Morgunblaðið - 11.06.1981, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ1981
Filipus
prins
sextugur
Ivondon. 10. júni. AP.
FILIPUS prins eigininaAiir
BretadrottninKar varð sextUK-
ur i gær. Ilann lét það ekki á
sík fá, en eyddi deKÍnum líkt ok
öðrum döKum ársins. Ilann sat
fund KununKÍeKa landhúnaðar-
félaKsins í Bath, en hann er
forseti þess. Kona hans tók á
móti landstjóra Ástralíu i Buck-
inKham-höli ok börnin fóru sinu
fram. Fréttir hermdu, að kátt
yrði i hóllinni þeKar liða tæki á
kvöldið ok önnum daKsins lok-
ið.
Brezk blöð hafa gert mikið úr
afmæli hertogans af Edinborg.
Mörgum Bretum þykir hann
helzt til opinskár og aðeins 25%
þeirra, sem tóku þátt í skoðana-
könnun nýlega, nefndu hann sem
vinsælasta meðlim konungs-
fjölskyldunnar. Hann hefur í
fleiru að snúast en nokkur annar
meðlimur fjölskyldunnar og
varð td. nýlega kjörinn forseti
„World Wildlife Fund“.
Filipus er einkasonur And-
rews Grikklandsprins. Hann var
borinn á borðstofuborði á eyj-
unni Korfu, af því lækninum á
Afmælismynd af Filipusi prins,
hertoga af Edinborg.
staðnum þótti það betur sam-
boðið móður hans, Alice prins-
essu af Battenburg, en rúmið í
svefnherberginu. Foreldrar hans
slitu samvistum, þegar hann var
11 ára, og hann stundaði nám í
Bretlandi og Skotlandi. Hann
varð brezkur þegn 28. febrúar
1947, níu mánuðum áður en hann
gekk að eiga krónprinsessu
Stóra-Bretlands, Elísabetu.
Tilræðismaður páfans
æfður í herbúðum PLO
WashinKton. 10. júlí. AP.
UNGI TYRKINN Mehmet Ali
Agca, sem er sakaður um tilraun
til að ráða Jóhannes Pál páfa II
af dögum, var þjálfaður í palest-
inskri herstöð i Sýrlandi að sögn
handariskra og erlcndra dipló-
mata i dag.
Með þessari uppljóstrun er
Agca í fyrsta skipti bendlaður við
Palestínumenn, þótt vitað væri að
hann héldi því fram eftir handtök-
una að hann hefði samúð með
„palestínskum víkingasveitum".
Samkvæmt heimildunum var
Agca þjálfaður í Hamuriyya-
herbúðunum, sem reknar eru af
Al-Saiqa, hreyfingu sem Sýrlend-
ingar ráða yfir og klauf sig úr
Frelsissamtökum Palestínu
(PLO). Samkvæmt erlendum
heimildum hlaut Agca einnig
þjálfun í PLO-herstöðinni Al-
Hilal í Líbýu.
„Við vitum ekki hvort þeir sögðu
honum að fara og skjóta páfann,"
sagði starfsmaður bandaríska
utanríkisráðuneytisins. „En svona
manngerð er þjálfuð í þessum
búðum.“
Bandaríkjastjórn hefur lýst því
yfir að Sýrlendingar og Líbýu-
menn styðji hryðjuverk og geti því
ekki fengið bandarísk vopn. Ron-
ald Reagan forseti hefur opinber-
lega fordæmt PLO fyrir að vera
hryðjuverkasamtök.
Sérfræðingar bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins í hryðjuverkum
hafa vitað um nokkurt skeið að
tyrkneskir öfgasinnar fái þjálfun í
búðum PLO í Líbanon. Þeir halda
því fram að Rússar, sem Reagan
og Alexander M. Haig utanríkis-
ráðherra hafa sakað um að ýta
undir hryðjuverk, útvegi palest-
ínskum hryðjuverkamönnum
hergögn og veiti þeim þjálfun.
Síðan 1978 munu um 200 Tyrkir
hafa verið þjálfaðirá ári í Baalbec
og öðrum búðum PLO í Líbanon og
síðan hefur þeim verið smyglað
inn í Tyrkland um Sýrland. Marg-
ir þeirra eru sagðir félagar í
neðanjarðar-hreyfingunni Asala,
eða Leynihernum til frelsunar
Armeníu.
Ákærður fyrir
tilræðið í Genf
Dauðarefsingar lagðar
til í Bandaríska þinginu
W'ashinKton. PaintHVÍIIo. 10. júni. — AP.
