidts til Washington undirstrikaði þær breytingar sem hafa orðið síðan samvinna hans og Giscards var upp á sitt bezta. Heimsóknin virðist hafa treyst stöðu Schmidts heima fyrir, en hann er samt mjög aðþrengdur. Það er ekki aðeins kjarnorkumálið sem hefur vald- ið Schmidt erfiðleikum. Þótt Vestur-Þjóðverjar standi ennþá traustari fótum efnahagslega en aðrar þjóðir Evrópu, sýnir efna- hagur þeirra veikleikamerki og talið er að hagvöxtur verði enginn á þessu ári. Atvinnuleysi hefur aukizt úr 825.000 í 1,1 milljón á síðustu tólf mánuðum og verðbólgan nemur 6%, sem er lítið á vestrænan mælikvarða, en mikið á vestur-þýzkan. Fylgi kanzlarans samkvæmt skoðana- könnunum hefur minnkað úr 62% í fyrra í 41,5% á þessu ári og er minna en það fylgi sem Willy Brandt naut áður en hann lagði niður völd 1974. Vegna vaxandi gagnrýni vinstri armsins í kjarnorkumál- inu er mesta vandaverk Schmidts að halda ríkisstjórn- inni saman. Schmidt varaði við því nýlega á flokksfundi í Bæj- aralandi að ef innbyrðis illdeil- um linnti ekki kynni flokkur frjálsra demókrata (FDP) að segja sig úr stjórninni og ganga í lið með kristilegum demókrötum þannig að stjórnin mundi hrökklast frá völdum. Þótt stefna Schmidts í eldflaugamál- inu væri samþykkt með miklum meirihluta á flokksþinginu mun málið halda áfram að valda klofningi í flokknum og ógna tilveru samsteypustjórnar kanzlarans í marga mánuði. Næsta þing Sósíaldemókrata- flokksins verður í Múnchen í apríl á næsta ári og það getur skipt sköpum. Þing FDP var nýlega haldið í Köln og þótt það ætti upphaflega að fjalla um umhverfismál og eiturlyfjaneyzlu voru aðalmál þingsins hvernig koma ætti í veg fyrir kjarnorkustríð, fjármagna fjárlög næsta árs (velferðarríkið er á heljarþröm) og bjarga flokknum úr alvarlegum ógöng- um eftir kosningarnar í Berlín fyrir skömmu. FDP í Berlín hefur neitað að styðja minni- hlutastjórn kristilegra demó- krata, sem skortir aðeins tvö sæti í borgarstjórn til að hafa meirihluta. Vinstrisinnaðir um- hverfisverndarmenn, sem buðu fram svokallaða „valkostalista", neita að vinna með gömlu flokk- unum. FDP endurskoðar nú hlutverk sitt sem oddaaðila í vestur-þýzkum stjórnmálum í ljósi kosningaloforða. Niðurstaðan getur orðið sú að FDP ákveði að styðja kristilega demókrata í Berlín og halda öllum leiðum opnum að öðru leyti. En flokkurinn getur átt það á hættu með hvers konar stefnubreytingu að fá ekki þá fimm af hundraði atkvæða sem tryggir honum rétt til að eiga fulltrúa á þingi. Stjórnarsam- vinna SDP og FDP hefur greini- lega orðið fyrir auknu álagi og framtíð stjórnarsamvinnunnar er óviss.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.