DÓMSMÁLANEFND bandaríska
þingsins samþykkti með 13 at-
kvæðum gegn 5 á þriðjudag
tillögu um að taka á ný upp
dauðarefsingu i Bandarikjunum
við alvarlegri glæpum. Liklegt
Skotbardagi
í Alþýðuhöll
Nýju Delhi. 10. júní. AP.
SKOTBARDAGI brauzt út milli
andstæðra fylkinga úr stjórnar-
flokki marxista i Afghanistan i
„Alþýðuhöllinni“ i Kabul i siðustu
viku að sögn vestrænna diplómata
í dag.
Að minnsta kosti einn maður
beið bana, ef til vill lífvörður
Babrak Karmal forseta, samkvæmt
heimildunum. Til harðra átaka
hefur komið öðru hverju í Alþýðu-
höllinni milli afghanskra leiðtoga,
til dæmis þegar Karmal og fyrir-
rennarar hans brutust til valda.
Karmal kann að hafa farið í
ókunngerða ferð til Moskvu í síðari
hluta síðari viku að sögn diplóm-
ata, líklega til að hvetja sovézka
leiðtoga til að binda endi á vær-
ingar Parcham-arms stjórnar-
flokksins undir forystu Karmals og
Khalq-armsins.
þykir að öldungadeild þingsins
samþykki tillöguna, en langar
umræður verða væntanlega um
hana í fulltrúadeildinni.
Tillagan um dauðarefsingu var
samin til að koma til móts við
reglur Hæstaréttar um borgara-
réttindi glæpamanna. Hreyfingar,
sem láta borgararéttindi til sín
taka í Bandaríkjunum, segja, að
tillagan brjóti í bága við stjórn-
arskrána, og hún kynni að verða
dæmd ólögleg fyrir dómsstólum,
þótt þingið samþykki hana.
Lögin myndu leyfa dauðarefs-
ingu við njósnum og landráðum,
við sprengiefnaflutningum yfir
ríkjamæri, mannránum, flugrán-
um og tilraunum til að drepa
forseta landsins.
19 ára maður, sem hefur viður-
kennt að hafa myrt leigubílsstjóra
og þjáist af taugasiggi, fór fram á
dauðarefsingu í Kentucky á þriðju-
dag. Lögfræðingur hans sagði, að
Charles Miracle vildi fremja
sjálfsmorð og láta „ríkið hleypa af
byssunni" fyrir sig. Lögfræðingur-
inn var þó hlynntur bón Miracles
og sækjandi einnig, en hann sagði
að Miracle ætti langa sakasögu og
hefði hótað að myrða klefafélaga
sinn í fangelsinu.
Ekki var vitað á þriðjudag, hvort
Miracle fengi ósk sína uppfyllta. í
Kentucky þarf kviðdómur að fara
fram á dauðarefsingu eða hinn
dæmdi getur gefið upp réttindi sín
og leyft dómara að ákveða refs-
ingu.
Genf. 10. júni. AP.
UNGUR maður, sem kveðst
vera 22 ára en lítur út fyrir að
vera ynKri, var ákærður i dag
fyrir morðið á tyrkneska
stjórnarerindrekanum í mið-
borg Genfar í gær.
Armenski leyniherinn lýsti sig
ábyrgan fyrir morðárásinni á
Mehmet Yergoz, sem var starfs-
maður tyrknesku ræðis-
mannsskrifstofunnar. Hann er
18. Tyrkinn sem grunaðir, arm-
enskir hryðjuverkamenn hafa
vegið síðan 1973.
„Þið munuð heyra meira frá
okkur mjög fljótlega, í heimin-
um og Sviss," sagði maður sem
hringdi í fréttastofuna AFP í
París.
Tilræðismaðurinn kvaðst hafa
myrt Yergoz til að hefna morða
á 1,5 milljónum Armena í fyrri
heimsstyrjöldinni. Hann segist
vera Armeni og talar armensku,
ensku og dálítið í frönsku.
Lögreglan trúir ekki öllu sem
tilræðismaðurinn segir. Talið er
að hann hafi verið einn að verki.
Eigandi Times
hótar stöðvun
I»ndon. 10. júni. AP.
FRAMTÍÐ The Times og Sunday
Times er aftur i óvissu þar sem
hinn nýi eigandi blaðanna, Rupert
Murdoch. hefur hótað að hætta
útgáfu þeirra ef vinnsla Sunday
Times verður trufluð með verk-
fallsaðgerðum um næstu helgi.
Um 400.000 eintök síðasta tölu-
blaðs Sunday Times munu hafa
farið forgörðum þegar 300 prentar-
ar lögðu niður vinnu vegna launa-
deilu.
Murdoch sagði á fundi stjórnar
fyrirtækisins að ef aftur kæmi til
vinnustöðvunar mundi hann loka
báðum blöðunum, Gerald Long,
framkvæmdastjóri, hefur sagt á
fundi með leiðtogum grafíska
sveinafélagsins aö hann vilji að
deilan verði leyst meðan unnið sé
með fullum afköstum.
Lettar dæmdir
fyrir njósnir
Moskvu. 10. júnf. AP. Bumeister fékk 15 ára fangelsi
TVEIR LETTAR hafa verið og Lismanis 10 ára fangelsi.
dæmdir í 10 og 15 ára fangelsi
Jóhannes Páll páfi II blessar mannfjöldann á Péturstorginu sl.
sunnudag úr glugga ibúðar sinnar. Þetta var i fyrsta sinn sem páfi
kom fram npinberlega frá þvi reynt var að myrða hann 13. mai sl.
fyrir njósnastarfsemi sam-
kvæmt sovézkum blaðafrcttum.
Annar Lettinn er ákærður
fyrir að hafa staðið í sambandi
við útsendara CIA er hafi verið í
ferðum milli Svíþjóðar og Lett-
lands.
Blaðið „Sovetskaya Latvia"
segir að sakborningarnir, „land-
ráðamennirnir Y. K. Bumeister
og D. A. Lismanis", hafi „stund-
að njósnir og sent erlendum
leyniþjónustustofnunum upp-
lýsingar af hernaðarlegu, póli-
tísku og efnahagslegu tagi.“
Báðir mennirnir eru sagðir
hafa játað sekt sína í réttar-
höldum 25. maí til 5. júní.
Kosið á
írlandi
Dublin. 10. júni. AP.
SÍÐUSTU skoðanakannanir
fyrir kosningarnar á írlandi,
sem fara fram á fimmtudag,
sýndu, að baráttan milli
flokka Charles llaughcys for-
sætisráðherra, Fianna fail, og
kosninKabandalags stjórnar-
andstöðuflokkanna, Fine k»c1
og Verkamannaflokksins. er
mjöK hörð. Fianna fail hlaut
44% fylKÍs í könnuninni en
kosningabandalaKÍð 43%.
Óháðir kunna þvi að lenda i
oddastöðu eftir kosningarnar.
Fianna fail hefur setið í
stjórn í 39 ár af síðustu 49
árum. Þetta er fyrsta kosn-
ingabarátta Haugheys sem
formanns flokksins. Flokkur-
inn hefur nú 17 þingsæta
meirihluta, en búist er við, að
hann missi 15—16 þeirra í
kosningunum. Fine gael og
Verkamannaflokkurinn unnu
saman í stjórn 1973—1977 og
ætla að endurtaka það, ef þeir
hljóta meirihluta í kosningun-
um.
íriand á við mikil efnahags-
vandræði að etja, atvinnuleysi
er meira en í nokkru öðru
aðildarlandi Efnahagsbanda-
lagsins og glæpum hefur fjölg-
að mjög undanfarið. Deilurnar
í Norður-írlandi hafa ekki haft
mikið áhrif á kosningabarátt-
una, en meðal frambjóðenda til
þings eru 9 dæmdir hryðju-
verkamenn, sem sitja í fangels-
um í Norður-írlandi. 4 þeirra
eru í hungurverkfalli og mót-
mæla stefnu Haugheys, sem er,
að líta á hryðjuverkamenn sem
venjulega glæpamenn en ekki
pólitíska fanga.
Systur stóðu
að íkveikjunni
Aþenu. 10. júni. AP.
TVÆR SYSTUR, 20 og 23 ára,
hafa gefið sig fram við lögreglu
vegna eldsvoða i tveimur stór-
verzlunum í Aþenu i siðustu viku
og verið ákærðar fyrir íkveikju.
Systurnar, Evangelia og Aikat-
erini Tsangaraki, voru einnig
ákærðar fyrir þátttöku í ónafn-
greindum hryðjuverkasamtökum
og fyrir ólöglega framleiðslu og
dreifingu sprengiefnis. Karlmaður
hefur einnig verið ákærður að
honum fjarstöddum.
Engin skýring hefur fengizt á
ástæðunum fyrir hinum grunaða
verknaði. Faðir systranna segir að
þær hafi „lent í slæmum félags-
skap“.